Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingar á lögum nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu. nr. 150/2001

Hæstiréttur birt 1. júní 2010

252/2010

A, B, C, D (Páll Arnór Pálsson hrl) og E (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn F (Dögg Pálsdóttir hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Kærumál. Dánarbússkipti. Frávísun máls frá héraðsdómi. A o.fl. kærðu úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum þeirra um að F yrði gert að greiða dánarbúi G tilteknar fjárhæðir. Í málinu voru hafðar uppi kröfur á hendur einum af erfingjum við skipti á dánarbúi. Dánarbúið var ekki aðili að málinu en það sótt af öðrum erfingjum, sem ekki voru samstíga í kröfugerð sinni og án þess að séð yrði að aðild þeirra gæti helgast af 3. mgr. 68. gr. laga nr. 20/1991. Talið var að með slík ágreiningsefni yrði ekki farið fyrir héraðsdóm samkvæmt 122. gr. laga nr. 20/1991. Heimild væri hins vegar í 1. mgr. 124. gr. laganna til að skiptastjóri gæti krafist úrlausnar héraðsdóms um slíkar kröfur dánarbúsins. Væri þess vegna ekki hjá því komist að vísa málinu frá héraðsdómi.