Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Barnaklám
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Inga Frey Arnarssyni (
Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa ítrekað skoðað myndir og myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Héraðssaksóknari (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
X (
Arnar Sigfússon lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir nauðgun, sifjaspell, kynferðislega áreitni og brot í nánu sambandi á grundvelli framburðar brotaþola, þrátt fyrir staðfasta sakarneitun. Þá var ákærði sakfelldur í samræmi við játningu sína fyrir vörslur mikils magns barnaníðsefnis. Ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í þrjú og hálft ár, greiðslu alls sakarkostnaðar og upptöku þeirra muna er nýttir voru til vörslu barnaníðsefnis. Loks var ákærða gert að greiða brotaþola skaðabætur að fjárhæð 2.888.800 krónur.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Jóni Sverri Bragasyni (
Bjarni Hauksson hrl)
J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum 45.236 ljósmyndir og 155 hreyfimyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þá var hann sakfelldur fyrir brot á vopnalögum nr. 16/1998 með því að hafa haft í vörslum sínum óskráðan loftriffil án skotvopnaleyfis. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að J hefði haft í vörslum sínum mikið magn af barnaklámi en hluti af því hefði verið af grófasta tagi. Þá hefði J með brotunum rofið reynslulausn sem honum hafði verið veitt vegna dóms sem hann hlaut fyrir samkynja brot. Var refsing J ákveðin fangelsi í 2 ár og 8 mánuði auk þess sem honum var gert að sæta upptöku á tölvubúnaði og framangreindum loftriffli.