Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Fjarnám

Hæstiréttur birt 30. apríl 2010

181/2010

LMD ehf (Fróði Steingrímsson hdl) gegn sýslumanninum á Selfossi (enginn)

L ehf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem bú hans var tekið til gjaldþrotaskipta. Talið var að ekki hefðu með réttu verið skilyrði til að ljúka fjárnámi hjá L ehf. án árangurs, sbr. 63. gr. laga nr. 90/1989. Gerðin hafi því ekki talist gefa rétta mynd af fjárhag L ehf., sbr. 1. tölulið 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991. Þegar af þessari ástæðu hafi héraðsdómi borið að hafna kröfu um gjaldþrotaskipti. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 21. mars 2005

107/2005

Mýflug hf (Logi Guðbrandsson hrl) gegn Eftirlaunasjóði atvinnuflugmanna (Atli Gíslason hrl)

M krafðist ógildingar aðfarargerða sem E hafði látið gera hjá honum vegna vangreiddra lífeyrissjóðsiðgjalda. Var deilt um hvort M bæri sem atvinnurekanda að inna af hendi 16% mótframlag til E gegn 4% framlagi launþega, líkt og kveðið hafði verið um í kjarasamningi sem gilt hafði til 30. apríl 2000, eða einungis 6% mótframlag, líkt og sagði í þeim ráðningarsamningum sem gerðir voru eftir það tímamark og voru til skoðunar í málinu. Var talið að samkvæmt skýrum fyrirmælum laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, hefðu aðilar með ráðningarsamningunum skuldbundið sig til þess að fara að reglu E um lágmarkslífeyrisgreiðslur og væru þeir þegar af þeirri ástæðu bundnir af samþykktum E. Var því hafnað kröfu M um ógildingu aðfarargerðanna.

Hæstiréttur birt 10. desember 2002

538/2002

Finnbogi Geirsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn sýslumanninum í Kópavogi (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Fjarnám. Skattur.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ríkisskattstjóri endurákvarðaði opinber gjöld og virðisaukaskatt F að undangenginni rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á bókhaldi, tekjuskráningu og skattskilum F. Að fenginni kæru staðfesti ríkisskattstjóri breytingarnar með kæruúrskurði, sem F skaut til yfirskattanefndar. Áður en yfirskattanefnd tók kæruna til úrlausnar var gert fjárnám hjá F, sem bar ágreining um gildi þess undir úsrkurð héraðsdóms. Tæpu ári síðar kvað yfirskattanefnd upp úrskurð þar sem breytingar á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti F voru lækkaðar. Staðfesti héraðsdómur gildi fjárnámsins að teknu tilliti til þeirrar niðurstöðu. Var úrskurður héraðsdóms staðfestur af Hæstarétti með vísan til forsendna hans.