Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Afnotahefð

Landsréttur birt 31. október 2024

595/2023

Soffía Margrét Hrafnkelsdóttir (Ásgeir Þór Árnason lögmaður) gegn Ernu Þórisdóttur og Guðrúnu Kristínu Þórisdóttur (Guðmundur Ágústsson lögmaður)

S krafðist viðurkenningar á því að réttur hennar gagnvart E og G stæði til þess að hún væri eigandi að um það bil 720 m2 landspildu, sem lægi innan marka nánar tilgreindrar fasteignar og hefði nánar tilgreind hnitamörk. Til vara krafðist S viðurkenningar á því að hún hefði ótakmarkaðan og endurgjaldslausan afnotarétt af landspildu innan greindra hnitamarka. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að við úrlausn málsins skyldi lagt til grundvallar að með gjafabréfi 1951 hefði eignarhald landsins alls færst yfir til gjafþega, sem E og G leiddu rétt sinn frá, og að efra og neðra hús hefðu verið undanskilin af móður S og við andlát hennar komið í hlut S. Staðfesti Landsréttur jafnframt niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að hvorki móðir S, né hún sjálf, hefði öðlast eignarrétt að hinni umdeildu landspildu fyrir hefð. Voru E og G því sýknaðar af aðalkröfu S. Aftur á móti var varakrafa hennar um afnotarétt af spildunni tekin til greina, enda yrði ekki gerð sambærileg krafa um útilokun þegar um afnotahefð væri að ræða og gerð væri í tilviki eignarhefðar.