Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Hjón - Úthlutun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. janúar 2008

Q-13/2007

Dómstólar höfðu áður dæmt að helmingaskiptaregla hjúskaparlaga skyldi gilda um fjárskipti aðila. Nú var því hafnað að aflaheimildir væru persónubundin réttindi mannsins og þar með einkaeign hans sem ekki kæmi til skipta. Staðfest var að mat tilnefnds matsmanns skyldi lagt til grundvallar skiptum, enda hafði ekki verið krafist yfirmats. Loks var því hafnað að svipta konuna yfirráðum yfir tilteknum fjármunum

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 6. júní 2007

Q-4/2006

Við fjárskipti hjóna var gerð krafa um hlutdeild í lífeyrisréttinum maka. Kröfunni hafnað þar sem ekki þótti ósanngjarnt að halda þeim utan skipta. Þá var og deilt um útlagningu hrossa en þeirri kröfu var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2007

Q-2/2007

Sóknaraðili krafðist þess að vikið yrði frá helmingaskiptareglu hjúskaparlaga við fjárskipti milli hjóna. Ekki var á það fallist að skilyrði stæðu til þess enda ekki sýnt fram á að það væri bersýnilega ósanngjarnt að byggja á þeirri reglu við skiptin.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2007

Q-5/2007

Af hálfu sóknaraðila var þess krafist að vikið yrði frá helmingaskiptareglu 103. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 þannig að honum yrði heimilað að taka að óskiptu fasteign sem hann einn var skráður fyrir. Ekki var fallist á kröfu sóknaraðila.