Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Ógilding samnings hafnað

Landsréttur birt 31. maí 2024

267/2023

A (Jón Egilsson lögmaður) gegn B (Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson lögmaður, Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður, 3. prófmál)

B höfðaði mál á hendur A og krafðist ógildingar afsals á eignarhluta D, eiginkonu B og systur A, í tilgreindri íbúð til A, til vara viðurkenningar á skaðabótaskyldu A gagnvart B en að því frágengnu hækkunar á verðákvæði afsalsins. D lést síðla árs 2020 og situr B í óskiptu búi eftir hana. B byggði kröfur sínar meðal annars á því að A hefði nýtt sér fákunnáttu, einfeldni, léttuð og bágindi D til að fá hana til að afsala fyrrgreindum eignarhluta til sín á verði verulega undir markaðsverði. A byggði sýknukröfu sína meðal annars á því að D hefði verið fullfær um að ráðstafa eignarhlutanum, auk þess sem B hefði veitt samþykki sitt fyrir afsalinu og væri B bundinn af samþykki sínu. Í dómi Landsréttar var rakið að B hefði í fyrstu lýst sig samþykkan afsali D á eignarhlutanum með nafnritun sinni á skjalið en síðar skipt um skoðun. Í dómnum sagði jafnframt að B hefði ekkert aðhafðist gagnvart A til að fá afsalið fellt úr gildi fyrr en eftir andlát D og nyti því ekki frásagnar hennar af atvikum. Málatilbúnaður B hefði lotið að því að D hefði ekki verið hæf til að gera hinn umdeilda löggerning en ekki verið á því byggt að hann sjálfan hefði skort hæfi til að veita samþykki sitt fyrir afsalinu. Hvað B varðaði hefði einungis verið byggt á því að hann þekkti ekki til fasteignamarkaðar á viðkomandi svæði. Taldi Landsréttur að ekkert hefði staðið í vegi fyrir því að B kynnti sér verð fasteigna á því svæði áður en hann lýsti yfir samþykki sínu. Með vísan til samþykkis B og þess að endurgjald það sem A innti af hendi fyrir eignarhlutann var ekki talið bersýnilegra lægra en markaðsvirði eignarhlutans í skilningi 31. gr. laga nr. 7/1936 var A sýknaður af kröfum B.