Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Mismunun á grundvelli aldurs

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2024

E-3899/2023

A (Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir lögmaður) gegn Isavia innanlandsflugvöllum ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um skaðabætur og miskabætur á þeim grundvelli að í starfslokum hans hjá stefnda, í kjölfar þess að hann náði 67 ára aldri, hefði falist ólögmæt mismunun vegna aldurs. Stefndi var sýknaður, enda voru starfslokin í samræmi við þágildandi reglur stefnda, sem stefnanda voru sérstaklega kynntar áður en hann náði þeim aldri, auk þess sem stefnandi, sem þá var í veikindaleyfi, fékk greidd laun í þá sex mánuði sem jafngiltu uppsagnarfresti hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2024

E-3898/2023

A (Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um skaðabætur og miskabætur á þeim grundvelli að í starfslokum hans hjá stefnda, í kjölfar þess að hann náði 67 ára aldri, hefði falist ólögmæt mismunun vegna aldurs. Stefndi var sýknaður, enda voru starfslokin í samræmi við þágildandi reglur stefnda sem vísað var til í ráðningarsamningi, auk þess sem stefnanda var ekki gert að láta af störfum fyrr en sex mánuðum síðar, sem jafngilti uppsagnarfresti hans.