Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Starfsmaður
Stefndi, íslenska ríkið, var sýknaður af skaðabótakröfum stefnda, fyrrum starfsmanns hjá opinberri stofnun, vegna ætlaðs fjártjóns og miska stefnanda, sem leitt hafi af uppsögn stefnenda hjá stofnuninni. Var fallist á það með stefnda að ekki hafi þótt sýnt fram á annað í málinu en að uppsögn stefnanda hafi verið liður í almennum hagræðingaraðgerðum og aðgerðin að öðru leyti uppfyllt skilyrði stjórnsýsluréttar.
Fallist á kröfu stefnanda um bætur vegna vangoldinna vinnulauna í uppsagnarfresti. Sýnt þótti fram á að stefnandi hafi verið ráðinn starfsmaður en ekki verktaki þar sem fyrir lágu m.a. launaseðlar í þá veru auk þess sem að ekki þótti nægilega vera sýnt fram á það að stefnanda hafi verið sagt upp störfum hjá stefnda í tölvupóstsamskiptum þeirra áður en stefndi rifti síðan einhliða vinnusambandi þeirra.