Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Sifjaspell

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 1. júlí 2022

S-2/2022

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn X (Arnar Sigfússon lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir nauðgun, sifjaspell, kynferðislega áreitni og brot í nánu sambandi á grundvelli framburðar brotaþola, þrátt fyrir staðfasta sakarneitun. Þá var ákærði sakfelldur í samræmi við játningu sína fyrir vörslur mikils magns barnaníðsefnis. Ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í þrjú og hálft ár, greiðslu alls sakarkostnaðar og upptöku þeirra muna er nýttir voru til vörslu barnaníðsefnis. Loks var ákærða gert að greiða brotaþola skaðabætur að fjárhæð 2.888.800 krónur.

Hæstiréttur birt 5. júní 2003

44/2003

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa gert tilraun til þess að hafa samræði við dóttur sína sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Í héraðsdómi var talið hafið yfir allan skynsamlegan vafa, með vísan til vitnisburðar stúlkunnar, sem þótti staðfastur og fékk stoð í vætti vitna, og þess að X bar fyrir sig algjört minnisleysi um atburðinn, að X hefði misnotað dóttur sína. Var X því sakfelldur fyrir brot gegn 196. gr. og 1. mgr. 200. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hvort tveggja sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga. Var dómur héraðsdóms um 18 mánaða fangelsi og greiðslu miskabóta staðfestur.