Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Brigðaréttur

Hæstiréttur birt 21. október 1999

82/1999

Sameinaði lífeyrissjóðurinn (Guðjón Ármann Jónsson hrl) gegn dánarbúi Ingibjargar Jósefsdóttur (Valgeir Kristinsson hrl)

IR gaf út skuldabréf til móður sinnar, IJ. Lífeyrissjóðurinn S keypti bréfið af verðbréfafyrirtækinu H og ritaði H svohljóðandi framsal á bréfið „Samkv. varðv.umboð H“. IJ krafðist þess að viðurkenndur yrði eignarréttur hennar að skuldabréfinu og að S yrði dæmdur til afhendingar bréfsins, enda væri umboð hennar til H, sem framsalið vísaði í, falsað. Hafði K, sonur IR, játað að hafa falsað umboðið og hlotið refsidóm fyrir þá háttsemi. Talið var að S hefði ekki tekist að hnekkja niðurstöðu héraðsdóms í fyrrnefndu refsimáli um að sannað væri að K hefði falsað umboðið. Þá var talið að traustfangsreglur laga nr. 9/1993 um verðbréfaviðskipti ættu ekki við í málinu þar sem H hefði fengið bréfið í sínar vörslur fyrir falsað umboð. Þótti og ósannað að nafnritun IJ á skuldabréfið væri málamyndagerningur. Var því fallist á kröfur hennar.