Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 120/1992 — Lög um Kjaradóm og kjaranefnd

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2006

E-1939/2006

Guðjón S. Marteinsson (Gestur Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)
Lykilorð: Stjórnarskrá.

Ríkið dæmt til að greiða héraðsdómara vangreidd laun á þeirri forsendu að 1. gr. laga nr. 2/2006 um breytingu á lögum nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd bryti, að því er dómara varðar, í bága við grunnreglur um sjálfstæði dómstóla.

Hæstiréttur birt 9. maí 2005

170/2005

Læknafélag Íslands (Gunnar Ármannsson hdl) gegn íslenska ríkinu vegna, Heilbrigðisstofnunar og Suðurlands (Óskar Thorarensen hrl)

L krafðist þess fyrir Félagsdómi að viðurkennt yrði að félagsmenn hans, sem störfuðu við heilsugæslustöðvar og tækju laun samkvæmt tilgreindum úrskurði kjaranefndar, hefðu sjálfir val um hvort þeir tækju föst mánaðarlaun eða samsett laun. Var ágreiningur milli málsaðila um skilning á umræddum úrskurði nefndarinnar. Fyrir lá að heilsugæslulæknar féllu utan laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og voru seldir undir úrskurðarvald kjaranefndar að lögum með laun sín og starfskjör, þegar sú ákvörðun var tekin sem deilt var um í málinu. Var talið, að samkvæmt því félli það utan valdsviðs Félagsdóms, eins og það væri afmarkað samkvæmt lögum 94/1986, að dæma um þann ágreining sem uppi var í málinu. Var því staðfest frávísun málsins frá Félagsdómi.