Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Evrópuréttur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. apríl 2026 kl. 19:15

E-3190/2025

Stripadvisor ehf (Steinbergur Finnbogason lögmaður) gegn Hugverkastofunni (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Með úrskurði áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar var staðfest ákvörðun Hugverkastofu um niðurfellingu skráningar merkis stefnanda sem taldist ekki hafa uppfyllt skilyrði notkunar í fimm ár frá skráningardegi. Talið var að 39. gr. laga nr. 71/2020 um breytingu á vörumerkjalögum nr. 45/1997 fæli í sér að um merki stefnanda, sem hafði hlotið skráningu árið 2016, skyldi það gilda að stefnandi hefði átt að hefja notkun merkisins í skilningi 25. gr. laganna fyrir það tímamark að liðin væru 5 ár frá skráningu þess. Þá var því hafnað að leggja skyldi Evróputilskipun nr. 2015/2436 til grundvallar þannig að 5 ára tímabilið skyldi ekki hefjast í skilningi vörumerkjalaga fyrr en að uppkveðnum úrskurði áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar þann 18. júní 2021 þar sem hafnað var andmælum við skráningu merkisins. Var talið að nefnt 5 ára tímabil sem stefnandi hefði til að hefja notkun merkisins æri liðið og því hafi mátt fella skráningu merkis stefnanda úr gildi.