Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Ökumannstrygging

Hæstiréttur birt 17. apríl 2000

1/2000

Jómundur Ólason (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Jakob R. Möller hrl)

J, sem var við vinnu á dráttarvél, sem dró heybindivél, festi hægri hönd sína í heybindivélinni þegar hann gekk aftur með vélinni og hrasaði. Hann krafði vátryggingafélagið S um bætur úr slysatryggingu ökumanns samkvæmt þágildandi 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 fyrir tjón sitt. Talið var að sá þáttur í starfi J, að stíga niður af drátttarvélinni til að huga að búnaði heybindivélarinnar, hefði ekki lotið að stjórn dráttarvélarinnar sem vélknúins ökutækis í merkingu 92. gr. umferðarlaga. Þá væri einnig til þess að líta að meiðsl J hefðu orðið af völdum sérstaks vinnutækis, en ekki dráttarvélarinnar sem ökutækis. Var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að vátrygging samkvæmt 92. gr. umferðarlaga hefði ekki tekið til tjóns J og að sýkna bæri S af kröfum J.