Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Lögaðili

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. desember 2024

E-960/2024

Elja – þjónustumiðstöð atvinnulífsins hf (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) gegn Hjálmari Friðrikssyni (Gísli Tryggvason lögmaður)

Stefndi sem var blaðamaður á vefmiðli, var sýknaður af ómerkingar-, skaðabóta- og birtingakröfum stefnanda sem var lögaðili og í eigu sömu aðila og einnig áttu húsnæði sem brann. Stefndi fjallaði um brunann og aðbúnað verkafólks í birtri frétt. Í dóminum er rakið hvernig mat á því hvort takmörkun á tjáningarfrelsi skuli heimiluð þegar umdeild ummæli beinast að lögaðila og hvernig það er frábrugðið slíku mati þegar ummæli beinast að einstaklingi. Ekki var talið að stefndi hefði með ummælunum farið út fyrir mörk heimillar tjáningar sbr. 73. gr. stjórnarskrárinnar. Ummælin hefðu varðað brýnt þjóðfélagslegt málefni, þ.e. aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi og hefðu ummælin fremur yfirbragð gildisdóms en staðhæfingar um staðreynd. Ummælin hefðu ekki verið sett fram af hreinum illvilja né teldist stefndi hafa verið í vondri trú. Takmörkun tjáningarinnar var ekki talin uppfylla skilyrði 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10.gr. mannréttindasáttmála Evrópu [og með ummælunum hefði ekki verið gengið nær persónu stefnenda eða friðhelgi einkalífs þeirra skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar en þeir þyrftu að þola.]