Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Vátryggingastarfsemi
Stefnandi er tryggingafélag með höfuðstöðvar í Slóvakíu, sem hafði um tíma starfsleyfi til að veita tiltekna þjónustu hér á landi eða þar til Seðlabanki Slóvakíu, sem hefur eftirlit með starfsemi stefnanda, svipti hann starfsleyfi 5. júní 2023. Áður en til þess kom vildi stefnandi bæta við starfsemi sína hér á landi samningum við einstaklinga um viðbótartryggingarvernd og séreignarlífeyrissparnað. Óskaði stefnandi í því skyni staðfestingar stefnda á reglum sínum og skilmálum, en þeirri beiðni hafnaði stefndi 22. desember 2022. Í máli þessu krafðist stefnandi viðurkenningar á meintu lögbroti og bótaskyldu stefnda vegna synjunarinnar. Málinu var vísað frá dómi þar sem málatilbúnaður stefnanda uppfyllti ekki skilyrði réttarfarslaga til þess að hann gæti fengið efnisdóm um dómkröfur sínar.