Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um fjársýsluskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum um tryggingagjald. nr. 141/2020

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2025

E-169/2025

PEGA ehf (Kristinn Jónasson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Í málinu var krafist ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra þar sem stefnanda var synjað um skráningu á virðisaukaskattsskrá. Það var niðurstaða dómsins að hafna kröfunni þar sem ekki voru taldir annmarkar á úrskurðinum sem varðað gætu ógildingu hans. Túlkun ríkisskattstjóra og beiting hans á viðeigandi réttarheimildum var talin hafa verið í fullu samræmi við staðfesta skattframkvæmd og fordæmi dómstóla í sambærilegum málum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. desember 2023

E-3278/2023

Adomat & Heidenblut M 1 ehf (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Í málinu var krafist ógildingar á úrskurðum ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar en stefnanda hafði verið synjað um skráningu á virðisaukaskattsskrá og launagreiðendaskrá. Stefnandi hafði eftir breytingu á starfsemi sinni fengið skráningu samþykkta áður en málið var höfðað og varðaði ágreiningur málsins réttarstöðu stefnanda á tilteknu liðnu tímabili. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda.

Landsréttur birt 25. október 2023

676/2023

Adomat & Heidenblut M 1 ehf (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A ehf. gegn Í var vísað frá dómi. Fyrir héraðsdómi gerði A ehf. þá kröfu að úrskurður ríkisskattstjóra frá 3. maí 2022 um að hafna beiðni hans 22. júní 2021 um skráningu á virðisaukaskattskrá og launagreiðendaskrá yrði ógiltur. Þá krafðist A ehf. þess að úrskurður yfirskattanefndar 22. mars 2023 í máli nr. 39/2023, þar sem staðfest var niðurstaða ríkisskattstjóra um höfnun á skráningu sóknaraðila á virðisaukaskattskrá, yrði ógiltur með dómi. Með hinum kærða úrskurði var málinu vísað frá dómi án kröfu á grundvelli þess að A ehf. skorti lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um kröfur sínar. Vísaði héraðsdómur til þess að A ehf. hefði áður en málið var höfðað öðlast rétt til skráningar og verið skráður bæði á skrá um virðisaukaskattskylda aðila og á launagreiðendaskrá frá og með 1. apríl 2022. Þá hefði A ehf. jafnframt fengið leiðréttingu virðisaukaskatts fyrir það tímabil sem málið snerist um. Í úrskurði Landsréttar var vísað til þess að A ehf. kynni að öðlast rétt til frekari greiðslna í formi innskatts ef úrskurður yfirskattanefndar yrði felldur úr gildi. Í ljósi þess yrði að telja að A ehf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um þá kröfu sína að úrskurður yfirskattanefndar í máli hans 22. mars 2023 yrði ógiltur. Þá yrði að telja að A ehf. hefði jafnframt sjálfstæða og lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um þá kröfu sína að úrskurður ríkisskattstjóra 3. maí 2022 yrði ógiltur með dómi að því leyti sem úrskurðurinn laut að synjun á beiðni A ehf. 22. júní 2021 um skráningu á launagreiðendaskrá. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.