Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 45. gr. laga nr. 120/2011 — Lög um greiðsluþjónustu

Hæstiréttur birt 26. apríl 2018

411/2017

Arion banki hf (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn Þorvaldi Inga Jónssyni og Dís Kolbeinsdóttur (Sveinn Guðmundsson lögmaður)

Þ og D kröfðust viðurkenningar á því að tvær kreditkortafærslur af kreditkortum þeirra í tiltekinni verslun á Tenerife hefðu verið ólögmætar og að fella bæri þær niður án ábyrgðar. Óumdeilt var að Þ og D hefðu sjálf sett kort sín í posa verslunarinnar og slegið inn PIN númer færslunni til staðfestingar. Þ og D byggðu á því að þetta hefðu þau gert í því skyni að fá ábyrgð á tölvu sem Þ hafði keypt í versluninni og átti ekki að kosta neitt, en starfsmenn verslunarinnar hefðu beitt þau blekkingum til að ná fram greiðslunum. Héraðsdómur tók kröfu Þ og D til greina með vísan til þess að þau hefðu með nægilegum hætti sýnt fram á að þau hefðu ekki fengið afhenta neina vöru eða þjónustu gegn þeim greiðslum skuldfærðar hefðu verið á kort þeirra. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki hefði verið byggt á þessari málsástæðu í héraði af hálfu Þ og D. Samkvæmt 2. mgr. 111. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála mætti dómari ekki byggja niðurstöðu sína á málsástæðum sem hefðu mátt koma fram við meðferð máls en gerðu það ekki. Taldi Hæstiréttur því ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til munnlegs málflutnings og dómsálagningar að nýju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2016

E-3489/2016

Lykilorð: Önnur mál.

Viðurkennt var að A bæri að fella niður kreditkortafærslur Þ og D sem þau höfðu heimilað í rangri trú um fjárhæðir og án þess að vara eða þjónusta kæmi fyrir.