Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Matsgerð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2022

E-34/2021

Sólveig Björnsdóttir og Ólafur Einarsson (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður) gegn Green Garage ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)

Stefndi var dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna galla á verki sem hann tók að sér við flotun og flísalögn á gólfum húss stefnenda. Ekki var fallist á með stefnda að stefnendur hefðu verið í samningssambandi við annan aðila um flísalögnina heldur var stefndi ekki talinn hafa sýnt fram á annað en stefnendur hefðu mátt ætla að stefndi hefði tekið að sér bæði flotunina og flísalögnina. Niðurstaða mats dómkvadds matsmanns var að vinnubrögð við bæði flotunina og flísalögnina væru ófagleg, gölluð og að kostnaður við umbætur myndi nema meira en tvöfalt hærri fjárhæð en samanlagðir reikningar fyrir flotunina og flísalögnina. Var stefndi dæmdur til greiðslu skaðabóta á grundvelli matsins þó að frádregnum fjárhæðum hvors reiknings, annars vegar fyrir flotunina og hins vegar fyrir flísalögnina þar sem tjónið yrði að öðrum kosti ofbætt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2022

E-7354/2019

RJD ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Sólveigu Björnsdóttur (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Stefnda sýknuð af kröfu um greiðslu reiknings vegna flísalagnar. Ekki þótti sýnt fram á að samningssamband hefði stofnast milli aðila um flísalögnina en stefnda hafði samið um verð og eingöngu verið í samskiptum við þann aðila sem tók að sér að flota sömu gólf. Stóð hún í þeirri trú að samningssamband hennar væri við þann aðila. Var stefnda sýknuð af kröfum stefnanda vegna aðildarskorts stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2022

E-7353/2019

Green Garage ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Sólveigu Björnsdóttur (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Stefnda sýknuð af kröfu um greiðslu reiknings vegna flotunar gólfs. Í málinu lá fyrir mat dómkvadds matsmanns þar sem ófagleg vinnubrögð við flotun voru staðfest og þar með galli á verkinu. Matsmaður lagði mat á kostnað við úrbætur vegna gallans og nam sá kostnaður mun hærri fjárhæð en reikningurinn sem stefnandi krafðist greiðslu á.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2022

E-777/2021

A (Hafsteinn Viðar Hafsteinsson lögmaður) gegn B (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður)

Stefnda var með vísan til 28. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup sbr. einnig 45. gr. laga um lausafjárkaup nr. 50/2000, dæmd til að greiða stefnanda fjárhæð sem metin var af dómkvöddum matsmanni sem sanngjarnt endurgjald við endurbætur á húsnæði sem stefnandi framkvæmdi fyrir stefndu.