Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Þýðing skjals

Landsréttur birt 21. október 2020

404/2020

Bit Fondel B.V (Einar Páll Tamimi lögmaður) gegn þrotabúi Sameinaðs sílikons hf (Geir Gestsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B B.V. á hendur þrotabúi S hf. vegna ágreinings um gildi kröfulýsingar B B.V. í þrotabú S hf. var vísað frá dómi. Héraðsdómur taldi að málatilbúnaður B B.V. væri í andstöðu við 3. mgr. 10. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þar sem hann hefði ekki, þrátt fyrir tilmæli dómara, lagt fram íslenska þýðingu á þeim gögnum sem hann byggði á og væru flókin í eðli sínu. Í úrskurði Landsréttar var tekið fram að í hinum kærða úrskurði væri engin grein gerð fyrir því hvort og þá að hvaða leyti málsaðila greindi á um rétta þýðingu kröfulýsingar B B.V. og annarra gagna málsins sem ekki hefðu verið lögð fram í íslenskri þýðingu. Í ljósi þess að engar athugasemdir hefðu komið fram af hálfu þrotabús S hf. við meðferð málsins í héraði um að þörf væri frekari þýðinga á efni málsskjala yrði að leggja til grundvallar að hann hefði talið að sú þýðing á hluta málsskjala sem hann hafði þegar lagt fram í málinu og byggði málatilbúnað sinn á í frávísunarþætti málsins væri fullnægjandi. Þá hefði gagnaöflun í málinu ekki verið lýst lokið og í greinargerð B B.V. hefði meðal annars komið fram að hann áskildi sér rétt til að krefjast dómkvaðningar matsmanns. Ekki hefðu verið efni til að vísa málinu frá dómi án kröfu og á þeim grundvelli sem gert hefði verið í hinum kærða úrskurði. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2013

761/2012

Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl) gegn Wilbert Heijnens (Einar Gautur Steingrímsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B ehf. gegn W var vísað frá dómi með vísan til þess að málatilbúnaður B ehf. væri ekki í samræmi við þá reglu að þingmálið væri íslenska. Hafði B ehf. lagt fram íslenska útgáfu af tilteknu skjali sem byggt var á í málinu en ekki löggilta þýðingu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þess væri ekki getið í hinum kærða úrskurði hvaða ágreiningur væri milli aðila um túlkun skjalsins og hvaða þýðingu sá munur hefði fyrir málið. Þar sem engin andmæli eða athugasemdir hefðu komið frá W þegar B ehf. lagði fram íslenska útgáfu skjalsins þar til aðalmeðferð fór fram var lagt til grundvallar að aðilar hefðu báðir unað að þessu leyti við texta þess. Bæri því að leggja þá útgáfu til grundvallar við úrlausn málsins. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 25. nóvember 2010

715/2009

VBS Fjárfestingabanki hf (Ólafur Haraldsson hrl) gegn Kevin Stanford (Gestur Jónsson hrl) og Kcaj LLP (Heiðar Ásberg Atlason hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. desember 2009. Hann krefst þess að stefndu verði, hvorum fyrir sig, gert að greiða honum 2.500.000 sterlingspund með 10,45% dráttarvöxtum á ári frá 12. desember 2008 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti óskipt úr hendi stefndu. Stefndi, Kevin Stanford, krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi áfrýjanda. Stefndi, Kcaj LLP, krefst aðallega staðfestingar héraðsdóms. Til vara krefst hann þess að honum verði einungis gert að greiða áfrýjanda 2.000.000 sterlingspund með dráttarvöxtum frá þingfestingardegi. Í báðum tilvikum krefst hann málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi áfrýjanda.