Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Trúnaðarskyldur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. október 2025

E-3104/2024

A (Magnús Óskarsson lögmaður) gegn B ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Í málinu deildu aðilar um lögmæti riftunar stefnda, B, á ráðningarsamningi stefnanda, A, á grundvelli meintra trúnaðarbrota A gagnvart B. Dómurinn hafnaði þeim sjónarmiðum B að sönnunarbyrði í málinu ætti að hvíla á A þar sem hann hefði reist málið á sakargrundvelli, enda yrði ráðið af heildstæðu mati á málatilbúnaði A að hann byggði kröfur sínar jafnframt á hlutrænum grunni. Var því talið að B yrði að sýna fram á að riftun ráðningarsamningsins hafi verið lögmæt. Fallist var á það með B að trúnaðarskyldur A gagnvart móðurfélagi B hefðu einnig gilt í störfum hans fyrir dótturfélög samstæðunnar. Dómurinn taldi hins vegar að meint trúnaðarbrot A væru ósönnuð og riftun B á ráðningarsamningi aðila þar af leiðandi ólögmæt. Var fallist á kröfur A um greiðslu launa í uppsagnarfresti og ennfremur á kröfu hans um greiðslu miskabóta.