Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Loftferðir
Auður Lilja Davíðsdóttir, Ragnar Þór Jónsson, Bjarmi Þór Ragnarsson, Tómas Davíð Thomasson og Embla Marie Ragnarsdóttir (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
gegn
Finnair Plc (
Gunnar Jónsson lögmaður)
Stefnendur höfðuðu mál gegn stefnda og kröfðust skaðabóta vegna seinkunar á flugi stefnda milli Svíþjóðar á Taílands. Fyrir lá að stefnendur keyptu flugferðina í gegnum vefsíðu og voru þá stödd hér á landi. Talið var að varnarþingsreglur heimiluðu ekki málshöfðun gegn stefnda hér á landi enda hefði stefndi ekki lögheimili, aðalskrifstofu eða útibú hér á landi, sbr. 1. mgr. 33. gr. Montreal-samningsins sem lögfestur var með lögum nr. 80/2022 um loftferðir skömmu áður en málið var höfðað. Málinu var því vísað frá dómi að kröfu stefnda.
E og Á kröfðust skaðabóta úr hendi W hf. þar sem seinkun hefði orðið á brottför flugs þeirra. Talið var að seinkun flugsins mætti rekja til erfiðra aðstæðna og veðurs í Keflavík um morguninn umræddan dag sem hefði orsakað keðjuáhrif seinkana. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ákvæði 106. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir fæli í sér sakarlíkindareglu. Flytjandi bæri ábyrgð á tjóni, sem yrði af völdum tafa í flutningi, nema hann gæti sannað að allt, sem sanngjarnt gæti talist, hefði verið gert til að koma í veg fyrir að svo yrði eða að ógerlegt hefði verið að koma í veg fyrir slíkt. Fallist var á með W hf. að ekki yrði gerð sú krafa til félagsins við þær aðstæður sem uppi voru í málinu að það gerði ráðstafanir og leigði sérstaka flugvél til að fljúga með farþega og farangur umrætt sinn. Var W hf. því sýknað af kröfu E og Á.