Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Tannlæknir

Hæstiréttur birt 2. október 2003

139/2003

André Bachmann Sigurðsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn Kirsten F. Bjartmars (Valgeir Pálsson hrl)
Lykilorð: Tannlæknir. Sérálit.
Málaflokkur: Erfðaréttur

A krafði K um bætur vegna meintra mistaka Ö við tannlæknismeðferð 2. nóvember 1995. Ö var látinn og sat K í óskiptu búi. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, var talið sannað að sýkingar sem A hafði átt við að stríða í kjölfar tannlæknismeðferðar hjá Ö hafi mátt rekja til leifa af mátefni sem Ö notaði við meðferðina. Hins vegar var talið að mátefnið hafi orðið eftir fyrir óhapp. Mátefnið hafi setið eftir í þröngri sprungu og óvíst að hægt hefði verið að sjá það úr munnholi. A leitaði til háls- nef- og eyrnalæknis í upphafi árs 1996 og fann hann leifar efnisins. Ekki tókst hins vegar að fjarlægja það að fullu fyrr en í ágúst 1998. Var talið að sterkar líkur væru fyrir því að ef efnisleifarnar hefðu verið fjarlægðar þegar þær fundust í upphafi árs 1996, eða strax í kjölfarið, hefði A ekki orðið fyrir því heilsutjóni sem síðar hafi orðið. Því var talið ósannað að tjón hafi verið afleiðing meintrar vanrækslu Ö við tannlæknismeðferðina og var K því sýknuð.

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2001

78/2001

Soffía Garðarsdóttir (Valgeir Kristinsson hrl) gegn Jónasi Ragnarssyni (Ólafur Axelsson hrl)
Lykilorð: Tannlæknir. Matsgerð.

S, sem gekkst undir rótfyllingaraðgerð hjá tannlækninum J í apríl 1991, krafði J um bætur á grundvelli mistaka hans er valdið hefðu sýkingu við tannrætur, sem leitt hafi til höfuðverkja S í mörg ár. Í ljósi fyrirliggjandi gagna var ekki talið fram komið, að J hefði sýnt af sér saknæm mistök við rótfyllingaraðgerðina, þannig að bótaskylda yrði á hann lögð vegna þeirra höfuðverkja S, sem kröfur hennar voru raktar til.