Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 153. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 28. janúar 1999

338/1998

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Ara Þorsteinssyni (Kristján Stefánsson hrl) og Franklín Kristni Steiner (Jón Magnússon hrl)

A var ákærður fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi í máli ákæruvaldsins gegn F. Talið var að vitnaskylda hefði verið kynnt fyrir A með fullnægjandi hætti er hann gaf skýrsluna fyrir dómnum. Var talið sannað að A hefði brotið gegn 1. mgr. 142. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ekki var talið skipta máli um refsinæmi verknaðarins að hann hafði ekki leitt til rangrar úrlausnar í viðkomandi máli. Þá var það eigi talið hafa áhrif á niðurstöðu málsins að A tók með gerðum sínum á sig sakir annars manns. Var A dæmdur til fangelsisrefsingar. F var ákærður fyrir hlutdeild með því að hafa hvatt A til hins ranga framburðar. Ekki þótti alveg nægilega sannað, gegn eindreginni neitun beggja ákærðu, að háttsemi F hefði verið með þeim hætti sem um ræðir í 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var F því sýknaður. Ekki þóttu efni til að vísa málinu frá Hæstarétti.