Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Kjararáð
Þ fyrrverandi sendiherra stefndi íslenska ríkinu, Í, til greiðslu meintra vangreiddra launa. Annars vegar reisti Þ kröfur sínar á þeim grunni að hann hafi átt rétt á launaeiningum vegna fastrar yfirvinnu er hann var að störfum í þágu utanríkisþjónustunnar erlendis með sama hætti og hann hafi fengið slíkar einingar við störf í utanríkisráðuneytinu. Hins vegar reisti hann kröfur sínar á því að ólögmætt hafi verið að miða launakjör hans við færri launaeiningar er hann kom heim til starfa í utanríkisráðuneytinu á þeim grundvelli að hann hefði ekki lengur mannaforráð. Taldi Þ að ákvörðun Kjararáðs, þar sem mælt var fyrir um framangreint fyrirkomulag, hafi verið ólögmæt og ómálefnaleg. Vísaði Þ meðal annars til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og laga um utanríkisþjónustu Íslands nr. 39/1971. Að mati dómsins lá ekki annað fyrir í málinu en að ákvörðunin hafi verið í samræmi við fyrirmæli laga um utanríkisþjónustuna, verið málefnaleg og tekið eðlilegt mið af þeim ólíku störfum sem sendiherrum kynnu að vera falin á hverjum tíma. Var Í sýknað af kröfum Þ.