Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 105/2006 — Lög um umhverfismat áætlana
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu á breytingu á aðalskipulagi stefnda sem tók til lagningu Blöndulínu 3 í Skagafirði.
Landsnet hf og Sveitarfélagið Vogar (
Hjördís Halldórsdóttir hrl, Ívar Pálsson hrl, Áslaug Árnadóttir hdl, 1. prófmál)
gegn
Bjarneyju Guðrúnu Ólafsdóttur, Geirlaugu Þorvaldsdóttur, Katrínu Þorvaldsdóttur, Margréti Guðnadóttur, Ólafi Þór Jónssyni, Reykjaprenti ehf, Sigríði Jónsdóttur, Skúla Þorvaldssyni og STV ehf (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
Í málinu kröfðust B o.fl. þess að ógilt yrði ákvörðun sveitarfélagsins V frá árinu 2015 um að veita L hf. framkvæmdaleyfi til að reisa flutningsvirkið Suðurnesjalínu 2 innan marka sinna. Reistu þau kröfu sína á því að við meðferð málsins hefðu verið brotnar ýmsar reglur laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, skipulagslaga nr. 123/2010 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993, meðal annars með því að ekki hefði verið rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti. Með hliðsjón af dómum Hæstaréttar í málum nr. 511-513/2015 nr. 541/2015 og nr. 796/2015 og að virtum helstu reglum laga nr. 106/2000 og 123/2010 um málsmeðferð vegna matsskyldra framkvæmda og efni matsskýrslna var talið að B o.fl. hefðu sýnt fram á að jarðstrengur hefði verið framkvæmdarkostur sem til greina hefði getað komið. Hefði því borið að gera grein fyrir honum í tillögum og matsskýrslum í matsferlinu og bera hann saman við annan eða aðra framkvæmdarkosti. Það hefði ekki verið gert að öðru leyti en því að látið hefði verið nægja að vísa til almennra sjónarmiða um kosti og galla jarðstrengja. Umhverfisáhrifum jarðstrengs í samanburði við aðra framkvæmdarkosti hefði samkvæmt því ekki verið lýst á fullnægjandi hátt og hefði matsferlið og umhverfismatsskýrslan því ekki uppfyllt þann áskilnað sem gerður er í framangreindum lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Hefði matsskýrsla L hf. um Suðurnesjalínu 2 og álit Skipulagsstofnunar um skýrsluna því ekki getað verið lögmætur grundvöllur undir ákvörðun sveitarfélagsins V um veitingu framkvæmdaleyfisins. Var fallist á kröfu B o.fl.
Geirlaug, Þorvaldsdóttir, Margrét, Guðnadóttir, Ólafur Þór, Jónsson, Reykjaprent, ehf, Sigríður, Jónsdóttir, Bjarney Guðrún, Ólafsdóttir, STV ehf, Skúli, Þorvaldsson og Katrín Þorvaldsdóttir (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
gegn
Landsneti hf. (
Einar Farestveit hdl) og
og Sveitarfélaginu og Vogum (
Áslaug Árnadóttir hdl)
Framkvæmdarleyfi sem Sveitarfélagið Vogar gaf út til Landsnets hf., var dæmt ógilt.