Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Tilkynningafrestur
Aðila greindi á um hvort stefnandi hefði glatað rétti til bóta úr slysatryggingu launþega, sem vinnuveitandi hennar var með hjá stefnda, þar sem tilkynning hefði ekki borist innan frests samkvæmt 1. mgr. 124. gr. laga nr. 30/2004. Tveimur vikum eftir slysið hafði stefnandi fyllt út eyðublað stefnda þar sem tilkynnt var um slysið og afleiðingar þess, en stefndi taldi þessa tilkynningu eingöngu varða kröfu vegna fjölskyldutryggingar stefnanda þar sem stefnandi var tilgreind sem vátryggingartaki en ekki vinnuveitandi hennar. Talið var að skýra bæri 1. mgr. 124. gr. eftir orðanna hljóðan og leggja til grundvallar að tilkynning um vátryggingaratburð sem berst vátryggingarfélagi innan frestsins komi í veg fyrir að bótaréttur falli niður. Þar sem slík tilkynning hafði sannarlega borist stefnda var fallist á kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu úr slysatryggingunni.