Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: EFTA-samningurinn
N tók ákvörðun 26. nóvember 2019 og komst að þeirri niðurstöðu að Í hf. hefði með stöðluðum upplýsingum sínum til neytenda brotið gegn f-, g-, i- og l- liðum 7. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán og f- og k-lið 2. mgr. 12. gr. sömu laga. Í hf. skaut þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar neytendamála sem kvað upp úrskurð 1. október 2020 þar sem ákvörðun N var staðfest. Í hf. höfðaði mál þetta fyrir héraðsdómi og var með hinum áfrýjaða dómi komist að þeirri niðurstöðu að fella bæri úr gildi framangreindan úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála á þeim forsendum annars vegar að hann hefði verið haldinn efnisannmörkum og hins vegar að málsmeðferð fyrir nefndinni hefði verið ábótavant. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti var ákveðið að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins og beina til hans sjö spurningum um hvernig bæri að túlka tilskipun 2008/48/EB um lánssamninga fyrir neytendur sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 33/2013. Þann 23. maí 2024 kvað EFTA- dómstóllinn upp dóm í máli nr. E-4/23. Í dómi Landsréttar var rakið að tilskipun 2008/48/EB miðaði að fullri samræmingu löggjafar og að kröfur hennar væru því ófrávíkjanlegar. Þá væri ljóst að niðurstaða N, sem staðfest var með úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála, um að staðlaðar upplýsingar Í hf. til neytenda uppfylltu ekki kröfur framangreindra ákvæða laga nr. 33/2013, samræmdist ráðgefandi áliti í dómi EFTA-dómstólsins nr. E-4/23. Þá var ekki fallist á með hinum áfrýjaða dómi að málsmeðferð fyrir nefndinni hefði verið ábótavant. Var það því niðurstaða Landsréttar að ekki væru slíkir annmarkar á úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála 13. október 2020 í máli nr. 11/2019 að fella bæri hann úr gildi. Var N því sýknuð af kröfum Í hf.