Jónas Hallur Finnbogason og Finnbogi Jónasson (
Björgvin Jónsson hrl)
gegn
Ísafjarðarbæ Karitas M. Pálsdóttur og Pétri H. R. Sigurðssyni (
Andri Árnason hrl)
J og F kröfðust skaðabóta vegna aðgerða K og P, er þau fóru í nafni félagsmálanefndar Í inn á heimili J og F í því skyni að koma syni J í umsjá B, barnsmóður J. J og B höfðu verið í óvígðri sambúð á heimili foreldra J, F og konu hans, og hafði barnið verið í umsjá beggja foreldra uns B fór af heimilinu, sama dag og hinar umdeildu aðgerðir fóru fram. Fór B, sem var danskur ríkisborgari, fram á liðsinni danska kjörræðismannsins á staðnum, sem sneri sér til félagsmálanefndar með beiðni um aðstoð. Í málinu lá fyrir, að ekkert amaði að barninu hjá J. Ekki var talið, að sýnt hefði verið fram á, að nauðsyn hafi borið til að taka barnið af heimilinu með vísan til 24. gr. barnaverndarlaga nr. 58/1992, sbr. 47. gr. sömu laga. Sú aðgerð, að fara inn á heimilið til þess að ná í barnið, án undangenginnar könnunar á öllum aðstæðum, átti sér því ekki lagastoð. Sú leið, sem B bar að fara til þess að fá umráð barns síns var að leita til héraðsdómara með beiðni um, að forsjá yrði komið á með aðfarargerð, sbr. 75. gr. barnalaga nr. 20/1992. Með því að K og P höfðu komið fram sem stjórnvald er þau fengu inngöngu á heimili J og F, fóru aðgerðir þeirra fram í skjóli valdheimildar, sem ekki var fyrir hendi. Talið var, að ríkar kröfur yrði að gera til þeirra sem gegna opinberum störfum, um að sýna fyllstu aðgæslu við störf sín og kanna mál til hlítar, áður en gripið er til aðgerða. Háttsemin var talin fela í sér brot gegn 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu og 8. gr. samnings um verndum mannréttinda og mannfrelsis, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu. Voru J og F dæmdar miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.