Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 15/1998 — Lög um dómstóla

Hæstiréttur birt 25. ágúst 2014

419/2014

Fjordblink, Swimming, Pools og AS (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Ólafi Jóhannssyni og Vilberg heildverslun ehf (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

F kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli félagsins gegn Ó og V var vísað frá dómi á þeirri forsendu að málið hefði verið höfðað á röngu varnarþingi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ákvæði 1. og 3. mgr. 36. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sem hefðu að geyma heimild til að víkja frá grunnreglum 32. og 33. gr. sömu laga um að mál verði höfðað á heimilisvarnarþingi stefnda, yrði að skýra samkvæmt orðanna hljóðan. Var fallist á það með héraðsdómi að F hefði ekki sýnt fram á að skilyrðum ákvæðanna væri fullnægt í málinu og hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 21. desember 2009

147/2009

Félag íslenskra náttúrufræðinga (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

F krafðist viðurkenningar á því að þeir félagsmenn hans, sem störfuðu á L og unnu með hreinræktir smitefna og/eða eiturefni, ættu rétt á eins launaflokks hækkunar samkvæmt gildandi stofnanasamningi aðila og fylgiskjala með honum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála tækju þau lög til dómsmála, sem hvorki sættu sérstakri meðferð eftir ákvæðum annarra laga né ættu undir sérdómstóla lögum samkvæmt. Samkvæmt 3. tl. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna ætti ágreiningur um skilning á kjarasamningi eða gildi hans undir Félagsdóm. Málið varðaði skýringu á stofnanasamningi, sem samkvæmt 1. gr. hans væri hluti kjarasamningsins, sbr. 11. kafla kjarasamningsins, og umrædd fylgiskjöl í málinu væru hluti af stofnanasamningnum. Að þessu virtu þótti ágreiningsefnið heyra undir valdsvið Félagsdóms og var málinu því vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 30. október 2002

464/2002

Sjómannasamband Íslands (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn Landssambandi íslenskra útvegsmanna (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)

Með úrskurði gerðardóms sem starfaði á grundvelli laga nr. 34/2001 um kjaramál fiskimanna og fleira, var breytt kjarasamningum „milli Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna (L)“. SÍ höfðaði af þessu tilefni mál á hendur L og krafðist þess að dæmt yrði að tiltekin ákvæði í úrskurði gerðardómsins væru óskuldbindandi fyrir sig og félagsmenn sína og hefðu ekki áhrif á kjarasamning milli sín og L. Af hálfu L var þess krafist að málinu yrði vísað frá dómi og féllst héraðdómari á þá kröfu. Hæstiréttur taldi SÍ geta stutt heimild sína til að sækja málið við 3. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála. Í dómi réttarins kemur fram að enda þótt SA fari með umboð frá L til að gera kjarasamninga verði málinu ekki vísað frá á þeim grundvelli að nauðsyn sé á samaðild með L og SA, sbr. 2. mgr. 18. gr. sömu laga. Þá verði ekki fallist á að mál um kröfu SÍ eigi undir Félagsdóm og verði málinu því ekki vísað frá héraðsdómi af þeirri ástæðu. Samkvæmt því var lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Hæstiréttur birt 21. febrúar 2000

48/2000

Samtök atvinnulífsins (Jakob R. Möller hrl) gegn Verkalýðs-, sjómannafélagi, Álftfirðinga, Verkalýðsfélaginu Baldri, Aðalheiði Steinsdóttur, Jóni Helga Gíslasyni, Sigríði Bragadóttur, Trausta Magnúsi Ágústssyni, Veturliða Arnari Gunnarssyni (Björn Lárus Bergsson hrl) og Valsteini Heiðari Guðbrandssyni (Guðni Ásþór Haraldsson hrl)

Kærumál. Félagsdómur. Dómstólar. Kröfugerð. Samlagsaðild. Kröfusamlag. Vanreifun. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Gjafsókn. Samtök atvinnulífsins (SA) stefndu tveimur verkalýðsfélögum og nokkrum einstaklingum til greiðslu skaðabóta vegna tjóns, sem SA töldu stefndu hafa valdið með ólögmætum hætti við verkfallsvörslu. Hafði SA fengið kröfurnar framseldar frá félagsmanni sínum. Héraðsdómur vísaði málinu frá á þeirri forsendu að sakarefnið ætti undir Félagsdóm. Þar sem ekki var ágreiningur um lögmæti þess verkfalls sem stóð yfir í umrætt sinn þótti sérákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur um verkefni Félagsdóms ekki eiga við heldur ætti málið undir hina almennu dómstóla. Ekki þóttu aðrir gallar á málatilbúnaði SA eiga að leiða til frávísunar og var frávísunarúrskurðurinn því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 23. ágúst 1999

270/1999

Vélstjórafélag Íslands (Einar Gautur Steingrímsson hdl) gegn Reykjavíkurborg (Hjörleifur Kvaran hrl)

Talið var að kröfur verkalýðsfélagsins V í máli, sem það hafði höfðað gegn R, ættu undir Félagsdóm eftir reglum 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Með vísan til 2. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála var staðfestur úrskurður héraðsdómara um að vísa máli V frá héraðsdómi.