Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Skiptakostnaður

Hæstiréttur birt 19. apríl 2011

577/2010

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði (Óskar Thorarensen hrl) gegn þrotabúi Melhóls ehf (Hlöðver Kjartansson hrl)

Bú M ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta og var H skipaður skiptastjóri þess. Skiptabeiðandi, S, lagði fram tryggingu fyrir skiptakostnaði, sbr. 2. mgr. 67. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Í málinu krafði H skiptabeiðanda um greiðslu skiptakostnaðar, sem féll til umfram tryggingu. H hélt því fram að fé þrotabúsins hefði ekki dugað fyrir kostnaðinum þar sem það væri nær eignalaust, sbr. 2. mgr. 66. gr. laga nr. 21/1991, og að verk hans við skiptin hefðu öll verið nauðsynleg, sbr. 1. mgr. 155. gr. laganna. S taldi á hinn bóginn að H hefði borið að afla samþykkis hans sem skiptabeiðanda áður en stofnað var til frekari útgjalda við skiptameðferð, þegar ljóst var að tryggingin nægði ekki til að ljúka skiptum, sbr. 155. gr. sömu laga. Hæstiréttur rakti ákvæði 1. mgr. 155. gr. laga nr. 21/1991 og samspil þess við ákvæði 2. mgr. 67. gr. sömu laga. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að S hefði ekki bent á aðgerðir skiptastjóra sem honum hefði hvorki verið að lögum skylt að vinna né teldust til nauðsynlegra og venjulegra aðgerða við skipti bús sem lokið væri samkvæmt 1. mgr. 155. gr. laganna. Þá hefði S heldur ekki fært fram rök fyrir því að þannig hefði verið að verki staðið við skipti búsins að efni væru til að lækka kröfu H. Var krafa H því tekin til greina.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. ágúst 2007

Q-2/2007

Júlíus Kolbeins (Vilhjálmur Bergs hdl) gegn Christu Kolbeins (Einar Gautur Steingrímsson hrl)

Ágreiningi fyrir skiptastjóra um hvort fasteign verði talin séreign og falli utan skipta eða ekki vísað til hérasdóms. Talið var að fasteignin væri séreign að hluta og teldist ígildi fyrri séreignar og félli því utan skipta að hluta til. Kröfu varnaraðila um að hluti eignarinnar teldist séreign sín í skjóli hjúskaparsamnings gerðum í Þýskalandi hafnað. Þá var kröfu varnaraðila um endurgreiðslu lánsfé vísað frá dómi þar sem þeim ágreiningi hafði ekki verið vísað til héraðsdóms af hálfu skiptastjóra. Málskostnaður var látinn falla niður.

Hæstiréttur birt 12. mars 2007

122/2007

Björn Ólafur Hallgrímsson (Hilmar Magnússon hrl) gegn Gnípu ehf (enginn)

B, skiptastjóri þrotabús Ó, krafði skiptabeiðanda, G ehf., um greiðslu nánar tilgreindrar fjárhæðar vegna ógreidds kostnaðar af skiptunum. Ekki var talið að þessi krafa yrði sótt í dómsmáli, sem rekið væri eftir reglum XXIV. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti, sbr. 173. gr. sömu laga, enda hefði G ehf. ekki samþykkt það eins og áskilið væri í 172. gr. laganna.

Hæstiréttur birt 22. október 2002

465/2002

Lára Halla Snæfells Elínbergsdóttir (Þuríður Halldórsdóttir hdl) gegn Þorsteini Stefáni Eiríkssyni (enginn)

Hæstiréttur hafnaði kröfu Þ um að L yrði gert að setja tryggingu fyrir skiptakostnaði í tilefni af kröfu L um opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna hjónaskilnaðar. Í dómi réttarins segir að samkvæmt skattframtali aðilanna hafi þau, skömmu áður en L hafi leitað skilnaðar að borði og sæng, annað hvort eða í sameiningu, átt frekari eignir en fasteign, sem Þ hafi krafist að yrði haldið utan skipta. Væri því engin ástæða til að ætla annað en að þær eignir gætu nægt til greiðslu skiptakostnaðar.