Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Kröfu um ógildingu hafnað

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2023

K-3162/2023

Anti Defamation-League (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður) gegn 1984 ehf (Ólafur Örn Svansson lögmaður)

Sóknaraðili, erlend samtök, krafðist þess að ákvörðun sýslumanns um að synja kröfu samtakanna um lögbann við hýsingu á vefsíðu, veitingu aðgangs að henni og dreifingu upplýsinga af henni, yrði felld úr gildi og að lagt yrði fyrir sýslumann að leggja á lögbann samkvæmt þeirri kröfu. Kröfunni var beint að fyrirtæki sem veitir þjónustu við hýsingu vefsíðna. Í málinu reyndi meðal annars á málsástæður varðandi hatursorðræðu, tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs. Öllum dómkröfum sóknaraðila var hafnað og varnaraðila dæmdur málskostnaður úr hendi hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. mars 2021

E-5060/2020

Akurnesbúið ehf (Víðir Smári Petersen lögmaður) gegn Rarik ohf. (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður) og íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Hafnað var kröfu A um ógildingu þeirrar ákvörðunar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að heimila stefnda R að framkvæma eignarnám vegna lagningar stofnpípu hitaveitu, ásamt nauðsynlegum samskiptalögnum og rafmagnsstreng milli dælustöðva. Talið var að samningaviðræður hefðu verið fullreyndar þegar afráðið var að ráðast í eignarnám, meðalhófs hefði verið gætt og eignarnámið nægilega skýrlega afmarkað. Lagafyrirmæli voru talin nægilega skýr og skilyrði 72. gr. stjórnarskrárinnar uppfyllt.