Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi, Birna Kristín Einarsdóttir sýslumannsfulltrúi)
gegn
Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (
Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)
A var sakfelld fyrir að hafa í tvígang ekið svipt ökurétti og að hafa í bæði skiptin í blekkingarskyni framvísað ökuskírteini þrátt fyrir að vera svipt ökuréttindum. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var A dæmd til að greiða sekt og var svipt ökurétti.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stæði, sbr. c. lið 1. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Kristni Jósef Grímssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
K játaði að hafa í nokkur skipti stolið vörum úr verslun í Reykjavík. Héraðsdómur taldi að K hefði með brotum sínum rofið skilorð dóms frá 2. júní 1999. Var átta mánaða skilorðsbundið fangelsi samkvæmt þeim dómi dæmt með og K gerð tólf mánaða fangelsisrefsing í einu lagi. Fyrir Hæstarétti krafðist K þess að ekki yrði hróflað við skilorði dómsins frá 1999 þar sem hann hefði ekki verið viðstaddur uppsögu dómsins og því væru ekki uppfyllt skilyrði 4. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga um að dómari skuli kynna dómfellda rækilega skilyrði fyrir frestun refsingar og gera honum ljósar afleiðingar skilorðsrofa. Í dómi Hæstaréttar segir að umræddur dómur hafi verið birtur fyrir K áður en hann hafi framið brot þau, sem hann sé nú sakfelldur fyrir. Sú birting hafi farið fram fyrir gildistöku laga nr. 39/2000 um breyting á almennum hegningarlögum. Ekkert sé fram komið um að birtingunni hafi verið áfátt. Af hálfu K sé ekki haldið fram að hann hafi ekki verið kvaddur til að vera viðstaddur uppsögu umrædds dóms. K verði því sjálfur að bera ábyrgð á því að dómara málsins hafi ekki verið unnt að brýna fyrir honum þau atriði, sem áður sé getið. Var héraðsdómur staðfestur.