Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Dýravelferð

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2023

E-3088/2022

Kjartan Gústafsson og Arnar Gústafsson (Þuríður Kristín Halldórsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Í málinu kröfðust stefnendur viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda íslenska ríkisins á tjóni sem þeir hefðu orðið fyrir vegna ákörðunar stjórnvalda um, og framkvæmdar á, vörslusviptingu nautgripa í eigu þeirra Dómurinn taldi stefnendur ekki hafa sýnt fram á að skilyrði fyrir skaðabótaskyldu væru fyrir hendi og sýknaði stefnda af dómkröfum stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2022

E-2307/2021

Bali ehf. (Viðar Lúðvíksson lögmaður) og Geysir-Fjárfestingarfélag ehf (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn Ríkisútvarpinu ohf. (Stefán A. Svensson lögmaður) og og Matvælastofnun (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Mál þetta er að rekja til útsendingar á sjónvarpsþættinum Kastljósi 28. nóvember 2016 þar sem fjallað um starfsemi félagsins Brúneggja ehf. Þátturinn var gerður á vegum stefnda Ríkisútvarpsins ohf. og var umfjöllun einkum byggð á gögnum frá stefnda Matvælastofnun. Í málinu kröfðust stefnendur viðurkenningar á skaðabótaábyrgð stefndu á tjóni sem félagið Brúnegg ehf. hefði orðið fyrir í kjölfar sýningar þáttarins. Dómurinn taldi stefnendur ekki hafa sýnt fram á að skilyrði fyrir skaðabótaábyrgð stefndu væru fyrir hendi og sýknaði báða stefndu af dómkröfum stefnenda.