Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Vigtun sjávarafla
X var ákærður fyrir brot gegn lögum nr. 57/1996 um umgengni við nytjastofna sjávar og reglugerð nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla. X var sýknaður af broti gegn ákvæðum 1. mgr. 6. gr. og 10. gr. laga nr. 57/1996 svo og ákvæðum reglugerðar 224/2006 sem fjölluðu um skyldu ökumanns, sem flytur óveginn afla, til að aka rakleiðis frá skipshlið að hafnarvog. Þá var X einnig sýknaður af broti er laut að því að aka bifreið með afla án þess að hafa vigtarnótu meðferðis en slíkt var óheimilt samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 224/2006. Í dómi Hæstaréttar kom fram að umrætt reglugerðarákvæði skorti viðhlítandi lagastoð.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari)
gegn
Fiskveiðibrot. Vigtun sjávarafla Á var ákærður fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar fyrir að hafa, eftir löndun úr skipinu Þ, ekið bifreið sinni með allan uppskipaðan afla úr skipin (
Lárentsínus Kristjánsson hrl)
Á var ákærður fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar fyrir að hafa, eftir löndun úr skipinu Þ, ekið bifreið sinni með allan uppskipaðan afla úr skipinu frá skipshlið og fram hjá hafnarvigt, án þess að láta vigta aflann. Talið var sannað að umræddur afli hefði samkvæmt framburði vitna ekki verið minni en 350 kg. Þá var ekki fallist á það með Á að það gæti helgast af langri venju að taka þetta aflamagn fram hjá vigt til að færa starfsfólki í landi. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og sektarákvörðun staðfest.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Karli Óskari Geirssyni (
Andri Árnason hrl)
K var sakfelldur fyrir brot gegn 9., sbr. 23. gr., laga nr. 57, 1996 um umgengni um nytjastofna sjávar með því að hafa vanrækt þá skyldu sína að halda afla aðgreindum og láta vigta hverja tegund sérstaklega. Þótti refsing K hæfilega ákveðin 450.000 króna sekt til ríkissjóðs.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Jónasi Kristjánssyni og Ásgeiri Ásgeirssyni (
Gunnar Sólnes hrl)
J og Á voru sakfelldir fyrir brot gegn 9., sbr. 23. gr., laga nr. 57, 1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, en brot þeirra leiddu til þess að 2.180 kíló af þorski voru við löndun vigtuð sem hlýri. Að virtu umfangi brotanna og atvikum að öðru leyti voru J og Á hvor um sig dæmdir til að greiða í ríkissjóð 800.000 krónur í sekt.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sigurði Helga Jónssyni (
Björgvin Jónsson hrl)
Skipstjórinn S var sakfelldur fyrir fiskveiðibrot með því að hafa ekki sinnt þeirri skyldu sinni að tryggja að allur afli yrði vigtaður á hafnarvog þegar í kjölfar löndunar. S var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa ekki fært upplýsingar um afla skipsins réttilega í afladagbók og fyrir að hafa fullunnið hluta aflans um borð án þess að hafa til þess leyfi sjávarútvegsráðuneytisins. Var hann dæmdur til að greiða 800.000 krónur í sekt.