Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Tryggingafélag
Stefnandi, sem slasaðist alvarlega við vinnu sína, höfðaði mál á hendur vátryggjanda vinnuveitanda síns. Hann krafðist hærri bóta fyrir varanlega örorku en stefndi hafði greitt og greiðslu lyfja- og sjúkrakostnaðar. Fallist var á það að aðstæður stefnanda hefðu verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga 50/1995 þegar hann slasaðist. Jafnframt var fallist á að miða skyldi útreikning örorkubóta við þau laun sem hann hafði hjá vinnuveitanda sínum þegar hann slasaðist. Honum voru einnig dæmdar bætur að álitum vegna lyfja- og sjúkrakostnaðar.