Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Uppgreiðsla
Þrotabú Bílaleigu Reykjavíkur ehf (
Ólafur Eiríksson lögmaður)
gegn
Þuríði Guðmundsdóttur vegna dánarbús Kristjáns Benónýs Kristjánssonar (
Eldjárn Árnason lögmaður)
Ágreiningur málsins laut að því hvort dánarbú K ætti veðkröfu í bú sóknaraðila á grundvelli veðskuldabréfs 10. júní 2015, þrátt fyrir að nýtt skuldabréf hafi verið gefið út 15. júlí 2021 til að endurfjármagna eldra veðskuldabréfið, auk annarra skulda. Skiptastjóri hafnaði kröfunni sem veðkröfu á þeim grundvelli að veðskuldabréfið 10. júní 2015 hefði verið greitt upp með skuldabréfinu 15. júlí 2021. Ekki reyndist unnt að jafna ágreininginn og vísað skiptastjóri því ágreiningi um kröfu dánarbús K til héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu að skipa ætti veðkröfunni í réttindaröð við gjaldþrotaskipti þrotabús B ehf. sem veðkröfu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í ljósi afdráttarlausra ákvæða skuldabréfs 15. júlí 2021, yfirlýsingar 14. júlí 2022 þar sem ráða mætti að ætlunin hafi ekki aðeins verið að endurfjármagna skuld samkvæmt veðskuldabréfi 10. júní 2015 heldur einnig svokölluð endurlán og aðrar tilgreindar skuldir, og greiðslna afborgana af bréfinu, yrði að leggja til grundvallar að endurfjármögnun eldri lána hefði gengið eftir. Líta yrði svo á að með útgáfu hins nýja skuldabréfs 15. júlí 2021 hefðu eldri skuldir, sem getið væri um í yfirlýsingunni, fallið brott við stofnun hinnar nýju skuldbindingar. Með brottfalli eldri kröfu sem lá að baki veðskuldabréfi 10. júní 2015 hafi hlutverki veðréttarins sem stóð að baki kröfunni lokið og teldist veðrétturinn því einnig niður fallinn. Í samræmi við þetta var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og hafnað kröfu dánarbús K um að krafa þess yrði viðurkennd sem veðkrafa við gjaldþrotaskipti B ehf.