Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Eingarréttur

Landsréttur birt 27. október 2023

273/2022

Gunnar Ingi Jóhannesson (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Jóhannesi Jóhannessyni, Sigurlaugu Elsu Jóhannesdóttur, Önnu Björgu Harðardóttur og Elínu Snædísi Harðardóttur (Hjalti Steinþórsson lögmaður)

Ágreiningur málsaðila laut að skiptingu á söluandvirði jarðar sem málsaðilar áttu. J og S öfluðu matsgerðar dómkvadds matsmanns áður en mál þetta var höfðað í því skyni að sýna fram á hvernig skipta bæri söluandvirði jarðarinnar að virtu verðmæti einstakra eignarhluta. Viðurkenningarkrafa þeirra var reist á þeirri matsgerð. G byggði aftur á móti á því að skipting á söluandvirðinu skyldi taka mið af fasteignamati. Í dómi Landsréttar var rakið að aðilar hefðu átt jörðina í sérstakri sameign og að sameigninni hefði verið slitið þegar jörðin var seld þriðja aðila. Þegar sameign er seld ráði eignarhlutföll því hvernig andvirði hennar skiptist á milli eigenda, nema sérstaklega hafi verið samið um annað. Lagt var til grundvallar að málsaðilar hefðu ekki samið um hvernig skipta skyldi söluandvirði jarðarinnar áður en bindandi kaupsamningur komst á. Að virtri matsgerð dómkvadds matsmanns og, skýrslu hans fyrir héraðsdómi féllst Landsréttur ekki á að fasteignamat væri til þess fallið að gefa réttari mynd af söluverðmæti þeirra eignarhluta sem um ræðir en fyrrgreind matsgerð. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms þar sem fallist var á viðurkenningakröfu J, S, A og E.