Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Frávísunarkröfu gagnsakar hafnað

Landsréttur birt 20. október 2023

40/2022

SORPA bs (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Íslenskum aðalverktökum hf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

S bs. bauð út með almennu útboði verk sem fólst í því að reisa gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi. Fjögur tilboð bárust í verkið en þau voru öll 10% hærri en kostnaðaráætlun verksins og hafnaði S bs. þeim því öllum. Í kjölfarið var ákveðið af hálfu S bs. að hefja samningskaupaferli við þá bjóðendur sem uppfylltu fjárhagslegar og tæknilegar kröfur, sbr. a-lið 1. mgr. 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þrjú félög tilkynntu um þátttöku í samningskaupaferlinu en þeirra á meðal voru ÍA hf. og Í hf. Lögðu félögin þrjú fram ný tilboð og var tilboð Í hf. samþykkt. Í málinu byggði ÍA hf. á því að S bs. hefði í samningskaupaferlinu brotið gegn 15. gr. laga nr. 120/2016 um jafnfræði bjóðenda og gagnsæi við innkaupin. Hafi Í hf. lagt fram frávikstilboð sem hafi verið óheimilt samkvæmt skilmálum sem giltu um samningskaupin. Í dómi Landsréttar kom fram að skilmálarnir sem giltu um samningskaupaferlið hefðu verið misvísandi og til þess fallnir að valda misskilningi hjá þeim sem tóku þátt í ferlinu um að hvaða marki þeim væri heimilt að víkja frá skilmálum samningskaupanna með frávikum eða undanþágum. Hefði Í hf. talið sér það heimilt en ÍA hf. ekki. Þótti ljóst að óskýrleiki í tilboðsskilmálum samningskaupanna hefði leitt til þess að tilboð sem bárust frá Í hf. og ÍA hf. hefðu ekki verið samanburðarhæf þar sem þau byggðu á mismunandi forsendum. Var S bs. talið hafa gerst brotlegt við 1. mgr. 15. gr. laga nr. 120/2016 og valdið ÍA hf. bótaskyldu tjóni enda væri skilyrðum um orsakatengsl og sennilega afleiðingu fullnægt. Um fjárhæð bóta var tekið mið af niðurstöðu matsgerðar sem aflað var við rekstur málsins í héraði. Dráttarvaxtakröfu ÍA hf. var vísað frá Landsrétti.