Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 5. gr. laga nr. 138/1997 — Lög um húsaleigubætur

Hæstiréttur birt 16. júní 2016

728/2015

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn A (Daníel Isebarn Ágústsson hrl)

Í málinu krafðist A ógildingar á ákvörðun R um synjun á beiðni hennar um sérstakar húsaleigubætur. Fyrir lá að A leigði íbúð af Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins, en samkvæmt 3. gr. reglna R um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík var ekki unnt að fá slíkar bætur nema umsækjandi leigði húsnæði á almennum leigumarkaði eða væri í leiguíbúð á vegum Félagsbústaða hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar væri R heimilt að setja almennar reglur um félagslegar íbúðir og sérstakar húsaleigubætur að því tilskildu að þær brytu ekki í bága við ákvæði laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur eða önnur viðeigandi lagaákvæði, þar á meðal 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Sú skylda hvíldi á R sem sveitarfélagi að gæta þess við afgreiðslu á umsókn A um sérstakar húsaleigubætur að ekki væri á hana hallað í samanburði við aðra íbúa sveitarfélagsins sem nytu þeirra bóta, en meðal þeirra væru leigjendur hjá Félagsbústöðum hf. sem byggju óumdeilanlega við hliðstætt húsnæðisöryggi og A. Hefði R því ekki fullnægt þessari skyldu sinni á viðhlítandi hátt. Var ákvörðun R felld úr gildi.