Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Sparisjóður

Hæstiréttur birt 18. maí 2017

537/2016

Samband íslenskra sparisjóða (Tómas Jónsson hrl) gegn Íslandsbanka hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

S hefur frá 1999 haft umsjón með lífeyrissparnaði sparisjóðanna samkvæmt II. kafla laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og hefur samstarfsverkefnið verið rekið undir heitinu Lífsval. Eftir sameiningu Í hf. og sparisjóðsins B hf. ákvað Í hf. að flytja réttindi viðskiptamanna B hf. úr Lífsvali yfir í eigin lífeyrissparnað. S krafði Í hf. um greiðslu svokallaðs flutningsgjalds að fjárhæð 1% af lífeyrisréttindum á grundvelli þess samnings sem lá til grundvallar samstarfi sparisjóðanna um Lífsval. Var talið að ákvæði samningsins ætti samkvæmt orðanna hljóðan við þegar lífeyrisréttindi viðskiptamanns sparisjóðs væri flutt til annars fjármálafyrirtækis að hans ósk en ekki þegar fjármálafyrirtæki drægi sig úr samstarfi um lífeyrissparnað. Þá var ekki talið sannað að með aðilum hefði komist á munnlegur samningur um að Í hf. hefði borið að greiða S sérstakt gjald vegna þess að Í hf. hætti samstarfinu við S. Var Í því sýknað af kröfu S.

Hæstiréttur birt 22. febrúar 2005

48/2005

Sparisjóður Skagafjarðar (Árni Pálsson hrl) gegn Agnari Halldóri Gunnarssyni, Bjarna Jónssyni, Gunnari Rögnvaldssyni, Herði Jónssyni, Jóni Sigurðssyni, Pálma Sigurði Sighvats, Sigmari Jóhannssyni, Sigurði Guðmundssyni, Sigurði Þorsteinssyni og Valgeiri Bjarnasyni (Ástráður Haraldsson hrl)

Samstæða Kaupfélags Skagfirðinga seldi tæplega 40% af stofnfé í S til stjórnenda og starfsmanna í samstæðu kaupfélagsins, eða maka þeirra og einstaklinga tengdum þeim fjölskylduböndum. Var salan til þess fallin að virkja atkvæðisrétt fyrir stofnfjárhluti sem áður höfðu verið skilgreindir sem virkir eignarhlutir kaupfélagssamstæðunnar. Á fundi stofnfjáreigenda í S daginn eftir umrædda sölu stofnfjár var samþykkt stofnfjáraukning í krafti hins aukna atkvæðavægis samsteypunnar. Þóttu varnaraðilar hafa gert það nægilega sennilegt að vafi ríkti um að framsal stofnfjár og eftirfarandi fundur stofnfjáreigenda hafi verið í samræmi við ákvæði laga um fjármálafyrirtæki. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að gera sýslumanni að leggja lögbann við stofnfjáraukningunni.