Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 10. gr. laga nr. 121/1994 — Lög um neytendalán

Hæstiréttur birt 26. júní 2018

636/2017

Guðmundur Þór Pétursson og Harpa Guðmundsdóttir (Tómas Jónsson lögmaður) gegn Arion banka hf (Sigurður Guðmundsson lögmaður)

Aðilar deildu um hvernig haga skyldi vaxtaútreikningi á lánssamningi sem var bundinn ólögmætri gengistryggingu. G og H kröfðust viðurkenningar á því að árleg hlutfallstala kostnaðar 3,95% í greiðsluáætlun sem gerð var samhliða veðskuldabréfinu skyldi halda gildi sínu fram að endurútreikningi lánsins hjá A hf. Var sýknukrafa A hf. reist á því að um útreikning vaxta skyldi fara samkvæmt bráðabirgðaákvæði X við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu þannig að um uppgjör skuldbindingarinnar færi eftir því sem greindi í 18. gr. laganna. Með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 327/2013 taldi Hæstiréttur að bein og órjúfanleg tengsl hefðu verið milli gengisbreytingarinnar og þeirra vaxta sem vísað var til í lánssamningnum. Samkvæmt því hefði ákvæði hans um vexti verið ógilt í skilningi 1. mgr. 18. gr. laga nr. 38/2001. Þá var ekki fallist á að greiðsluáætlunin hefði falið í sér bindandi loforð um að árleg hlutfallstala kostnaðar yrði óbreytt óháð þeim forsendum sem bjuggu að baki lánskjörum og skilmálabreytingum sem átt höfðu sér stað. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu A hf. því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2017

E-2988/2016

Guðmundur Þór Pétursson Harpa Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Arion banka hf (Sigurður Guðmundsson hrl)
Lykilorð: Skuldabréf. Vextir.

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnenda um viðurkenningu á því að upphafleg árleg hlutfallstala kostnaðar í greiðsluáætlun sem gerð var samhliða veðskuldabréfi, sem stefnendur tóku hjá stefnda, skyldi halda gildi sínu fram að endurútreikningi láns þeirra.