Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015 (atvinnusjúkdómar, miskabætur o.fl.). nr. 108/2021
Deilt var um túlkun á inntaki skilmála um dánarbætur í frítímaslysatryggingu sem eiginmaður stefnanda hafði hjá hinu stefnda félagi þegar hann lést í kjölfar aðgerðar og meðhöndlunar eftir slys. En skilmálar tryggingarinnar gerðu m.a. að skilyrði að slys væri bein og eina orsök þess að vátryggður léti lífið. Með hliðsjón af túlkun annarra ákvæða í skilmálum stefnda, sem og með vísan til fyrirliggjandi atvika í málinu, var fallist á með stefnanda að umrætt atvik félli undir trygginguna. Var hinu stefnda tryggingafélagi því gert að greiða stefnanda dánarbætur samkvæmt tryggingunni.
Stefndi Sjúkratryggingar Íslands var sýknað af dómkröfu stefnanda sem krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála um að staðfesta ákvörðun stefnda um synjun á greiðslu bóta úr slysatryggingu almannatrygginga vegna slyss stefnanda á leið til vinnu.