Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Hlutfallsregla
Fallist var á kröfu stefnanda á hendur stefnda tryggingafélagi þar sem hinu stefnda félagi hafi eins og hér stóð á ekki verið það heimilt við uppgjör tjóns samkvæmt heimilistryggingu að bera fyrir sig hlutfallsreglu við bótauppgjör gagnvart stefnanda í tengslum við mat á varanlegri læknisfræðilegri örorku stefnanda. Var fullnaðarkvittun um bótauppgjör aðila, þar sem tekið hafði verið mið af hlutfallsreglu við útreikning bóta, eins og hér stóð á ekki talin vera skuldbindandi fyrir stefnanda. Var því fallist á kröfu stefnanda um að stefnda yrði gert að greiða stefnanda þann mismun sem af leiddi.
Fallist á rétt stefnanda til greiðslu miskabóta vegna vinnuslyss án þess að þær sættu skerðingu vegna hlutfallsreglu vegna fyrri slysa, m.a. þar sem ekki var kveðið á um slíka skerðingu í skilmálum áhafnartryggingar stefnda er slysið átti sér stað. Einnig fallist á rétt stefnanda til bóta fyrir tímabundið atvinnutjón sem sjómaður.