Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Launatengd gjöld
Stefndu sýknaðir af launakröfum stefnanda.
Stefndu sýknaðir af launakröfum stefnanda.
Fallist á kröfu stefnanda um greiðslu launa og launatengdra gjalda í uppsagnarfresti vegna ólögmætrar og fyrirvaralausrar riftunar ráðningarsamnings.Kröfu stefnanda um greiðslu miskabóta hafnað.
J starfaði sem prófessor við H og voru launakjör hans ákvörðuð af kjaranefnd. Auk fastra launa átti J þess kost að sækja um úthlutun úr ritlauna- og rannsóknasjóði prófessora, en sjóðurinn naut framlaga frá ríkissjóði sem nam tilteknu hlutfalli af föstum launum prófessora við H. Fallist var á með J að óheimilt hafi verið að draga tiltekin launatengd gjöld frá þeirri fjárhæð sem hann hafði fengið úthlutað úr sjóðnum.
Í héraðsdómi var meginmálsástæðu J hafnað og Í sýknað af kröfu hans en H var sýknaður vegna aðildarskorts. Talið var að á skorti að héraðsdómari hefði tekið rökstudda afstöðu til annarra málsástæðna, sem J byggði kröfur sínar á og ekki var heldur tekin afstaða til varakröfu hans. Var dómurinn því haldinn þeim annmörkum að óhjákvæmilegt var talið að ómerkja hann og vísa málinu heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar að nýju.