Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 114. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Stefndu voru sýknaðir af kröfum stefnanda um ógildingu áminningar og kröfu um miskabætur. Varakröfu vísað frá dómi.
X, Y og Z voru kærðar fyrir meint húsbrot og eignaspjöll. Í kjölfar rannsóknar var þeim tilkynnt með bréfum 23. september 2004 að rannsókn væri lokið og að rannsóknargögn gæfu ekki tilefni til frekari aðgerða og málið væri fellt niður. Kæranda var sent bréf þann sama dag þar sem honum var tilkynnt um niðurfellingu málsins og vakin athygli á rétti hans til að bera ákvörðun um niðurfellingu undir ríkissaksóknara innan mánaðar, sbr. 2. mgr. 114. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þann 26. október 2004 barst ríkssaksóknara bréf frá kæranda og gaf embættið í kjölfarið fyrirmæli um saksókn í málinu, sem leiddi til útgáfu ákæru á hendur X, Y og Z. Fallist var á það með héraðsdómara að þegar ríkissaksóknara barst kæran hafi verið liðinn sá mánaðar frestur sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 114. gr. laga nr. 19/1991 og því hafi ríkissaksóknara ekki verið rétt að hlutast til um útgáfu ákæru eins og gert var. Málinu var því að vísað frá héraðsdómi.