Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Frávísunarúrskurður héraðsdóms staðfestur

Landsréttur birt 10. janúar 2025

14/2025

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður)

Á kærði ákvæði í dómi héraðsdóm þar sem nánar tilgreindum ákæruliði í máli Á gegn X var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að Á hafði ekki sýnt fram á að skilyrði 1. mgr. 5. gr. almennra hegningarlaga væru uppfyllt svo refsa mætti X fyrir ætlað brot. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Landsréttur birt 9. apríl 2024

180/2024

Björgvin Ibsen Helgason, Guðrún Ólafsdóttir, Jón Árni Jónsson, Kirsten Brödsgaard Larsen, Ólafur Sigurðsson, Pétur Ottósson, Smári Hólm Kristófersson, Elisabeth Saguar Sierra, Guðrún Sigríður Kristinsdóttir, Jón Hjörleifur Stefánsson, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Ómar Torfason, Sigrún Ruth Lopez Jack, Sólveig Hjördís Jónsdóttir, Guðni Geir Kristjánsson, Halldór Ólafsson, Karl Jóhann Guðnason, Linda Dís Guðbergsdóttir, Óðinn Pétur Vigfússon, Sigurgeir Bjarnason og Styrmir Geir Ólafsson (Kristinn Hallgrímsson lögmaður) gegn Kirkju sjöunda dags aðventista (Óskar Sigurðsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B o.fl. gegn K og E ehf. til réttargæslu var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að yfirlýstur tilgangur B o.fl. væri að fá dóm um hvort stjórn K hefði verið heimilt að „samþykkja og undirrita“ nánar tilgreindan samning við E ehf. Fæli kröfugerð B o.fl. þannig í sér lögspurningu sem væri andstæð 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þegar af þeirri ástæðu var hinn kærði úrskurður um frávísun málsins frá héraðsdómi staðfestur.

Landsréttur birt 2. desember 2022

694/2022

Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn Eiðistorgi 1-9, húsfélagi (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá máli sóknaraðila á hendur varnaraðila. Sóknaraðili hafði stefnt varnaraðila og krafðist greiðslu tilgreindra fjárhæða úr hendi varnaraðila og byggði kröfu sína á tilgreindum reikningum og verksamningi milli aðila. Talið var vanreifað í stefnu á hvaða grunni krafa sóknaraðila væri reist og hvaða atvik byggju henni að baki. Sá óskýrleiki væri til þess fallinn að koma niður á vörnum stefnda. Var málatilbúnaður sóknaraðila talinn í andstöðu við meginreglu einkamálaréttarfars um skýran og ljósan málatilbúnað og áskilnað e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var ekki talið unnt að bæta úr annmörkunum undir rekstri málsins og málinu vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 21. september 2022

450/2022

Basalt ehf, Hörður Jóhannesson, Elísabet Sigríður Urbancic Lose, Þórhalla Guðmundsdóttir, Kápan ehf, Ísak Þórhallsson og Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Tryggvagötu ehf (Þórir Júlíusson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem vísað var frá kröfu sóknaraðila þar sem kröfugerðin var ekki talin standast áskilnað 1. mgr. 80. gr. laga og 4. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991. Krafan laut að því að varnaraðila yrði með dómi gert skylt, að viðlögðum dagsektum frá og með þeim degi er 90 dagar eru liðnir frá dómsuppsögu, að beisla rennsli grunnvatns frá fasteign varnaraðila inn á aðliggjandi lóð sóknaraðila, með því að útbúa á lóð varnaraðila, við lóðamörk þessara eigna, djúpan brunn og með dómi gert skylt, að viðlögðum dagsektum, að sjá til þess að úr brunninum dælist jafnóðum það grunnvatn sem í hann leitar og renni í fráveitukerfi Reykjavíkurborgar.