Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 735/2021:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)

gegn

Angjelin Sterkaj,

(Oddgeir Einarsson lögmaður)

Claudiu Sofiu Coelho Carvalho,

(Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Murat Selivrada og

(Geir Gestsson lögmaður)

Shpetim Qerimi

(Sveinn Guðmundsson lögmaður,
Leó Daðason lögmaður, 2. prófmál)

(Guðmundur St. Ragnarsson réttargæslumaður)

Manndráp. Samverknaður. Ásetningur. Sönnun. Rannsókn. Skaðabætur. Miskabætur.

AS, CS, MS og SQ voru sakfelld fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa staðið saman að því að svipta A lífi við heimili hans. Í dómi Landsréttar kom fram að framburðir ákærðu væru ótrúverðugir. Að virtum gögnum málsins hlaut CS, MS og SQ að vera ljóst að langlíklegast væri að AS hygðist ráða A af dögum. Með þátttöku í skipulagningu og öðrum undirbúningi þess að AS gæti hitt A einan fyrir utan heimili hans var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi átt verkskipta aðild að því að A var ráðinn af dögum og um samverknað allra ákærðu hefði verið að ræða. Þá var því hafnað að verknaðurinn hefði helgast af neyðarvörn AS. Vísað var til þess að málið ætti sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarsögu á síðari tímum. Við ákvörðun refsingar var til þess litið að atlaga AS gegn A hefði verið þaulskipulögð og í senn ofsafengin og miskunnarlaus, en AS hefði, með afar einbeittum ásetningi, skotið A viðstöðulaust níu skotum í brjóst og höfuð. Í ljósi þess að brotið var framið í félagi var það virt ákærðu til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af því og 1., 6. og 7. tl. 70. gr. sömu laga, sbr. 79. gr. laganna var refsing AS ákveðin fangelsi í 20 ár, og ákærðu CS, MS og SQ hvers um sig fangelsi í 14 ár. Loks var AS gert að greiða eiginkonu, börnum og foreldrum A bætur.

Dómur Landsréttar

Mál þetta dæma landsréttardómararnir Davíð Þór Björgvinsson, Ragnheiður Bragadóttir og Símon Sigvaldason.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 18. nóvember 2021. Málsgögn bárust réttinum 5. apríl 2022. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 21. október 2021 í málinu nr. S-2676/2021.
  2. Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði sakfelld samkvæmt ákæru og þeim ákvörðuð refsing. Þá er þess krafist að refsing ákærða, Angjelin, verði þyngd og að staðfest verði upptaka á skammbyssu af gerðinni Sig Sauer 1911-22.
  3. Ákærði, Angjelin Sterkaj, krefst þess að refsing hans verði milduð. Þá krefst ákærði þess að miskabótakrafa B verði lækkuð og að ákærði verði sýknaður af kröfu hennar um bætur vegna missis framfæranda, en til vara að sú krafa verði lækkuð. Kröfu um útfararkostnað er ekki mótmælt. Ákærði viðurkennir bótaskyldu vegna kröfu B fyrir hönd C en krefst lækkunar kröfunnar. Ákærði krefst þess að bótakröfu B fyrir hönd AAA verði vísað frá dómi, ellegar að bótakrafan verði lækkuð. Ákærði viðurkennir bótaskyldu gagnvart D og E en krefst lækkunar bótakrafnanna.
  4. Ákærðu, Claudia Sofia Coehlo Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi, krefjast sýknu af kröfum ákæruvalds en til vara vægustu refsingar. Þá krefjast þau þess aðallega að bótakröfum verði vísað frá dómi, til vara sýknu af kröfunum, en til þrautavara lækkunar þeirra.
  5. Brotaþoli, B, krefst þess að ákærðu verði sameiginlega dæmd til að greiða henni miskabætur að fjárhæð 5.000.000 króna, 568.523 krónur í útfararkostnað og 27.619.336 krónur í skaðabætur vegna missis framfæranda. Til vara er þess krafist að ákærði, Angjelin Sterkaj, greiði brotaþola 5.000.000 króna í miskabætur en að staðfest verði niðurstaða hins áfrýjaða dóms um greiðslu ákærða á skaðabótum vegna útfararkostnaðar og missis framfæranda. Til þrautavara er krafist staðfestingar hins áfrýjaða dóms um greiðslu skaða- og miskabóta úr hendi ákærða, Angjelin Sterkaj.
  6. Brotaþolinn, B, krefst þess fyrir hönd ólögráða barna sinna, C og AAA, að ákærðu verði sameiginlega dæmd til að greiða hvorum brotaþola fyrir sig 5.000.000 króna í miskabætur og að ákærðu verði sameiginlega dæmd til að greiða hvorum brotaþola fyrir sig 7.376.266 krónur í skaðabætur vegna missis framfæranda. Til vara er þess krafist að ákærði, Angjelin Sterkaj, verði dæmdur til að greiða hvorum brotaþola fyrir sig 5.000.000 króna í miskabætur en að staðfest verði niðurstaða hins áfrýjaða dóms um greiðslu ákærða á skaðabótum vegna missis framfæranda. Til þrautavara er þess krafist að staðfest verði niðurstaða hins áfrýjaða dóms um skaða- og miskabætur fyrir brotaþolana úr hendi ákærða, Angjelin Sterkaj.
  7. Brotaþolarnir, D og E, krefjast þess hvor um sig að ákærðu verði sameiginlega dæmd til að greiða hvorum brotaþola miskabætur að fjárhæð 5.000.000 króna, en til vara að ákærði, Angjelin Sterkaj, verði einn dæmdur til að greiða brotaþolum þá fjárhæð. Til þrautavara krefjast þeir staðfestingar hins áfrýjaða dóms um greiðslu miskabóta úr hendi ákærða, Angjelins Sterkaj.
  8. Brotaþolarnir krefjast þess í öllum tilvikum að miskabætur beri vexti samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021 en dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þess er krafist að skaðabætur vegna útfararkostnaðar beri dráttarvexti frá 25. júní 2021 til greiðsludags og að skaðabætur vegna missis framfæranda beri 4,5% vexti samkvæmt 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021 en dráttarvexti frá þeim degi til greiðsludags.

Málsatvik og sönnunarfærsla

  1. Með hinum áfrýjaða dómi var ákærði, Angjelin, sakfelldur fyrir manndráp og brot hans heimfært undir 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var honum gert að sæta fangelsi í 16 ár. Önnur ákærðu voru sýknuð af kröfum ákæruvalds. Mat héraðsdómur framburði þeirra trúverðuga um að þau hafi ekki haft vitneskju um að ákærði, Angjelin, hefði haft áform um að ráða A bana.
  2. Sem fyrr greinir áfrýjaði ákæruvaldið dómi héraðsdóms til Landsréttar með kröfu um að refsing ákærða, Angjelin, yrði þyngd og að önnur ákærðu yrðu sakfelld fyrir manndráp og þeim ákvörðuð refsing. Af hálfu ákæruvaldsins er á því byggt að forsendur hins áfrýjaða dóms fyrir sýknu ákærðu séu ekki réttar. Það mat héraðsdóms að ákærðu hafi verið trúverðug sé rangt, en ákærðu hafi að mati ákæruvaldsins verið margsaga og ótrúverðug. Gætt hafi mikils misræmis í framburði þeirra innbyrðis eftir því sem rannsókn málsins hafi undið upp á sig hjá lögreglu. Þá hafi þau enn breytt framburði sínum fyrir dómi og framburður þeirra oft á tíðum verið á skjön við gögn málsins. Hafi þau því að mati ákæruvaldsins verið ótrúverðug.
  3. Fyrir Landsrétt lagði ákæruvaldið fram upplýsingaskýrslu lögreglu 3. nóvember 2021, ásamt fylgigögnum, vegna ökutækis með skráningarnúmerið […], upplýsingaskýrslu lögreglu 5. nóvember 2021, ásamt fylgigögnum vegna ljósmyndar sem lögð var fram í héraðsdómi og loks skýrslu lögreglu frá 30. nóvember 2021 vegna símagagna er vörðuðu ákærða, Shpetim Qerimi.
  4. Við upphaf aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti voru spiluð í heild sinni myndskeið úr eftirlitsmyndavélum er tengdust rannsókn málsins, en myndbandið var spilað í héraðsdómi við aðalmeðferð málsins þar. Þá voru spilaðar við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti upptökur af framburði allra ákærðu fyrir héraðsdómi. Verjandi ákærða, Angjelins, sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins, kom þeirri ósk ákærða á framfæri að hann yrði ekki færður fyrir dóminn við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti þar sem hann myndi ekki tjá sig í viðbótarskýrslugjöf. Ákæruvaldið féllst á ósk ákærða um að hann yrði ekki færður fyrir Landsrétt, enda hefði ákæruvald ekki hug á að spyrja ákærða viðbótarspurninga. Öðrum ákærðu, sem öll mættu til aðalmeðferðar málsins fyrir Landsrétti, gafst kostur á viðbótarskýrslugjöf fyrir Landsrétti, en kusu að tjá sig ekki frekar um atvik málsins.
  5. Um málsatvik er vísað til hins áfrýjaða dóms. Svo sem þar er rakið barst lögreglu tilkynning laugardaginn 13. febrúar 2021 klukkan 23.57 um að maður væri meðvitundarlaus utandyra við Rauðagerði […] í Reykjavík. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu voru á vettvangi gerðar endurlífgunartilraunir á hinum meðvitundarlausa, sem reyndist vera A, til heimilis að Rauðagerði […]. Var A fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið og endurlífgunartilraunum fram haldið í bifreiðinni. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að stuttu eftir komu á slysadeild hafi þær upplýsingar borist lögreglu frá slysadeild að A væri látinn. Skotsár hefðu fundist víða á líkama hans. Þá kemur fram í frumskýrslu að níu 22 kalíbera skothylki hafi fundist á vettvangi, en blóðpollur hafi verið við bílskúrshurðina að Rauðagerði […]. Tæknideild lögreglu hafi komið á vettvang og tekið við rannsókn málsins.
  6. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var eiginkona A, brotaþolinn B, á vettvangi. Lýsti hún því fyrir lögreglumönnum að hún hefði verið sofandi en vaknað upp við háreysti frá bróður sínum S og vini hans, R, en þeir hafi öskrað á B að hringja á sjúkrabifreið. Hafi B farið út og séð A liggja fyrir framan bílskúr hússins. Lýsti hún því fyrir lögreglu að A hefði verið búinn að senda henni skilaboð fyrr þetta kvöld um að hann væri búinn að vinna um klukkan 22.00 en ætlaði að fá sér að borða og heimsækja því næst nafngreindan vin sinn. Yrði hann ekki kominn heim fyrr en um miðnætti. Þá kemur fram í frumskýrslu að rætt hafi verið við S, bróður brotaþolans B. Hafi S greint lögreglu frá því að hann og R hafi verið í íbúð á neðri hæð hússins að horfa á sjónvarp er þeir hafi heyrt vein og orðið varir við læti fyrir utan húsið. Hafi verið áheyrnar eins og hurð væri skellt. R hafi spurt S hvort hann hefði heyrt þetta. Þeir hafi farið út og séð A liggja í jörðinni. Blóð hafi verið á höfði A og hann með augun opin. S hafi greint púls hjá A en áttað sig á því að hann væri meðvitundarlaus. Hann hafi þegar hafið endurlífgunartilraunir. Fram kemur að einnig hafi verið rætt við R, vin S. Hafi R borið á sama veg og S um að hafa heyrt vein og skell fyrir utan húsið. Hann og S hafi farið út og séð A liggja alblóðugan fyrir utan bílskúrinn. Þeir hafi farið til hans og um leið hringt á neyðarlínuna. Hvorugur þeirra kvaðst hafa orðið var mannaferða við húsið.
  7. Rannsóknargögn lögreglu sem tengjast málinu eru mikil að vöxtum. Svo sem þar kemur fram beindist grunur lögreglu fljótlega að því að árásin á A væri tengd skipulagðri brotastarfsemi. Hófst lögregla þegar handa við að ræða við vitni og skoða eftirlitsmyndavélar við Rauðagerði í Reykjavík og víðar. Eins aflaði lögregla viðamikilla símagagna tengdum ýmsum aðilum sem grunur beindist að. Á grundvelli þessara gagna beindist grunur að ákærðu um að þau tengdust málinu. Leiddi það til þess að ákærðu, Angjelin, Claudia og Murat, voru handtekin í þágu rannsóknar málsins þriðjudaginn 16. febrúar 2021 og úrskurðuð í gæsluvarðhald í framhaldinu. Ákærði, Shpetim, var síðan handtekinn föstudaginn 19. febrúar 2021 og einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald.
  8. Í kjölfar þess að lögregla hóf rannsókn málsins hófst hún handa við að afla myndskeiða úr eftirlitsmyndavélum nærri vettvanginum í Rauðagerði […] í Reykjavík og víðar á höfuðborgarsvæðinu en einnig úr eftirlitsmyndavélum í Hvalfjarðargöngum, Borgarnesi og Varmahlíð í Skagafirði. Rannsóknarlögregla hefur sett myndskeið þessi saman í eina samfellda heild. Þá aflaði lögregla undir rannsókn málsins viðamikilla símagagna, sem eru á meðal rannsóknargagna málsins. Hér á eftir verður gerð grein fyrir framangreindum myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélum og þeim símagögnum er máli skipta fyrir niðurstöðu málsins.
  9. 1 Myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og símagögn.
  10. Myndskeiðin hefjast á því að á upptöku úr eftirlitsmyndavél í […] 3. febrúar 2021 má greina ákærða, Angjelin, ásamt F, RR, PP og OO snæða saman. Er ákærði, Angjelin, með hliðartösku meðferðis. Næst má greina í eftirlitsmyndavél við bensínstöð við Varmahlíð síðla dags 12. febrúar 2021 ákærða, Angjelin, ásamt PP og RR, á ferð í Range Rover bifreið F […]. Fara þeir allir inn á bensínstöðina, en halda því næst áfram för sinni á bifreiðinni. Ákærði, Angjelin, hefur þá hliðartösku meðferðis, utan yfir úlpu sem hann klæðist. Næsta myndskeið er úr hraðamyndavél í Hvalfjarðargöngum, en samkvæmt mynd þaðan eru ákærðu, Claudia og Shpetim, á leið norður klukkan 22.22 föstudaginn 12. febrúar 2021, á bifreið ákærðu, Claudiu, Suzuki Grand Vitara […]. Er ákærða, Claudia, ökumaður bifreiðarinnar. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við bensínstöð N1 á Borgarnesi þann sama dag má greina ákærðu, Claudiu og Shpetim, koma inn á bensínstöðina klukkan 22.35. Um sjö mínútum síðar sést ákærði, Angjelin, koma akandi að bensínstöðinni á Range Rover bifreiðinni og í kjölfarið ganga inn á bensínstöðina. Eftir að hafa hitt ákærðu, Claudiu og Shpetim, inni á bensínstöðinni, halda ákærðu öll rakleiðis að útgangi bensínstöðvarinnar. Á leiðinni að útgangi tekur ákærði, Angjelin, af sér úr sitt og réttir ákærðu, Claudiu, um leið og hann réttir henni síma sinn. Við útganginn tekur ákærði, Shpetim, síma sinn upp úr vasa og réttir ákærðu. Þau þrjú ganga síðan út úr bensínstöðinni. Í framhaldi ekur ákærða, Claudia, Suzuki bifreið sinni […] frá bensínstöðinni og fer suður á leið. Með henni í bifreiðinni er ákærði, Shpetim. Um leið ekur ákærði, Angjelin, Range Rover bifreiðinni áleiðis norður frá Borgarnesi.
  11. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél sem staðsett er í Rauðagerði má greina þegar Volvo bifreið A […] er bakkað frá Rauðagerði […] klukkan 17.35 laugardaginn 13. febrúar 2021. Í eftirlitsmyndavél á Sogavegi í Reykjavík má greina bifreiðina koma upp Borgargerði klukkan 17.39 og er bifreiðinni ekið Sogaveg til vesturs. Í eftirlitsmyndavélum sem staðsettar eru í Stórholti og Brautarholti í Reykjavík má greina ákærða, Angjelin, koma akandi á Hyundai bifreiðinni […] laugardaginn 13. febrúar 2021 klukkan 17.53 og fara inn á heimili sitt að Brautarholti […]. Á myndskeiðum úr sömu eftirlitsmyndavélum má greina ákærðu, Claudiu, koma akandi þennan sama dag klukkan 18.17 á Suzuki bifreiðinni […] og leggja við heimili ákærða, Angjelins, í Brautarholti. Er ákærði, Shpetim, henni samferða. Þau fara bæði í framhaldi inn á heimili ákærða, Angjelins. Úr eftirlitsmyndavél í Brautarholti má síðan greina að klukkan 18.47 koma ákærðu, Angjelin, Claudia og Shpetim, út frá ákærða, Angjelin, og fara saman í burtu frá Brautarholti á Hyundai bifreiðinni. Er bifreiðinni ekið suður Lönguhlíð, en þar hverfur bifreiðin úr mynd.
  12. Samkvæmt símagögnum lögreglu kemur fram að þennan dag er hringt úr síma ákærða, Shpetims, í síma ákærða, Murats, klukkan 19.40 og varir símtalið í 11 sekúndur. Klukkan 19.50 og aftur klukkan 19.51 er hringt úr síma ákærða, Murats, í síma ákærða, Shpetims, og vara símtölin annars vegar í 9 og hins vegar 12 sekúndur.
  13. Úr eftirlitsmyndavélum í Stórholti og Brautarholti má greina að fyrrgreindri Hyundai bifreiðinni er ekið að heimili ákærða, Angjelins, í Brautarholti […] klukkan 20.45 þennan sama dag. Samkvæmt myndskeiðum voru ákærðu, Angjelin og Claudia, í bifreiðinni. Þá vakti athygli lögreglu við rannsókn málsins að samkvæmt eftirlitsmyndavélum í Stórholti og Brautarholti kviknuðu á sama tíma ökuljós á óþekktri bifreið er talið var að gæti tengst eftirliti með ákærða, Angjelin, en ákærði bar við lögreglurannsóknina að honum hafi verið veitt eftirför. Á myndskeiðum má greina þar sem Hyundai bifreiðinni er snúið við í stæði við Brautarholt […] og samstundis ekið á brott í sömu átt og hún kom úr. Er hinni óþekktu bifreið ekið í humátt á eftir bifreið ákærðu. Klukkan 20.48 má greina í eftirlitsmyndavélum við Brautarholt og Stórholt að ákærðu, Angjelin og Claudia, koma fótgangandi í átt að heimili ákærða, Angjelins, við Brautarholt en þau ganga fram hjá inngangi að íbúð ákærða og ganga Brautarholt til vesturs. Ganga þau að gatnamótum við Stórholt. Þau nema staðar og ganga aðeins til baka, en halda síðan áfram Stórholt til suðurs. Um leið vekur athygli lögreglu að á sama tíma er óþekktri bifreið ekið eftir Brautarholti. Þá vakti einnig athygli lögreglu umferð fótgangandi nærri heimili ákærða, Angjelin. Samkvæmt myndskeiði úr eftirlitsmyndavél í Brautarholti ganga ákærðu, Angjelin og Claudia, að inngangi að íbúð ákærða, Angjelins, klukkan 20.56 en ákærðu koma að íbúðinni úr austri.
  14. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Stórholt má greina að Benz bifreið ákærða, Murats, […], var ekið að Brautarholti […] klukkan 21.06 þetta kvöld, en samkvæmt myndskeiðum voru í bifreiðinni ákærðu, Murat og Shpetim. Ganga ákærðu að inngangi að íbúð ákærða, Angjelins, og fara þar inn. Á sama tíma kemur ákærða, Claudia, út um inngang að íbúðinni. Enn vöktu athygli lögreglu grunsamlegar mannaferðir á myndskeiðum nærri heimili ákærða, Angjelins. Samkvæmt myndum úr eftirlitsmyndavél koma ákærðu, Murat og Shpetim, aftur út af heimili ákærða, Angjelins, klukkan 21.11 og aka á brott á Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu. Er bifreiðinni ekið suður Lönguhlíð. Í eftirlitsmyndavél á Sogavegi í Reykjavík sést að klukkan 21.19 er bifreið ákærðu, Claudiu, ekið Sogaveg til austurs og síðan niður Borgargerði. Í eftirlitsmyndavél í Rauðagerði kemur bifreiðin í sjónmál og er síðan ekið um Rauðagerði og aftur um Sogaveg til vesturs klukkan 21.21.
  15. Í eftirlitsmyndavél sem staðsett er á Rauðarárstíg í Reykjavík nærri […], Rauðarárstíg […], sést að klukkan 21.29 er Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, ekið inn í port við íbúðahótelið. Er bifreiðinni snúið við inni í portinu og henni svo ekið rakleitt á brott. Samkvæmt myndskeiðum voru í bifreiðinni ákærðu, Murat og Shpetim. Næsta myndskeið er úr eftirlitsmyndavél sem staðsett er í Brautarholti. Á myndskeiði klukkan 21.28 má greina ákærða, Angjelin, koma út úr íbúð sinni við Brautarholt […] og ganga vestur í átt að Stórholti. Í Stórholti snýr ákærði við og gengur til baka inn Brautarholt til austurs. Á sömu mínútu er Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu ekið inn Brautarholt og bifreiðinni lagt í bifreiðastæði nærri Brautarholti […]. Ákærðu, Murat og Shpetim, stíga út úr bifreiðinni og ganga að heimili ákærða, Angjelins, í Brautarholti. Í eftirlitsmyndavél við Brautarholt má því næst greina að klukkan 21.38 ber ákærðu, Claudiu, að þar sem hún ekur eftir Brautarholti á Hyundai bifreiðinni og leggur henni í bílastæði við Brautarholt […]. Í framhaldi fer ákærða inn á heimili ákærða, Angjelins.
  16. Samkvæmt myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélum í Brautarholti yfirgefa ákærðu, Claudia og Murat, íbúð ákærða, Angjelin, klukkan 21.53 og fara saman á Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu. Er bifreiðinni ekið Brautarholt til vesturs og norður Stórholt. Á sömu stundu fara ákærðu, Angjelin og Shpetim, út úr íbúð ákærða, Angjelin, og aka frá Brautarholti á Hyundai bifreiðinni í átt að Lönguhlíð. Þeir aka yfir gatnamótin við Lönguhlíð og Brautarholt uns bifreiðin hverfur sjónum. Næsta myndskeið er úr eftirlitsmyndavél í porti við […]. Á myndskeiði klukkan 21.55 má sjá Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu ekið inn í portið. Er bifreiðinni snúið við í portinu og viðstöðulaust ekið á brott. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél á gatnamótum Stórholts og Brautarholts klukkan 21.57 getur að líta Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, þar sem bifreiðinni er ekið að Benz bifreið ákærða, Murats, sem er lagt við Stórholt. Yfirgefur ákærði, Murat, bifreiðina og fer að Benz bifreið sinni. Ákærða, Claudia, ekur norður Stórholt og hverfur úr mynd.
  17. Samkvæmt símagögnum lögreglu er hringt í síma ákærða, Murats, klukkan 21.59, úr síma ákærða, Shpetims. Er þetta á sama tíma og Benz bifreið ákærða, Murats, er enn lagt í stæði við Stórholt í Reykjavík.
  18. Samkvæmt eftirlitsmyndavél á gatnamótum Stórholts og Brautarholts í Reykjavík klukkan 22.00 má greina að ákærði, Murat, í framhaldi af því að ákærða, Claudia, hleypir honum út við Benz bifreið ákærða, gengur að gatnamótum Stórholts og Brautarholts og því næst inn Brautarholt að íbúð ákærða, Angjelins. Klukkan 22.03 kemur ákærði aftur út frá heimili ákærða, Angjelins, og fer í Benz bifreið sína við Stórholt. Er hann með poka í hægri hendi, sem hann kemur með úr íbúð ákærða, Angjelins. Er Benz bifreið ákærða ekið norður Stórholt uns hún hverfur sjónum. Næst er myndskeið úr eftirlitsmyndavél í Bankastræti í Reykjavík við veitingastaðinn […]. Klukkan 22.10 má greina Benz bifreið ákærða, Murats, þar sem henni er ekið eftir Ingólfsstræti til suðurs fram hjá veitingastaðnum.
  19. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Ingólfstorg í Reykjavík má greina að klukkan 22.20 yfirgefa A og I veitingastaðinn […] við Ingólfstorg. Fara þeir að Benz bifreið I sem lagt er í bifreiðastæði við Ingólfstorg. Í kjölfarið er bifreið I ekið Hafnarstræti í austur og síðan inn Pósthússtræti til norðurs. Eftirlitsmyndavél við Tryggvagötu sýnir að bifreiðinni er ekið Tryggvagötu til vesturs, uns hún er stöðvuð í Grófinni klukkan 22.27. Á eftirlitsmyndavél má sjá A stíga úr bifreiðinni og fara inn í Volvo bifreið sína sem þar var lagt í stæði. Er Volvo bifreiðinni ekið af stað klukkan 22.28 og farið vestur Tryggvagötu. Þaðan er henni ekið austur Geirsgötu. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél í Lækjargötu má sjá að klukkan 22.31 er Volvo bifreiðinni ekið eftir Lækjargötu til suðurs uns hún hverfur sjónum.
  20. Samkvæmt símagögnum lögreglu er hringt úr síma ákærða, Shpetims, í síma ákærða, Murats, klukkan 22.30 þetta kvöld og aftur klukkan 22.40. Fram kemur að fyrra símtalið hafi verið 52 sekúndur en það síðara ein mínúta og 26 sekúndur.
  21. Í eftirlitsmyndavél sem staðsett er á Rauðarárstíg í Reykjavík má því næst greina á myndskeiði að Hyundai bifreiðinni er ekið Rauðarárstíg til norðurs klukkan 22.49. Er bifreiðinni ekið til hægri upp Stórholt og inn Brautarholt að heimili ákærða, Angjelins. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél má greina ákærðu, Angjelin og Shpetim, verja nokkrum tíma við Hyundai bifreiðina. Á næsta myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg er Volvo bifreið A ekið Rauðarárstíg til suðurs klukkan 22.55 og úr annarri eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg má greina að Volvo bifreiðinni er ekið inn í port við […] og henni lagt þar klukkan 22.56 fyrir aftan hvíta sendiferðabifreið sem er þar í bílastæði. Samkvæmt annarri eftirlitsmyndavél fer A inn í […] klukkan 22.57.
  22. Samkvæmt símagögnum lögreglu áttu sér stað SMS-símasamskipti þetta kvöld klukkan 22.56 og 22.57 á milli ákærðu, Murats og Shpetims. Klukkan 23.00 voru síðan send SMS símaskilaboð úr síma ákærða, Shpetims, í síma ákærða, Murats, með skilaboðunum: ,,Ekki vera seinn“. Er svarað úr síma ákærða, Murats, með skilaboðunum: ,,ok“.
  23. Akstur Benz bifreiðar ákærða, Murats, var stöðvaður af lögreglu þetta kvöld klukkan 23.05 í umferðareftirliti í Brautarholti. Myndskeið úr eftirlitsmyndavél í lögreglubifreiðinni sýnir lögreglumenn fá ákærða yfir í lögreglubifreiðina þar sem honum er gerð grein fyrir því að annað afturljós bifreiðar hans sé ekki í lagi. Er ákærði meðal annars inntur eftir því hvert hann sé að fara og kveðst ákærði vera á leið heim til ákærða, Angjelins. Samkvæmt eftirlitsmyndavélinni yfirgefur ákærði lögreglubifreiðina klukkan 23.13. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél í Brautarholti getur að líta ákærða, Murat, koma að heimili ákærða, Angjelins, klukkan 23.14. Má sjá ákærða fara inn inngang að íbúð ákærða, Angjelins. Í sömu eftirlitsmyndavél má greina ákærða, Murat, fara aftur frá íbúðinni klukkan 23.27 og aka á brott á Benz bifreið sinni út Brautarholt og í framhaldi vestur Stórholt. Í eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg má greina ákærða, Murat, aka bifreiðinni inn á Rauðarárstíg til suðurs klukkan 23.30.
  24. Samkvæmt símagögnum lögreglu er hringt úr síma ákærða, Murats, í síma ákærða, Shpetims, klukkan 23.31 þetta kvöld. Varir símtalið í 36 sekúndur.
  25. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg má greina Benz bifreið ákærða, Murats, ekið Rauðarárstíg til norðurs klukkan 23.31. Þaðan er bifreiðinni ekið Laugaveg til vesturs við Hlemm.
  26. Samkvæmt símagögnum lögreglu er hringt klukkan 23.32 úr síma ákærða, Murats, í síma ákærðu, Claudiu, og varir símtalið í tvær mínútur og 20 sekúndur.
  27. Á upptöku eftirlitsmyndavélar við Brautarholt í Reykjavík sést að klukkan 23.33 yfirgefa ákærðu, Angjelin og Shpetim, íbúð ákærða, Angjelins, í Brautarholti. Aka þeir á brott á Hyundai bifreiðinni og fara Brautarholt til austurs og yfir gatnamót Brautarholts við Nóatún. Eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg sýnir að klukkan 23.35 er Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, ekið Rauðarárstíg til norðurs og beygt inn Stórholt. Klukkan 23.38 birtist sama bifreið aftur í mynd sömu eftirlitsmyndavélar við Rauðarárstíg og er bifreiðinni þá ekið Rauðarárstíg til suðurs. Næst verður bifreiðarinnar vart klukkan 23.39 á bifreiðastæði í eftirlitsmyndavél við […]. Er bifreiðinni lagt nærri innkeyrslu að porti við íbúðahótelið. Úr sömu eftirlitsmyndavél má sjá að klukkan 23.42 færir ákærða, Claudia, Suzuki bifreiðina og leggur henni í bílastæði neðar í sömu götu.
  28. Í eftirlitsmyndavél sem staðsett er við Sogaveg í Reykjavík sést að klukkan 23.43 er Hyundai bifreiðinni ekið eftir Sogavegi til austurs í átt að Borgargerði. Klukkan 23.44 er henni ekið niður Borgargerði. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við […] má greina að klukkan 23.44 yfirgefur A húsnæðið. Á eftirlitsmyndavél úr porti bak við bygginguna má sjá A ganga að Volvo bifreið sinni og aka á brott úr portinu klukkan 23.45. Í eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg má greina A aka Rauðarárstíg til norðurs klukkan 23.45 og beygja Laugaveg til austurs. Samkvæmt eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg ekur ákærða, Claudia, Suzuki bifreið sinni af stað frá Rauðarárstíg klukkan 23.46 og ekur Rauðarárstíg til norðurs. Bifreiðinni er síðan ekið inn Stórholt og hverfur þá sjónum. Í eftirlitsmyndavél á gagnamótum Stórholts og Brautarholts sést að klukkan 23.47 ekur ákærða, Claudia, Suzuki bifreiðinni inn Brautarholtið að heimili ákærða, Angjelins, og leggur henni í stæði framan við íbúð ákærða, Angjelins, og bíður þar.
  29. Samkvæmt símagögnum lögreglu sendi ákærða, Claudia, skilaboðin ,,hi sexy“ úr síma sínum í síma ákærða, Shpetims, klukkan 23.48 þetta kvöld.
  30. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Brautarholt í Reykjavík klukkan 23.53 þetta kvöld sést að ákærða, Claudia, ekur á brott frá Brautarholti á Suzuki bifreið sinni og fer Stórholt til norðurs. Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg klukkan 23.54 má greina Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, ekið Rauðarárstíg til suðurs. Samkvæmt sömu eftirlitsmyndavél er bifreiðinni síðan aftur ekið Rauðarárstíg til norðurs að gatnamótum við Hlemm, þar sem bifreiðinni er ekið Laugaveg til vesturs. Á eftirlitsmyndavél í verslun 10-11 við Laugaveg má greina ákærðu, Claudiu, koma inn í verslunina klukkan 23.55. Má sjá hana velja sér drykk um leið og hún talar í símann. Eftir að hafa gengið að afgreiðslukassa skilar hún drykknum og gengur út úr versluninni klukkan 23.56. Í eftirlitsmyndavél við Rauðarárstíg má greina Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, ekið Rauðarárstíg til suðurs klukkan 23.57. Er bifreiðinni ekið upp Stórholt. Á eftirlitsmyndavél við Brautarholt má sjá Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, koma inn Brautarholt klukkan 23.58. Leggur ákærða bifreiðinni í bílastæði fyrir framan heimili ákærða, Angjelins, og bíður inni í bifreiðinni í stutta stund. Hún fer inn á heimili ákærða, Angjelins, klukkan 23.58.
  31. Samkvæmt eftirlitsmyndavél við Sogaveg í Reykjavík er Volvo bifreið A ekið eftir Sogavegi í átt að Borgargerði klukkan 23.51 og niður þá götu. Á upptöku eftirlitsmyndavélar, sem staðsett er í Rauðagerði og nær endurvarpi úr gluggum húsnæðis sem stendur gegnt Rauðagerði […], má greina að A ekur Volvo bifreið sinni upp að bílskúr við Rauðagerði […] klukkan 23.52. Samkvæmt gögnum málsins er ljós með hreyfiskynjara fyrir ofan bílskúrshurðina sem kviknar á þegar A kemur að húsinu og miða tímasetningar um hvenær Volvo bifreiðinni er ekið inn í bílskúrinn við það atriði. Klukkan 23.52 má í þessari eftirlitsmyndavél greina að bifreið er ekið á þeirri mínútu inn Rauðagerði til austurs en lögregla telur um að ræða fyrrgreinda Hyundai bifreið. Samkvæmt eftirlitsmyndavélinni kviknar aftur á ljósinu með hreyfiskynjaranum klukkan 23.56. Telur lögregla líklegt að það gerist við það að A kemur út úr bílskúrnum. Þá telur lögregla líklegt að atlaga ákærða, Angjelins, að A hafi verið gerð á þeirri stundu. Klukkan 23.57 má greina bifreið ekið á brott af vettvangi og er bifreiðinni ekið Rauðagerði til vesturs. Samkvæmt gögnum lögreglu er það 55 sekúndum eftir að fyrrgreint ljós með hreyfiskynjaranum kviknar, sem gerðist þegar A kom út úr bílskúrnum. Á eftirlitsmyndavél við Sogaveg sést að klukkan 23.58 er Hyundai bifreiðinni ekið upp Borgargerði og Sogaveg til vesturs. Klukkan 00.01 má greina í eftirlitsmyndavélinni við Sogaveg að sjúkrabifreið kemur á vettvang og er henni ekið niður Borgargerði. Í eftirlitsmyndavélinni við Rauðagerði má sjá sjúkrabifreiðar koma að Rauðagerði […] klukkan 00.01 og skömmu síðar lögreglubifreiðar.
  32. Samkvæmt myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við Brautarholt í Reykjavík sést að ákærða, Claudia, fer út af heimili ákærða, Angjelins, klukkan 00.25 um nóttina og inn í Suzuki bifreið sína. Hún bíður þar um stund, en fer síðan aftur inn á heimili ákærða. Klukkan 01.30 kemur ákærða út á ný og fer aftur inn í bifreið sína.
  33. Samkvæmt símagögnum lögreglu fékk ákærða, Claudia, textaskilaboð frá ákærða, Murat, klukkan 01.30 þessa nótt með skilaboðunum: ,,wait a bit“. Samkvæmt símagögnum lögreglu var hringt úr síma ákærða, Shpetims, í síma ákærðu, Claudiu, klukkan 01.14 og aftur klukkan 01.31 um nóttina.
  34. Samkvæmt eftirlitsmyndavél við Brautarholt í Reykjavík gangsetti ákærða, Claudia, Suzuki bifreið sína klukkan 01.31 og ók Brautarholt til austurs. Samkvæmt eftirlitsmyndavél á bensínstöð N1 við Hringbraut í Reykjavík kom hún inn á bensínstöðina klukkan 02.26 og tók bensín á Suzuki bifreiðina. Ákærða ók á brott frá bensínstöðinni klukkan 02.35. Greina má Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, á bensínstöð í Borgarnesi klukkan 03.23 þessa nótt. Suzuki bifreið ákærðu kemur aftur í sjónsvið eftirlitsmyndavélar klukkan 04.53 er hún ekur í gegnum Blönduós. Bifreiðin kemur síðan inn í eftirlitsmyndavél á bensínstöð við Varmahlíð þessa nótt klukkan 05.12. Skömmu síðar kemur fyrrgreind Hyundai bifreið að Suzuki bifreið ákærðu, en í framhaldi hverfa bifreiðarnar báðar úr mynd.
  35. Klukkan 06.11 að morgni sunnudagsins 14. febrúar 2021 sést Suzuki bifreið ákærðu, Claudiu, koma inn á bensínstöðina í Varmahlíð. Ákærði, Shpetim, er einn í bifreiðinni. Dælir hann bensíni á bifreiðina og hverfur síðan úr mynd. Samkvæmt sömu eftirlitsmyndavél fer Hyundai bifreiðin frá Varmahlíð klukkan 10.49 á sunnudeginum og er ekið eftir Sauðárkróksbraut.
  36. 2 Framburður ákærða Angjelin Sterkaj.
  37. Ákærði, Angjelin Sterkaj, var handtekinn af lögreglu 17. febrúar 2021 og var tekin af honum lögregluskýrsla síðar þann sama dag. Við skýrslugjöf hjá lögreglu greindi hann frá því að hann hefði komið á heimili A að Rauðagerði […] fimmtudaginn 11. febrúar 2021 í þeim erindagjörðum að sækja þangað ryksugu. Seinna þann sama dag hafi ákærði farið í sumarbústað norður á Sauðarkróki til að fara á snjósleða. Að morgni næsta dags hafi ákærði farið á snjósleða með vinum sínum. Þeir hafi verið komnir aftur í sumarbústaðinn milli klukkan 20.00 og 21.00 það kvöld, fengið sér að borða og ákærði síðan farið að sofa. Ákærði hafi vaknað um klukkan 11.00 næsta dag. Hluti af hópnum hafi ætlað að fara til Reykjavíkur og ákærði ákveðið að slást í för með þeim. Er ákærði hafi komið í bæinn hafi hann hitt kærustu sína, meðákærðu Claudiu, á heimili sínu að Brautarholti […] í Reykjavík. Um kvöldið hafi hann farið aftur norður á Sauðárkrók og verið kominn þangað laust eftir miðnættið. Ákærði hafi sannfært meðákærðu, Claudiu, um að koma norður og hafi hún komið á Sauðárkrók að morgni næsta dags. Þau hafi farið aftur til Reykjavíkur á mánudeginum. Ákærði hafi heyrt hjá meðákærðu, Claudiu, að lögregla væri að gera húsleit á heimili hans. Hafi ákærði gist á heimili vinkonu sinnar, K, næstu nótt. Ákærði hafi fengið þær upplýsingar frá verjanda eins hinna grunuðu í málinu, F, að lögregla væri að leita að ákærða. Ákærði kvaðst þekkja meðákærða, Murat, mjög vel, en þeir væru góðir vinir. A hafi ákærði þekkt í þrjú ár, en þeir hafi meðal annars unnið saman í byggingarvinnu. Þeir væru vinir og hafi ákærði ekki átt neitt sökótt við hann. Ákærði kvaðst ekki eiga skotvopn, né hafi hann hafa haft aðgang að skotvopnum hér á landi.
  38. Ákærði var á ný yfirheyrður af lögreglu 23. febrúar 2021. Er ákærði var beðinn um að gera nánari grein fyrir ferðum sínum lýsti hann því að eftir að í sumarbústaðinn kom, föstudagskvöldið 12. febrúar, hafi hann fengið lánaða Range Rover bifreið F og farið á henni um nóttina í Borgarnes til að hitta meðákærðu, Claudiu og Shpetim, en hann hafi beðið þau um að koma með tvö til þrjú grömm af kókaíni fyrir sig. Eftir að hafa tekið við efnunum hafi hann farið aftur norður. Þangað hafi hann verið kominn um klukkan 02.00 til 03.00 um nóttina og þá farið að sofa. Ákærði neitaði því að hafa látið meðákærðu, Claudiu eða Shpetim, fá hliðartösku í Borgarnesi, svo sem þau hefðu borið um við skýrslugjöf hjá lögreglu. Ákærði kvaðst hafa rætt ,,dópmál“ við meðákærða, Shpetim, í Borgarnesi og af þeim ástæðum látið meðákærðu, Claudiu, fá úr sitt og síma áður en hann ræddi við meðákærða. Að því er laugardaginn 13. febrúar varðaði kvaðst ákærði hafa farið af stað til Reykjavíkur þann dag um klukkan 15.00. Eftir að til Reykjavíkur kom hafi hann fyrst farið að hitta meðákærða, Shpetim, og dvalið hjá honum í um klukkustund. Því næst hafi ákærði farið heim til sín að Brautarholti […] ásamt Shpetim. Þangað hafi meðákærða, Claudia, komið stuttu síðar og stoppað við á heimili hans í tæpa klukkustund. Einnig hafi komið á heimili hans, meðákærði Murat. Sem fyrr greinir hafi ákærði síðan farið aftur norður. Ákærði kvaðst hafa beðið meðákærðu, Claudiu, um að koma með vodka norður fyrir ákærða og hafi hún komið norður á sunnudagsmorgninum. Meðákærði, Shpetim, hafi verið með henni í för, en haldið strax aftur suður á sunnudeginum. Ákærði greindi frá því við skýrslugjöfina að hann hafi fyrir þennan tíma eitthvað verið búinn að rífast við A. Ástæða þess hafi verið sú að A hafi sakað ákærða um að hafa flutt menn til landsins til að drepa sig. Einhver hafi verið búinn að koma þeirri hugmynd inn hjá A. Hafi ákærði sagt við A í síma að hann myndi hitta hann á mánudeginum. Þeir hafi hótað að drepa hvor annan. Símtalið hafi átt sér stað fimmtudaginn 11. febrúar 2021. Upphaf ágreinings þeirra hafi mátt rekja til þess er svokallað ,,[…]“ F rataði í fjölmiðla. A og tveir aðrir menn, G og I, hafi ætlað að ,,handrukka“ F. Það hafi ekki tekist þar sem ákærði hafi verið á vettvangi. G hafi sett 10 til 20 milljón króna skuld á F. Ef F myndi ekki greiða þá skuld myndu G og félagar gera eitthvað við börn hans. Ákærði og A hafi verið vel til vina fyrir þennan tíma. Þeir hafi verið saman í samkvæmum og neytt kókaíns saman. Ákærði gat þess aftur að hann hafi sótt ryksugu heim til A fimmtudaginn 11. febrúar. Það hafi verið að morgni dags, en hótanir hafi gengið þeirra á milli að kvöldi sama dags. Ákærði kvaðst hafa reynt að ná sáttum á milli A og F. Ákærði kvaðst eiga skammbyssu, en byssunni fylgdi hljóðdeyfir. Ákærði hafi týnt skammbyssunni fyrir tveim eða þrem vikum síðan, en hún hafi verið horfin er hann hafi komið heim eitt sinn. Byssuna hafi ákærði geymt við rúmið sitt. Um væri að ræða græna 22 kalíbera skammbyssu. Ákærði kvaðst ekki vita nafn þess er hann keypti byssuna af, en byssuna hafi hann keypt í janúar 2021. Ákærði kvaðst einhverju sinni hafa beðið meðákærðu, Claudiu, um að henda um 300 skothylkjum sem hann hefði átt og passað hefðu í byssuna en sagðist aðspurður ekki hafa beðið meðákærðu að geyma þau. Skothylkin hefði hann keypt af aðila á Íslandi í gegnum samskiptaforrit en frekari upplýsingar hefði hann ekki þar að lútandi. Er ákærða var sýnt myndband sem gekk um á internetinu og sýndi einstakling skjóta úr skammbyssu, kvað hann um að ræða sína skammbyssu.
  39. Aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa fengið RR, PP eða OO til landsins, en F hefði gert það. Ákærði var beðinn um að gera á ný grein fyrir ferðum sínum laugardaginn 13. febrúar 2021. Kvaðst ákærði halda sig við fyrri framburð sinn hvað þann dag varðaði. Var ákærða kynnt að samkvæmt gögnum er lögregla hefði undir höndum hafi A komið að Rauðarárstíg […] í Reykjavík það kvöld klukkan 23.06. Hafi lögregla upplýsingar um að ákærði og samverkamenn hans hafi verið að fylgjast með A. Þau hafi síðan fylgt A eftir að heimili hans að Rauðagerði […]. Í skýrslutökunni var ákærða sýnd ljósmynd af bifreið sem meðákærða, Claudia, ók þar sem bifreiðin var við Rauðarárstíg í Reykjavík. Var ákærða kynnt að samkvæmt þeim upplýsingum er lögregla hefði undir höndum hafi samverkamenn ákærða fengið fyrirmæli um að fylgja A þetta kvöld. Ákærði kvaðst synja fyrir að hafa farið að Rauðagerði umrætt kvöld. Var ákærða þá kynnt að lögregla hefði gögn sem sýndu að ákærði hafi ekið frá Brautarholti […] þetta kvöld, rétt áður en A var ráðinn bani, og að Rauðagerði, en ákærði neitaði því að hafa verið á staðnum.
  40. Ákærði var næst yfirheyrður af lögreglu 19. mars 2021. Ákærði var inntur eftir hliðartösku sem hann var talinn hafa afhent meðákærðu, Claudiu og Shpetim, í Borgarnesi föstudagskvöldið 12. febrúar 2021. Ákærði bar að í töskunni hafi verið hass og sagðist hafa látið meðákærðu fá töskuna til að fara með heim til ákærða í Reykjavík. Hafi hann sagt þeim að þau mættu ekki opna töskuna. Ákærði kvaðst ekki vilja svara þeirri spurningu af hverju þau hefðu ekki mátt opna hana en ekki væri rétt það sem lögregla héldi fram, að í töskunni hafi verið skammbyssa og hljóðdeyfir. Taskan hafi verið á heimili ákærða í Reykjavík er hann kom þangað. Hafi hann selt fíkniefnin sem voru í töskunni. Aðspurður þvertók ákærði fyrir að hafa komið nálægt dauða A. Ákærði staðfesti að hafa, ásamt meðákærðu, Claudiu, farið heim til meðákærða, Shpetims, laugardaginn 13. febrúar 2021 um klukkan 18.49. Er ákærðu hafi komið heim til meðákærða hafi meðákærði, Murat, einnig verið þar og einnig […], M. Ákærði hafi staldrað við á heimili meðákærða í um 30 mínútur. Ákærði staðfesti þá lýsingu lögreglu að þetta sama kvöld klukkan 21.07 hafi meðákærðu, Shpetim og Murat, komið á heimili ákærða að Brautarholti […] í Reykjavík. Kvað hann þá hafa komið til að hitta sig. Ákærði kvaðst geta staðfest þá lýsingu lögreglu að meðákærðu, Murat og Shpetim, hafi komið að heimili ákærða á Benz bifreið meðákærða, Murats, en þeir hafi farið skömmu síðar af heimilinu á Suzuki bifreið meðákærðu, Claudiu. Ákærði kvaðst hafa ætlað að hitta I og G þetta kvöld og tuska þá til. Ákærði var ítrekað spurður um þá ætlan lögreglu að meðákærðu, Shpetim og Murat, hafi komið að heimili ákærða rétt upp úr klukkan 21.00 þetta kvöld, stoppað stutt, farið rakleitt að Rauðagerði, heimili A, þaðan að bifreiðastæði við Rauðarárstíg þar sem sendibifreið A var lagt og þaðan að heimili ákærða. Í beinu framhaldi hafi meðákærða, Claudia, farið með meðákærða, Murat, af heimili ákærða og að Rauðarárstíg þar sem sendibifreið A var lagt. Hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, að fylgjast með bifreið A. Ákærði kvað þessa ætlan lögreglu ranga. Hún hafi einungis átt að láta ákærða vita ef hún yrði vör ferða I eða G. Ákærði kvað það vera rétt að hann og meðákærði, Shpetim, hefðu farið frá heimili ákærða þetta kvöld um klukkan 23.36 á Hyundai bifreið. Kvaðst ákærði hafa ekið bifreiðinni. Hafi ákærði hitt eina manneskju á götu sem gæti hafa verið Rauðagerði. Ákærði hafi verið að útvega viðkomandi fíkniefni. Ekki vildi ákærði gefa upp nafn viðkomandi. Það kynni að vera að ákærði hefði verið staddur í sömu götu og A hefði búið við en hann hefði komið heim til A. Ákærði og meðákærði, Shpetim, hafi stöðvað í enda götunnar. Í yfirheyrslunni merkti ákærði inn á mynd sem fyrir hann var lögð að hann hafi stöðvað bifreiðina við gatnamót Borgargerðis og Rauðagerðis. Þar hafi hann gengið suður Borgargerði, upp Sogaveg og síðan Sogaveg til austurs. Nærri Sogavegi […] hafi hann hitt umræddan einstakling. Eftir það hafi hann gengið sömu leið til baka og meðákærði, Shpetim, verið kominn í ökumannssætið og tekið ákærða upp í bifreiðina. Í kjölfar þessa hafi þeir ekið norður á Sauðárkrók. Meðákærði hafi ekið bifreiðinni, en áður en komið hafi verið að Hvalfjarðargöngum hafi þeir stöðvað og ákærði tekið við akstrinum. Ákærði kvaðst ekki kannast við að meðákærða, Claudia, hafi átt að koma skilaboðum til hans þetta kvöld með því að senda ákveðinn texta í síma meðákærða, Shpetims, þegar A færi á bifreið sinni frá Rauðarárstíg í átt að heimili sínu. Ákærði staðfesti framburð meðákærða, Shpetims, hjá lögreglu um að þegar hann, ákærði, hefði komið aftur í bifreiðina hefði hann sagst vera búinn að ,,klára verkið“. Með því hafi ákærði átt við að afhenda fíkniefnin. Undir ákærða var borið að lögregla hafi fundið skammbyssu á flóttaleið ákærða, en um væri að ræða 22 kalíbera skammbyssu, græna að lit. Ákærði kvaðst ekki þekkja umrædda skammbyssu.
  41. Undir lok skýrslutökunnar 19. mars bar lögregla undir ákærða þá lýsingu að út frá þeim gögnum er lögregla hefði undir höndum væri það ætlan lögreglu að ákærði hefði í félagi með öðrum myrt A laugardagskvöldið 13. febrúar 2021. Samkvæmt gögnum málsins hafi ákærði hitt meðákærðu, Claudiu og Shpetim, í Borgarnesi þar sem ákærði og meðákærði, Shpetim, hafi afhent meðákærðu, Claudiu, farsíma og úr á meðan þeir hafi rætt saman. Ákærði hafi afhent meðákærðu tösku og hafi meðákærði, Shpetim, farið með töskuna til Reykjavíkur. Ákærði hafi sjálfur greint lögreglu frá því að hann hafi hótað A að fylla maga hans af byssukúlum fimmtudagskvöldið 11. febrúar 2021. Samkvæmt gögnum málsins hafi ákærði komið til Reykjavíkur að norðan seinni part laugardagsins 13. febrúar 2021. Hafi ákærði skilið farsíma sinn eftir fyrir norðan. Ákærði hafi úr síma eins samferðamanna sinna að norðan hringt í meðákærðu, Claudiu, og beðið hana um að koma til fundar við sig á heimili ákærða í Brautarholti. Ákærði hafi beðið hana um að sækja meðákærða, Shpetim, og hafi þau tvö komið til fundar við ákærða í Brautarholti. Í framhaldi hafi ákærði og meðákærði, Shpetim, farið að heimili meðákærða. Meðákærða, Claudia, hafi sótt ákærða þangað stuttu síðar og þau tvö farið að heimili ákærða í Brautarholti. Meðákærðu, Murat og Shpetim, hafi síðan komið á heimili ákærða og skipt þar um ökutæki. Þeir tveir hafi farið á bifreið meðákærðu, Claudiu, að Rauðagerði og þaðan að húsnæði við Rauðarárstíg þar sem sendibifreið A hafi verið staðsett. Í framhaldi af þessu hafi meðákærða, Claudia, ásamt meðákærða, Murat, farið að beiðni ákærða, að fylgjast með sendibifreið A við hótelið á Rauðarárstíg. Samkvæmt gögnum málsins hafi meðákærða, Claudia, fylgst með sendibifreiðinni allt þar til A hafi ekið burt frá hótelinu á Volvo bifreið sinni. Hafi meðákærða átt að senda meðákærða, Shpetim, skilaboð í farsíma þegar önnur hvor bifreiðin færi frá hótelinu. Samkvæmt gögnum málsins hafi ákærði og meðákærði, Shpetim, farið eftir þetta að Rauðagerði, heimili A, en meðákærða, Claudia, hafi þá verið búin að senda ákærða skilaboð þess efnis að A væri lagður af stað. Á þeim tíma hafi ákærði og meðákærði, Shpetim, verið staddir nærri heimili A og fylgst með þegar A ók að heimili sínu. Ákærði hafi ráðist á A, sem hafi látist í kjölfarið. Sú árás hafi tekið stutta stund, en í kjölfarið hafi ákærði og meðákærði, Shpetim, ekið í burtu á Hyundai bifreiðinni. Inni í bifreiðinni hafi ákærði sagt við meðákærða, Shpetim: ,,Ég er búinn að klára verkið“, en ætlan lögreglu væri að með því hafi ákærði átt að hann væri búinn að bana A. Í beinu framhaldi hafi ákærðu ekið norður í land með stoppi þar sem ákærði hafi losað sig við skotvopnið er hann hafi banað A með. Eftir að þessi ætlan lögreglu var borin undir ákærða kvaðst ákærði viðurkenna að hafa banað A.
  42. Ákærði var að síðustu yfirheyrður hjá lögreglu 21. mars 2021. Í upphafi þeirrar skýrslutöku lýsti ákærði því sjálfstætt hvernig A og félagi hans, G, hafi rétt fyrir jól 2020 sakað vin ákærða, F, um að veita lögreglu upplýsingar. Hafi þeir ætlað að hefna sín á F vegna þess. Þeir hafi beðið ákærða um að aðstoða þá með þeim hætti að ákærði myndi ræna börnum F til að A og G gætu stýrt F á grundvelli sektar sem þeir hafi ætlað að gera honum. Hafi A og G sett hvor um sig 25 milljón króna skuld á F. Þeir félagar og nokkrir Íslendingar úr ,,undirheimum“ hafi þannig farið af stað með málið til að ná peningum frá F. Væri ákærði vinur F og hann því beðinn um að fara frá málinu ellegar að aðstoða þá við að taka börn F. Laust eftir áramótin hafi A beðið ákærða um að hitta sig á heimili sínu. Er ákærði hafi komið heim til A hafi verið þar fyrir, auk A sjálfs, G og einhver þriðji maður. Hafi þeir félagar lagt að ákærða að vera með þeim í liði. Hafi ákærði ekki verið fús til þess og þeir þá hótað honum að þeir myndu drepa hann, sem og barn hans. Þeir hafi tekið ákærða hálstaki og hent honum utan í vegg. Að lokum hafi ákærði sagt að hann myndi aðstoða þá. Í kjölfar þessa, eða síðari hluta janúar, hafi ákærði útvegað sér skammbyssu. Hafi ákærði ekki farið leynt með hana, meðal annars í þeim tilgangi að senda öðrum skilaboð um að pressa ekki á hann. Ákærði hafi verið í samskiptum við A í gegnum textaskilaboð og sagt honum að hlutirnir væru ekki eins og A segði. F hafi ekki lekið neinum upplýsingum til lögreglu. Hafi ákærði sagt við A að hann myndi hitta hann þegar ákærði kæmi úr sumarbústað og útskýra þetta betur. A hafi sagt að þeir þyrftu ekkert að hittast en A myndi klára sitt verk. Eftir þetta hafi ákærði ekkert verið í sambandi við A en fengið upplýsingar um hver áform A og félaga hans væru. Í kjölfarið hafi ákærði varið miklum tíma með F og meðal annars gist á heimili hans en þar hafi einnig verið eiginkona F og börn. Einhverju seinna hafi F sagt að hann ætti félaga á Spáni sem hann ætlaði að fá til Íslands svo að þeir væru ekki einir gagnvart A og félögum. Í framhaldi hafi þrír menn komið frá Spáni til landsins, PP, RR og OO. Einn þeirra hafi séð um að passa börn F og koma þeim í skóla. Hinir tveir hafi verið með ákærða og F.
  43. Ákærði hafi farið norður á Sauðárkrók fimmtudaginn 11. febrúar 2021. A hafi þann dag hringt í ákærða. Hafi hann spurt ákærða hvar hann væri staddur en hann ætlaði að skera ákærða á háls, sem og barn ákærða. Kvaðst ákærði hafa svarað A þannig að hann kæmi suður á mánudag og þeir gætu hist þá. A hafi ítrekað hótun sína gagnvart ákærða. Hafi ákærði svarað honum á þann veg að hann myndi fylla maga A af byssukúlum. Þennan dag hafi F fengið mörg símtöl frá ýmsum, þar á meðal G og I, sem hafi beðið F um að láta ákærða fara frá sér. Ef F myndi losa sig við ákærða yrði allt gott þeirra á milli. Næsta dag, föstudag, hafi ákærði, ásamt öðrum, farið í snjósleðaferð fyrir norðan. Eftir að þau komu til baka hafi ákærði fengið Range Rover bifreið F, lánaða. Ákærði hafi hringt í meðákærða, Shpetim, og beðið hann um að hitta sig í Borgarnesi. Jafnframt hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, um að aka meðákærða, Shpetim. Hafi ákærði viljað ráðfæra sig við meðákærða, Shpetim, um hvað rétt væri að gera í stöðunni. Í Albaníu væri hefndarhefð sem væri meðal annars á þann veg að ekki mætti hefna sín í gegnum konur og börn viðkomandi. Hafi ákærði viljað fá staðfestingu þess efnis frá meðákærða, Shpetim. Hafi meðákærði ráðlagt ákærða að hitta A og sættast við hann. Hafi meðákærði sagt að hann væri til í að fylgja ákærða. Hafi ákærði farið aftur norður, en áður beðið meðákærðu, Claudiu, um að taka hliðartösku hans með í bæinn. Í töskunni hafi verið skammbyssa og hljóðdeyfir. Ákærði hafi talið öruggara að meðákærða væri með byssuna því lögregla hafi átt til að stöðva bifreið F og leita í henni. Taskan með skammbyssunni hafi átt að fara heim til ákærða í Reykjavík. Meðákærða hafi vitað að skammbyssa ákærða var í töskunni.
  44. Næsta dag hafi drengirnir frá Spáni viljað fara til Reykjavíkur og ákærði ákveðið að fara með þeim. Þegar til Reykjavíkur kom hafi ákærði hringt í meðákærðu, Claudiu, til að kanna hvar hún væri þar sem ákærði hafi ekki haft húslykla meðferðis. Hafi meðákærða komið heim til ákærða í framhaldinu. Áður en meðákærða kom hafi ákærði beðið hana um að sækja meðákærða, Shpetim, og taka hann með. Hafi meðákærði, Shpetim, boðið ákærða að koma heim til sín þetta kvöld í mat sem hann hafi gert. Meðákærði, Murat, hafi komið þangað í heimsókn, en ákærði kvaðst hafa vitað að meðákærði væri vinur A. Hafi ákærði velt upp þeirri spurningu hvort einhver möguleiki væri á því að hann gæti hitt A. Hafi meðákærðu báðir sagt að það væri hættuspil, því A myndi hafa einhverja með sér og það gæti farið illa. Eftir stutta stund hafi ákærði og meðákærða, Claudia, farið heim til ákærða. Kvaðst ákærði hafa beðið meðákærðu, Shpetim, Murat og Claudiu, um að láta ákærða vita ef þeir sæju A. Ákærði kvaðst hafa beðið meðákærðu, Claudiu, um að aka fram hjá heimili sínu því ákærða hafi fundist einhverjir vera að fylgjast með heimili sínu. Ákærði hafi síðan skotist inn heima hjá sér, en verið með skammbyssuna í hendi, tilbúinn ef eitthvað kæmi upp á. Um leið og A hafi ekið úr miðbænum þetta kvöld hafi ákærði verið látinn vita. Hafi ákærði verið búinn að biðja meðákærða, Murat, um að sýna meðákærðu, Claudiu, hvaða bifreiðar A ætti, hún skyldi fylgjast með þeim bifreiðum og láta vita þegar A færi heim. Áður hafi meðákærðu, Murat og Shpetim, að beiðni ákærða, farið að heimili A við Rauðagerði til að kanna hvort A væri nokkuð kominn heim til sín. Hafi A alltaf lagt vinnubílnum við […], en í vinnubílnum hafi hann geymt hass. Meðákærða hafi ekki vitað með hverjum hún væri að fylgjast heldur einungis hvaða bifreiðum. Hafi ákærði farið heim til A ásamt meðákærða, Shpetim, en ákærði kvaðst hafa ekið bifreiðinni. Hafi þeir skipt um sæti nærri heimili A. Ákærði hafi yfirgefið bifreiðina við heimili A og beðið meðákærða um að aka áfram. Hafi ákærði verið með skammbyssuna í hliðartösku sinni. Hann hafi tekið hana úr töskunni og sett hljóðdeyfi á skammbyssuna á meðan A var inni í bílskúr heima hjá sér. Ákærði kvaðst því næst hafa kallað: „[A] ég er Angji“. A hafi svarað með orðunum: „Hálfvitinn þinn ertu kominn hingað ég ætla að drepa þig“. Ákærði hafi þá skotið öllum skotum úr skammbyssunni í A, en því síðasta hafi hann beint að höfði A. Ákærði hafi brugðist við með þessum hætti því A hafi hótað honum. Betri kostur væri að drepa A en að A dræpi ákærða og barn hans. Þegar ákærði hafi gengið frá bílskúrnum hafi meðákærði, Shpetim, verið um 100 til 200 metra í burtu. Hafi ákærði veifað honum og meðákærði komið akandi. Ákærði hafi farið inn í bifreiðina farþegamegin að framan og lagt skammbyssuna á gólfið hjá sér. Ákærði hafi sagt við meðákærða að hann hefði hitt A og að A myndi aldrei drepa framar. Meðákærði hafi svarað því til að ákærði væri búinn að skemma líf þeirra. Meðákærði hafi spurt hvert þeir ættu að fara og ákærði sagt honum hvaða leið þeir skyldu aka úr bænum. Ákærði hafi á sama tíma verið að ræða við meðákærða, Murat, í síma.
  45. Ákærðu hafi stöðvað bifreiðina eftir að hafa ekið í gegnum Mosfellsbæ. Þeir hafi numið staðar við steyptan vegg á leiðinni upp á Kjalarnes, en þar hafi ákærði losað sig við skammbyssuna með því að henda henni út í sjó. Á leiðinni norður hafi ákærði hringt í meðákærðu, Claudiu. Í samtalinu hafi komið fram að meðákærða væri með vodkaflösku hjá sér en engan til að drekka hana með. Hafi ákærði spurt hana hvort hún vildi ekki koma norður svo þau gætu drukkið hana saman. Ákærði og meðákærði, Shpetim, hafi áður en þeir fóru í sumarbústaðinn fyrir norðan, komið við hjá vini F þar sem sími og úr ákærða hafi verið geymd. Þaðan hafi ákærðu farið í sumarbústaðinn. Meðákærða, Claudia, hafi komið norður undir morgun. Eftir að norður kom hafi ákærði ekki viljað að meðákærði, Shpetim, væri nærri ákærða vegna þess sem gerst hafði. Hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, að lána meðákærða, Shpetim, sinn bíl. Hafi meðákærði farið frá sumarbústaðnum áleiðis suður um klukkan 07.00 þennan morgun. Ákærði hafi hringt í vin sinn, J, og beðið hann um að koma norður með föt handa sér. Hafi J nálgast Suzuki bifreið meðákærðu, Claudiu, fyrir sunnan hjá meðákærða, Shpetim, og komið á henni norður. Um morguninn hafi ákærði látið J fá Hyundai bifreiðina og sagt honum að fara með hana suður og leggja henni. Meðákærða, Claudia, hafi ekki vitað af því að A hefði látist fyrr en hún hefði lesið um það í fréttum á sunnudeginum. Sunnudaginn 14. febrúar 2021 hafi ákærði hitt F og hafi F spurt ákærða hvort hann hefði drepið A. Hafi ákærði svarað því til að A myndi ekki drepa neinn. Hafi ákærða verið ljóst að drápið myndi komast upp og einfaldlega viljað fá stuttan tíma áður en það gerðist. Ákærði kvaðst ekki vera stoltur af því sem hann gerði, en hann hefði bjargað eigin lífi og lífi barns síns. Á mánudeginum hafi ákærði og meðákærða, Claudia, farið suður til Reykjavíkur. Meðákærða, Claudia, hafi farið heim til ákærða og orðið vör við lögreglu þar. Hafi ákærði farið heim til K. Meðákærða, Claudia, hafi komið þangað og greint ákærða frá ferðum lögreglu. Eiginkona F hafi sagt ákærða að búið væri að handtaka mann sinn vegna málsins, sem og PP vegna gruns um aðild að manndrápinu. Í framhaldi af því hafi ákærði verið handtekinn.
  46. Ákærði gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins fyrir héraðsdómi. Í þeirri skýrslu greindi ákærði þannig frá atvikum málsins að á síðum fjölmiðla um jólin 2020 hafi birst umfjöllun um F. Í kjölfarið hafi A og G ákveðið að sekta F, hvor um sig um 25 milljónir króna. Í framhaldinu hafi A tekið að hóta ákærða og fjölskyldu hans og gert kröfu um að ákærði tæki börn F í því skyni að refsa honum. Ákærði kvaðst hafa samþykkt kröfur A, en síðar hafi hann sent honum textaskilaboð þess efnis að hann væri ekki til í þetta. Hótanir hafi þá haldið áfram gagnvart ákærða og fjölskyldu hans, en honum hafi meðal annars verið hótað lífláti. Ákærði kveðst hafa ákveðið að kaupa sér skammbyssu, ekki farið leynt með það og margir vitað af byssunni. Hafi tilgangurinn verið að hræða A og vini hans frá því að ráðast á ákærða. Ákærði kvaðst hafa farið norður í land fimmtudaginn 11. febrúar 2021 en ætlunin hafi verið að fara á snjósleða. Ákærði hafi í þeirri ferð fengið símtal frá vini A, H, og hafi ákærði heyrt í A fyrir aftan H þar sem hann hafi sagt að hann ætlaði að drepa ákærða og barnið hans með því að skera þau á háls. A hafi talið að ákærði væri að flytja inn menn frá útlöndum til að ráðast á sig. Ákærði kvaðst hafa sagt við A að það væri ekki rétt. Þeir hafi hótað hvor öðrum. Ákærði kvaðst hafa svarað á móti að hann myndi fylla maga A af byssukúlum. Ákærði hafi ekki meint það bókstaflega heldur hafi verið um hótun að ræða. Ákærði hafi vissulega verið reiður því A hafi meðal annars hótað því að drepa barn ákærða. F hafi vitað af þessu símtali ákærða og A. Þá kvaðst ákærði hafa sagt meðákærða, Murat, frá þessu samtali í síma. Ákærði hafi ekki viljað hringja í lögreglu vegna þessara hótana A og vina hans þar sem ákærði hafi ekki talið sig geta fengið neina hjálp frá lögreglunni. Ákærði hafi frétt að F hafi fengið símtal þetta kvöld frá A eða vinum hans þar sem F hafi verið sagt að ef hann myndi láta þá fá ákærða myndi það ganga upp í sekt er A og vinir hans hefðu gert F.
  47. Föstudaginn 12. febrúar hafi ákærði fengið Range Rover bifreið F lánaða og farið á henni til Borgarness. Hafi ákærði verið búinn að mæla sér mót við meðákærða, Shpetim, en ákærði hafi viljað ráðfæra sig við hann um hvað hann ætti að gera í stöðunni. Eins hafi hann viljað að meðákærði myndi láta sig hafa lítilræði af fíkniefnum. Hafi meðákærði ráðlagt ákærða að sættast við A og félaga hans. Ákærði hafi haft skammbyssu sína meðferðis í Borgarnes í hliðartösku. Hafi ákærði óttast að lögregla gæti stöðvað för hans og leitað í bifreiðinni. Meðákærða, Claudia, hafi verið með meðákærða, Shpetim, í för þar sem hann hafi ekki verið með ökuréttindi. Ákærði og meðákærði, Shpetim, hafi brugðið sér afsíðis til að ræða þessa hluti og látið meðákærðu, Claudiu, geyma síma sína og úr á meðan. Hafi ákærði ekki viljað vera með síma á sér þegar mál af þessum toga væru rædd. Hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, um að taka töskuna með skammbyssunni til Reykjavíkur og fara með hana heim til ákærða. Ákærði kvaðst ekki viss um hvort meðákærða hafi vitað að skammbyssa væri í töskunni. Eftir fund þeirra í Borgarnesi hafi ákærði farið aftur norður. Laugardaginn 13. febrúar hafi þrír vinir ákærða, sem komið hafi frá Spáni, viljað fara til Reykjavíkur. Hafi ákærði ákveðið að verða þeim samferða. Ákærði hafi hringt í meðákærðu, Claudiu, sem hafi verið með lykla ákærða. Hafi ákærði beðið hana um að sækja meðákærða, Shpetim, og að þau skyldu síðan bæði koma heim til ákærða sem þau hafi gert. Meðákærði, Shpetim, hafi boðið ákærða og meðákærðu, Claudiu, heim til sín í mat. Þau hafi öll farið þangað, en þangað hafi einnig komið meðákærði, Murat og M. Hafi ákærði sagt þeim öllum að hann ætlaði að reyna að hitta á A til að sættast við hann. Síðar um kvöldið hafi meðákærða, Claudia, skutlað ákærða aftur heim til sín. Ákærði hafi haft á tilfinningunni að verið væri að fylgjast með ferðum hans og því beðið meðákærðu um að aka fram hjá heimili hans. Hún hafi gert það og ákærði farið úr bifreiðinni og gengið heim.
  48. Ákærði kveðst hafa viljað hitta A einan til að ræða málin en A hafi jafnan verið með menn með sér. Fljótlega eftir að ákærði kom heim til sín hafi meðákærðu, Shpetim og Murat, komið þangað einnig. Af ótta við óvildarmenn sína hafi ákærði verið með byssuna og meðákærðu séð ákærða með hana. Ákærði hafi þá sagt við meðákærðu, Murat og Shpetim, að ef þeir sæju A skyldu þeir láta sig vita. Ekki hafi hann beðið þá sérstaklega um að fara að heimili A til að athuga hvort hann væri heima hjá sér. Hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, um að fylgjast með ferðum A, sem væri í húsnæði á Rauðarárstíg, til að ákærði gæti náð á hann. Ákærði hafi beðið meðákærða, Murat, um að sýna meðákærðu, Claudiu, um hvaða bíla væri að ræða til að hún gæti áttað sig á því hvaða bíl A væri á. Ákærði hafi rætt við meðákærðu, Claudiu, í síma þetta kvöld og beðið hana að fylgjast líka með gráum Volvo, sem A gæti einnig verið á. Ákærði kvaðst í þessum samtölum hafa notast við síma meðákærða, Shpetims. Síðar um kvöldið hafi meðákærða látið ákærða vita að A væri á leið heim til sín. Það hafi hún gert með því að senda ákærða texta skilaboðin: ,,hi sexy“. Eftir að hafa fengið skilaboðin hafi ákærði ákveðið að fara heim til A til að ræða málin. Ákærði hafi beðið meðákærða, Shpetim, að koma með sér. Áður hafi ákærði verið búinn að biðja meðákærða, Shpetim, að koma með sér aftur norður því hann væri enn með snjósleða á sínum snærum fyrir norðan og hafi meðákærði samþykkt það. Ákærði hafi ekið bifreiðinni að Rauðagerði. Er inn í Rauðagerði kom hafi ákærði beðið meðákærða, Shpetim, um að aka bifreiðinni og hleypa ákærða út við heimili A þar sem ákærði ætlaði að ræða við hann. Meðákærði hafi hleypt ákærða út úr bifreiðinni við hús A. Í gegnum glugga á bílskúrnum hafi ákærði orðið var við að A tók haglabyssu úr skotti bifreiðar sinnar og setti upp í hillu í bílskúrnum. Kvaðst ákærði þá hafa tekið skammbyssuna úr hliðartöskunni og sett hljóðdeyfi á hana. Ákærði kvaðst ekki hafa ætlað að nota byssuna heldur hafi hann verið með hana til að nota í sjálfsvörn. Ákærði kvaðst hafa kallað á A og hafi A svarað að hann ætlaði að drepa ákærða og barn hans úr því að ákærði væri kominn. A hafi ætlað að ráðast á ákærða og ákærði þá haldið byssunni niðri. Um leið og A hafi ráðist gegn honum hafi ákærði skotið á A uns öll skot hafi verið búin í skammbyssunni. Í framhaldi hafi ákærði veifað meðákærða, Shpetim, sem komið hafi á Hyundai bifreiðinni. Ákærði hafi sett skammbyssuna við fætur sér í bifreiðinni og sagt við meðákærða að aka á brott. Jafnframt hafi ákærði sagt við meðákærða að A myndi ekki hóta neinum eða drepa neinn framar. Hann hafi hins vegar ekki sagt berum orðum að A væri dáinn.
  49. Ákærðu, Angjelin og Shpetim, hafi ekið burt úr bænum en stöðvað í Kollafirði þar sem ákærði, Angjelin, hafi hent skammbyssunni í sjóinn. Ákærði hafi því næst tekið við akstrinum áfram norður og hann rætt við meðákærðu, Claudiu, í síma. Meðákærða hafi sagt að hún væri með flösku af vodka og ákærði lagt til að meðákærða kæmi norður með flöskuna og að þau myndu drekka hana saman. Meðákærða hafi komið norður síðar um nóttina. Um morguninn hafi ákærði sagt meðákærða, Shpetim, að fara aftur suður. Hafi ákærði ekki viljað hafa hann á staðnum í ljósi þess sem hafði gerst. Um morguninn hafi ákærði beðið meðákærðu, Claudiu, um að skoða fréttir í fjölmiðlum til að athuga hvort eitthvað væri fjallað um A. Höfðu þá birst fréttir um andlát hans og meðákærða þá sagt að ákærði hefði banað honum. Ákærði hafi skilið síma sinn og úr eftir fyrir norðan áður en hann fór suður. Að auki hafi ákærði ekki viljað hafa tækin með sér á snjósleðann á föstudeginum. Hafi F komið símanum til skila en einnig spurt ákærða hvort hann vissi að það væri búið að bana A. Ákærði kvaðst hafa sagt við F að A myndi ekki drepa neinn framar. Á sunnudagsmorgninum hafi J og kona hans komið í bústaðinn til ákærða. Hafi ákærði beðið þau um að koma með skó og föt til sín en hann hafi skemmt föt sín og skó er hann henti skammbyssunni í sjóinn um nóttina. Þau hafi komið með hlutina og ákærði beðið þau um að fara fyrir sig með Hyundai bifreiðina suður til Reykjavíkur. Hafi þau átt að koma bifreiðinni fyrir á stæði en ekki nota hana neitt. Hafi ákærði óttast að lögregla myndi tengja bifreiðina við andlát A. Eftir ferðina suður hafi ákærði á þriðjudeginum beðið meðákærðu, Claudiu, um að skila bifreiðinni til bílaleigunnar sem hún hafi verið leigð af.
  50. Fyrir dómi var ákærði spurður út í misræmi í framburði hans hjá lögreglu og fyrir dómi. Hjá lögreglu hafi ákærði sagt að meðákærðu, Claudia og Shpetim, hafi vitað að skammbyssa ákærða væri í hliðartöskunni en fyrir dómi hafi ákærði sagt að þau hafi ekki vitað það. Ákærði kvaðst ekki geta svarað því hvort þau hafi vitað að skammbyssan væri í töskunni. Þá var ákærði inntur eftir því að hjá lögreglu hafi ákærði borið að hann hafi beðið meðákærðu, Murat og Shpetim, að fara að Rauðagerði fyrr um laugardagskvöldið til að athuga hvort A væri heima en fyrir dómi bæri hann að hann hafi einungis beðið þá um að láta sig vita ef þeir sæju hann. Hann hafi ekki nefnt að þeir skyldu fara að Rauðagerði. Ákærði kvaðst einungis hafa beðið meðákærðu um að láta sig vita ef þeir sæju A. Ákærði ítrekaði fyrir dómi að hann hafi ekki verið búin að segja meðákærðu, Claudiu, að hann ætlaði að reyna að hitta á A á laugardagskvöldinu, þrátt fyrir að meðákærða hafi átt að láta ákærða vita um ferðir A.
  51. 3 Framburður ákærðu Claudiu Sofiu Coelho Carvalho.
  52. Ákærða, Claudia Sofia Coelho Carvalho, gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu 17. febrúar 2021 í kjölfar þess að hún var handtekin. Ákærðu var í upphafi yfirheyrslunnar kynnt að hún væri grunuð um aðild að dauða A. Ákærða bar við yfirheyrsluna að hún væri vinkona meðákærða, Angjelins. Þá bar hún að hún hefði verið vinkona A, en honum hafi hún kynnst í gegnum meðákærða, Angjelin. Þau þrjú hafi oft drukkið saman, en A hafi unnið sem dyravörður. Hún bar að meðákærði, Murat, væri einnig vinur hennar og meðákærða, Angjelins, en K væri besta vinkona ákærðu. Ákærða kvaðst þekkja F en hún og meðákærði, Angjelin, hafi stundum farið heim til F og eiginkonu hans. Eiginkona F væri jafnframt vinkona ákærðu. Ákærða kvaðst ekki hafa vitað til þess að meðákærði, Angjelin, eða F, ættu í deilum við einhverja menn. Ákærðu var því næst tjáð að lögregla hefði til rannsóknar að A hefði verið ráðinn bani 13. febrúar 2021 og hún spurð hvort hún hefði einhverjar upplýsingar um það mál. Ákærða svaraði því neitandi. Að því er varðaði ferðir hennar laugardaginn 13. febrúar lýsti ákærða því að hún hefði sofið til klukkan 16.00 þann dag. Eftir að hún fór á fætur hafi hún farið í Kringluna ásamt dóttur sinni. Síðan hafi hún farið aftur heim til sín og eldað sér kvöldmat. Hún hafi hitt meðákærða, Angjelin, um klukkan 19.30 til 20.00 þetta kvöld, en hann hafi sagt við ákærðu að hann ætlaði norður í land. Ákærða hafi farið heim til meðákærða þetta kvöld og verið þar stutta stund. Þangað hafi hún farið á sinni bifreið, Suzuki, Grand Vitara, […]. Ákærða hafi reynt að hringja í vin meðákærða til að kanna hvort þau gætu fengið sér drykk saman. Þá hafi hún sent meðákærða, Murat, símaskilaboð og spurt hvort hann gæti keypt handa henni sígarettur. Laust eftir miðnættið hafi meðákærði, Angjelin, hringt og spurt hana hvort hún vildi hitta hann í sumarbústað fyrir norðan, en þangað hafi meðákærði farið til að fara á snjósleða. Ákærða kvaðst hafa ákveðið að fara norður þessa nótt. Hún hafi verið komin norður um klukkan 06.00 um morguninn og hafi meðákærði þá verið einn í sumarbústaðnum. Ákærða var spurð hvort hún hafi komið í Rauðagerði um klukkan 18.00 á laugardeginum, en A hafi átt heima þar. Ákærða neitaði því. Aðspurð kvaðst ákærða kannast við Hyundai bifreið með skráningarnúmerinu […]. Kvaðst hún hafa verið beðin um að aka þessari bílaleigubifreið og skila henni til bílaleigunnar. Meðákærði, Murat, hefði beðið hana um það mánudaginn 15. febrúar 2021. Atvik hefðu verið með þeim hætti að meðákærði hafi hringt í ákærðu og beðið hana um viðvikið þar sem hann væri sjálfur upptekinn. Er ákærða hafi farið heim úr vinnu þennan dag hafi hún byrjað á því að aka vinkonu sinni, K, heim en eftir það farið til manns að nafni J, til að ná í lykla að Hyundai bifreiðinni. J hafi búið á sama stað og meðákærði, Angjelin. Ákærða kvaðst ekki vita hvort meðákærði, Angjelin, hafi notað umrædda bifreið. Ákærða hafi síðan skilað bifreiðinni til bílaleigunnar þriðjudagskvöldið 16. febrúar og meðákærði, Murat, sótt ákærðu að því loknu. Hafi ákærða hringt í meðákærða og beðið hann um að sækja sig. Ákærða kvaðst ekki geta skýrt af hverju hún henti jakka, sem hún hafði farið úr eftir að hún skilaði bifreiðinni, út í runna. Ákærða hafi síðan verið handtekin af lögreglu á leiðinni til baka. Lögregla bar undir ákærðu upplýsingar um að lögregla hefði undir höndum myndband af einstaklingi skjóta úr skammbyssu og væri það ætlan lögreglu að það væri ákærða en ákærða neitaði því. Þá var borið undir ákærðu að á heimili hennar að […] hafi við húsleit lögreglu fundist sex kassar með 22 kalíbera skotum. Ákærða kvaðst þá hafa verið í samkvæmi í bænum í byrjun desember 2020 og einhver einstaklingur sem hún myndi ekki hver var hafi beðið hana um að geyma skotin. Ákærða ítrekaði í lok yfirheyrslunnar að hún þekkti ekkert til þess hvernig andlát A hefði borið að.
  53. Ákærða var næst yfirheyrð af lögreglu 19. febrúar 2021. Í upphafi skýrslutökunnar kvaðst ákærða vilja taka fram að hún tengdist morðinu á A ekki á nokkurn hátt. Þegar undir ákærðu var borið að meðákærði, Angjelin, hafi greint frá því við yfirheyrslur að hann hafi beðið ákærðu um að skila Hyundai bifreiðinni greindi ákærða frá því að báðir meðákærðu, Angjelin og Murat, hefðu beðið sig um að skila henni. Meðákærði, Angjelin, hafi beðið ákærðu um þetta og það samtal átt sér stað í gegnum síma K. Ákærða ítrekaði að hún hafi einungis þekkt A í gegnum meðákærða, Angjelin. Síðast hafi þau skemmt sér saman rétt fyrir jólin 2020.
  54. Að því er varðar föstudaginn 12. febrúar 2021 lýsti ákærða ferðum sínum þannig að hún hafi byrjað daginn á því að skutla dóttur sinni í skóla. Í framhaldinu hafi hún farið til vinnu og verið þar til um klukkan 18.00. Í kjölfarið hafi hún ekið vinkonu sinni K heim og verið komin heim til sín upp úr klukkan 18.30. Um klukkan 20.30 hafi meðákærði, Angjelin, hringt og beðið hana um að þrífa íbúðina sína. Síðar hafi meðákærði, Angjelin, beðið ákærðu um að sækja meðákærða, Shpetim, og skutla honum upp í Borgarnes til fundar við sig. Hafi hún beðið úti í bíl við bensínstöð N1 í Borgarnesi á meðan meðákærðu ræddu saman. Meðákærði, Angjelin, hafi komið í Borgarnes á svörtum Range Rover, sem F átti. Aðspurð kvað ákærða meðákærða, Shpetim, ekki hafa komið með neina tösku eða neinn hlut inn í bifreiðina eftir samtal sitt við meðákærða, Angjelin. Ákærða og meðákærði, Shpetim, hafi síðan farið aftur til Reykjavíkur. Er í bæinn kom hafi ákærða ekið meðákærða heim og í framhaldi farið á ,,stelpukvöld“ til K. Eftir það hafi ákærða farið heim.
  55. Að því er varðar laugardaginn 13. febrúar lýsti ákærða fyrri hluta dagsins með sama hætti og í fyrri skýrslugjöf hjá lögreglu. Eftir kvöldmat kvaðst ákærða hafa hitt meðákærða, Angjelin, heima hjá honum klukkan 20.00. Þá hafi einnig verið þar meðákærði, Murat. Hafi meðákærði, Angjelin, farið um hálfri klukkustundu síðar og sagt að hann væri að fara norður. Hafi ákærða farið af heimili meðákærða um klukkan 21.00. Seinna um kvöldið hafi ákærða ákveðið að kaupa sígarettur en farið aftur heim til meðákærða klukkan 23.00. Ákærða hafi ekki farið neitt út á milli klukkan 23.00 og 01.30 og verið ein á heimili meðákærða. Á milli miðnættis og klukkan 01.00 hafi meðákærði, Angjelin, hringt að norðan og spurt hvort ákærða vildi hitta hann þar. Hafi ákærða samþykkt það og verið komin norður næsta morgun um klukkan 06.00. Hafi hún verið á eigin bifreið. Þegar þarna var komið sögu í yfirheyrslunni bar lögregla undir ákærðu að lögregla teldi sig hafa upplýsingar um að ákærða segði ekki rétt til um ferðir sínar laugardagskvöldið 13. febrúar. Ákærða bar þá að hún hafi farið út þetta kvöld með meðákærða, Murat, þar sem hann hafi beðið hana um að fara á tiltekinn stað sem hafi verið á bak við hótel í nágrenni við heimili meðákærða, Angjelin. Eftir það hafi ákærða skutlað meðákærða í bílinn sinn. Hið rétta væri því að meðákærði, Murat, hafi einnig verið á heimili meðákærða, Angjelins, þá um kvöldið. Þá kvað ákærða ekki alls kostar rétt að hún hafi ekki farið út af heimili meðákærða frá klukkan 23.00 til 01.30. Hún hafi á þessu tímabili farið út að kaupa sígarettur. Þá bar ákærða nú að eftir að hún hefði skutlað meðákærða, Murat, í bílinn sinn hafi ákærða farið aftur að umræddu hóteli í því skyni að senda meðákærðu, Murat og Shpetim, skilaboð þegar hún sæi tiltekinn bíl, sem meðákærði, Murat, hefði verið búinn að benda á. Um hafi verið að ræða hvítan sendiferðarbíl á bifreiðaplani hótelsins. Ekki hafi ákærða séð hver ók þeirri bifreið, en myrkur hafi verið úti. Ákærða hafi farið frá þessum stað heim til meðákærða, Angjelin, og síðan í búð til að kaupa sígarettur. Ákærða kvaðst ekki vita hvar meðákærði, Angjelin, hafi verið á þessum tíma en hann hafi sagt að hann ætlaði norður. Meðákærði, Angjelin, hafi hins vegar verið heima hjá sér klukkan 22.00 þegar ákærða hafi farið út með meðákærða, Murat. Meðákærði, Shpetim, hafi sennilega einnig verið hjá meðákærða, Angjelin. Ítrekað aðspurð kvaðst ákærða einungis hafa átt að fylgjast með sendiferðabifreiðinni við hótelið á Rauðarárstíg. Eftir að lögregla kvaðst hafa í fórum sínum myndskeið sem sýndi ákærðu fylgjast með fólksbifreið kvað ákærða það vera rétt. Meðákærði, Murat, hafi lagt fyrir hana að fylgjast bæði með sendiferðabifreiðinni og fólksbifreið, sem væru við hótelið. Hafi hann látið ákærðu í té blað með skráningarnúmerum beggja bifreiðanna. Því blaði hafi hún hent. Hafi ákærða átt að láta meðákærða, Murat, vita þegar önnur hvor bifreiðin færi frá hótelinu.
  56. Ákærða kvaðst þetta kvöld einnig hafa verið í samskiptum við meðákærða, Shpetim á meðan hún fylgdist með áðurgreindum bifreiðum og meðal annars sent honum skilaboðin: ,,hi sexy“ en hún hafi oft kallað hann ,,sexy“. Kvaðst ákærða hafa farið heim til meðákærða, Angjelin, þegar bifreiðin fór af stað. Ákærða hefði ekki séð skammbyssu hjá meðákærða, Angjelin. Hún staðfesti að hafa séð göt víða í íbúð meðákærða, Angjelins, en sagðist ekki vita hvort þau væru eftir byssukúlur eða eitthvað annað.
  57. Ákærða kvaðst ekki hafa farið í Rauðagerði þetta kvöld eða um nóttina. Ákærða var á ný spurð um skotfæri er fundust á heimili hennar við leit. Ítrekaði hún að einhver hefði látið hana fá þau í desember 2020. Er ákærða var þaulspurð hvort það hafi verið meðákærði, Angjelin, kvaðst ákærða ekki muna hvort það hafi verið hann eða einhver annar. Ákærða kvaðst hafa dvalið talsvert á heimili meðákærða, Angjelins, fyrir handtökuna. Hefði hún stundum sofið hjá meðákærða. Ekki hafi hún séð skammbyssu með hljóðdeyfi hjá honum. Ákærða var á ný spurð um ferð hennar og meðákærða, Shpetims, til Borgarness. Ákærða bar nú að meðákærði, Shpetim, hafi látið ákærðu fá litla hliðartösku eftir fund meðákærðu við N1. Meðákærði hafi hvorki opnað töskuna né sagt ákærðu hvað væri í henni. Hafi meðákærði sagt ákærðu að setja töskuna í skott bifreiðarinnar þar sem viðvörunarþríhyrningur bifreiðarinnar var geymdur. Eftir að til Reykjavíkur kom hafi meðákærði, Shpetim, tekið töskuna úr bifreiðinni.
  58. Ákærða bar nú að er hún hafi komið norður í sumarbústaðinn til meðákærða, Angjelins, hafi meðákærði, Shpetim, verið þar fyrir. Hann hafi farið suður skömmu síðar á bifreið hennar. Um nóttina hafi ekkert verið rætt um andlát A. Næsta dag hafi hún og meðákærði, Angjelin, séð í fjölmiðlum að einhver var látinn. Ákærðu hafi ekki rætt það neitt frekar. Vinur meðákærða, Angjelins, J og kona hans, hafi komið með bíl ákærðu aftur norður að sunnan. Meðákærði, Angjelin, og ákærða hafi farið suður aftur laust eftir hádegi á mánudagsmorgninum á Hyundai bifreiðinni. Hafi ákærða ekið meðákærða, Angjelin, heim til meðákærða, Shpetims, í Reykjavík. Ákærða ítrekaði að hún hafi hent jakka sem hún klæddist við skil á Hyundai bifreiðinni því henni hafi verið mjög heitt. Kvaðst ákærða ekki hafa orðið lögreglu vör fyrr en hún var handtekin síðar sama kvöld.
  59. Ákærða var næst yfirheyrð af lögreglu 25. febrúar 2021. Ákærða kvaðst ekki hafa vitað til þess að meðákærði, Angjelin, hafi fyrir andlát A fengið hótanir um ófarnað. Er undir ákærðu var borið að umræddar hótanir hafi verið til umræðu á heimili meðákærða, Angjelins, að kvöldi laugardagsins 13. febrúar bar hún um að þeir sem hafi verið á heimilinu hafi talað saman á albönsku, en það tungumál skilji hún ekki. Um síðari atvik bar ákærða á sama veg og í fyrri skýrslu hjá lögreglu. Ákærða sagði að skilaboð hennar til meðákærða, Shpetims, sem hún hafi sent rétt fyrir miðnætti laugardaginn 13. febrúar, ,,hi sexy“, hafi ekki merkt neitt. Er undir hana var borið að meðákærði, Shpetim, hafi sagt að þau skilaboð hafi átt að setja af stað atburðarás lýsti ákærða því að það væri rétt. Hafi verið lagt fyrir hana að senda nákvæmlega þessi skilaboð þegar bifreið sú, sem henni hafði verið falið að fylgjast með, væri ekið af stað frá hótelinu við Rauðarárstíg […] í Reykjavík. Ákærða kvaðst ekki hafa vitað hvar meðákærði, Angjelin, var á þeim tíma. Að því er varðaði ferðina til Borgarness endurtók ákærða að hún hafi ekki vitað hvað var í hliðartöskunni sem meðákærði, Shpetim, kom með í bifreið ákærðu eftir samtal hans við meðákærða, Angjelin. Töskuna hafi ákærða séð áður á heimili meðákærða, Angjelins, en meðákærði hafi oft verið með hana á sér. Ákærða sagði að miðað við þyngd töskunnar í Borgarnesi hafi skammbyssa getað verið í henni. Hluturinn í töskunni hafi verið harður viðkomu og þungur. Hafi ákærða gripið um eitthvað kringlótt, sem gæti hafa verið hljóðdeyfir byssu. Ákærða kvaðst hafa séð skammbyssu meðákærða, Angjelins, heima hjá honum og hafi ákærða beðið hann um að fara með hana því ákærða væri hrædd við byssur. Umrætt atvik hafi verið fyrir áramótin 2020 til 2021. Þá gat ákærða þess, aðspurð, að meðákærðu hafi látið ákærðu fá síma sína og meðákærði, Angjelin, úr sitt til geymslu á meðan þeir ræddu saman í Borgarnesi. Ákærða kvaðst ekki hafa veitt því athygli að meðákærði, Angjelin, hafi verið stressaður á heimili sínu laugardagskvöldið 13. febrúar 2021.
  60. Ákærða var næst yfirheyrð af lögreglu 10. mars 2021. Kvaðst hún hafa farið út laugardagskvöldið 13. febrúar til að fá sér frískt loft á meðan meðákærðu, Angjelin, Murat og Shpetim, ræddu saman heima hjá meðákærða, Angjelin. Hún endurtók að meðákærðu hafi rætt saman á albönsku og hún ekki skilið orð af því sem þeir sögðu. Hafi ákærða skilið síma sinn og bíllykla eftir í íbúðinni er hún fór út. Er ákærða kom til baka hafi verið búið að færa bíl hennar úr stað á bílastæði fyrir utan húsið, auk þess sem baksýnisspegill bifreiðarinnar hafði verið hreyfður til. Ákærða kvaðst hafa vitað að meðákærðu, Angjelin og Shpetim, væru saman að kvöldi laugardagsins 13. febrúar. Þeir hafi að minnsta kosti farið saman af heimili meðákærða, Angjelin. Meðákærði, Murat, hafi beðið ákærðu um að senda meðákærða, Shpetim, skilaboðin ,,hi sexy“, og hafi skilaboðin verið ætluð öðrum hvorum þeirra.
  61. Ákærða var næst yfirheyrð hjá lögreglu 15. mars 2021. Ákærða bar við þá yfirheyrslu að hún hefði fyrst frétt mánudagskvöldið 15. febrúar 2021 að A hefði verið ráðinn bani. Hún hafi séð í fréttum á sunnudeginum eða mánudeginum að einhver hefði dáið í kjölfar skotárásar. Hafi ákærða og meðákærði, Angjelin, ekkert rætt þessi mál þegar þau voru fyrir norðan. Hafi ákærða ekki haft neina vitneskju um hver hefði ráðið A bana. Ákærða ítrekaði að hún hafi ekki haft neina vitneskju um hótanir í garð meðákærða, Angjelins, og F áður en A var ráðinn bani. Kvaðst ákærða ekki minnast þess að meðákærði hafi varað ákærðu við því. Minntist hún þess ekki að meðákærði hafi beðið ákærðu um að fylgjast með einhverju grunsamlegu sem gæti bent til þess að fylgst væri með meðákærða, Angjelin. Ákærða kvaðst halda að hún hafi farið í göngutúrinn að kvöldi laugardagsins 13. febrúar til að fá sér frískt loft þar sem henni hafi verið illt í maganum. Hafi gönguferðin ekki verið farin í því skyni að kanna hvort einhver væri að fylgjast með heimili meðákærða, Angjelins. Ákærða kvaðst ekki hafa orðið vör við að meðákærði, Angjelin, hafi verið sérstaklega stressaður eftir að hann kom að norðan á laugardeginum.
  62. Að síðustu var ákærða yfirheyrð hjá lögreglu 23. mars 2021. Við þá skýrslugjöf sagðist hún hafa skutlað meðákærða, Angjelin, heim til meðákærða, Shpetims, laugardagskvöldið 13. febrúar en ekki farið inn. Meðákærði, Murat, hafi þá verið þar staddur. Ákærða hafi sótt meðákærða, Angjelin, um klukkan 21.00 þetta kvöld en í það skipti farið inn til meðákærða, Shpetims. Er hún hafi verið að skutla meðákærða, Angjelin, þetta kvöld hafi hann sagt henni frá hótunum sem honum hefðu borist. Á leiðinni frá meðákærða, Shpetim, hafi meðákærði, Angjelin, verið bæði æstur og stressaður. Þegar þau hafi komi að heimili meðákærða hafi hvítur jeppi staðið þar fyrir utan. Hafi meðákærði haft á orði að þar færi I og beðið hana um að keyra hratt í burtu því ,,þeir“ hafi verið að hóta honum. Ákærða hafi þá ekið burt af staðnum. Þessum jeppa hafi verið ekið á braut skömmu síðar. Eftir að hafa falið bifreiðina hafi ákærðu farið í göngutúr. Annar maður hafi beðið neðar í götunni. Ákærðu hafi síðan farið inn á heimili meðákærða, Angjelins, í Brautarholti. Kvaðst ákærða halda að meðákærði hafi þá verið með hliðartöskuna með skammbyssunni á sér.
  63. Ákærða kvaðst hafa vitað að einhverjir hefðu hótað meðákærða og barni hans. Hún hafi ekki greint frá þessu fyrr af ótta við hefndir. Ákærða bar nú að meðákærði, Angjelin, hafi sagt henni frá því í sumarbústaðnum fyrir norðan, annað hvort á sunnudagskvöldinu eða mánudagsmorgninum, að hann hefði skotið A. Hafi meðákærði sagt að A hefði hótað honum og barni hans. Meðákærði hafi verið í hvítum skóm fyrir norðan. Hafi hann klippt eða skorið skóna í sundur og hent þeim. Hann hafi sagt að skammbyssa hans myndi aldrei finnast. Ákærða kvaðst hafa verið hrædd er hún hafi skilað Hyundai bifreiðinni þriðjudaginn 16. febrúar. Hafi hún orðið vör við að einhverjir fylgdust með henni og talið að það væru menn sem hafi verið á höttunum eftir meðákærða, Angjelin. Ákærða hafi hent jakka er hún fór úr til að villa um fyrir þeim sem hafi fylgt henni eftir. Í þessari skýrslu bar ákærða að meðákærði, Angjelin, hafi verið sá sem bað hana um að fylgjast með bifreið A laugardagskvöldið 13. febrúar. Skilaboð um að bifreiðin væri að fara af stað hafi hún átt að senda meðákærða, Angjelin. Ekki hafi ákærða vitað að til stæði að bana A.
  64. Ákærða gaf skýrslu fyrir héraðsdómi við aðalmeðferð málsins. Bar hún á þann veg að meðákærði, Angjelin, hafi hringt í hana föstudaginn 12. febrúar 2021, en þá hafi meðákærði verið fyrir norðan. Hafi hann farið þess á leit við ákærðu að hún kæmi með meðákærða, Shpetim, til fundar við sig í Borgarnesi. Það hafi gengið eftir. Meðákærðu, Angjelin og Shpetim, hafi látið ákærðu fá síma sína og úr áður en þeir hafi farið afsíðis til að ræða saman. Ekki hafi ákærða vitað hvað meðákærðu hafi farið á milli. Er þeir hafi komið til baka hafi meðákærði, Angjelin, látið ákærðu fá hliðartösku til að geyma fyrir sig. Töskuna hafi ákærða átt að fara með til Reykjavíkur. Ákærða kvaðst hafa sett töskuna í bifreiðina en ekki spurt hvað væri í henni. Eitthvað þungt og hart hafi verið í töskunni. Ákærða kvaðst einskis hafa spurt þó svo að hún hafi vitað að meðákærði væri yfirleitt með skammbyssu í töskunni. Skammbyssuna hafi ákærða stundum séð heima hjá meðákærða, Angjelin. Þegar til Reykjavíkur kom hafi meðákærði, Shpetim, tekið töskuna og geymt heima hjá sér. Ákærða kvaðst ekki hafa haft vitneskju um hvenær meðákærði, Angjelin, hafi ætlað að koma aftur til Reykjavíkur. Fyrr í vikunni hafi hann rætt um að koma aftur suður á mánudag eða þriðjudag. Ákærða hafi næst heyrt frá meðákærða, Angjelin, á laugardeginum 13. febrúar um klukkan 17.00, en meðákærði hafi hringt í ákærðu. Hafi meðákærði sagt að hann væri á leið í bæinn og spurt hvort ákærða gæti ekki hitt meðákærða heima hjá honum í Brautarholti. Jafnframt hafi meðákærði spurt hvort ákærða gæti ekki tekið meðákærða, Shpetim, með sér. Meðákærði, Angjelin, hafi hringt í ákærðu úr síma PP. Á einhverjum tímapunkti hafi meðákærði sagt að hann væri kominn í bæinn til að ná í fleiri föt, en hann ætlaði norður aftur. Ákærða hafi á laugardagskvöldinu farið heim til meðákærða, Angjelins, og tekið með sér meðákærða, Shpetim. Er þangað kom hafi ákærða farið að þvo þvott. Meðákærðu, Angjelin og Shpetim, hafi rætt saman á albönsku, en ákærða ekki skilið samræðurnar. Meðákærði, Angjelin, hafi síðan beðið hana um að skutla meðákærðu, Angjelin og Shpetim, heim til þess síðarnefnda. Meðákærði, Angjelin, hafi beðið ákærðu um að koma aftur heim til meðákærða, Shpetims, um klukkan 21.00 til að ná í sig. Ákærða hafi orðið þess áskynja að einhverjir hafi verið að fylgjast með heimili meðákærða, Angjelins, laugardagskvöldið 13. febrúar. Hafi meðákærði, Angjelin, sagt að það væru I og G. Er ákærða hafi nálgast heimili meðákærða, Angjelins, hafi hann beðið hana um að leggja bifreiðinni fjarri heimili hans þar sem einhverjir hafi verið þar fyrir utan. Meðákærði hafi sagt að þessir menn hafi hótað honum og barni hans. Áður hafði ákærða heyrt að einhver vandamál tengdust F, en hún hafi ekki vitað hvers eðlis þau voru. Meðákærði, Angjelin, hafi verið með hliðartöskuna heima hjá sér laugardagskvöldið 13. febrúar. Ákærða hafi farið út að ganga, en er hún hafi komið til baka hafi meðákærðu, Murat og Sheptim, verið komnir. Ákærða hafi verið í íbúðinni um hríð við að taka til og laga kaffi. Því næst hafi meðákærði, Angjelin, beðið ákærðu um að fylgjast með hvítri sendiferðabifreið á bílastæði við hótel við Rauðarárstíg […] í Reykjavík. Þegar ákærða sæi bifreiðina taka af stað ætti hún að senda meðákærða skilaboðin: ,,hi sexy“, í síma meðákærða, Shpetims. Ekki hafi verið nefnt hver ætti bifreiðina eða væri á henni. Meðákærði, Murat, hafi farið með ákærðu að Rauðarárstíg […]og sýnt henni bifreiðina, en að því loknu hafi ákærða skutlað honum til baka heim til meðákærða, Angjelins. Ákærða hafi orðið leið á að fylgjast með bifreiðinni og hringt í meðákærða, Angjelin, og spurt hvort hún mætti ekki koma til baka. Í því samtali hafi meðákærði sagt að ákærða ætti einnig að fylgjast með fólksbifreið af Volvo gerð. Öll samtölin hafi farið fram í gegnum síma meðákærða, Shpetims. Á meðan ákærða hafi beðið hafi hún skotist frá til að kaupa sígarettur. Síðar hafi meðákærði, Murat, hringt og sagt að hann sæi ákærðu ekki við vaktina. Hafi ákærða beðið hann um að koma með kveikjara fyrir sig. Volvo bifreiðin hafi síðan farið af stað og ákærða sent umrædd skilaboð í síma meðákærða, Shpetims. Ekki hafi ákærða vitað hvað til stæði þetta kvöld. Eftir að bifreiðinni var ekið burtu hafi ákærða farið aftur í verslun til að kaupa sígarettur en þaðan hafi ákærða farið heim til meðákærða, Angjelins.
  65. Meðákærði, Angjelin, hafi hringt í ákærðu um nóttina og spurt hvað hún væri að gera. Ákærða hafi sagt að hún væri heima hjá meðákærða að drekka vodka. Meðákærði hafi spurt hvort hún væri ekki til í að koma norður til hans. Það hafi hún gert og verið komin norður um klukkan 06.00 að morgni sunnudagsins 14. febrúar. Hún hafi hitt meðákærðu, Angjelin og Shpetim, við bensínstöð, en þaðan hafi þau farið í samfloti í sumarbústaðinn. Þar hafi meðákærði, Angjelin, spurt hvort meðákærði, Shpetim, mætti fá bifreið hennar lánaða og fara á henni suður og hún samþykkt það og ekki fundist neitt sérkennilegt að meðákærði, Shpetim, færi strax suður. Á sunnudeginum hafi meðákærði, Angjelin, hringt í vin sinn, J, og beðið hann um að koma norður með föt til sín. J hafi farið heim til meðákærða, Shpetims, og nálgast Suzuki bifreið ákærðu þar. Á henni hafi hann komið norður. Fyrir norðan hafi meðákærði, Angjelin, beðið J um að fara suður á Hyundai bifreiðinni og leggja henni þar. Einhverju síðar hafi ákærða og meðákærði, Angjelin, heimsótt F. Er þau hafi komið til baka í sumarbústaðinn hafi meðákærði, Angjelin, eyðilagt skó sem hann hafi verið í og síðan hent þeim. Hafi ákærða séð á Facebook að A væri látinn. Hafi ákærða spurt meðákærða, Angjelin, hvort hann hafi banað A. Hafi meðákærði viðurkennt það. Ákærða kvaðst hafa vitað af því að illdeilur hafi staðið á milli meðákærða og A. Ákærða, ásamt J, hafi átt að skila Hyundai bifreiðinni fyrir sunnan. J hafi hringt og sagt að hann væri búinn að drekka áfengi. Hafi meðákærði, Angjelin, hringt og sagt að ákærða skyldi skila bifreiðinni og hún spurt hann hvort meðákærði, Murat, gæti ekki sótt hana að því loknu. Er hún hafi verið að skila bifreiðinni hafi hún orðið þess vör að með henni var fylgst. Hafi hún orðið óttaslegin og óttast að um væri að ræða þá einstaklinga er hafi verið að fylgjast með meðákærða, Angjelin. Hafi ákærða farið úr jakka og losað um hár sitt til að dyljast. Ákærða kvaðst hafa verið hrædd eftir alla þessa atburði. Lögregla hafi handtekið ákærðu eftir að meðákærði, Murat, hafði skutlað henni að bifreið sinni. Hafi ákærðu fundist hún vera að gera meðákærða, Angjelin, greiða með því að skila Hyundai bifreiðinni, þó svo hún hafi vitað að meðákærði var á þeirri bifreið er hann réð A bana.

Framburður ákærða, Murat Selivrada.

  1. Ákærði, Murat Selivrada, gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu 17. febrúar 2021. Hann kvaðst vera vinur bæði meðákærða, Angjelins, sem og A. Í janúar 2021 hafi eitthvað slest upp á vinskap þeirra tveggja. Deilur þeirra hafi sprottið af tengslum við einhvern Íslending sem meðákærði, Angjelin, hafi verið að verja. Hafi A verið ósáttur við það. Meðákærði hafi sagt að ekki mætti snerta viðkomandi. Ákærði kvaðst vita að F og meðákærði, Angjelin, væru vinir. Ekki vissi ákærði hvort deilur meðákærða og A hafi tengst F. Ákærði kvaðst hafa verið í vinnu til um klukkan 14.00 laugardaginn 13. febrúar 2021. Eftir það hafi hann, ásamt eiginkonu sinni, farið til Hafnafjarðar til að skoða verk er ákærði hafði tekið að sér að vinna. Í kjölfarið hafi þau farið að versla úti á Granda í Reykjavík og að því loknu farið heim til sín. Hafi elsti sonur ákærða komið í heimsókn um kvöldið og verið til um klukkan 23.00. Ákærði og eiginkona hans hafi horft á sjónvarp allt þar til H hafi hringt og greint frá því að A hefði verið ráðinn bani. Ákærði kvaðst ekki hafa komið í námunda við heimili meðákærða, Angjelins, eða heimili A, þennan dag. Hann sagðist hafa hitt HH þriðjudaginn 16. febrúar, en hann hefði beðið ákærða um að hafa uppi á meðákærða, Angjelin. Hafi ákærði þá áttað sig á því að hann væri með símanúmer meðákærðu, Claudiu, kærustu meðákærða, Angjelins. Hafi ákærði hringt í meðákærðu, Claudiu, sem hafi beðið ákærða um að aðstoða sig og koma í því skyni niður í Holtagarða. Hafi ákærði í kjölfarið sótt meðákærðu á strætisvagnabiðstöð. Hafi hún verið mjög stressuð og vör um sig. Hún hafi beðið ákærða um að skutla sér heim til meðákærða, Angjelins, og tjáð honum að meðákærði, Angjelin, væri ekki heima. Hafi ákærði því hleypt henni úr bifreiðinni við heimili meðákærða, Angjelins, en ekki farið inn. Hafi ákærði í framhaldi verið handtekinn af lögreglu. Ákærði kvaðst saklaus af því að A var ráðinn bani og myndi hann aðstoða lögreglu við að hafa upp á banamanni hans.
  2. Ákærði gaf næst skýrslu hjá lögreglu 22. febrúar 2021. Kvaðst hann í upphafi skýrslutökunnar vilja greina frá því að hann myndi núna að hann hefði farið með sígarettur til meðákærðu, Claudiu, laugardagskvöldið 13. febrúar 2021. Hafi meðákærða hringt í ákærða og beðið hann um þennan greiða en hún hafi verið búin að týna greiðslukortinu sínu. Hafi ákærði hitt meðákærðu þetta kvöld rétt um klukkan 22.00 nærri Hlemmi og ekki hitt hana oftar um kvöldið. Þá kvaðst ákærði ekki hafa hitt neina aðra umrætt kvöld, svo sem hann bar í fyrri yfirheyrslu. Þá hefði hann ekki farið á heimili meðákærða, Angjelins, þetta kvöld. Ákærði ætti Benz bifreið með skráningarnúmerinu […]. Enginn annar hafi haft bifreiðina til afnota þetta kvöld. Ákærði kvaðst þekkja meðákærða, Shpetim, en þeir hafi unnið saman við múrverk einhverju áður. Hafi ákærði hitt meðákærða, Angjelin, mánudaginn 15. febrúar 2021 er hann hafi ekið meðákærða í verslun. Þar áður hafi ákærði hitt meðákærða fáeinum dögum áður er ákærði hafi lánað meðákærða verkfæri. Ákærði kvaðst ekki hafa hitt meðákærða, Angjelin, laugardagskvöldið 13. febrúar 2021. Ákærði kvaðst ekki þekkja J. Er undir ákærða var borið að meðákærða, Claudia, hefði greint lögreglu frá því að ákærði hefði verið á heimili meðákærða, Angjelins, laugardagskvöldið 13. febrúar sagðist ákærði hafa farið í anddyri heimilis meðákærða til að sækja þangað verkfæri. Hann hafi verið einn og engan hitt. Hann hafi komið á staðinn þetta kvöld á milli klukkan 20.00 og 21.00.
  3. Ákærði var spurður um símasamskipti við meðákærða, Shpetim, áðurgreindan dag og bar hann um að hann hefði rætt við meðákærða þennan dag um verkfæri ákærða. Er ákærða var bent á að gögn bentu til að þeir hafi einnig ræðst við um kvöldið sagði ákærði að það væri rétt. Þá hafi þeir einnig rætt um verkfæri. Er undir ákærða var borið að meðákærði, Shpetim, hefði greint svo frá að ákærðu, Shpetim, Angjelin og Murat, hefðu rætt hótanir í garð meðákærða, Angjelins, sagði ákærði að það væri rétt að þeir hefðu rætt saman fjórum dögum fyrr. Hafi ákærði ekki lagt við hlustir og í raun ekki vitað um hvað það snerist. Ekki væri rétt hjá meðákærðu, Claudiu, að slíkar hótanir hafi verið ræddar laugardagskvöldið 13. febrúar. Ákærði bar nú að hann hefði komið á heimili meðákærða, Angjelins, ásamt meðákærða, Shpetim, laugardagskvöldið 13. febrúar, en þangað hafi þeir komið rétt eftir klukkan 21.00. Hafi meðákærði, Shpetim, haft samband og beðið um far heim til meðákærða, Angjelins, en meðákærðu, Angjelin og Shpetim, væru góðir vinir. Hafi ákærði skilið meðákærða, Shpetim, eftir í íbúð meðákærða, Angjelins, sem ekki hafi verið heima. Meðákærða, Claudia, hafi komið heim til meðákærða, Angjelins, þetta kvöld. Þau tvö hafi í framhaldi farið í ökuferð en ákærði hafi ætlað að hitta ákveðinn mann. Er ákærði hafi verið fyrir utan hótel þar sem maðurinn hafi búið hafi ákærði hringt í manninn. Þá hafi komið í ljós að maðurinn var ekki heima. Í kjölfarið hafi meðákærða, Claudia, ekið ákærða aftur að bifreið sinni. Er undir ákærða var borið að meðákærða, Claudia, hafi greint frá því hjá lögreglu að hún hafi átt að senda ákærða skilaboð þegar hún sæi ákveðnar bifreiðar kvað ákærði það rangt. Eins væri rangt að hún hafi látið hann vita er A lagði af stað frá Rauðarárstíg […]. Hafi ákærði ekki vitað af A á svæðinu. Hafi hann ekki átt neinn þátt í því að fylgjast með ferðum A þetta kvöld. Þá kvaðst hann hvorki hafa hitt né rætt við meðákærða, Angjelin, að kvöldi laugardagsins 13. febrúar. Er undir ákærða var borið myndskeið úr eftirlitsmyndavél sem sýnir mann koma frá heimili meðákærða, Angjelins, í Brautarholti klukkan 23.21 þetta sama kvöld kvaðst ákærði hafa ætlað að sækja meðákærða, Shpetim, sem ekki hafi verið á staðnum. Símasamskipti þeirra í kjölfarið hafi tengst því að hann hafi átt að sækja og skutla meðákærða. Eftir klukkan 23.35 hafi ákærði ekið heim til sín. Ákærði kvaðst hafa frétt þremur eða fjórum dögum fyrir árásina á A að H, A, G og félagar hafi ætlað að vinna meðákærða, Angjelin, mein þegar hann kæmi úr ferð að norðan. Hafi A ætlað að ,,handrukka“ einhvern Íslending sem hafi verið vinur meðákærða, Angjelins, en meðákærði, Angjelin, ekki samþykkt það.
  4. Ákærði óskaði eftir að gefa skýrslu hjá lögreglu 25. febrúar 2021. Ítrekaði hann í skýrslutökunni að hann hefði ekki hitt meðákærða, Angjelin, að kvöldi laugardagsins 13. febrúar 2021, og að hann hefði verið fyrir utan hótel á Rauðarárstíg […] þetta kvöld til að hitta nafngreindan vin sinn.
  5. Ákærði var aftur yfirheyrður af lögreglu 5. mars 2021. Greindi hann svo frá að hann hefði verið heima hjá sér laugardagskvöldið 13. febrúar þegar meðákærði, Shpetim, hafi haft samband og beðið hann um að aðstoða sig. Hafi hann síðan farið heim til meðákærða og verið þar um stund en síðan skutlað meðákærða, Shpetim, heim til meðákærða, Angjelins. Hafi ákærði talið að meðákærði, Angjelin, væri norður í landi. Meðákærði, Sheptim, hafi ætlað að hitta meðákærðu, Claudiu, heima hjá meðákærða, Angjelin. Þau tvö hafi rætt saman í síma og meðákærða, Claudia, sagt við meðákærða, Shpetim, að hún væri ekki á staðnum en opið væri inn í íbúðina. Meðákærði, Shpetim, hafi farið inn í íbúð meðákærða, Angjelins, en ákærði kvaðst ekki muna hvort hann fór sjálfur inn. Sagðist hann hafa farið að gá að verkfærum sínum sem hafi verið á staðnum. Meðákærða, Claudia, hafi síðan komið í íbúðina. Því næst hafi ákærði yfirgefið staðinn til að hitta áðurnefndan mann sem hann hafi ætlað að hitta á Rauðarárstíg. Ákærði hafi síðar um kvöldið farið aftur að heimili meðákærða, Angjelins, til að ná í meðákærða, Shpetim. Þeir hafi rætt saman í síma og meðákærði sagt að hann ætlaði ekki með ákærða því nokkuð hefði komið upp á. Ákærði kvað framburð meðákærða, Angjelin, hjá lögreglu ekki réttan um að hann hefði hitt meðákærða, Angelin, í íbúðinni þetta kvöld. Eins væri rangt er önnur meðákærðu hefðu borið hjá lögreglu að þau hefðu öll hitt ákærða í íbúðinni um kvöldið. Ákærði kvaðst ekki hafa hitt manninn sem hann hafi ætlað að hitta við Rauðarárstíg. Þeir hafi hins vegar rætt saman í síma og ákveðið að hittast hjá veitingastaðnum […] í Bankastræti. Í kjölfarið hafi meðákærða, Claudia, ekið ákærða að bifreið hans. Þaðan hafi ákærði farið og hitt fyrrgreindan mann hjá veitingastaðnum […]. Áður hafi hann þó farið að heimili meðákærða, Angjelin, til að ná í meðákærða, Shpetim, sem hafi eins og áður sagði ekki viljað fara með ákærða. Meðákærða, Claudia, hafi ekki verið með í för er ákærði hafi hitt vin sinn. Eftir að hafa hitt vin sinn hafi ákærði farið aftur til meðákærðu, Claudiu, og fært henni sígarettur. Þaðan hafi ákærði farið heim til sín. Eftir miðnættið hafi H hringt og sagt hvað hefði komið fyrir A. Hafi ákærði farið upp á spítala í kjölfar símtalsins.
  6. Í yfirheyrslunni var ítrekað borið undir ákærða að meðákærðu hefðu greint svo frá að ákærði hefði hitt öll meðákærðu í íbúð meðákærða, Angjelins, á laugardagskvöldinu. Ákærði staðhæfði að það væri ekki rétt. Þá kvað ákærði ekki rétt að hann hefði sýnt meðákærðu, Claudiu, hvaða bifreiðum hún ætti að fylgjast með á Rauðarárstíg […], sem væru bifreiðar A. Hafi ákærði ekki þurft að gera það þar sem meðákærða, Claudia, hafi þekkt hvaða bifreiðar A hefði haft til umráða. Kvaðst ákærði hafa verið að vinna á heimili A tveim vikum fyrir árásina og þá hafi meðákærðu, Angjelin og Claudia, komið þangað í heimsókn. Þá bar ákærði aðspurður að meðákærði, Shpetim, hafi einnig komið á heimili A að Rauðagerði.
  7. Ákærði greindi svo frá að hann hefði komið í Rauðagerði laugardaginn 13. febrúar 2021. Hafi A verið búinn að biðja ákærða um að vinna að sprunguviðgerðum á húsi í götunni. Hafi það verið fjórum til fimm húsum frá heimili A. Þennan dag hafi meðákærði, Shpetim, verið með ákærða í bifreiðinni í Rauðagerði. Þangað hafi ákærðu farið eftir klukkan 18.00 áðurgreindan dag. Á leið um Rauðagerðið hafi ákærðu ekið fram hjá húsi A. Ákærðu hafi verið á bifreið meðákærðu, Claudiu, og farið frá heimili meðákærða, Angjelins. Ákærði hafi ekið þar sem meðákærði, Shpetim, hafi ekki verið með ökuréttindi. Ekki hafi ákærðu hitt neinn í Rauðagerði. A hafi haft milligöngu um að ákærði myndi vinna verkið við húsið í Rauðagerðinu. Er ákærða var sýnd mynd af hliðartösku meðákærða, Angjelins, kvaðst ákærði hafa séð þessa tösku hjá meðákærða, en ekki hafa vitað hvað hann geymdi í töskunni. Ákærði kvaðst hafa heyrt frá öðrum að meðákærði væri með skammbyssu í töskunni en það hafi hann aldrei séð sjálfur með eigin augum. Einhver vinur ákærða hafi sagt ákærða frá því að meðákærði, Angjelin, hafi verið að skjóta úr þessari skammbyssu í samkvæmi á heimili sínu. Ákærði kvaðst aldrei hafa séð Hyundai bifreið með skráningarnúmerið […]. Hann kvað meðákærðu, Claudiu, hafa hringt í sig þriðjudaginn 16. febrúar er hún hafi verið stödd við Holtagarða og hún beðið sig um að ná í sig. Kvaðst ákærði hafa skutlað meðákærðu að bifreið hennar. Hann kvaðst á hinn bóginn ekki hafa beðið meðákærðu um að skila bifreiðinni þennan dag. Ákærði hafi ekki verið í samskiptum við neinn um skil á þessari bifreið. Vinkona ákærða, K, hafi þó verið í sambandi við ákærða um að sækja meðákærðu, Claudiu, eftir að hún hefði skilað bifreiðinni. Hafi K látið ákærða fá kort af þeim stað er hann hafi átt að sækja meðákærðu. Ákærði kvaðst helst halda að meðákærði, Angjelin, hafi beðið K um að biðja ákærða um að aðstoða við að sækja meðákærðu, Claudiu, en meðákærði, Angjelin, og K væru góðir vinir. Ákærði kvaðst ekki hafa trúað því að meðákærði, Angjelin, hafi verið sá sem banaði A. Þess vegna hafi ákærði verið til í að sækja meðákærðu, Claudiu, eftir að hún hafði skilað Hyundai bifreiðinni. Ákærði kvaðst hafa verið vinur bæði A og meðákærða, Angjelins. Samt hafi hann ekki vitað að ágreiningur þeirra á milli væri það alvarlegur að hann gæti leitt til manndráps. Hafi ákærði sagt við báða að hætta þessu rugli, að vera ekki að standa í þessu. Hafi hann heyrt að ágreiningurinn tengdist á einhvern hátt fíkniefnaviðskiptum.
  8. Ákærði var næst yfirheyrður hjá lögreglu 17. mars 2021. Hann gerði í upphafi grein fyrir ferð sinni og meðákærða, Shpetims, í Rauðagerði laugardaginn 13. febrúar 2021 til að skoða hús sem til stóð að þeir gerðu við. Ákærði kannaðist ekki við að hafa sagt í fyrri skýrslu að þeir ákærðu hefðu farið af stað um klukkan 18.00 á laugardeginum heldur upp úr klukkan 21.00 um kvöldið. Ákærðu hafi farið að heiman frá meðákærða, Angjelin, en áður hafi ákærði verið búinn að sækja meðákærða, Shpetim, þangað. Er ákærði var beðinn um að merkja á kort húsið sem vinna hafi átt við kvað hann A hafa vitað um hvaða hús væri að ræða, en ákærði hafi ekki verið með nákvæmar upplýsingar um það. Hafi ákærði talið þrjú hús koma til greina, en húsin hafi verið í Borgargerði þar sem ekið væri niður í Rauðagerði. Í ökuferðinni hafi ákærðu ekki fundið það hús er um ræddi, en þeir hafi meira verið að átta sig á heildaraðstæðunum. Eftir að hafa skoðað vettvang hafi þeir ekið aftur að heimili meðákærða, Angjelins. Í framhaldinu hafi ákærði ætlað að hitta vin sinn á hótelinu við Rauðarárstíg […]. Er undir ákærða var borið að myndskeið gæfu til kynna að ákærðu hafi komið við á hótelinu við Rauðarárstíg […] á bakaleið frá Rauðagerði lýsti ákærði því að hann hafi ætlað að hitta þennan vin sinn. Hafi hann athugað hvort bifreið þessa vinar síns hafi verið við hótelið en ekki séð hana. Ákærði kvaðst hafa verið stöðvaður af lögreglu þetta kvöld. Hafi hann verið á Benz bifreið sinni nærri heimili meðákærða, Angjelins. Ástæða afskipta lögreglu hafi verið að annað afturljós bifreiðarinnar hafi ekki verið í lagi. Hafi ákærði sennilega verið að koma úr Breiðholti og á leið heim til sín. Ákærði kvaðst ítreka að hafa ekki hitt meðákærða, Angjelin, þetta kvöld. Í framburði ákærða kom fram að vinur ákærða, H, hafi greint honum frá því að meðákærði, Angjelin, hafi sótt menn að utan til að ráðast á A. Hafi meðákærði gert það þar sem A hafi verið búinn að hafa í hótunum við meðákærða, eftir að A hafði sektað vin meðákærða. Í skýrslutökunni var borið undir ákærða að samkvæmt gögnum lögreglu hafi ákærði, ásamt meðákærða, Shpetim, komið að heimili meðákærða, Angjelins, klukkan 21.07 að kvöldi laugardagsins. Ákærði kvað það geta staðist. Stuttu síður hafi ákærði og meðákærði, Shpetim, farið á bifreið meðákærðu, Claudiu, frá heimili meðákærða, Angjelins, og sést skammt frá heimili A í Rauðagerði klukkan 21.19. Ákærði kvað það einnig geta staðist, en þá hafi ákærðu verið að skoða áðurnefnt hús. Skömmu síðar hafi bifreið meðákærðu, Claudiu, verið ekið inn í port við […] við Rauðarárstíg […] og nokkru síðar heim til meðákærða, Angjelins. Ákærði kvaðst ekki muna hvort meðákærði hafi verið með í för en tilgangurinn hafi verið að hitta vin ákærða, L. Um klukkan 21.55 hafi tveir einstaklingar farið út í bifreið meðákærðu, Claudiu, sem hafi verið við heimili meðákærða, Angjelins, og farið að […]. Ákærði bar að þar hafi hann og meðákærða, Claudia, verið á ferð. Lýsti ákærði því að hann hafi fengið far með meðákærðu en ákærði hafi ætlað að hitta á L. Það hafi hins vegar ekki tekist. Þau hafi farið aftur að heimili meðákærða, Angjelins, og ákærði sótt verkfæri sín og tekið þau með sér út í bílinn sinn. Ákærði hafi síðan farið að hitta L og verið á ferð við veitingastaðinn […] í Bankastræti um klukkan 22.10 þetta kvöld. Þeir hafi rætt stuttlega saman. Síðar þetta kvöld hafi ákærði, að beiðni meðákærðu, Claudiu, farið með kveikjara til hennar þar sem hún hafi verið fyrir utan […]. Í kjölfarið af því hafi lögregla stöðvað för ákærða nærri heimili meðákærða, Angjelin, eða klukkan 23.05. Að því loknu eða klukkan 23.14 hafi ákærði lagt bifreið sinni við heimili meðákærða, Angjelins, en til hafi staðið að ákærði myndi aka meðákærða, Shpetim, heim. Meðákærði hafi hringt og sagt að hann myndi ekki fara með ákærða heim. Seinna hafi meðákærði, Shpetim, hringt aftur í hann og sagt að hann væri á leið úr bænum. Ákærði var að síðustu yfirheyrður af lögreglu 23. mars 2021. Ekki er ástæða til að rekja sérstaklega þann framburð ákærða, sem var að mestu í samræmi við framburð hans 17. mars 2021.
  9. Ákærði gaf skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins og bar á þann veg að A hefði verið vinur hans. Hann hefði verið einn af þeim einstaklingum er ákærði hefði kynnst fyrst við komuna til landsins á sínum tíma, en þeir hafi starfað saman í byggingarvinnu. Þegar frá leið hafi þeir farið að verja frítíma sínum meira saman. Hafi þeir orðið nánir og treyst hvor öðrum. Ákærði hafi unnið fyrir A við að gera upp bæði fyrra húsnæði A og það sem hann hafi átt þegar hann féll frá. Ákærði hafi einnig starfað með meðákærða, Angjelin, í byggingarvinnu. Er ákærði hafi sett á fót eigið fyrirtæki hafi hann beðið meðákærða um að aðstoða sig við vinnu. Ákærði lýsti því að hann hafi á sínum tíma ekki vitað að meðákærði, Angjelin, og A ættu í illdeilum. Hann hafi frétt frá vini sínum, H, að eitthvað væri í gangi, en það hafi verið eftir að A var ráðinn bani. Er undir ákærða var borið að meðákærði, Angjelin, hafi lýst því að hann hafi hringt í ákærða eftir símtal meðákærða og A á fimmtudeginum staðfesti ákærði að það væri rétt. Það samtal hafi verið seinna sama kvöld. Kvaðst ákærði ekki hafa tekið þetta neitt alvarlega þar sem í raun hafi verið að ræða deilur á milli vina. Ákærði kvaðst hafa farið tvisvar eða þrisvar sinnum að heimili meðákærða, Angjelins, í Brautarholti laugardagskvöldið 13. febrúar 2021. Þangað hafi ákærði farið til að ná í meðákærða, Shpetim. Ákærði kvaðst ekki viss um hvort hann hafi hitt meðákærða, Angjelin, þetta kvöld heima hjá meðákærða, en meðákærða hitti ákærði oft. Í upphafi hafi meðákærði, Shpetim, beðið ákærða um að skutla sér í Brautarholtið, en þangað hafi meðákærði viljað fara til að drekka áfengi. Heima hjá meðákærða, Angjelin, hafi ákærði meðal annars skoðað baðherbergið sem til hafi staðið að ákærði gerði upp. Meðákærða, Claudia, hafi síðan komið á staðinn. Ákærði hafi farið og komið aftur og þá líka farið inn í íbúðina. Hafi ákærði ákveðið að byrja ekki vinnu við baðherbergið fyrr en næsta dag og því tekið verkfæri sín og farið með þau út í bílinn sinn. Í Brautarholtinu hafi meðákærði, Shpetim, spurt ákærða hvort hann gæti útvegað sér fíkniefni. Hafi ákærði sagt að hann þekkti mann að nafni L sem gæti útvegað fíkniefni. Ákærði og meðákærða, Claudia, hafi farið til að hafa uppi á L, en meðákærða hafi viljað slást í för með ákærða því hún hafi einnig viljað fá efni. L, sem hafi átt heima í […] við Rauðarárstíg […], hafi verið upptekinn og ákærðu því ekkert efni fengið í það sinnið. Hafi ákærði hringt í L fyrir framan hús þess síðarnefnda, sem hafi beðið ákærða um að hafa samband seinna. Hafi ákærði í tví- eða þrígang reynt að hafa uppi á L, án árangurs. Það hafi ekki verið fyrr en seinna um kvöldið sem það hafi tekist.
  10. Ákærði kvað ekki rétt er meðákærðu, Angjelin og Claudia, héldu fram að hann hafi farið með meðákærðu, Claudiu, að […] til að sýna henni bifreið sem hún hafi átt að fylgjast með. Ákærði staðfesti að hafa farið í Borgargerði þetta sama kvöld með meðákærða, Shpetim. Þeir hafi ákveðið að skoða hús er til hafi staðið að þeir myndu gera við að utan. Verkefnið hafi komið inn á borð ákærða og hann viljað deila því með meðákærða. A hafi verið milligöngumaður um þetta verk, en hann hafi sennilega verið búinn að vera í sambandi við eigendur hússins. Á staðinn hafi ákærðu farið á bifreið meðákærðu, Claudiu, því bifreið ákærða hafi ekki verið í lagi. Meðákærði hafi verið með lykla að þeirri bifreið. Ákærði hafi ekið því meðákærði hafi verið að drekka áfengi, auk þess sem hann hafi ekki verið með ökuréttindi. Ákærði hafi ekki verið í neinum símasamskiptum við meðákærða, Angjelin, þetta kvöld. Ákærðu hafi ekið frá Borgargerði og farið að […]þar sem ákærði hafi ætlað að hitta á L. Það hafi ekki tekist. Ákærði hafi hins vegar seinna þetta kvöld fengið skilaboð í gegnum síma meðákærða, Shpetims, um að vera ekki seinn. Ákærði hafi verið á leið í Brautarholtið að sækja meðákærða, Shpetim, er hann hafi verið stöðvaður af lögreglu. Ákærði kvaðst ekki kannast við að hafa sagt lögreglu er hann var stöðvaður að hann væri að fara að hitta meðákærða, Angjelin. Hafi ákærði sagt lögreglu að hann væri að fara heim til meðákærða. Er ákærði hafi komið í Brautarholtið hafi meðákærði, Shpetim, beðið ákærða um að bíða. Ákærði hafi ekki verið til í það, þar sem hann hafi ætlað að hitta L. Ákærði kvaðst ekki viss um hvort hann hitti meðákærða eitthvað seinna þetta kvöld eftir að hann hitti L. Þó gæti það verið. Meðákærða, Claudia, hafi haft samband við ákærða um kvöldið og beðið hann um að færa sér kveikjara. Hafi hún spurt ákærða hvort hann væri í grenndinni. Hafi ákærði sagt svo vera og því hitt meðákærðu. Er ákærði hafi komið á staðinn hafi hann ekki séð ákærðu og því haft samband og spurt hvar hún væri því hann sæi hana ekki. Ákærði hafi síðan hitt hana á Rauðarárstíg. Ekki hafi komið til tals á milli þeirra að meðákærða væri að fylgjast með einhverjum bíl. Eftir að hafa hitt meðákærðu, Claudiu, hafi ákærði farið heim til sín. Ákærði kvaðst hafa verið með vini sínum, HH, í vesturbæ Reykjavíkur á þriðjudagskvöldinu 16. febrúar þegar meðákærða, Claudia, hafi hringt og spurt hvort ákærði gæti sótt hana niður í Holtagarða. Hafi meðákærða sagt að hún yrði í strætisvagnabiðskýli en hennar bíll væri við Hlemm. Hafi ákærði sótt meðákærðu og skutlað henni að Hlemmi. Í kjölfarið hafi ákærði verið handtekinn.

Framburður ákærða, Shpetim Qerimi.

  1. Ákærði, Shpetim Qerimi, gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu 20. febrúar 2021. Í upphafi skýrslutökunnar lýsti ákærði því að hann væri saklaus af því að A hefði verið ráðinn bani. Kvaðst ákærði vera í byggingarvinnu. Hafi hann hitt A af og til en ekki vegna vináttutengsla. Ákærði kvaðst ekki hafa komið í Rauðagerði kvöldið sem A var ráðinn bani. Er ákærði var beðinn um að lýsa ferðum sínum föstudaginn 12. febrúar 2021 kvaðst ákærði hafa verið í vinnu til klukkan 16.00 til 17.00 þann dag. Eftir það hafi ákærði farið heim til sín. Eftir mat hafi ákærði farið aftur út að vinna en sennilega komið aftur heim um klukkan 18.00. Síðan hafi ákærði verið heima og ekkert farið út. Laugardaginn 13. febrúar hafi ákærði farið til vinnu um morguninn og komið heim klukkan 16.00 til 17.00. Eftir vinnu hafi ákærði verið heima hjá sér á Hringbraut. Um kvöldið hafi ákærði farið út til að kaupa sígarettur, en verið kominn heim klukkan 20.00. Eftir það hafi hann ekki farið út. Er undir ákærða var borið hvort hann hafi ekki farið upp í Borgarnes föstudaginn 12. febrúar, kvaðst ákærði hafa gleymt því að þangað hafi hann farið með meðákærðu, Claudiu, að hennar beiðni. Meðákærða, Claudia, hafi verið kærasta meðákærða, Angjelins, en hún hafi sagt að meðákærði, Angjelin, hafi beðið hana um að hitta sig í Borgarnesi. Í Borgarnesi hafi ákærði hitt meðákærða, Angjelin, en meðákærða, Claudia, hafi ein rætt við hann. Hafi ákærði einfaldlega farið með til að ,,chilla“. Meðákærðu, Angjelin og Claudia, hafi rætt saman inni í bifreiðinni sem þau hafi komið á en ákærði farið út að reykja á meðan. Meðákærða, Claudia, hafi tekið við hliðartösku frá meðákærða, Angjelin, en hann hafi ekki vitað hvað var í töskunni. Meðákærða hafi sett töskuna í skott bifreiðar sinnar. Er þau hafi komið til Reykjavíkur hafi ákærði, að beiðni meðákærða, Angjelin, tekið töskuna heim með sér, en ekki opnað hana. Meðákærði, Angjelin, hafi sagt að hann kæmi næsta dag til að sækja töskuna. Að kvöldi laugardagsins 13. febrúar hafi ákærði látið meðákærðu, Claudiu, fá þessa tösku. Er ákærði var spurður frekar um ástæðu þess að hann hafi farið í Borgarnes bar hann nú að meðákærði, Angjelin, hafi verið sá sem bað hann um að koma þangað. Hafi ákærði sagt að hann væri bíllaus, en meðákærði, Angjelin, þá sagt að það væri í lagi því meðákærða, Claudia, myndi sækja hann. Í Borgarnesi hafi meðákærði, Angjelin, beðið ákærða fyrir töskuna því hann hafi sagt að hann treysti meðákærðu, Claudiu, ekki fyrir henni. Næsta dag hafi meðákærða, Claudia, sótt ákærða og ákærði tekið töskuna með. Þau hafi farið heim til meðákærða, Angjelins, í Brautarholt. Hafi klukkan þá verið 19.00 til 20.00. Ákærði hafi staldrað við í um 30 mínútur heima hjá meðákærða. Meðákærði, Murat, hafi komið á staðinn og skutlað ákærða heim. Eftir það hafi ákærði ekki farið út.
  2. Er undir ákærða var borið að gögn málsins bentu til þess að ákærði hafi verið í Varmahlíð að morgni sunnudagsins 14. febrúar skýrði hann frá því að meðákærða, Claudia, hafi hringt í hann klukkan 01.00 aðfaranótt sunnudagsins og beðið hann um að koma með sér og meðákærða, Angjelin, norður. Kvaðst ákærði hafa sofið í bifreiðinni á leiðinni norður. Ákærði kvaðst hafa komið í sumarbústað nærri Varmahlíð og staldrað þar við í einn til tvo tíma. Þá hafi meðákærði, Angjelin, verið einn í bústaðnum. Er ákærði var inntur eftir því hvar meðákærða, Claudia, hafi verið sagði ákærði að hann og meðákærða, Claudia, hafi hitt meðákærða, Angjelin, á einhverri bensínstöð þar sem meðákærði hafi beðið eftir þeim. Því næst hafi þau farið í sumarbústaðinn sem meðákærði, Angjelin, hafði tekið á leigu en hann hafi verið í fríi fyrir norðan ásamt einhverjum vinum sínum. Ákærði kvaðst hafa farið einn suður um morguninn. Aðspurður sagðist hann ekki hafa verið með meðákærða, Angjelin, í bifreið á leiðinni norður. Meðákærða, Claudia, hafi ekið þeirri bifreið er ákærði var í. Ákærði kvaðst hafa farið norður til að geta fengið bifreið meðákærðu, Claudiu, lánaða, en ákærði hafi þurft bíl fyrir sunnan. Er borið var undir ákærða að meðákærða, Claudia, hafi greint frá því að hún hafi ekið ein norður kvað ákærði það rangt hjá henni. Ákærði kvaðst aðspurður hafa komið inn í Hyundai bifreiðina er meðákærði, Angjelin, ók norður, en þeir meðákærði, Angjelin, hafi farið á bílnum að sækja fíkniefni laugardagskvöldið 13. febrúar.
  3. Ákærði kvaðst telja að einhverjir vinir meðákærða, Angjelins, hafi átt hliðartöskuna sem meðákærði var með. Um væri að ræða þrjá menn sem hann þekkti ekki. Þessir menn hafi ekki verið í sumarbústaðnum er ákærði kom þangað, en meðákærði, Angjelin, hafi verið búinn að skutla þeim til Reykjavíkur. Er undir ákærða var borið hvort ákærði og meðákærðu, Angjelin, Murat og Claudia, hafi rætt saman á albönsku á heimili meðákærða að Brautarholti að kvöldi laugardagsins 13. febrúar lýsti ákærði því að hann hafi spurt meðákærða, Angjelin, að því af hverju hann hefði komið suður á laugardeginum. Kvaðst ákærði hafa heyrt að einhverjum í fíkniefnaheiminum hefði lent saman. Hafi meðákærðu, Angjelin og Murat, verið að ræða þetta. Er undir ákærða var borið að hann og meðákærði, Angjelin, hafi farið saman á laugardagskvöldinu á Hyundai bifreiðinni staðfesti ákærði að það væri rétt. Þeir hafi farið í ,,hverfið við Costco“. Meðákærði hafi farið þar inn í hús til að hitta einhverja vini sína. Klukkan hafi sennilega verið um 22.00. Í framhaldi þessa hafi meðákærði ekið ákærða heim. Er undir ákærða var borið hvort hann hafi sótt meðákærða, Angjelin, að heimili A í Rauðagerði þetta kvöld bar ákærði að meðákærði hafi beðið sig um að sækja sig nærri umferðarljósum rétt við heimili A. Ákærði vissi þó ekki nákvæmlega hvar A ætti heima. Meðákærði, Angjelin, hafi verið einn á ferð. Hafi ákærði ekið Hyundai bifreiðinni. Ákærði kvaðst ekki hafa ekið meðákærða í Rauðagerði, einhver annar hafi gert það. Hafi ákærði farið frá heimili meðákærða í Brautarholti að Rauðagerði þar sem meðákærði hafi verið. Eftir að meðákærði var kominn í bifreiðina hafi meðákærði sagt sér að fara úr bifreiðinni og að meðákærða, Claudia, myndi sækja hann. Hafi meðákærði ekki sagt hvert hann væri að fara. Er undir ákærða var borið að eftirlitsmyndavélar sýndu tvo menn fara inn í Hyundai bifreiðina við heimili A bar ákærði að þar hafi ákærði og meðákærði, Angjelin, verið á ferð. Ákærði hafi ekið í burtu og beðið um stund ekki langt frá. Meðákærði, Angjelin, hafi síðan komið í bifreiðina aftur. Ákærði kvaðst ekki viss um hvort meðákærði hafi verið með hliðartösku á þessum tíma, en hann hafi tekið við töskunni fyrr þetta kvöld. Hafi meðákærði sett þá hliðartösku í Hyundai bifreiðina áður en þeir fóru að Costco. Ákærði kvaðst ekki hafa séð meðákærða með skammbyssu þetta kvöld, en hann hafi á hinn bóginn verið með hliðartöskuna. Ákærði kvaðst hafa séð skammbyssu meðákærða á heimili hans í Brautarholti. Einhverjir útlendingar hafi verið með skammbyssuna. Þeir hafi opnað hliðartösku meðákærða en þá hafi ákærði séð byssuna. Það hafi verið um tveimur vikum fyrir andlát A. Umræddir menn hafi verið þeir sömu og hafi verið með meðákærða, Angjelin, fyrir norðan. Þeir og meðákærði hafi verið saman öllum stundum í þrjár til fjórar vikur. Umræddir menn tengdust fíkniefnamálum, en A hafi verið mikið í fíkniefnum. Ákærði kvaðst hafa frétt á sunnudeginum um klukkan 11.00 að A væri látinn. Ekki vissi ákærði hver hefði banað honum. Ákærði bar í lok yfirheyrslunnar að A og G hafi verið búnir að hóta því að drepa meðákærða, Angjelin, og son hans. Hafi meðákærði, Angjelin, greint ákærða frá þessu.
  4. Ákærði gaf næst skýrslu hjá lögreglu 23. febrúar 2021. Í þeirri skýrslugjöf greindi ákærði meðal annars frá því að meðákærði, Angjelin, hafi sagt honum frá því á fundi þeirra í Borgarnesi föstudaginn 12. febrúar að meðákærði hefði fengið símtal frá G þar sem meðákærða hafi verið hótað. Hafi meðákærði viljað fá ákærða með sér til að ráðast á G. Ákærði hafi ekki viljað það en ráðlagt meðákærða að hafa samband við lögregluna vegna þessara hótana. Hafi G meðal annars hótað því að meiða barn meðákærða. Ákærði kvaðst hafa sagt við meðákærða að þeir skyldu ræða betur saman eftir að þeir kæmu til Reykjavíkur og að meðákærði skyldi ekki gera neina vitleysu. Hafi meðákærði sagt að hann kæmi til baka til Reykjavíkur mánudaginn 15. febrúar og beðið hann um að taka hliðartösku sína fyrir sig til Reykjavíkur og geyma fyrir sig. Ekki hafi ákærði vitað hvað var í töskunni. Meðákærði Angjelin, hafi sagt ákærða að láta meðákærðu, Claudiu, fá síma sinn áður en þeir ræddu saman í Borgarnesi. Á laugardeginum 13. febrúar hafi meðákærða, Claudia, haft samband og beðið ákærða um að koma með töskuna. Hafi þau tvö farið heim til meðákærða, Angjelins, í Brautarholt. Er þangað kom hafi meðákærði, Angjelin, verið þar fyrir. Hafi meðákærði skýrt komu sína til Reykjavíkur þannig að hann hafi skutlað drengjum er hann hafi verið með fyrir norðan í bæinn. Ákærði hafi látið meðákærða, Angjelin, fá hliðartöskuna, hann litið í hana og lokað henni aftur. Ekki hafi hann sýnt ákærða innihaldið. Meðákærði, Murat, hafi komið á staðinn og ákærði farið með honum að kaupa sígarettur. Seinna um kvöldið hafi meðákærði, Angjelin, sagt við ákærða að meðákærði þyrfti að fara í hverfið þar sem Costco væri. Ákærði og meðákærði hafi farið þangað og meðákærði hitt einhvern félaga sinn. Þaðan hafi ákærðu farið aftur á heimili meðákærða, Angjelins. Meðákærði, Angjelin, hafi síðan spurt ákærða hvort hann vildi ekki koma með sér á snjósleða. Meðákærðu, Claudia og Murat, hafi síðan yfirgefið íbúðina. Hann og meðákærði, Angjelin, hafi farið út í bifreið og meðákærði ekið í Skeifuna og sagt við ákærða að bíða í bifreiðinni í 20 mínútur, en sjálfur þyrfti hann að skreppa frá í nokkrar mínútur. Hafi meðákærði farið úr bifreiðinni og ákærði ekki séð neitt til ferða hans. Ákærði hafi sest undir stýri og snúið bifreiðinni við. Meðákærði hafi komið til baka í bifreiðina og þeir ekið norður í land. Ákærði kvaðst hafa ekið aftur suður um morguninn á bifreið meðákærðu, Claudiu.
  5. Ákærði kvaðst hafa séð skammbyssu á heimili meðákærða, Angjelin, viku fyrir þennan atburð. Þrír menn sem voru á heimili meðákærða hafi verið að leika sér með byssuna. Ákærði bar að meðákærði, Angjelin, hafi notað síma hans tvisvar til þrisvar sinnum laugardagskvöldið 13. febrúar. Ákærði greindi einnig frá því að þegar meðákærða, Claudia, hafi sent skilaboðin ,,hi sexy“ í síma hans hafi meðákærði, Angjelin, sagt að þeir þyrftu að fara. Ákærði merkti inn á kort þar sem hann kvað meðákærða, Angjelin, hafa farið úr bifreiðinni en um er að ræða Borgargerði. Kvaðst ákærði hafa snúið bifreiðinni við og tekið meðákærða aftur upp í bifreiðina um 10 mínútum síðar á mótum Borgargerðis og Sogavegar. Er ákærða var bent á að hann hafi ekki sýnt lögreglu þessa staði er farið hafi verið með hann í vettvangsferð við síðustu yfirheyrslu kvaðst ákærði ekki rata vel um þessar götur. Er borið var undir ákærða það misræmi varðandi ferðina norður að hann hafi verið samferða meðákærðu, Claudiu, bar ákærði að framburður sinn hafi ekki verið rétt túlkaður við þá skýrslugjöf. Ákærði kvaðst hafa farið norður þessa nótt því meðákærði, Angjelin, hafi sagt að þeir væru að fara á snjósleða. Ákærði kvaðst hafa farið til baka strax um morguninn því meðákærði, Angjelin, hafi ekki verið með neina snjósleða. Hafi ákærði farið suður og keypt hund handa dóttur sinni. Ákærði kvaðst ekki hafa tekið með sér neinn farangur þar sem meðákærði, Angjelin, hafi sagt að hann væri með fullt af fötum fyrir norðan, meðal annars snjósleðagalla.
  6. Ákærði var næst yfirheyrður af lögreglu 4. mars 2021. Ítrekaði hann aðspurður að hann hafi ekki opnað hliðartöskuna sem meðákærði, Angjelin, lét hann fá í Borgarnesi. Laugardagskvöldið 13. febrúar hafi meðákærði, Angjelin, verið mjög stressaður og meðal annars rifist við meðákærðu, Claudiu. Hann hafi sagt að hann væri kominn aftur í bæinn til að klára það verk sem þeir hafi rætt um í Borgarnesi vegna G. Að því er varðaði laugardagskvöldið 13. febrúar hafi meðákærði, Angjelin, verið með síma ákærða það kvöld því hann hafi skilið síma sinn eftir fyrir norðan. Meðákærðu, Claudiu, hafi ákærði einungis hitt einu sinni þetta kvöld. Hafi hún farið með meðákærða, Murat. Þetta kvöld hafi hún sent skilaboðin ,,hi sexy“ í síma ákærða. Hafi ákærði þá rétt meðákærða, Angjelin, símann. Þá hafi þeir verið staddir á heimili meðákærða, Angjelins. Hafi meðákærði sagt: ,,[F]örum núna“. Að því er varðaði ökuferðina að Rauðagerði bar ákærði að meðákærði, Angjelin, hafi ekið Hyundai bifreiðinni niður Borgargerði að Rauðagerði. Meðákærði hafi sagt ákærða að taka við akstri bifreiðarinnar og fært sig yfir í farþegasætið hægra megin. Hafi meðákærði sagt ákærða að aka bifreiðinni neðar í götuna. Ákærði hafi stöðvað bifreiðina í Rauðagerði við Borgargerði og snúið bifreiðinni þannig að þeir hafi séð umferð sem kom niður brekkuna. Er bifreið hafi komið niður brekkuna hafi meðákærði stigið út og gengið inn í garð við hús á horni götunnar. Ákærði hafi ekið bifreið sinni inn Rauðagerði á eftir bifreiðinni sem kom niður brekkuna. Umræddri bifreið hafi verið ekið inn í bílskúr og hafi ákærði séð bílskúrshurðina byrja að lokast. Hafi hann þá ekið innar í götuna og snúið þar við. Þar hafi hann stoppað í stutta stund. Ekki hafi hann séð til ferða meðákærða á þeirri stundu. Ákærði hafi ekið bifreiðinni til baka og upp brekkuna og stöðvað þar sem hann hafi áður stöðvað. Meðákærði hafi verið við húsið og veifað til ákærða. Hann hafi síðan komið inn í bifreiðina og þeir ekið á brott. Hafi meðákærði sagt: ,,Komdu, því ég er búinn að klára verkið“. Ákærði kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir að hús það sem hann hafi séð bifreiðina fara inn í bílskúrinn við hafi verið heimili A, þrátt fyrir að hann hafi tvívegis komið þangað. Ákærði kvaðst hafa ekið í átt að Kjalarnesi en stöðvað í Kollafirði þar sem hann hafi þurft að kasta af sér vatni. Ekki hafi ákærði séð hvað meðákærði aðhafðist á meðan. Þeir hafi skipt um sæti í bifreiðinni og meðákærði tekið við akstrinum. Er þeir komu á áfangastað hafi meðákærði beðið ákærða um að fara úr bifreiðinni þar sem meðákærði hafi ekki viljað að vinir meðákærða myndu sjá ákærða. Hafi meðákærði í framhaldinu sótt lykla að sumarhúsinu sem þeir hafi ætlað í. Hafi meðákærði sagt að vinir hans hafi tekið lyklana að snjósleðunum með sér suður og því hafi ákærði ákveðið að fara strax aftur suður. Meðákærða, Claudia, hafi komið norður um nóttina og ákærði farið á hennar bíl suður. Ekki hafi ákærði vitað að A hefði verið ráðinn bani fyrr en á sunnudeginum.
  7. Næst var ákærði yfirheyrður af lögreglu 15. mars 2021. Kvaðst hann hafa komið í tvígang á heimili A í Rauðagerði áður en atvik áttu sér stað 13. febrúar 2021. Fyrra skiptið hafi verið þegar A hafði fest kaup á húsinu, en ákærði hafi þá farið þangað ásamt meðákærða, Murat, til að skila flísum. Aðspurður kvaðst ákærði viðurkenna að hafa verið í Rauðagerði að kvöldi laugardagsins 13. febrúar ásamt meðákærða, Murat. Hafi meðákærði ætlað að taka að sér verk varðandi baðherbergi og beðið ákærða um að koma með til að skoða aðstæður. Hafi þeir farið í Rauðagerði á bíl meðákærðu, Claudiu. Meðákærðu, Angjelin og Claudia, hafi verið eftir í íbúð meðákærða, Angjelin. Hafi ákærðu farið á bifreið meðákærðu þar sem meðákærði, Murat, hafi sagt að lögregla hafi þann dag stoppað ákærða. Hafi meðákærði, Murat, beðið meðákærðu, Claudiu, um að fá lánaða bifreiðina og hún látið hann hafa lykla að henni. Meðákærði hafi ekki fundið húsið sem staðið hafi til að vinna í. Á leiðinni frá Rauðagerði hafi meðákærði komið við heima hjá N og meðákærði, Murat, farið úr bifreiðinni þar. Kvaðst ákærði hafa spurt meðákærða hvað hann væri að gera þarna og hafi hann einfaldlega sagt að N byggi þarna. Er ákærði var spurður að því af hverju hann hafi ekki gert grein fyrir þessari ferð heim til N í fyrri skýrslutökum kvaðst hann ekki hafa lýst henni þar sem enginn hafi spurt út í hana. Að auki kvaðst ákærði núna muna betur atburðarásina umrætt kvöld heldur en í fyrri skýrslutökum. Ákærði kvaðst ekki hafa haft vitneskju um að meðákærði, Angjelin, hefði banað A þetta kvöld, hvað þá vitneskju um að það stæði til. Ákærði bar að hann og meðákærðu, Angjelin, Murat og Claudia, hafi staðið við eyju í eldhúsinu heima hjá meðákærða, Angjelin, þetta kvöld og rætt saman á albönsku. Eins hafi meðákærðu, Angjelin og Murat, talað saman á ensku þar sem meðákærða, Claudia, hafi ekki skilið albönsku.
  8. Ákærði sagði meðákærða, Angjelin, hafa spurt hann hvort hann gæti hitt sig í Borgarnesi á föstudeginum. Þar hafi meðákærði greint frá því að honum hefðu borist hótanir. Hafi meðákærði greint frá því að það hafi verið G sem hafi hótað meðákærða. Hafi meðákærði sagt að hann yrði að gera eitthvað í þessu. Ákærði var spurður á ný út í fyrri framburð hans þess efnis að hann hafi séð bílskúrsdyr á húsi A lokast er ákærði ók inn götuna. Sagði ákærði þá að meðákærði hefði verið kominn út úr bifreiðinni áður en ákærði ók fram hjá heimili A og séð bílskúrsdyrnar lokast. Ákærði bar að meðákærði hafi ætlað að hitta A. Að öðru leyti hafi ákærði ekki haft neina vitneskju um hvað myndi gerast. Hafi ákærði einfaldlega ekið inn götuna til að snúa bifreiðinni við. Þar hafi ákærði staldrað við í nokkrar mínútur þar til meðákærði, Angjelin, kom aftur í bifreiðina. Ákærði kvaðst hafa misst síma sinn um hádegisbil á sunnudeginum 14. febrúar og hafi síminn brotnað. Hafi ákærði hent símanum og fengið sér nýjan síma mánudaginn 15. febrúar.
  9. Að síðustu gaf ákærði skýrslu hjá lögreglu 23. mars 2021. Ákærði bar að fundur hans og meðákærða, Angjelin, í Borgarnesi á föstudeginum hafi snúist um hótanir sem meðákærði hafi fengið frá G. Hafi meðákærði leitað til ákærða með aðstoð við að ráðast á G. Nafn A hafi ekki borið á góma. Ákærði hafi tjáð meðákærða að hann gæti ekki tekið þátt í þessu þar sem hann væri að vinna með frænda G. Hafi meðákærði sagt að hann ætlaði þá að fá einhverja aðra með sér í verkið. Ákærði kvaðst ekki vita af hverju meðákærði bæri að þeir hefðu rætt um hótanir A. Ákærði ítrekaði að hann hafi ekki opnað hliðartöskuna sem meðákærði, Angjelin, hafi látið ákærðu fá í Borgarnesi og hafi ekki vitað hvað var í töskunni. Töskuna hafi meðákærði látið meðákærðu, Claudiu, fá en taskan hafi eigi að síður farið heim til ákærða í Reykjavík eftir komu þangað. Að því er varðaði ferð ákærða og meðákærða, Murat, í Rauðagerði á laugardagskvöldinu þá hefði meðákærði ekki fundið það hús sem til hafi staðið að vinna við. Á leiðinni til baka hafi meðákærði haft viðkomu á Rauðarárstíg til að hitta vin sinn, N. Hafi ákærði spurt meðákærða hvort þeir ætluðu að stoppa þarna en meðákærði sagt svo ekki vera. Hafi ákærði séð vinnubíl A á stæði á svæðinu. Hafi það borist í tal en meðákærði sagt að N væri kominn með bílinn. Ákærðu hafi síðan farið heim til meðákærða, Angjelins, en þar hafi meðákærðu, Angjelin og Murat, rætt saman. Þeir hafi farið afsíðis og ákærði séð meðákærða, Angjelin, baða út höndum. Hafi ákærði ekki viljað blanda sér í umræðuna og ekki vitað hvað þeir ræddu um. Ekki kvaðst ákærði hafa séð meðákærða, Angjelin, með skammbyssu í hendi þetta kvöld heima hjá meðákærða. Ákærði kvaðst ekki hafa vitað til þess að meðákærði, Angjelin, hefði átt í illdeilum við A á þessum tímapunkti, en hann hafi vitað um deilur meðákærða og G. Hins vegar hafi meðákærði, Murat, og A átt í deilum. Ekki hafi ákærði þekkt uppruna deilna meðákærða og A, en það gæti hafa tengst fíkniefnum. Ákærða var bent á að lögregla hafi fundið skammbyssu meðákærða, Angjelins, í Kollafirði á þeim stað er ákærðu stöðvuðu bifreið sína á leið norður aðfaranótt sunnudagsins 14. febrúar. Ákærði kvaðst ekki hafa orðið var við að meðákærði losaði sig skammbyssu sína þessa nótt.
  10. Ákærði gaf skýrslu við meðferð málsins fyrir héraðsdómi. Greindi hann frá því að föstudagskvöldið 12. febrúar 2021 hafi meðákærði, Angjelin, haft samband og beðið ákærða að hitta sig í Borgarnesi. Hafi meðákærði sagt að meðákærða, Claudia, myndi ná í ákærða og aka honum upp eftir, en þeir þyrftu að ræða tiltekin mál. Þau hafi farið upp í Borgarnes og hitt meðákærða, Angjelin, á bensínstöð. Ákærðu hafi ætlað að ræða málin utandyra og hafi meðákærði, Angjelin, sagt ákærða að láta meðákærðu, Claudiu, fá símann sinn á meðan. Er ákærðu hafi rætt saman hafi meðákærði spurt hvort hann gæti fengið peningalán frá ákærða. Þá hafi meðákærði sagt að honum hefði verið hótað. Hafi ákærði sagt meðákærða að best væri að fara til lögreglunnar vegna hótananna eða reyna að sættast við umrædda aðila. Meðákærði, Angjelin, hafi látið meðákærðu, Claudiu, hafa hliðartösku og sagt henni að fara með hana til Reykjavíkur. Meðákærða hafi sett töskuna í skott bifreiðar sinnar og þau farið aftur í bæinn. Er þau hafi nálgast Reykjavík hafi meðákærði, Angjelin, hringt og beðið ákærða um að taka töskuna heim með sér og hafi hann orðið við því. Ákærði kvaðst ekki hafa opnað töskuna. Á laugardeginum hafi meðákærða, Claudia, hringt og sagt að hún væri að koma að ná í ákærða. Ætti hann að hafa hliðartöskuna með sér. Ákærði hafi farið með meðákærðu heim til meðákærða, Angjelins. Er þangað kom hafi meðákærði, Angjelin, verið þar. Kvaðst ákærði hafa orðið hissa þar sem hann hafi haldið að meðákærði kæmi ekki aftur til Reykjavíkur fyrr en á mánudeginum. Meðákærði hafi gefið þá skýringu að hann hafi farið með ákveðna menn til Reykjavíkur og að hann ætlaði aftur til baka. Ákærði kvaðst hafa látið meðákærða fá hliðartöskuna. Meðákærði hafi boðið meðákærðu heim til sín í mat. Eftir matinn hafi þau farið aftur heim til meðákærða, Angjelins. Meðákærði, Murat, hafi einnig komið þangað. Ákærði og meðákærði, Murat, hafi rætt um framkvæmdir við baðherbergi meðákærða, Angjelins, sem ætlunin hafi verið að ráðast í. Meðákærði, Murat, hafi sagt að þeir skyldu fara saman að skoða annað verkefni er meðákærði hefði tekið að sér sem væri stærra. Hafi ákærði sagt að þeir skyldu taka bíl meðákærðu, Claudiu, þar sem það væri áfengi í bílnum. Hafi þeir tekið lykla að bifreið meðákærðu og lagt af stað. Ekki kvaðst ákærði viss um hvert þeir hefðu ekið en þeir hafi stoppað fyrir framan eitthvert hús. Hafi meðákærði bent á umrætt hús og sagt vera það hús sem til stæði að gera við. Ákærði hafi sagt að hann vildi gjarnan fá fíkniefni og hafi meðákærði, Murat, þá sagt að hann þyrfti einungis að hringja til að geta náð í þau. Ákærðu hafi farið af stað og stöðvað í porti. Hafi meðákærði sagt að N byggi þar. Hafi ákærði séð vinnubíl A í portinu. Hafi meðákærði sagt að N væri með þennan bíl núna. N hafi ekki haft fíkniefni til reiðu og ákærði sagt við meðákærða að þeir skyldu fara heim til meðákærða, Angjelins, til að ákærði gæti drukkið meiri bjór.
  11. Seinna þetta kvöld hafi ákærði, ásamt meðákærða, Angjelin, farið út og þeir farið í hverfi nærri versluninni Costco. Í þeirri ferð hafi meðákærði spurt hvað ákærði væri að gera næsta dag. Hafi ákærði sagt ekkert standa til og þá hafi ákærði spurt hvort hann væri ekki til í að koma með sér norður í snjósleðaferð. Meðákærði hefði snjósleðaföt fyrir norðan og því þyrfti ákærði ekki að taka með sér nein föt. Þeir hafi farið heim til meðákærða að Brautarholti en farið út aftur síðar um kvöldið. Meðákærði hafi ekið bifreiðinni að Borgargerði, en hann hafi sagt að hann ætlaði að hitta einhvern félaga sinn. Meðákærði hafi sagt að þeir skyldu skipta um sæti. Er ákærði hafi verið að stilla bílstjórasætið hafi meðákærði farið í burtu en ákærði ekki séð hvert. Ákærði hafi ekið bifreiðinni áfram og skimað eftir ákærða. Hann hafi tekið eftir því að bifreið var ekið inn í bílskúr í götunni og að því búnu hafi hurðin lokast. Ekki hafi ákærði áttað sig á því að um væri að ræða heimili A. Ákærði hafi síðan stöðvað bifreiðina og fengið sér að reykja. Skyndilega hafi meðákærði veifað til ákærða og ákærði ekið til hans og hafi hann komið inn í bifreiðina. Ekki kvaðst ákærði hafa haft vitneskju um að meðákærði hefði farið til fundar við A. Ákærði kvaðst hafa komið áður í tvígang á heimili A fyrir þessa helgi. Þrátt fyrir það hafi ákærði ekki gert sér grein fyrir að þeir væru nærri heimili A. Ekki hafi ákærði séð neina skammbyssu í fórum meðákærða þetta kvöld, hvorki áður en hann fór úr bifreiðinni né eftir það. Hafi ákærði ekki orðið var við að meðákærði setti skammbyssu á gólf bifreiðarinnar eftir að hann kom inn í hana aftur. Meðákærði hafi verið í síðri úlpu og ákærði ekki séð hvort hann var með hliðartöskuna undir úlpunni. Ákærðu hafi ekið norður í land. Í Kollafirði hafi ákærði þurft að kasta af sér vatni og af þeim ástæðum stöðvað bifreiðina. Hafi meðákærði tekið við akstri hennar og ekið norður í Skagafjörð. Ákærði kannaðist ekki við að meðákærði hafi sagt eitthvað á þá leið að hann dræpi engan úr þessu, eftir að ákærði tók hann aftur upp í bifreiðina. Á leiðinni í sumarbústaðinn hafi ákærði munað eftir því að hann hefði verið búinn að lofa að kaupa hund með dóttur sinni á sunnudeginum. Fyrir norðan hafi meðákærði hitt vini sína til að fá lykla að sumarbústaðnum sem þeir hafi dvalið í. Meðákærða, Claudia, hafi komið norður undir morgun og meðákærði, Angjelin, ekki viljað hafa ákærða lengur fyrir norðan. Hafi hann sagt að hann væri ekki með lykla að snjósleðunum. Hafi ákærði ákveðið að fara strax suður aftur og fengið til þess bíl meðákærðu, Claudiu. Hafi hún millifært 15.000 krónur yfir á reikning ákærða til að hann hefði fyrir bensíni suður. Á sunnudeginum hafi ákærði hitt vin sinn í þeim tilgangi að skoða áðurnefndan hund en vinurinn þá spurt ákærða hvort hann hefði ekki heyrt að búið væri að bana A. Hafi það verið það fyrsta er ákærði heyrði um morðið. Hafi ákærði hringt í meðákærða, Angjelin, og spurt hvort hann hefði frétt hvað gerst hefði. Hafi ákærði spurt meðákærða hvort hann hefði átt hlut að máli en meðákærði neitað því. Ákærði kvaðst hafa lánað meðákærða, Angjelin, símann sinn á laugardagskvöldinu þar sem meðákærði hafði gleymt síma sínum fyrir norðan.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara er ákærðu öllum í félagi gefið að sök að hafa staðið saman að því að ráða A af dögum við heimili hans að Rauðagerði […] í Reykjavík, laugardaginn 13. febrúar 2021.
  2. Í ákæru er háttsemi ákærðu lýst þannig að ákærði, Angjelin, hafi skotið A í höfuð og líkama samtals níu skotum við heimili hans, með þeim afleiðingum að hann lést af skotáverkum sem hann hlaut í heila og brjóst.
  3. Þætti annarra ákærðu er þannig lýst að ákærði, Murat, hafi sýnt ákærðu, Claudiu, tvær bifreiðar til að fylgjast með sem tilheyrt hafi A og lagt var í porti við Rauðarárstíg […]. Þá hafi hann gefið henni fyrirmæli um að senda nánar tiltekin skilaboð í síma ákærða, Shpetim, sem ákærði, Angjelin, hafði afnot af þetta kvöld, þegar önnur hvor bifreiða A legði af stað frá Rauðarárstíg […].
  4. Háttsemi ákærðu, Claudiu, er lýst svo að hún hafi fylgst með bifreiðum A og sent ákærða, Angjelin, skilaboð þegar hann fór frá dvalarstað sínum við Rauðarárstíg áleiðis heim til sín.
  5. Háttsemi ákærða, Shpetims, er lýst á þann veg að hann hafi verið ákærða, Angjelin, samferða í Hyundai bifreiðinni […]að heimili A við Rauðagerði. Nærri heimilinu hafi hann tekið við akstri bifreiðarinnar og hleypt ákærða, Angjelin, út. Ákærði hafi beðið á meðan ákærði, Angjelin, réði A bana, og í kjölfarið tekið hann upp í bifreiðina og ekið á brott.
  6. Ákærði, Angjelin, hefur viðurkennt, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, að hafa ráðið A af dögum þetta kvöld með því að skjóta hann í höfuð og líkama fyrir framan heimili hans umrætt kvöld. Hefur hann synjað fyrir að ásetningur til þess hafi myndast fyrir fram, heldur hafi hann ætlað að ræða við A á vettvangi. Skammbyssuna hafi hann haft meðferðis sér til varnar og gripið til hennar í sjálfsvörn þegar A hafi ráðist gegn honum. Hafi önnur ákærðu ekki haft vitneskju um hvað til stóð.
  7. Ákærðu, Murat, Claudia og Shpetim, hafa með framburði sínum fyrir héraðsdómi lýst atvikum umrætt kvöld að stórum hluta í samræmi við atvikalýsingu í ákæru. Þannig hefur ákærða, Claudia, viðurkennt að hafa verið við Rauðarárstíg […], í upphafi til að fylgjast með sendiferðabifreið sem þar var lagt, en síðan einnig grárri Volvo bifreið. Hafi hún sent skilaboðin ,,hi sexy“ í síma ákærða, Shpetims, er Volvo bifreiðin fór af stað. Ákærði, Murat, hefur viðurkennt að hafa verið samferða ákærðu, Claudiu, að Rauðarárstíg […] þetta kvöld. Hann kveðst hins vegar ekki hafa sýnt henni tvær bifreiðar til að fylgjast með, hvað þá lagt fyrir hana að senda ákærða, Angjelin, skilaboð þegar önnur hvor bifreiðanna færi úr portinu. Hafi ákærði verið við Rauðarárstíg […] í þeim erindagjörðum að kaupa fíkniefni af nafngreindum manni. Loks hefur ákærði, Shpetim, viðurkennt að hafa verið ákærða, Angjelin, samferða í Rauðagerði þetta kvöld. Hann hefur jafnframt viðurkennt að hafa tekið við akstri Hyundai bifreiðarinnar nærri Rauðagerði og ekið inn götuna þar sem hann hafi snúið bifreiðinni við. Hann hafi skömmu síðar tekið ákærða, Angjelin, upp í bifreiðina og þeir ekið saman af staðnum og áleiðis norður í land. Ákærðu, Claudia, Murat og Shpetim, staðhæfa öll að þau hafi ekki haft vitneskju um að ákærði, Angjelin, hafi áformað að hitta A þetta kvöld, hvað þá að hafa ætlað að svipta hann lífi.
  8. Svo sem að framan greinir voru teknar skýrslur af ákærðu undir rannsókn málsins hjá lögreglu, auk þess sem þau gáfu öll skýrslu við aðalmeðferð málsins fyrir héraðsdómi. Þannig var ákærði, Angjelin, yfirheyrður í fjórgang hjá lögreglu, ákærða, Claudia, sex sinnum og ákærðu, Murat og Sheptim, fimm sinnum hvor um sig.
  9. Að því er framburð ákærða, Angjelins, varðar og innbyrðis misræmi í honum er meðal annars til þess að líta að ákærði viðurkenndi ekki í fyrstu skýrslugjöf hjá lögreglu að hafa farið að heimili A áðurgreint laugardagskvöld eða að hafa banað honum, enda hafi hann ekki átt neitt sökótt við A. Þá kvaðst ákærði ekkert skotvopn eiga né hafa aðgang að slíku vopni. Í næstu skýrslugjöf greindi ákærði frá fleiri atriðum varðandi atburðarásina, þar á meðal að hann hafi hitt meðákærðu, Claudiu og Shpetim, í Borgarnesi á föstudeginum, en neitaði að hafa látið þau fá hliðartösku til að taka með til Reykjavíkur. Hafi ákærði verið að ræða ,,dópmál“ við meðákærða, Shpetim. Þá viðurkenndi ákærði í þessari skýrslugjöf að hafa átt í deilum við A vegna svokallaðs „[…]“ og sekta sem A og félagar hans hafi gert F. Í þessari skýrslugjöf viðurkenndi ákærði að eiga skammbyssu með hljóðdeyfi, en byssunni hafi hann verið búinn að týna. Þrátt fyrir að lögregla hafi í skýrslugjöfinni borið undir ákærða ýmis gögn sem þóttu gefa til kynna að ákærði hafi farið að Rauðagerði […] kvöldið sem A var banað synjaði ákærði fyrir það. Í þriðju yfirheyrslunni viðurkenndi ákærði loks að hafa látið meðákærðu, Claudiu og Shpetim, fá hliðartöskuna sína í Borgarnesi á föstudeginum og beðið þau um að fara með hana til Reykjavíkur. Í hliðartöskunni hafi verið skammbyssa ákærða og hljóðdeyfir. Við skýrslutökuna, sem stóð yfir í rúmar tvær klukkustundir, voru ýmis gögn er tengdust rannsókninni borin undir ákærða og þá sérstaklega myndir úr eftirlitsmyndavélum, en þrátt fyrir það synjaði ákærði fyrir að hafa farið að Rauðagerði um kvöldið og banað A. Var ákærða kynnt að skammbyssa hafi fundist á flóttaleið hans umrædda nótt og honum sýnd mynd af henni. Þrátt fyrir það kvaðst ákærði ekki kannast við byssuna. Í lok þessarar yfirheyrslu, eftir að borin var undir ákærða atburðarás í allmörgum liðum sem studdust meðal annars við myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og símagögn lögreglu, játaði ákærði að hafa farið að Rauðagerði […] að kvöldi laugardagsins 13. febrúar og skotið A níu skotum í höfuð og líkama.
  10. Að því er varðar framburð ákærðu, Claudiu, og innbyrðis misræmi í honum er meðal annars til þess að líta að í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu bar hún að hún hefði ekki neinar upplýsingar sem tengdust drápi A. Í næstu skýrslutöku greindi ákærða fyrst frá ferðinni í Borgarnes en synjaði fyrir að meðákærði, Shpetim, hefði komið með hliðartösku eftir samtal við meðákærða, Angjelin, eða að hliðartaska hafi farið með ákærðu í bifreið hennar til Reykjavíkur. Við skýrslugjöfina voru borin undir ákærðu myndskeið úr eftirlitsmyndavélum við Brautarholt og Stórholt í Reykjavík og kannaðist ákærða þá við veru sína á heimili meðákærða, Angjelins, laugardagskvöldið 13. febrúar. Lýsti hún því meðal annars að meðákærði, Angjelin, hafi farið út af heimili sínu á milli klukkan 20.00 og 21.00 og sagt að hann ætlaði norður. Ákærða kvaðst ekki hafa farið af heimili meðákærða, Angjelins, þetta kvöld, en er undir hana voru borin myndskeið sem sýndu hana fara með meðákærða, Murat, að Rauðarárstíg […] viðurkenndi hún að hafa farið þangað þetta kvöld. Þá viðurkenndi ákærða að hafa farið oftar út af heimili meðákærða, Angjelins, í Brautarholti um kvöldið. Síðar í yfirheyrslunni viðurkenndi hún einnig að meðákærði, Angjelin, hafi verið á heimili sínu að Brautarholti […] um klukkan 22.00 þetta kvöld. Ákærða greindi enn fremur frá því að henni hafi verið uppálagt að fylgjast með sendiferðabifreið í portinu við Rauðarárstíg […] en er lögregla benti ákærðu frá því að hún hafi einnig fylgst með Volvo fólksbifreið viðurkenndi ákærða að hafa einnig átt að fylgjast með þeirri bifreið. Í þessari skýrslutöku viðurkenndi ákærða að hafa tekið við hliðartösku frá meðákærða, Shpetim, í Borgarnesi á föstudagskvöldinu. Í þriðju yfirheyrslunni kvaðst ákærða ekki hafa haft vitneskju um að meðákærði, Angjelin, hefði fengið hótanir um ófarnað frá A. Er undir ákærðu var borið að samkvæmt símagögnum hafi hún sent skilaboðin ,,hi sexy“ í síma meðákærða, Shpetims, bar ákærða að þau skilaboð hafi ekki þýtt neitt. Er ákærðu var gerð grein fyrir því að meðákærði, Shpetim, hafi greint lögreglu frá því að þau skilaboð hafi átt að setja af stað ákveðna atburðarás kvað ákærða það vera rétt því skilaboðin hafi þýtt að ákveðin bifreið væri lögð af stað frá Rauðarárstíg […]. Ákærða bar nú að hún hefði oft séð hliðartösku meðákærða, Angjelins, en hann hafi yfirleitt verið með hana á sér. Þegar ákærða hafi tekið við töskunni í Borgarnesi og sett hana í skott bifreiðar sinnar hafi hún fundið að hluturinn í töskunni var harður viðkomu og þungur. Hafi ákærða gripið um eitthvað kringlótt sem gæti hafa verið hljóðdeyfir á skammbyssu. Hún hafi séð slíka byssu heima hjá meðákærða, Angjelin. Þá greindi ákærða fyrst frá því, sérstaklega aðspurð í yfirheyrslunni, að meðákærðu, Angjelin og Shpetim, hafi látið hana fá síma sína og meðákærði, Angjelin, einnig úr sitt áður en þeir ræddu saman í Borgarnesi. Í næstu yfirheyrslu greindi ákærða fyrst frá því að einhverjir hafi sennilega tekið bifreið hennar laugardagskvöldið 13. febrúar við heimili meðákærða, Angjelins, því búið hafi verið að afstilla baksýnisspegil bifreiðarinnar, auk þess sem hún hafi ekki verið á þeim stað sem ákærða hafði lagt henni. Þá greindi ákærða fyrst frá því að hún hafi vitað að meðákærðu, Angjelin og Shpetim, hefðu verið saman laugardagskvöldið 13. febrúar. Í síðustu yfirheyrslu hjá lögreglu greindi ákærða fyrst frá því að er hún og meðákærði, Angjelin, hafi verið að koma að heimili hans umrætt kvöld hafi meðákærði sagt ákærðu að stoppa ekki heldur aka rakleitt fram hjá heimilinu þar sem hann hefði fengið hótanir og að einhverjir væru væntanlega að fylgjast með heimili hans. Í þessari skýrslutöku kvaðst ákærða halda að meðákærði, Angjelin, hefði verið með hliðartöskuna er þau fóru inn í íbúð meðákærða, en kvaðst ekki muna hvort hann hafi handleikið byssuna inni í íbúðinni. Í þessari yfirheyrslu viðurkenndi ákærða einnig að meðákærði, Angjelin, hafi greint henni frá því í sumarbústaðnum fyrir norðan að A hafi verið búinn að hóta meðákærða og barni hans. Eins greindi ákærða frá því í fyrsta sinn að meðákærði hafi þá viðurkennt að hafa skotið A. Einnig greindi ákærða nú fyrst frá því að meðákærði, Angjelin, hafi skorið skó sína niður í ræmur og hent þeim. Loks greindi ákærða frá því fyrst í þessari yfirheyrslu að hún hafi hent jakkanum sem hún var í við skil á Hyundai bifreiðinni í Holtagörðum til að reyna að dyljast, en hún hafi veitt því athygli að með henni væri fylgst. Áður hafði ákærða skýrt frá því að hún hefði losað sig við jakkann þar sem henni hefði verið heitt. Við skýrslugjöfina fyrir héraðsdómi sagðist ákærða einskis hafa spurt þrátt fyrir að hafa vitað að meðákærði, Angjelin, hefði yfirleitt verið með skammbyssu í hliðartöskunni, en hún hefði stundum séð byssuna heima hjá meðákærða.
  11. Að því er varðar framburð ákærða, Murats, og innbyrðis misræmi í honum er meðal annars til þess að líta að í fyrstu skýrslugjöf hjá lögreglu bar ákærði að hann hafi verið heima hjá sér laugardagskvöldið 13. febrúar. Þá kvaðst hann ekki hafa komið í námunda við heimili A umrætt kvöld. Í næstu skýrslugjöf greindi ákærði frá því að hann hafi á laugardagskvöldinu farið með sígarettur til meðákærðu, Claudiu, þar sem hún hafi verið við Rauðarárstíg […]. Ekki hafi ákærði hitt hana aftur þetta kvöld. Þá hefði ákærði ekki farið á heimili meðákærða, Angjelins, í Brautarholti á laugardagskvöldinu. Er undir ákærða var borið að samkvæmt gögnum lögreglu hefði ákærði komið að heimili meðákærða, Angjelins, um kvöldið kvaðst ákærði þá viðurkenna að hafa komið þangað en í þeim tilgangi að sækja verkfæri og hafi hann þá engan hitt. Er lögregla bar undir ákærða að samkvæmt gögnum lögreglu hefði hann þetta kvöld komið að Brautarholti […] með meðákærða, Shpetim, kvað ákærði það vera rétt, en meðákærði, Shpetim, hafi beðið hann um far. Meðákærði, Angjelin, hafi hins vegar ekki verið heima. Þá bar ákærði nú í yfirheyrslunni að hann hafi farið með meðákærðu, Claudiu, út þetta kvöld til að hitta ákveðinn mann. Þau hafi farið saman að hóteli við Rauðarárstíg […] en maðurinn ekki verið heima. Í næstu yfirheyrslu kvaðst ákærði muna eftir að hafa komið að Brautarholti […] á laugardagskvöldinu en meðákærði, Angjelin, hafi ekki verið heima. Væri rangt það sem önnur meðákærðu hefðu borið hjá lögreglu að ákærði hafi hitt önnur meðákærðu í íbúð meðákærða, Angjelins. Í þessari skýrslutöku viðurkenndi ákærði að hafa komið í Rauðagerði laugardaginn 13. febrúar. Hafi hann komið þangað ásamt meðákærða, Shpetim, til að líta á hús sem þeir hafi ætlað að gera við. Á leið að þessu húsi hafi ákærði ekið fram hjá heimili A. Í næstu yfirheyrslu ítrekaði ákærði að hann hafi ekki hitt meðákærða, Angjelin, á heimili hans að Brautarholti […] laugardagskvöldið 13. febrúar. Er ákærði gaf skýrslu fyrir dómi kvaðst hann ekki viss um hvort hann hitti meðákærða, Angjelin, í Brautarholti á laugardagskvöldinu.
  12. Að því er varðar framburð, ákærða, Shpetims, og innbyrðis misræmi í honum er meðal annars til þess að líta að í fyrstu yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst ákærði ekki hafa komið í Rauðagerði að kvöldi laugardagsins 13. febrúar. Þá gerði ákærði ekki grein fyrir ferð sinni í Borgarnes á föstudeginum í þessari yfirheyrslu. Bar hann að hann hafi verið heima hjá sér á laugardagskvöldinu, fyrir utan að hafa farið út til að kaupa sígarettur. Er undir ákærða var borið að gögn sýndu fram á að hann hafi farið í Borgarnes á föstudeginum kvaðst ákærði hafa gleymt því. Hafi ákærði verið samferða meðákærðu, Claudiu, sem hafi farið þangað að hitta meðákærða, Angjelin. Hafi ákærði farið með til að ,,chilla“. Hafi meðákærða, Claudia, tekið við hliðartösku frá meðákærða, Angjelin. Er ákærði var beðinn um að gera frekari grein fyrir ferð sinni í Borgarnes kvaðst hann hafa farið þangað að beiðni meðákærða, Angjelin, sem beðið hafi ákærða um að taka töskuna með sér. Í skýrslutökunni kvaðst ákærði síðan hafa verið heima hjá sér á laugardagskvöldinu. Er undir ákærða var borið að myndskeið úr eftirlitsmyndavélum leiddu í ljós að hann hafi verið kominn í Varmahlíð eftir miðnættið greindi ákærði frá því að meðákærða, Claudia, hafi hringt í hann eftir miðnætti og beðið hann um að koma með sér norður og hann orðið henni samferða. Meðákærði, Angjelin, hafi ekki verið í bifreiðinni. Er ákærða var bent á að gögn málsins veittu vísbendingar um að hann, ásamt meðákærða, Angjelin, hafi farið í Rauðagerði að kvöldi laugardagsins 13. febrúar á Hyundai bifreið kvað ákærði það vera rétt. Í næstu yfirheyrslu greindi ákærði með mun nákvæmari hætti frá atvikum föstudagsins og laugardagsins. Þá greindi ákærði frá því að hann hafi verið meðákærða, Angjelin, samferða norður aðfaranótt sunnudagsins 14. febrúar. Í næstu yfirheyrslu greindi ákærði meðal annars frá ferð sinni og meðákærða, Murats, í Rauðagerði á laugardagskvöldinu, en þeir hafi farið þangað til að skoða hús sem ætlunin hafi verið að gera við. Þeir hafi aftur á móti ekki fundið húsið. Í þeirri ferð hafi meðákærði, Murat, stoppað við Rauðarárstíg […] til að hitta vin sinn. Í þessari skýrslutöku greindi ákærði frá því að meðákærði, Angjelin, hafi ætlað að hitta á A á laugardagskvöldinu til að reyna að sættast við hann. Í þeirri skýrslutöku greindi ákærði einnig mun nánar frá ökuferð sinni og meðákærða, Angjelins, í Rauðagerði og hvernig ákærði hafi séð bílskúrsdyr á heimili A lokast eftir að bifreið hafði verið ekið þangað inn. Fyrir dómi bar ákærði síðan að meðákærði, Murat, hafi bent ákærða á það hús sem ætlunin hafi verið að gera við í Rauðagerði, þrátt fyrir að í skýrslu hjá lögreglu hafði hann borið að þeir hefðu ekki fundið húsið.
  13. Svo sem hér var rakið er það sammerkt skýrslum ákærðu að framburður þeirra breyttist mjög mikið eftir því sem rannsókn málsins hjá lögreglu vatt fram. Þá var framburður þeirra fyrir dómi ekki í fullu samræmi við fyrri framburð þeirra hjá lögreglu. Einkennir framburð ákærðu að þau breyttu honum hjá lögreglu eftir því sem lögregla bar undir þau frekari rannsóknargögn, svo sem myndir úr eftirlitsmyndavélum og símagögn, sem þóttu fara gegn fyrri framburði þeirra. Þannig leituðust ákærðu í ríkum mæli við að laga framburð sinn að nýjum gögnum lögreglu. Þá er verulegt innra ósamræmi í framburði ákærðu. Með hliðsjón af því sem að framan er rakið um reikulan framburð ákærðu eru þau öll ótrúverðug að mati dómsins.
  14. Við úrlausn þessa máls er til þess að líta að fram er komið að illdeilur höfðu blossað upp á milli ákærða, Angjelins, og A, í kjölfar þess að sá síðarnefndi og félagar hans lögðu svokallaðar sektir á F. Þá hafa ákærðu og vitni lýst símtali, sem átti sér stað síðla dags fimmtudaginn 11. febrúar 2021, þar sem líflátshótanir gengu á milli ákærða og A. Verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að í framhaldi af því hafi farið af stað atburðarás, sem leiddi síðar til þess að ákærði, Angjelin, svipti A lífi. Við úrlausn málsins verður ekki fram hjá því litið að ákærðu höfðu verið nánir vinir um langa hríð. Þannig voru ákærðu, Angjelin og Claudia, kærustupar, en ákærðu, Shpetim og Murat, nánir vinir ákærða, Angjelins. Er ótrúverðugt annað en að ákærðu, Claudia, Shpetim og Murat, hafi haft fulla vitneskju um illdeilur ákærða, Angjelins, og A, sem virðast samkvæmt gögnum málsins hafa byrjað í lok árs 2020, en ákærði, Angjelin, útvegaði sér skammbyssu fljótlega eftir það. Þá skammbyssu kvaðst ákærði ekki hafa farið leynt með og verður að telja vafalaust að meðákærðu, Claudia, Murat og Shpetim, hafi vitað af tilvist hennar enda hafa meðákærðu borið á þann veg.
  15. Sem fyrr greinir hefur ákærði, Angjelin, viðurkennt að hafa svipt A lífi, en borið því við að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. Þá hafi meðákærðu ekki haft vitneskju um að ákærði ætlaði að hitta A þetta kvöld. Myndskeið úr eftirlitsmyndavélum við Brautarholt og Stórholt annars vegar og Rauðarárstíg, Sogaveg og Rauðagerði hins vegar leiddu til þess að grunur beindist að ákærðu. Myndskeið þessi sýna ótvírætt að ákærðu komu öll að heimili ákærða, Angjelins, í Brautarholti […] laugardagskvöldið 13. febrúar. Ákærðu, Angjelin og Claudia, komu saman á bifreið þangað, en skömmu síðar einnig ákærðu, Shpetim og Murat. Ákærðu vörðu umtalsverðum tíma saman í Brautarholtinu. Ákærðu, Shpetim og Murat, fóru á bifreið ákærðu, Claudiu, í Rauðagerði um kvöldið án þess að staldra þar við. Gögn málsins styðja ekki við þá skýringu þeirra að þeir hafi farið þangað seint á laugardagskvöldi til að skoða fasteign og er hún langsótt og ótrúverðug. Ber ákærðu, Shpetim og Murat, ekki saman um þessa ferð og á reiki er hvort þeir hafi fundið umrætt hús. Miðað við þá atburðarás sem síðar varð er hafið yfir vafa að ákærðu hafi farið í Rauðagerði þetta kvöld til að kanna hvort A væri heima. Á leiðinni til baka komu ákærðu einnig við á Rauðarárstíg […] áður en þeir óku aftur að heimili ákærða, Angjelins, í Brautarholti. Þykir hafið yfir vafa að ákærðu hafi haft viðkomu þar til að kanna hvort A væri þar staddur.
  16. Ákærðu, Murat og Claudia, fóru síðar þetta kvöld saman að Rauðarárstíg […]. Veitir ferðin og sú staðreynd að ákærða, Claudia, fór síðar á staðinn til að fylgjast með bifreiðum sem tengdust A, sterka vísbendingu um að ákærði, Murat, hafi farið með ákærðu til að leiðbeina henni um hvaða bifreiðum hún ætti að fylgjast með. Óljóst er aftur á móti hvort það var ákærði, Murat, eða ákærði, Angjelin, sem gaf ákærðu, Claudiu, fyrirmælin um að senda skilaboðin ,,hi sexy“ til ákærða, Angjelins, þegar önnur hvor bifreiða A færi af stað, en sá vafi hefur ekki þýðingu við úrlausn málsins. Ákærða, Claudia, vissi á þessari stundu um hótanir A í garð ákærða, Angjelin, og gat því ekki dulist að tilgangurinn með varðstöðunni við Rauðarárstíg […] væri að láta ákærða, Angjelin, vita hvenær A færi af staðnum. Sú staðhæfing ákærðu að hún hafi ekki vitað í hvaða tilgangi hún væri að fylgjast með bifreiðunum og senda umrædd skilaboð er ótrúverðug. Ákærða, Murat, var einnig kunnugt um að meðákærði, Angelin, hafði í hyggju að nálgast A einan vegna hótana þess síðarnefnda í hans garð. Einnig að mikilvægt væri að vinir A væru ekki með honum í för þar sem þá kynni að fara illa. Samkvæmt framangreindu gegndi ákærði, Murat, mikilvægu hlutverki við að staðsetja A og fylgjast með ferðum hans í því skyni að meðákærði, Angelin, næði fundi hans.
  17. För ákærðu, Angjelins og Shpetims, í Rauðagerði rétt fyrir miðnættið, þegar þeir voru undir það búnir að ákærða, Claudia, léti þá vita hvenær A færi frá Rauðarárstíg og áleiðis heim, er ótvíræð vísbending um að þeir hafi ætlað að veita A fyrirsát, en hætta var á að A kæmist inn á heimili sitt áður en ákærði, Angjelin, næði til hans. Ákærði, Angjelin, hafði skilið síma sinn og snjallúr eftir norður í landi, sem er skýr vísbending um að hann vildi komast hjá því að síðar yrði unnt að rekja ferðir hans út frá þeim tækjum. Staðhæfing ákærða, Shpetim, um að hann hafi ekki vitað að hann væri nærri heimili A fær ekki staðist, þar sem hann hafði í það minnsta í tvígang áður komið á heimili hans. Þá bar ákærði, Angjelin, fyrir dómi að meðákærði, Shpetim, hafi vitað að hann ætlaði að hitta á A einan í Rauðagerði þetta kvöld. Ákærði, Angjelin, var með skammbyssu sína meðferðis ásamt hljóðdeyfi. Samkvæmt tækniskýrslu lögreglu var vopnið, með áföstum hljóðdeyfi, ríflega 40 cm að lengd. Framburður ákærða, Shpetim, um að hann hafi ekki orðið vopnsins var þrátt fyrir að ákærði, Angjelin, legði byssuna með áföstum hljóðdeyfi á gólfið við fætur sínar í bifreiðinni, er afar ótrúverðugur.
  18. Miðað við gögn tæknideildar lögreglu stóð atlaga ákærða, Angjelin, að A yfir í stuttan tíma, eða innan við mínútu frá því dyrnar á bílskúrnum að Rauðagerði lokuðust þar til ákærðu, Angjelin og Shpetim, óku á brott. Verður ekki annað af því ráðið en að ákærði, Angjelin, hafi komið sér rakleiðis að verki og skotið A svo til umsvifalaust eftir að hann kom út úr bílskúrnum. Ákærði skaut öllum skotum úr skammbyssunni og kom meðal annars eitt þeirra í höfuð A, annað í mitt bak hans og það þriðja ofarlega í bak. Miðað við atvik málsins var flóttaleið ákærðu fyrir fram ákveðin, en ákærðu óku með hraði norður í Skagafjörð í sumarbústað sem ákærði, Angjelin, hafði á sínum snærum. Skýringar ákærða, Shpetims, á því hvers vegna hann sneri aftur til Reykjavíkur strax um morguninn eru afar ósennilegar.
  19. Hér að framan er því slegið föstu að ákærðu, Claudia og Murat, hafi fylgst með ferðum A til að unnt væri að láta ákærða, Angjelin, vita hvenær A væri að vænta í Rauðagerði. Eins og áður greinir var þeim báðum kunnugt um líflátshótanir A í garð meðákærða, Angjelins, og fjölskyldu hans og að meðákærði óttaðist um líf sitt og sonar síns. Einnig var þeim kunnugt um að meðákærði, Angjelin, hafði, í kjölfar þess að honum fóru að berast hótanir frá A og félögum, útvegað sér skammbyssu með hljóðdeyfi. Þá hefur komið fram að meðákærði, Angjelin, var með byssuna á sér laugardagskvöldið 13. febrúar í hliðartösku. Höfðu ákærðu, Claudia og Shpetim, daginn áður tekið við töskunni í Borgarnesi, flutt hana að beiðni meðákærða í bæinn þar sem þau afhentu honum töskuna nokkru áður en meðákærði lét til skarar skríða.
  20. Í þessu sambandi er einnig til þess að líta að fyrir liggur að ákærða, Claudia, sem hélt heimili í Breiðholti, beið áfram ein á heimili ákærða, Angjelins, vel fram yfir miðnætti þetta kvöld. Þá er og til þess að líta að samkvæmt myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélum í Brautarholti og Stórholti virðist sem ákærða hafi ætlað að leggja af stað þaðan klukkan 01.30 um nóttina, en í þann mund fengið skilaboð frá ákærða, Murat, með fyrirmælum um að bíða um stund. Skömmu síðar var hringt í hana úr síma ákærða, Shpetims, og hélt hún þá af stað norður. Loks er til þess að líta að ákærði, Murat, hefur borið um að ákærði, Shpetim, hafi um svipað leyti hringt í hann og tjáð honum að hann væri á leið úr bænum.
  21. Ásetningur ákærða, Angjelin, til drápsins var einbeittur og gat ekki helgast af neyðarvörn. Þá hlaut ákærðu, Claudiu, Murat og Sheptim, að virtum gögnum málsins að hafa verið ljóst að langlíklegast væri að meðákærði, Angjelin, hygðist ráða A af dögum. Með þátttöku í skipulagningu og öðrum undirbúningi þess að ákærði, Angjelin, gæti hitt A einan fyrir utan heimili hans verður samkvæmt öllu framansögðu talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi átt verkskipta aðild að því að A var ráðinn af dögum og um samverknað allra ákærðu hafi verið að ræða.
  22. Með vísan til alls þessa, og að því gættu er áður greinir um að ekki liggi fyrir nægjanleg sönnun um að ákærði, Murat, hafi gefið meðákærðu, Claudiu, fyrirmæli um að senda nánar tilgreind skilaboð í síma ákærða, Shpetim, verða ákærðu öll sakfelld samkvæmt ákæru og er háttsemi þeirra þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
  23. Sakaferill ákærðu hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar.
  24. Mál þetta á sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarsögu á síðari tímum. Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að atlaga ákærða, Angjelin, að A var þaulskipulögð og í senn ofsafengin og miskunnarlaus, en ákærði gekk að A og skaut hann af stuttu færi viðstöðulaust níu skotum í brjóst og höfuð. Var ásetningur ákærða til að bana A afar einbeittur. Ákærðu frömdu brotið í félagi og verður það virt þeim til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af því og 1., 6. og 7. tl. 70. gr. sömu laga, sbr. og 79. gr. laganna, er refsing ákærða, Angjelin, ákveðin fangelsi í 20 ár, en ákærðu, Claudiu, Murat og Shpetim, hvers um sig fangelsi í 14 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald er ákærðu sættu undir rannsókn málsins, eins og í dómsorði greinir.
  25. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um upptöku á skammbyssu af gerðinni Sig Sauer 1911- 22 er staðfest.
  26. Í hinum áfrýjaða dómi var bótakröfum allra brotaþola vísað frá dómi að því marki sem þær beindust að ákærðu, Claudiu, Murat og Shpetim, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála. Koma þær því ekki til úrlausnar fyrir Landsrétti gagnvart þeim.
  27. Staðfest er ákvæði hins áfrýjaða dóms um miskabætur til handa eiginkonu hins látna, brotaþolanum B, auk bóta vegna útfararkostnaðar og skaðabætur vegna missis framfæranda.
  28. Staðfest er ákvæði hins áfrýjaða dóms um miskabætur og skaðabætur vegna missis framfæranda til handa börnum hins látna, brotaþolunum C og AAA.
  29. Staðfest er ákvæði hins áfrýjaða dóms um miskabætur til handa foreldrum hins látna, D og E.
  30. Ákæruvald hefur ekki krafist endurskoðunar á ákvörðun málsvarnarlauna í hinum áfrýjaða dómi og kemur hún því ekki til endurskoðunar, samanber meðal annars dóm Hæstaréttar 19. maí 2014 í máli nr. 333/2014. Í samræmi við það verður ákvæði hins áfrýjaða dóms um sakarkostnað, málsvarnarlaun verjenda og þóknun réttargæslumanns í héraði staðfest, með þeirri breytingu að ákærðu, Claudiu, Murat og Shpetim, verður, í ljósi niðurstöðu málsins, gert að greiða kostnað vegna varnar þeirra hvers um sig í héraði, svo sem nánar greinir í dómsorði.
  31. Um sakarkostnað, málsvarnarlaun verjenda og aksturskostnað og þóknun réttargæslumanns fyrir Landsrétti fer sem í dómsorði greinir. Við ákvörðun málsvarnarlauna og þóknun réttargæslumanns hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
  32. Í niðurlagi hins áfrýjaða dóms er vikið að samantekt rannsóknardeildar um rannsókn málsins, sbr. 1. mgr. 56. gr. laga nr. 88/2008. Mat héraðsdómur skýrsluna ekki unna í samræmi við greint lagaákvæði og að við samningu hennar hafi ekki verið gætt að meginreglunni um hlutlægniskyldu lögreglu. Var það talið ámælisvert.
  33. Samkvæmt greindu ákvæði tekur lögregla saman skýrslu um rannsókn sína í hverju máli um sig þar sem getið skal einstakra rannsóknaraðgerða og niðurstöðu þeirra. Eftir því sem við á skal þar meðal annars koma fram það sem sakborningur og vitni bera við skýrslutöku, sbr. 64. og 65. gr. laga nr. 88/2008, athugun lögreglu sjálfrar og niðurstaða skoðunar og rannsóknar sérfróðra manna.
  34. Skýrsla sú sem frammi liggur í máli þessu er viðamikil, enda telja rannsóknargögn vel á þriðja þúsund blaðsíður. Skýrslan er fyrst og fremst yfirlit um rannsóknaraðgerðir og samantekt á því sem komið hefur fram við rannsókn málsins. Í niðurlagi hennar er lýst skoðun lögreglu á þáttum sem tengdust huglægri afstöðu ákærðu. Verður ekki séð að slíkt fari gegn ákvæði 1. mgr. 56. gr. laga nr. 88/2008 þannig að ámælisvert þyki, enda er í niðurlagi ákvæðisins gert ráð fyrir að lögregla geri í skýrslunni grein fyrir athugun sinni og niðurstöðum skoðana sinna. Eru ekki efni til að átelja skýrsluna.

Dómsorð:

Ákærði, Angjelin Sterkaj, sæti fangelsi í 20 ár. Til frádráttar refsingu kemur óslitið gæsluvarðhald hans frá 17. febrúar 2021 til dómsuppsögudags.

Ákærða, Claudia Sofia Coelho Carvalho, sæti fangelsi í 14 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald hennar frá 17. febrúar 2021 til og með 24. mars sama ár.

Ákærði, Murat Selivrada, sæti fangelsi í 14 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald hans frá 17. febrúar 2021 til og með 17. mars sama ár.

Ákærði, Shpetim Qerimi, sæti fangelsi í 14 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald hans frá 20. febrúar 2021 til og með 5. mars sama ár.

Staðfest er ákvæði hins áfrýjaða dóms um upptöku á skammbyssu af gerðinni Sig Sauer 1911-22.

Ákærði, Angjelin greiði, B, 4.568.523 krónur í miskabætur og útfararkostnað, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, af 4.000.000 króna frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, en með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga af 4.568.523 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði B 27.619.336 krónur í skaðabætur vegna missis framfæranda, með 4,5% vöxtum samkvæmt 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 14. febrúar til 25. júní 2021, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði, Angjelin, greiði B, fyrir hönd C og AAA, hvoru um sig 3.000.000 króna í miskabætur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, en með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði B, fyrir hönd C og AAA, hvoru um sig 7.376.266 krónur í skaðabætur vegna missis framfæranda, með 4,5% vöxtum samkvæmt 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga, frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði, Angjelin, greiði D og E, hvoru um sig, 3.000.000 króna í miskabætur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, en með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákvæði hins áfrýjaða dóms um málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Angjelins, og þóknun réttargæslumanns brotaþola fyrir héraðsdómi er staðfest.

Ákærði, Angjelin, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Oddgeirs Einarssonar lögmanns, fyrir Landsrétti, 3.348.000 krónur, aksturskostnað verjandans að fjárhæð 15.494 krónur og þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþolanna fyrir Landsrétti, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem ákveðin eru í einu lagi fyrir alla brotaþolanna 1.674.000 krónur.

Ákærða, Claudia, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir héraðsdómi, Sverris Halldórssonar lögmanns, 17.558.090 krónur og þóknun skipaðra verjenda fyrir Landsrétti, Eiríks Gunnsteinssonar lögmanns, 390.600 krónur, og Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 3.348.000 krónur.

Ákærði, Murat, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Geirs Gestssonar lögmanns, fyrir héraðsdómi, 14.436.390 krónur og fyrir Landsrétti, 3.348.000 krónur.

Ákærði, Shpetim, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir héraðsdómi, Leós Daðasonar lögmanns, 18.435.700 krónur, málsvarnarlaun Ólafs Vignis Vignissonar lögmanns vegna vinnu undir rannsókn málsins, 1.678.650 krónur og málsvarnarlaun skipaðs verjanda fyrir Landsrétti, Sveins Guðmundssonar lögmanns, 3.348.000 krónur.

Ákærðu greiði sameiginlega sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti ákæruvalds fyrir héraðsdómi, 4.794.989 krónur og sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti fyrir Landsrétti, 713.522 krónur.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 21. október 2021

Árið 2021, fimmtudaginn 21. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. S- 2676/2021: Ákæruvaldið gegn Angjelin Sterkaj, Cláudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi, en málið var dómtekið 23. september sl. Málið er höfðað með ákæru Héraðssaksóknara, dagsettri 11. maí 2021, á hendur: „Angjelin Sterkaj, kennitala […], […], Reykjavík, dvalarstaður fangelsið Hólmsheiði, Claudia Sofia Coelho Carvalho, kennitala […], […], Reykjavík, Murat Selivrada kennitala […], […], Seltjarnarnesi, og Shpetim Qerimi, kennitala […], […], Hafnarfjörður, dvalarstaður fangelsið Hólmsheiði, fyrir manndráp, með því að hafa laugardaginn 13. febrúar 2021, í félagi staðið saman að því að svipta A, kennitala […] lífi, svo sem hér greinir:

  1. Ákærði Murat sýndi meðákærðu Claudia Sofia tvær bifreiðar sem tilheyrðu A og lagt var í porti við Rauðarárstíg […] í Reykjavík og gaf henni fyrirmæli um að fylgjast með þeim og jafnframt að senda nánar tiltekin skilaboð í gegnum samskipta forritið messenger til meðákærða Shpetim þegar hreyfing yrði á annarri hvorri bifreiðinni.
  2. Ákærða Claudia Sofia fylgdist að beiðni meðákærða Murat með tveimur bifreiðum sem tilheyrði A og lagt var í porti við Rauðarárstíg […] og sendi fyrirfram ákveðin skilaboð í gegnum samskiptaforritið messenger til meðákærða Shpetim þegar A ók frá Rauðarárstíg á annarri bifreiðinni.
  3. Ákærði Shpetim ók ásamt meðákærða Angjelin að Rauðagerði í Reykjavík, rétt fyrir miðnætti og stöðvuðuð þeir bifreiðina nálægt horni Rauðagerðis og Borgargerðis. Þegar bifreið A var ekið að heimili hans að Rauðagerði […] ók ákærði Shpetim í humátt á eftir honum, hleypti meðákærða Angjelin úr bifreiðinni við hús nr. […] og ók svo áfram nokkrar húsalengdir þar sem hann snéri bifreiðinni við og beið þar til meðákærði Angjelin gaf honum merki um að sækja sig. Þá ók ákærði Shpetim austur Rauðagerði og tók meðákærða Angjelin upp í bifreiðina í Borgargerði. Þeir óku svo út úr bænum og í Varmahlíð í Skagafirði, með viðkomu í Kollafirði þar sem meðákærði Angjelin losaði sig við skammbyssu með því að henda henni í sjóinn.
  4. Ákærði Angjelin ók ásamt meðákærða Shpetim að Rauðagerði eins og lýst er í ákærulið 3. Hann fór úr bifreiðinni utan við hús nr. […], faldi sig við bílskúr og þegar A kom út úr bílskúrnum eftir að hafa lagt þar bifreið sinni, skaut ákærði hann níu sinnum í líkama og höfuð með 22 kalibera Sig Sauer skammbyssu, með þeim afleiðingum að A lést af skotáverkum sem hann hlaut á heila og brjóst. Í kjölfarið hljóp hann út Rauðagerði, gaf meðákærða Shpetim, sem þar beið, merki og fór aftur í bílinn við Borgargerði. Þeir óku svo út úr bænum og í Varmahlíð í Skagafirði, með viðkomu í Kollafirði þar sem ákærði losaði sig við skammbyssuna með því að henda henni í sjóinn.

    Telst þetta varða við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga að upptæk verði gerði skammbyssa af gerðinni Sig Sauer 1911-22. Einkaréttarkröfur: Af hálfu B, kt. […], er þess krafist í fyrsta lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa miskabætur að fjárhæð kr. 5.000.000,- ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Í öðru lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa, kr. 568.523,- vegna útfararkostnaðar ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá því að mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar, til greiðsludags. Í þriðja lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa kr. 27.619.336,- í skaðabætur vegna missi framfæranda auk 4,5% vaxta samkvæmt 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærðu verði sameignlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa málskostnað að skaðlausu samkvæmt mati dómara eða síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfu sinni í málinu.

    Af hálfu B, kt. […], fyrir hönd ólögráða drengsins C, kt. […], er þess krafist í fyrsta lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa miskabætur að fjárhæð kr. 5.000.000,- ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Í öðru lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa kr. 7.376.266,- í skaðabætur vegna missi framfæranda auk 4,5% vaxta samkvæmt 16. gr. l. nr. 50/1993 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 laga frá þeim degi til greiðsludags.

    Þá er þess jafnframt krafist að ákærðu verði sameignlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa málskostnað að skaðlausu samkvæmt mati dómara eða síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfu sinni í málinu.

    Af hálfu B, kt. […], fyrir hönd ófædds og ólögráða barns síns, er þess krafist í fyrsta lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa miskabætur að fjárhæð kr. 5.000.000,- ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Í öðru lagi að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa kr. 7.958.520 í skaðabætur vegna missi framfæranda auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá dómsuppsögu til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærðu verði sameignlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa málskostnað að skaðlausu samkvæmt mati dómara eða síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfu sinni í málinu.

    Af hálfu D, fd. […] , er þess aðallega krafist að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa miskabætur að fjárhæð kr. 5.000.000,- ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærðu verði sameignlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa málskostnað að skaðlausu samkvæmt mati dómara eða síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfu sinni í málinu.

    Af hálfu E, fd. […] , er þess aðallega krafist að ákærðu verði sameiginlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa miskabætur að fjárhæð kr. 5.000.000,- ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærðu verði sameignlega (l. in solidum) gert að greiða kröfuhafa málskostnað að skaðlausu samkvæmt mati dómara eða síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfu sinni í málinu.“

    Verjandi ákærða Angjelin krefst þess aðallega að ákærða verði ekki gerð sérstök refsing. Til vara er krafist vægustu refsingar sem lög framast leyfa. Verði refsing hans óskilorðsbundið fangelsi er þess krafist að gæsluvarðhaldsvist ákærða frá og með 16. febrúar 2021 komi til frádráttar dæmdri refsingu með fullri dagatölu.

    Kröfur ákærða Angjelin vegna bótakrafna verða reifaðar er fjallað verður um bótakröfurnar.

    Ákærði samþykkir kröfu ákæruvaldsins um upptöku á skammbyssu.

    Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt tímaskýrslu Verjandi ákærðu Cláudiu krefst aðallega sýknu af ákæru og að einkaréttarkröfum verði vísað frá dómi. Til vara er krafist vægustu refsingu sem lög leyfa og jafnframt að sýknað verði af einkaréttarkröfum. Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt tímaskýrslu.

    Verjandi ákærða Murat krefst aðallega sýknu. Til vara er þess krafist að ákærða verði ákveðin vægasta refsing sem lög heimila og að refsing hans verði alfarið skilorðsbundin. Þá er þess krafist í öllum tilvikum að allur sakarkostnaður, þ. á m. málsvarnarlaun verjanda samkvæmt tímaskýrslu, verði greiddur úr ríkissjóði.

    Aðallega er krafist frávísunar einkaréttarkrafna en til vara sýknu af þeim og til þrautavara stórfelldrar lækkunar á fjárhæð krafnanna.

    Verjandi ákærða Sphetim krefst aðallega sýknu. Til vara er þess krafist að ákærða verði ekki gerð refsing í málinu og til þrautavara að ákærða verði ákveðin vægustu viðurlög sem lög frekast heimila, verði hann sakfelldur.

    Þá er þess aðallega krafist að bótakröfum verið vísað frá dómi, til vara að ákærði verið sýknaður af þeim en til þrautavara að bótakröfur verði lækkaðar verulega.

    Loks er þess krafist að allur sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda samkvæmt tímaskýrslu, hver sem úrslit málsins verða.

    Samkvæmt gögnum málsins barst lögreglu tilkynning klukkan 23:57, hinn 13. febrúar sl., um meðvitundarlausan mann við Rauðagerði […]. Er lögreglan kom á staðinn var búið að flytja manninn, sem reyndist vera A, í sjúkrabifreið og endurlífgun hafin. Hann var fluttur á bráðamóttöku Landspítala-háskólasjúkrahúss og úrskurðaður látinn klukkan 00:20. Í frumskýrslum lögreglu og öðrum gögnum málsins er lýst rannsóknum sem fóru fram í kjölfarið og verður þeim lýst og/eða vikið að þeim síðar eins og ástæða þykir.

    Ákærðu Angjelin, Murat og Cládia voru handtekin 16. febrúar sl. Ákærði Shpetim var handtekinn 19. febrúar sl. Öll voru í framhaldinu úrskurðuð í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins.

    Ákærði Angjelin játaði hjá lögreglu að hafa skotið A til bana kvöldið 13. febrúar sl. en önnur ákærðu neita sök eða að hafa átt aðild að manndrápinu.

    Nú verður rakinn framburður ákærðu fyrir dómi og vitnisburður.

    Ákærði Angjelin játar sök en kvaðst hafa verið einn að verki og enginn annar hafi vitað af verknaðinum, hvorki fyrir fram né strax eftir atburðinn. Hann lýsti aðdraganda atburðarins þannig að um síðustu jól hefðu aðilar, að því er helst var skilið af ákærða, úr undirheimum ákveðið að sekta F, vin ákærða. Þessir aðilar hefðu viljað að ákærði aðstoðaði við þetta. Þeir hefðu í janúar síðastliðnum byrjað að þrýsta á ákærða og beðið hann um að hitta sig á heimili sínu, sem ákærði kvaðst hafa gert. Þar hafi hann hitt A, G og þriðja manninn sem hann vissi ekki deili á. Mennirnir hefðu farið að hóta ákærða og fjölskyldu hans og beðið ákærða um aðstoð við að taka börn F en tilefnið hafi verið sekt sem lögð hafði verið á F eins og ákærði bar. Hann kvaðst hafa hafnað þessu og þá hafi sér verið hótað og hann beittur líkamlegu og andlegu ofbeldi og hafi þessi samskipti endað þannig að ákærði kvaðst ætla að taka verkið að sér en þetta hefði hann sagt til að losna frá mönnunum. Hann kvaðst eftir þetta hafa farið í sumarbústað 11. febrúar sl. en hann hefði sent A skilaboð og sagt honum að hlutirnir væru ekki eins og þeir sýndust vera og að hann myndi ekki hjálpa þeim. A hefði svarað; ókei, þá gerir þú það sem þú þarft að gera en ég geri það sem ég þarf að gera. Eftir þetta hefði hann verið beittur frekari hótunum og þeim syni hans verið hótað lífláti. Eftir þetta ákvað ákærði að kaupa byssu og margir hefðu vitað af því, einnig þeir sem hótuðu honum og kvaðst hann hafa talið að sú vitneskja myndi fæla mennina frá frekari hótunum. Hótanir hefðu haldið áfram, að hans sögn, m.a. þannig að ekið hefði verið fram hjá heimili hans.

    Ákærði kvaðst hafa fengið símtal frá H, vini A, er hann var í sumarbústaðnum 11. febrúar sl., en A hefði verið viðmælandinn í símtalinu og hefði hann byrjað á að hóta ákærða og sagst ætla að drepa hann og son hans og lýsti ákærði hótununum ítarlega. A hefði spurt ákærða hvar hann væri staddur því hann ætlaði að hitta hann. Ákærði lýsti ítrekuðum hótunum sem hann kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu A, þrátt fyrir að ákærði hefði sagt að málið sem rætt var væri sér óviðkomandi. Hann lýsti hótununum sem gengu á milli þeirra A í símtalinu og að ákærði hefði sagt að hann myndi svara fyrir sig og sagt A að hann myndi verjast hótunum og sagst myndu fylla hann af byssukúlum, eins og ákærði bar. Enginn meining hefði verið á bak við þetta heldur hefði þetta verið sagt í hita leiksins og lýsti ákærði þessu og óhugnanlegum lýsingum sem A hafði um það sem hann myndi gera syni ákærða. Ákærði kvaðst aldrei hafa hótað neinum en hótanir af hálfu A og félaga hefðu verið daglegt brauð. Aðspurður hvort hann hefði sagt einhverjum frá símtalinu kvaðst hann telja að F hefði verið með sér er þetta átti sér stað og hann hafi því vitað af símtalinu. Hann mundi ekki hvort hann sagði öðrum frá því en þó kvaðst hann hafa sagt Murat frá þessu og það hafi hann gert vegna vináttu A og Murats og hugsað að e.t.v. gætu þeir rætt þetta. Ákærði kvaðst hafa óttast hótanirnar sem hann lýsti og hann hafi verið beittur líkamlegu og andlegu ofbeldi í janúar 2021 eins og rakið var og kvað hann þá sem hótuðu, þá A og G, hafa verið líklega til að láta verða af hótunum og lýsti hann þessu nánar og kvað fleiri aðila hafa verið að baki þessum tveimur mönnum. Þá lýsti ákærði því að F hefði fengið símtal frá aðilum sem hótuðu ákærða en það voru menn úr undirheiminum, að sögn ákærða, þar sem beðið var um að ákærði yrði „settur upp“ í stað sektarinnar sem lögð hafði verið á F.

    Hinn 12. febrúar kvaðst ákærði hafa ekið í Borgarnes á bíl F en fram kemur í gögnum málsins að ákærði kom norðan úr Skagafirði þar sem hann var í snjósleðaferð ásamt F o.fl. Erindið hefði verið að hitta meðákærða Sphetim seint um kvöld, eftir að hafa beðið meðákærðu Cláudiu um að keyra hann til fundar við sig í Borgarnesi, en þetta gerði hann vegna þess að Sphetim var ekki með bílpróf. Þá hefði hann beðið Sphetim um að koma með fíkniefni fyrir sig. Ákærði kvaðst hafa greint Sphetim frá hótunum og leitað ráða hjá honum en Sphetim hefði ráðlagt ákærða að leita sátta. Ákærði lýsti því að hugsanlegt væri að lögreglan stöðvaði akstur sinn þar sem hann var á bíl F. Í þessu ljósi kvaðst hann hafa beðið meðákærðu Cláudiu um að taka tösku sem hann hafði meðferðis heim til ákærða en hún hafi verið með lykil að íbúð hans. Hann vissi ekki hvort Cláudia og Sphetim vissu af byssunni sem var í töskunni.

    Við skýrslutöku hjá lögreglu kvað ákærði þau hafa vitað hvað var í töskunni sem um ræðir. Spurður um þetta fyrir dómi kvaðst ákærði oft vera með byssuna í töskunni og hann hafi beðið fyrir töskuna, sem var lokuð, í bæinn. Hann viti ekki hvort þau vissu að byssa var í töskunni og kvað hann meðákærðu verða að svara þessari spurningu sjálf. Nánar spurður um það hvort hann hefði rætt fyrir fram við Murat og Sphetim um að hann ætlaði að fara að hitta A, eins og skilja mátti af framburði ákærða hjá lögreglunni, kvað ákærði Sphetim hafa vitað af því er þeir skiptu um sæti í bifreiðinni í Rauðagerði, eins og rakið var, en hann taldi að Murat hefði áttað sig á því eftir að ákærði bað hann um að sýna Cláudiu bifreið A. Aðspurður kvað hann hafa komið til tals að hitta A og G og kannski H og I á mánudeginum eftir komu ákærða í bæinn. Ákærði tók fram að eini möguleiki sinn til að hitta A hefði verið að hitta hann einan, því of hættulægt væri að hitta hann ásamt hinum mönnunum. Þetta hefði ekki verið hugsað sem sáttafundur heldur taldi hann fundinn settan upp þar sem mennirnir sem um ræðir hefðu viljað drepa ákærða, eins og hann lýsti. Spurður hvers vegna hann hefði ekki leitað til lögreglu vegna hótananna kvað hann skýringuna þá að aðili sem hann nefndi væri tengdur lögreglunni og af þeim sökum hefði hann talið að þar væri enga hjálp að fá. Ákærði var spurður hvort hann hefði sagt Murat frá hótununum og kvað ákærði þá Murat hafa rætt saman í síma en hann mundi ekki hvenær símtalið átti sér stað. Hann kvaðst þá hafa sagt Murat frá hótununum en Murat hefði ekki tekið þetta alvarlega og hlegið, að sögn ákærða.

    Ákærði kvaðst hafa ferðast frá sumarbústaðnum norður í landi til Reykjavíkur, laugardaginn 13. febrúar, ásamt fleirum. Eftir komu til Reykjavíkur hringdi hann í Cláudiu, sem var með húslykla ákærða, og bað hana í leiðinni um að sækja Sphetim svo þeir gætu drukkið bjór saman. Þetta varð og eftir stutta stund hefði verið farið heim til Spehtim að borða og Murat hefði komið þangað. Ákærði kvaðst ekki hafa rætt málið gagnvart A við neinn þetta kvöld og tók fram að hann hefði verið hræddur og engum treyst. Hann hefði hins vegar rætt þetta stuttlega við Sphetim daginn áður, eins og rakið var. Murat hefði stoppað stutta stund og ekki unnist tími til að ræða við hann. Cláudia hefði ekið sér heim síðar um kvöldið og er hann kom þangað kvaðst hann hafa orðið var við menn úr undirheimum sem biðu hans fyrir utan heimilið. Aðspurður hverjir þetta voru nefndi hann I og kvaðst viss um það. Hann bað Cláudiu um að aka fram hjá og leggja bifreiðinni ekki við húsið og gerði hún það og lögðu þau lykkju á leið sína áður en þau gengu að húsinu. Hann lýsti mannaferðum við húsið og bið uns hann taldi óhætt að fara inn, sem var um 10-15 mínútum síðar. Hann kvaðst hafa beðið eftir því að þessir aðilar kæmu heim til hans og hann hefði verið hræddur og haft byssuna til taks. Hann kvaðst hafa greint J, nágranna sínum, frá mannaferðunum við húsið og einnig Sphetim og Murat sem komu á heimili hans síðar þetta kvöld. Hann kvað alla sem voru í íbúðinni hafa séð byssuna þetta kvöld eins og alla aðra daga að hans sögn. Hann hefði ekki falið byssuna heldur haft hana uppi við. Hann kvaðst ekki hafa beðið meðákærðu Murat og Sphetim að fara í Rauðagerði þetta kvöld og hann viti ekki hvort þeir fóru þangað. Hjá lögreglu lýsti ákærði því að hann hefði beðið Murat og Sphetim um að fara í Rauðagerði en þeir hefðu ekki vitað hvað ákærði ætlaði að gera. Fyrir dómi kvaðst ákærði hafa sagt við meðákærðu Murat og Sphetim að láta sig vita ef þeir sæju til ferða A. Eftir þetta hefði hann ákveðið að hitta A einn og hann hefði ekki viljað að aðrir væru þar vegna þess að hann yrði þá í hættu og lýsti hann þessu. Hann hefði beðið Cláudiu um að fylgjast með ákveðnum bíl. Hún hefði spurt hvaða bíl og hann hefði þá beðið Murat um að sýna henni bílinn sem var Ford vinnubíll í eigu A og ákærði vissi af bílnum við […], en hann vissi hvar A og félagar hans hittust daglega, að hans sögn, en hann hefði jafnframt beðið meðákærða Murat um að sýna Cláudiu bílinn. Hann kvaðst hafa talað við Cláudiu um klukkan 23 þetta kvöld og hún sagt að engin hreyfing væri á bílnum sem um ræðir. Ákærði hefði þá áttað sig á og talið A hafa verið á Volvo bifreið og bað hann Cláudiu um að fylgjast með þeim bíl. Murat hefði ekki beðið Cláudiu um að fylgjast með þeirri bifreið eða að senda sér skilaboð ef hreyfing yrði á bílnum. Eftir klukkan 23 þetta kvöld hefði Cláudia látið sig vita að A væri þar sem ákærði taldi hann hafa verið. Cláudia hefði sent ákærða skilaboðin Hi sexy í síma Sphetim sem ákærði hafði þá til umráða. Hann kvaðst um kvöldið hafa beðið Sphetim um að koma með sér í sumarhús en Sphetim hefði verið dálítið drukkinn á þessum tíma. Hann kvaðst hafa ákveðið að fara aftur í sumarhúsið norður í landi eftir að hann varð var mannaferða við heimili sitt um kvöldið og hann hefði því eftir það spurt Sphetim hvort hann ætti frí í vinnu næsta dag og hvort hann vildi ekki koma með sér í snjósleðaferð norður í land. Áður en hann færi norður hafði hann hug á að hitta A og ræða við hann og reyna að sættast og hann hefði því ekið í Rauðagerði, að heimili A. Ákærði studdist við yfirlitsmynd, sem liggur frammi meðal gagna málsins af vettvangi, er hann lýsti því hvar hann lagði bifreiðinni og bað Sphetim um að taka við stjórn bílsins, sem hann gerði. Þá hefði hann beðið Sphetim um að keyra dálítið frá þar sem hann ætlaði að tala við A og ekki viljað að hann hræddist þar sem einhver væri með sér í för. Hann lýsti því er A ók bifreið sinni inn í bílskúr og að hann hefði þá séð A handleika haglabyssu sem hann kom fyrir í hillu í bílskúrnum. Er þarna var komið hefði ákærði tekið byssuna úr töskunni sem hann geymdi byssuna í og skrúfaði hljóðdeyfi á byssuna í því skyni að ef hlutirnir færu á versta veg þá væri hann tilbúinn til að beita sjálfsvörn, eins og ákærði bar, en ekki hefði vakað fyrir sér fyrir fram að skjóta A. Spurður um það hvort hann hefði hugsað út í það fyrir fram að það gæti komið til þess að hann notaði byssuna kvaðst hann hafa farið til að tala við A en hann hefði aldrei ætlað að nota byssuna og hann hefði farið til að hitta A augliti til auglitis. Hann kvaðst hafa kallað á A er hann kom út úr bílskúrnum og þá hafði A sagt komstu hingað líka og hefði A sagst ætla að drepa ákærða og barn hans og ætlaði þarna að ráðast á ákærða. Er hann sá að A ætlaði ráðast á sig kvaðst hann hafa tekið byssuna upp, en hann hafði áður haldið henni niðri, og byrjað að skjóta „þar til allt var búið“. Nánar spurður kvaðst hann ekki hafa hugsað neitt á þessari stundu heldur byrjað að skjóta eftir að A hótaði honum lífláti og ætlaði að ráðast á ákærða. Hann hefði í raun misst meðvitund og farið í blackout og byrjað að skjóta. Hann kvaðst eftir þetta hafa veifað til Sphetim í bílnum, sem var 100-150 metra í burtu, og kom Sphetim þá akandi og ákærði fór inn í bílinn, setti byssuna á gólfið við fætur sér og sagði Sphetim að keyra, sem hann gerði. Ákærði staðfesti að ljósmyndir í gögnum málsins væru af umræddri byssu.

    Ákærði kvaðst hafa sagt Sphetim, er þeir skiptu um sæti í bílnum, að hann ætlaði að fara og tala við A og ákærði sagt „hann mun ekki hóta eða drepa neinn“. Sphetim hafi sagt þarna að ákærði hefði skemmt líf þeirra beggja og þetta væri hræðilegt. Spurður hvort Sphetim hafi vitað að ákærði skaut A kvaðst hann ekki hafa sagt Sphetim það heldur aðeins viðhaft ummælin sem rakin voru.

    Ákærði lýsti akstri þeirra Sphetim úr borginni uns þeir stoppuðu í Kollafirði þar sem ákærði kvaðst hafa kastað byssunni í sjóinn. Eftir þetta tók ákærði við stjórn bifreiðarinnar og ók norður í land.

    Ákærði lýsti símtali við Cláudiu þetta kvöld og spurði hvort hún vildi koma í sumarbústaðinn sem hún gerði. Morguninn eftir kvaðst hann hafa beðið Sphetim um að fara en hann hefði ekki viljað að hann lenti í veseni auk þess sem hann kvað Sphetim tala mikið og ákærði hefði ekki viljað að Sphetim vissi meira um málið.

    Hinn 14. febrúar kvað hann F hafa hitt sig í sumarbústaðnum og spurt hvort hann hefði drepið A en ákærði svarað að hann vissi að A myndi ekki drepa neinn lengur. Ákærði kvað Cláudiu hafa orðið ljóst morguninn eftir, er hún sá fréttir, að ákærði hefði drepið A. Hann kvað Sphetim ekki hafa vitað neitt um það, þar sem hann skildi ekki ensku eða aðrir tungumálaörðugleikar hans hefðu komið í veg fyrir það, að sögn ákærða. Hann skýrði sams konar frásögn í lögregluskýrslu en hann kvað Cláudiu ekki hafa vitað að hann ætlaði að hitta A.

    Ákærða Cláudia neitar sök og kvaðst engan þátt hafa átt í því að svipta A lífi. Spurð um ákærulið 2 kvað hún Angjelin, sem hún kynntist um mitt síðasta ár, hafa beðið hana um að fara með Murat á Rauðarárstíg […] þar sem hann sýndi henni hvítan bíl og þá hafi Angjelin beðið hana um að senda sér skilaboðin Hi sexy í síma er bílnum yrði ekið af stað. Hún kvaðst hafa verið þreytt á að sitja og bíða og fylgjast með bílnum og þá hringt í Angjelin sem lét hana þá vita af öðrum bíl sem hún hefði átt að fylgjast með og láta hann vita eins og lýst var. Hún hefði ekki vitað hvað til stóð þetta kvöld en hún hefði frétt af manndrápinu er hún sá fréttir er hún var stödd norður í landi.

    Þau ákærði Angjelin hefðu farið til F og er þau komu til baka hefði hún séð ákærða eyðileggja skó sína og hún þá spurt og eftir það verið ljóst að A hefði verið drepinn.

    Hún lýsti því er þau Angjelin komu á heimili að kvöldi til og hafi þá beðið menn fyrir utan húsið. Hún kvað Angjelin þá hafa sagt að þeir I og G væru þar og hafi ákærði beðið hana um að leggja bílnum spöl frá húsinu og þau hefðu eftir það gengið kringum það og hafi hún séð að margir biðu og leituðu að Angjelin. Eftir að þau fóru inn hafi Angjelin sagt að honum og barni hans hefði verið hótað. Þarna heyrði hún fyrst af hótunum í hans garð.

    Föstudaginn 12. febrúar hefði hún verið í vinnu og að henni lokinni, um klukkan 17:30, farið heim og ætlað að skemmta sér með vinkonum sínum um kvöldið. Hún lýsti því að Angjelin hefði hringt í hana milli klukkan 19 og 20 á föstudagskvöldinu 12. febrúar og beðið hana um að taka til á heimili hans og sagt að hún og vinkona hennar gætu ekki hist þar vegna þess að hann hefði lánað fólki húsið. Síðar um kvöldið hringdi Angjelin og bað hana um að koma til sín í Borgarnes og hafa fíkniefni meðferðis og taka Sphetim með, því hann þyrfti að tala við hann. Angjelin hefði verið í ferð um Norðurland en hún hefði ekki vitað hvenær von væri á honum í bæinn en hann hefði þó sagt við brottför á fimmtudeginum að hann kæmi kannski til baka á mánudegi eða þriðjudegi. Þau Sphetim hefðu farið í Borgarnes og hitt Angjelin. Þar hefði hann afhent henni símann sinn og úrið sitt og Sphetim hefði skilið sinn síma eftir í bílnum og þeir Sphetim hafi síðan farið afsíðis og rætt saman. Eftir það komu þeir til baka og Angjelin afhenti henni tösku sem hann bað hana fyrir til Reykjavíkur, en hann hafi ekki sagt hvers vegna þessi beiðni kom fram. Hún hefði einskis spurt, sett töskuna í bílinn og lagt af stað til Reykjavíkur. Hún hafi ekki litið í töskuna en í henni var eitthvað hart og þungt, en hún hefði ekki vitað að í töskunni var byssa en tók fram að hún hefði vitað að byssa hefði iðulega verið í þessari tösku og hún hafi stundum séð Angjelin með byssunni á heimili hans. Sphetim hefði tekið töskuna með sér er þau komu til Reykjavíkur. Eftir að hafa skilað Sphetim af sér hefði hún farið til K, vinkonu sinnar, að skemmta sér. Eftir að hafa hitt Angjelin í Borgarnesi hefði hún næst heyrt í honum er hann hringdi á laugardeginum, á leið til Reykjavíkur, með mann sem hann ætlaði að skilja eftir á heimili sínu og bað hann hana um að hitta sig þar og taka Sphetim með sér. Hann hefði sagt henni að erindi sitt í bæinn væri að keyra strákana sem hann skildi eftir og sækja föt og síðan ætlaði hann aftur norður. Þau Sphetim hafi komið á heimili Angjelin þar sem hún hefði sett í þvott óhrein föt sem ákærði hafði komið með að norðan og þeir Sphetim hafi talað saman á albönsku og hún ekki skilið þá. Hún kvað dóttur sína hafa hringt og fór hún þá til að sækja hana, en Angjelin hefði þá beðið hana um að aka þeim Sphetim heim til hans, sem hún gerði. Angjelin hafi beðið hana um að koma aftur um klukkan 21, sem hún gerði og ók heim til Angjelin. Er þau komu þangað hafi hún séð bíl þar fyrir utan og mann þar inni og annan fyrir utan húsið og Angjelin sagt henni þá að hann hefði orðið fyrir hótunum. Við skýrslutöku var leikin upptaka úr eftirlitsmyndavélum sem sýndi tímabilið sem ákærða kom að heimili Angjelins þetta kvöld og mennirnir voru fyrir utan, eins og hún bar, og skýrði ákærða framburð sinn með hliðsjón af upptökunum. Spurð hvort hún hefði séð Murat þetta kvöld kvaðst hún hafa farið í göngutúr vegna þess að henni leið ekki vel og er hún kom til baka hefðu allir meðákærðu verið hjá Angjelin. Hún hefði hengt upp þvottinn og útbúið kaffi fyrir alla. Þá hefði Angjelin beðið hana um að gera sér greiða og fara og kíkja á hvítan bíl við […] og senda honum skilaboðin Hi sexy ef bílnum yrði ekið burt eða hann hreyfður. Hann hafi ekki sagt meira um bílinn, ekki hver ætti hann eða hvers vegna hann vildi vita ef bíllinn yrði færður og ekki hefði hvarflað að henni að spyrja neins vegna þessa. Spurð hver hefði sýnt henni bílinn kvaðst hún hafa ekið þeim Murat á staðinn og hann hefði sýnt henni hvar bíllinn var og hún ekið Murat til baka að því loknu og síðan farið aftur að […] til að fylgjast með bílnum. Hún kvað sér hafa verið farið að leiðast og þá hringt í Angjelin og spurt hvort hún mætti ekki koma til baka. Hann hefði þá sagt henni að fylgjast með Volvo bíl. Hún kvaðst í skýrslutöku hjá lögreglu hafa verið hrædd og ekki sagt satt til um þetta þar sem hún kvað Murat hafa sagt sér að fylgjast með bílnum en hún hefði síðan leiðrétt það og greint satt og rétt frá varðandi þetta. Angjelin hafi beðið hana um að bíða stutta stund og athuga hvort bíllinn færi en hún gæti komið til baka eftir það. Er hún sá Volvo bílinn fara hafi hún sent Angjelin skilaboðin eins og hún lýsti. Hún lýsti því að meðan hún beið hafi Murat hringt í hana og hún þá farið burt og hitt Murat í verslun þar sem hann lánaði henni kveikjara og eftir það farið til baka að fylgjast með. Murat hefði ekki rætt um Volvo bifreiðina. Hún hefði farið á heimili Angjelin eftir að hafa sent honum skilaboðin. Þá lýsti hún ferð sinni í verslun 10-11. Hún kvaðst ekkert hafa heyrt í Angjelin eftir þetta fyrr en um hálfeitt um nóttina er hann hringdi og spurði hvað hún væri að gera. Hún sagðist vera heima hjá honum að drekka alein. Hann hefði þá beðið hana að koma norður, sem hún þáði og kvaðst hafa komið þangað um klukkan hálfsex að morgni. Hún lýsti því er hún sótti Angjelin og Sphetim á bensínstöð og urðu þau samferða í bústaðinn sem þeir dvöldu í. Hún hefði ekki greint neitt óvenjulegt og lýsti hún því að Angjelin hefði spurt hvort Sphetim mætti taka bíl hennar. Hún hefði ekki spurt hvers vegna Sphetim væri að fara aftur í bæinn en hún kvaðst hafa talið Sphetim hafa verið búinn að dvelja lengur á staðnum. Hún lýsti því að á sunnudagsmorgninum hefði hún séð í fjölmiðlum að einhver hafði dáið. Er þau Angjelin komu til baka eftir að hafa snætt morgunverð hjá F hefði hún séð ákærða eyðileggja skóna sína. Stuttu seinna sá hún í samfélagsmiðlum að A væri látinn og hún hefði þá spurt Angjelin hvort hann hefði drepið hann og verður ekki annað ráðið af framburði hennar en að Angjelin hefði framið verknaðinn. Angjelin hafi aðspurður sagt henni að A hefði hótað sér og að hún hefði ekki vitað að ákærði fór heim til hans kvöldinu áður. Spurð hvort henni hefði ekki dottið í hug að leita til lögreglu með upplýsingarnar um að Angjelin hefði drepið A kvaðst hún hafa verið hrædd og í sjokki og ekki hugsað og ekki vitað hvað hún ætti að gera og ekki vitað hvað gæti gerst og lýsti hún þessu og hversu hrædd hún var. Hún lýsti því að Angjelin hefði hringt í J og beðið hann um að koma norður með föt, sem hann gerði, en J hefði komið norður á bíl ákærðu sem hann hefði sótt til Sphetims. J hefði farið til baka á bílaleigubíl. Hún hefði skilað bílnum eftir að J hringdi í hana og kvaðst hafa verið að drekka og því ekki getað skilað bílnum eins og til stóð. Hún hafi greint Angjelin frá þessu og hann hefði hringt stuttu síðar og sagt að hún ætti að skila bílnum, sem hún gerði. Hún lýsti ferðinni er hún skilaði bílnum og því að hún hafi talið að sér væri veitt eftirför og ráðstöfun sem hún gerði vegna þessa. Hún kvaðst hafa hringt í Angjelin og spurt hann hvort Murat gæti sótt hana því hún ætti ekki fyrir strætó. Angjelin hefði þá sagt henni að prófa að hringja í Murat, sem hún gerði og sótti Murat hana. Hún kvaðst síðar hafa verið handtekin eftir að Murat skilaði henni af sér.

    Ákærði Murat neitar sök og kvaðst ekki hafa átt þátt í því að svipta A lífi. Hann kvaðst ekki hafa sýnt Cláudiu bifreiðarnar eins og honum er gefið að sök og hvorki hafa gefið henni fyrirmæli né sent nánar tiltekin skilaboð til meðákærða Sphetim eins og lýst er í ákærunni. Hann kvaðst ekki hafa vitað fyrir fram um ferðir Angjelins í Rauðagerði er hann svipti A lífi og hann hafi ekki vitað af því að Angjelin og A hafi átt í deilum. A hafi verið vinur sinn og hann hefði frétt af atburðinum er hann fór á sjúkrahús þar sem A var eftir skotárásina. Hann kvað þá A hafa verið góða vini og A verið með fyrstu mönnunum sem hann kynntist við komu hingað til lands, þeir hefðu unnið saman og milli þeirra hafi ríkt gagnkvæmt traust. Hann lýsti því hve þungbært fráfall A hefði verið fyrir sig og aldrei hefði fallið skuggi á samband þeirra. Hann kvaðst hafa kynnst Angjelin í byggingavinnu en þeir hefðu ekki verið nánir vinir. Hann hefði kynnst Sphetim í byggingavinnu og lýsti hann sambandi þeirra við vinnu. Hann kvað hvorugan þeirra Angjelin og A hafa greint sér frá að þeir ættu í deilum, en hann hefði heyrt eitthvað um það frá H er hann hitti hann á Landspítalanum eftir morðið. Ákærði kvað Angjelin hafa hringt í sig og sagt að ,,bossarnir“ hefðu verið að hringja og hóta sér og viljað höfuð hans, eins og ákærði bar. Nafn A hefði ekki verið nefnt í þessu sambandi. Murat kvaðst ekki hafa leitt hugann að þessu heldur hlegið og sagt; ókei, ókei. Hann kvaðst hafa talið Angjelin drukkinn eða undir áhrifum fíkniefna og því ekki hugsað út í þetta. Hann kvaðst hafa verið tvisvar til þrisvar sinnum á heimili Angjelins laugardaginn 13. febrúar, til að sækja Sphetim og hann kunni að hafa séð Angjelin þá en hann hefði ekki talað við hann. Spurður um erindin á heimili Angjelins þennan dag lýsti ákærði því svo að Sphetim hefði beðið hann um að keyra sig heim til Angjelins til að sækja bjór sem hann átti þar. Hann lýsti því að þeir Sphetim hefðu skoðað baðherbergi hjá Angjelin en til stóð að lagfæra það. Hann kvað Cláudiu hafa komið. Hann kvað að í þessi tvö eða þrjú skipti sem hann kom á heimili Angjelins þennan dag hafi hann annaðhvort verið að keyra Sphetim þangað eða að sækja hann. Ítrekað spurður hvort hann hefði hitt Angjelin í þessi skipti kvaðst ákærði hugsanlega hafa hitt hann en þeir hefðu ekki rætt saman. Þá lýsti ákærði því að þau Cláudia og Sphetim hefðu verið að drekka bjór heima hjá Angjelin og þeir Sphetim hefðu rætt um fíkniefni og Sphetim spurt hann hvort hann gæti útvegað þau. Hann kvaðst hugsanlega geta gert það og nefnt L í því sambandi og kvaðst ákærði hafa farið að heimili hans í Reykjavík, […], til að hitta hann og þess vegna hafi hann farið að heimili hans og Cláudia hefði farið með sér. Ekki hafi tekist að útvega fíkniefni í þessari ferð en hann hefði hitt L síðar sama kvöld. Angjelin og Cláudia báru bæði að ákærði hefði farið að Rauðarárstíg […] til að sýna Cláudiu bílinn. Ítrekað spurður um þetta kvað ákærði tilgang ferðar sinnar hafa verið þann sem hann lýsti, þ.e. að hitta L og tók fram að hugsanlega hafi Cláudia spurt eða beðið sig um að sýna sér einhvern bíl en hann hafi ekki farið á staðinn í því skyni. Spurður hvort hann hafi farið í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar sl. kvaðst hann ekki hafa farið þangað en hann hefði farið ásamt Sphetim í Borgargerði til að skoða hús sem þurfti að lagfæra. Tilefnið var það að Sphetim hefði hringt og beðið sig um að koma og ræða verkefni og hann hefði þá sagt Sphetim frá stóru húsi í Borgargerði sem gera þyrfti við utanhúss, en A hefði rætt um þetta verk við sig og ákærði gerði ráð fyrir að hann hefði áður talað við eigendur, ella hefði hann ekki rætt þetta við sig. Þeir Sphetim hefðu ákveðið að fara í Borgargerði og skoða húsið sem um ræðir og rætt um að vinna verkið saman, en M hafi einnig verið á staðnum og rætt um þetta við ákærðu. Eftir þetta fóru þeir Sphetim í Borgargerði á bíl Cláudiu, en bíll ákærða var bæði bilaður og bensínlaus. Meðal gagna málsins eru ljósmyndir af húsi í Borgargerði og á húsinu eru vinnupallar. Ákærði kvað þetta húsið sem þeir Sphetim ræddu um og kvað þetta vera sama húsið og hann hefði borið um í lögregluskýrslu. Er þeir komu til baka úr ferðinni hefðu þeir lagt bílnum í portinu við Rauðarárstíg […]. Ástæða þess að þeir Sphetim voru að ferðast saman hafi verið sú að ákærði freistaði þess að kaupa fíkniefni hjá L, sem kvað ekkert að fá. Hann hefði síðan komið aftur í sama port klukkan 22 með Cláudiu. Hann kvað Volvo-bíl A ekki hafa verið í portinu þá. Angjelin og Cláudia báru að ákærði hefði sýnt Cláudiu hvítan bíl í eigu A. Spurður hvort hugsanlegt væri að bílinn hefði borið á góma milli þeirra Cláudiu og hún hefði spurt út í bílinn, kvað ákærði það útilokað. A hefði verið vinur sinn og hann hefði unnið heima hjá A viku fyrr og þá hefði hann beðið A um að lána sér vinnubílinn og hann þá sagt að hann ætti ekki bílinn lengur. Hann hefði því vitað að A átti ekki þennan bíl. Hann kvaðst ekki hafa vitað að Cláudia hefði verið á staðnum í því skyni að fylgjast með tilteknum bíl. Ákærði kvaðst ekki hafa verið í símasambandi við Angjelin þetta kvöld. Hann kvaðst hafa verið beðinn um að sækja Sphetim á heimili Angjelins þetta kvöld. Hann hefði verið seinn fyrir þangað vegna þess að hann var stöðvaður af lögreglunni á leiðinni. Hann kvað rangt það sem fram komi í gögnum málsins um að hann hefði verið stressaður á þessum tíma og kvað hann mega ráða það af upptökum lögreglu sem stöðvaði hann að hann greindi lögreglu frá því að hann væri á leiðinni heim til Angjelins og að hann hafi sagt satt og rétt frá. Ekki varð af því að ákærði sækti Sphetim heldur fór hann aftur til að reyna að hitta L og taldi sig síðan hafa hitt Sphetim eftir það. Um þetta leyti kvað hann Cláudiu hafa hringt í sig eða sent skilaboð og spurt hvort hann væri nálægt og að hana vantaði kveikjara. Hann kvað þau Cláudiu hafa hist á Rauðarárstíg vegna þessa. Eftir að hann hitti Cláudiu hefði hann farið og hitt L og farið heim eftir það. Hann lýsti því er hann sótti Cláudiu í Holtagarða eftir að hún skilaði þar bílaleigubíl, en hún hefði hringt og beðið ákærða um að sækja sig þar sem hún beið í strætóskýli. Hann kvaðst hafa gert þetta og skilað henni af sér þar sem bíllinn hennar var og kvaðst hafa verið handtekinn í kjölfarið.

    Ákærði Sphetim neitar sök. Hann kvaðst ekki hafa vitað að til hafi staðið að svipta A lífi og ekki haft neina hugmynd um það og ákærðu hefðu ekki talað saman um það. Spurður um ferð sína í Borgarnes á föstudagskvöldið kvað hann hana þannig til komna að eftir heimkomu úr vinnu hafi Angjelin hringt og spurt hvar hann væri og ákærði svarað því. Hann hefði þá spurt Angjelin hvers vegna hann spyrði og hafi Angjelin þá sagt að hann vildi að ákærði kæmi til fundar við sig í Borgarnesi. Hann kvaðst hafa komið af fjöllum og sagst ekki vita hvar Borgarnes væri. Angjelin hefði þá sagt að Cláudia myndi sækja hann og að þeir þyrftu að ræða saman. Cláudia hefði síðan hringt og sagt að Angjelin hefði beðið hana um að sækja ákærða. Hann hefði spurt Cláudiu hverju þetta sætti en hún aðeins sagt að Angjelin hefði beðið hana um þetta og að hún vissi ekkert meir. Þau Cláudia hafi síðan farið saman í Borgarnes og ákærði drukkið bjór á leiðinni, en ákærði kvað tungumálaörðugleika hafa komið í veg fyrir að þau gætu talað saman. Í Borgarnesi hittu þau Angjelin og hafi hann sagst þurfa að tala við Sphetim og beðið hann um að afhenda Cláudiu símann sinn áður en þeir gengu afsíðis til að tala saman. Hann kvaðst ekkert hafa hugsað um þetta og afhent símann. Angjelin hefði sagt að G hefði hótað sér og barni sínu lífláti og spurt hann hvað best væri að gera. Nafn A hefði ekki borið þar á góma. Kvaðst ákærði hafa spurt hvort hann hefði sannanir fyrir þessu og réttast væri að sættast eða kæra til lögreglu. Hann skýrði afstöðu sína og sagði að best væri að sættast. Hann vissi ekki til þess að Angjelin hefði fengið hótanir fyrr á árinu. Angjelin hefði afhent Cláudiu tösku og sagt henni að fara heim. Cláudia hefði sett töskuna í skott bifreiðarinnar og ekið til Reykjavíkur en hann kvaðst ekki hafa vitað hvert innihald töskunnar var. Á leiðinni til Reykjavíkur kvaðst hann hafa drukkið bjór og tekið myndir og lýsti hann þessu. Hann lýsti því að Angjelin hefði hringt í sig á leiðinni og beðið sig fyrir töskuna vegna þess að Cláudia hefði ekki lykla að heimili hans. Hann gerði þetta og geymdi töskuna á heimili sínu. Á laugardeginum hefði Cláudia hringt og sagt honum að hún væri komin heim til hans og bað hann um að koma út og taka töskuna með sér. Hann hefði gert það og spurt Cláudiu hvað stæði til og hún þá sagt að þau væru á leið heim til Angjelins. Er þangað kom spurði hann Angjelin hvers vegna hann væri kominn, en hann hefði áður sagt ákærða að hann ætlaði að koma í bæinn á mánudeginum. Angjelin hefði sagt að hann hefði komið til Reykjavíkur ásamt strákunum en hann færi hugsanlega aftur norður. Hann hafi afhent ákærða töskuna. Hann hefði drukkið bjór á heimili Angjelins og síðan var farið á heimili Sphetim þar sem hann eldaði kvöldmat. Cláudia hefði komið síðar um kvöldið. Angjelin hafi haft orð á því að hringja í Murat til að ræða viðgerð á baðherbergi á heimili hans. Að því kom að Angjelin og Cláudia fóru heim til Angjelins. Eftir komu Murat ræddu þeir viðgerðina á baðherberginu og ákærði hefði sagt Murat að hann ætlaði að taka sér frí í tvo til þrjá daga. Murat hefði þá sagt honum frá stóru verkefni sem þeir gætu unnið saman. Hann kvaðst ekki hafa trúað Murat og úr varð að þeir fóru heim til Angjelins og fengu þar bíllykla að bifreið Cláudiu og fóru eftir það saman og skoðuðu húsið sem um ræðir og staðfesti ákærði að húsið væri að sjá á ljósmyndum meðal gagna málsins og væri hið sama og ákærði Murat nefndi og áður var lýst. Ákærði hefði nefnt við Murat að útvega eiturlyf og hringdi Murat þá í N og fór heim til hans í kjölfarið. Þar hefðu þeir séð vinnubíl A. Murat hefði sagt að þetta væri ekki lengur bíll A heldur notaði N nú bílinn. Murat hefði lagt til að þeir biðu eftir N en Sphetim sagt að hann vildi það ekki og hann ætlaði heim til Angjelins og fóru þeir þá þangað. Hann sá ekki hvenær Cláudia og Murat fóru. Angjelin hafi þá sagt ákærða að koma með sér á stað nærri Costco. Á leiðinni þangað hafi Angjelin spurt hvað hann væri að gera á morgun og ákærði þá sagt honum að hann væri í fríi. Angjelin hefði þá spurt hvort hann vildi koma með sér í sumarbústað og í snjósleðaferð. Sphetim kvaðst hafa þegið það og Angjelin sagt að föt væru til staðar fyrir norðan. Þeir hefðu farið heim til Angjelins eftir þetta og síðan farið þaðan saman og Angjelin þá ekið bifreiðinni. Er þeir komu í Rauðagerði hafi Angjelin stöðvað bílinn og sagt ákærða að taka við stjórn bifreiðarinnar, sem hann gerði. Angjelin hefði sagst ætla að hitta félaga sinn. Hann kvaðst ekki hafa séð þegar Angjelin fór úr bílnum en hann hefði verið upptekinn við að stilla bílstjórasætið á þeirri stundu. Hann kvaðst hafa misst sjónar af Angjelin og ekki séð til hans. Hann hefði ekið 100-200 metra, lagt bílnum og beðið í 5-10 mínútur en áður hafi hann séð bíl ekið inn í bílskúr. Hann kvað sér hafa leiðst og ætlað að snúa bílnum við en sá þá Angjelin veifa og hafi hann þá tekið Angjelin upp í bílinn og sagði Angjelin honum að aka áfram sem hann gerði. Hann kvaðst ekki hafa vitað á þessum tíma að Angjelin ætlaði til fundar við A en kvaðst hafa talið að ferðin í Rauðagerði snerist um afhendingu fíkniefna. Hann kvaðst hvorki hafa séð Angjelin taka neitt með sér er hann fór úr bílnum, eins og byssu, né hafa séð byssu er hann kom til baka. Hann kvaðst ekki muna eftir því að hafa séð Angjelin með byssuna þetta kvöld en hann hefði oft séð hann með byssu. Spurður um ummæli Angjelins sem bar fyrir dómi að hann hefði sagt er Sphetim spurði um A að hann dræpi engan úr þessu, kvaðst ákærði ekki hafa hlustað og hann viti ekki um hvað Angjelin var að tala. Sphetim kvaðst hafa ekið áfram uns hann stöðvaði aksturinn í Kollafirði þar sem Angjelin hefði horfið úr augsýn. Ástæða þess að þeir þurftu að stöðva þarna hefði verið sú að ákærði væri með sykursýki og hann hefði drukkið mikinn bjór og þurfti því að fara út að pissa. Hann lýsti því að hann hefði munað eftir því að hafa lofað dóttur sinni að fara með henni og skoða hund næsta dag. Angjelin hefði sagt að þeir skyldu redda því. Ákærði kvaðst hafa greitt fyrir bensín á bílinn á leiðinni norður. Eftir að ákærði sótti lykla að húsinu sem þeir ætluðu að dvelja í hefði Cláudia hringt og sagst vera á leiðinni norður. Þegar Cláudia kom hefði Angjelin viljað að ákærði færi til baka á bíl Cláudiu, sem hann gerði. Hann kvaðst hafa sótt dóttur sína daginn eftir, eins og til stóð, og þau hefðu skoðað kanínur og fleira. Þá hefði hann haft samband við O og hafi hann spurt Sphetim hvort hann vissi ekki hvað gerðist og sagt ákærða frá morðinu. Ákærði hefði spurt nánar og fengið fréttir þar um. Eftir þetta kvaðst hann hafa hringt í Angjelin og spurt hvort hann vissi hvað gerðist og hann sagst hafa frétt það. Hann hefði spurt Angjelin hvort hann væri viðriðinn málið, sem hann neitaði. Hann fór heim eftir þetta og í vinnu daginn eftir. Angjelin og Cláudia hefðu komið í mat hjá ákærða á mánudeginum og hann hefði spurt hvað hefði gerst. Angjelin hefði sagt „þeir halda að ég hafi gert þetta“. Ákærði kvaðst hafa brugðist við þessu og spurt Angjelin hvort hann ætlaði að skemma líf þeirra og rekið hann út og fór hann þar með. Ákærði var spurður hvers vegna hann hefði ekki greint satt og rétt frá öllu í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu. Kvað hann skýringuna þá að hann hafi verið handtekinn eins og hryðjuverkamaður og hann hefði ekki verið með sjálfum sér í skýrslutökum og í áfalli. Þá hafi hann verið undir áhrifum og ekki muna allt sem gerðist.

    Vitnið B, ekkja A, kvað A hafa farið í vinnuna á laugardagskvöldinu. Hún lýsti því er hún hringdi í A um klukkan 23 og sendi honum skilaboð og bað hann um að taka úr þurrkaranum er hann kæmi heim. Hann svaraði og kvaðst vera hjá strákunum og ekkert stress og hann myndi gera það. Samskiptunum lauk um klukkan 23:15. Hún hefði síðan vaknað við högg, eins og einhver hefði dottið á bílskúrshurðina og talið að A væri kominn heim. Mínútu síðar kallaði R, íbúi á neðri hæð hússins, til hennar og bað um að hringt yrði á sjúkrabíl, sem hún gerði. Er hún kom út hafi hún séð A liggjandi á bakinu í götunni, alveg upp við bílskúrshurðina, en R og S, bróðir hennar, voru hjá A og S að reyna lífgunartilraunir. Hún kvað sjúkrabifreiðina hafa komið mjög fljótt á vettvang. Hún lýsti vinnu sjúkraflutningamanna á vettvangi og að lögreglan hefði komið stuttu síðar. Lögreglumaður hefði komið auga á skothylki á vettvangi og lýsti hún samskiptunum við lögregluna á vettvangi. Hún hafi hringt í I, vin A, enda viss um að þeir hefðu unnið saman þetta kvöld og þá hefði hún hringt í N og lögreglan og sjúkraflutningamenn löngu verið komnir er þessir menn komu á staðinn um nóttina. Hún hefði stöðugt spurt um A en ekki fengið svör og þá lýsti hún tilfinningu sinni um að hún hefði talið A látinn þótt henni væri ekki sagt það. Spurð hvort hún viti um einhvern aðdraganda þessa atburðar nefndi hún að A hefði verið í miklum símasamskiptum daginn áður og talað ensku. Hann hefði talað albönsku við samlanda sína en hann hefði skýrt fyrir viðmælandanum á ensku eins og það væru deilur milli tveggja aðila og A hefði virst hissa og skýrði hún þetta nánar. Hún hefði spurt A hvort eitthvert drama væri í gangi, eins og vitnið bar, en A þá sagt já og að hann væri að reyna að sætta þetta. Hún hefði ekki heyrt neinar ógnanir eða læti í A í þessu sambandi. A hefði aldrei verið með skotvopn á heimilinu og hún taldi að hún hefði vitað ef skotvopn hefði verið í bílskúrnum og skýrði hún þetta út frá miklum umgangi og notkun sinni á bílskúrnum. Hún lýsti sambandi A og Murats og að A hefði iðulega útvegað Murat vinnu við húsaviðgerðir sem hún lýsti. Þeir hefðu verið félagar en ekki bestu vinir eins og hún bar. I, vinnufélagi A, hefði komið um nóttina en hann hefði ekki farið inn í bílskúrinn, enda lögreglan búin að afmarka vettvanginn og hefði stjórnað mannaferðum þar og verið á vettvangi alla nóttina. Hún vissi ekki deili á ákærða Angjelin og mundi ekki eftir því að hafa hitt hann. Spurð hvort hún vissi hvort A og Angjelin þekktust kvaðst hún hafa séð í símanum hjá A að Angjelin hefði verið þar og því vera viss um að þeir hefðu þekkst en vissi ekki hvort ósætti hefði verið á milli þeirra en hafi þeir talað saman hefðu þeir rætt saman á albönsku.

    Hún lýsti þungbærum áhrifum þessa atburðar á líf sitt. Þau áttu son og á þessum tíma gekk hún með annað barn þeirra A. Þá lýsti hún áhrifum föðurmissisins á son þeirra A og vinnu sinni við að reyna að vinna úr því áfalli. Loks lýsti hún öðrum áhrifum þessa atburðar.

    Lögreglumaður nr. T lýsti aðkomu lögreglu á vettvang í Rauðagerði. Búið var að flytja A með sjúkrabifreið og lýsti hún vinnu lögreglunnar á vettvangi í framhaldinu. Hún hefði rætt við B, sem var utandyra á sloppnum og í miklu uppnámi. Hún lýsti því að stuttu síðar hefðu borist upplýsingar um að líklega væru áverkarnar á A skotáverkar en stuttu síðar hefðu fundist skotpatrónur á vettvangi. Hún kvað vini A hafa komið á vettvang og ættingja hans. Vettvangur hefði verið vaktaður og enginn komist inn óséður af lögreglu.

    Lögreglumaður nr. U, starfsmaður tæknideildar, lýsti vinnu sinni á vettvangi við að tryggja vettvang og sönnunargögn en vettvangur hefði verið innsiglaður og vaktaður alla nóttina. Spurð um það hvort skotpatrónur hefðu verið á upprunalegum stað eða hvort möguleiki væri á að þær hefðu fokið til, taldi vitnið patrónur á bílaplaninu hafa getað fokið til en patrónur sem voru nær garðinum hafi trúlega verið á upprunalegum stað þar sem var skjólsælla. Hún staðfesti vinnu sína en skotvopn fannst við leit í Kollafirði, fullhlaðin byssa, með hljóðdeyfi skrúfaðan á.

    Lögreglumaður nr. V lýsti vinnu sinni á vettvangi í Rauðagerði um nóttina og staðfesti gögn sem hann vann vegna þessa. Hann kvaðst ekki geta lagt mat á það hvort skotpatrónur hefðu verið á upprunalegum stað en eftir komu lögreglu á vettvang var tryggt að þær hreyfðust ekki úr stað. Hann kvað yfirlitsskoðun hafa farið fram, m.a. í bílskúr, en vettvangur hefði verið innsiglaður til frekari rannsóknar síðar.

    Lögreglumaður nr. AA staðfesti skýrslu sína um skotvopnið sem fannst í Kollafirði og að það hefði verið flutt til rannsóknar í Danmörku. Þá staðfesti vitnið aðra skýrslu sem hann vann við rannsóknina.

    Lögreglumaður nr. BB lýsti vettvangsferð með Cláudiu. Í ljós kom að þáverandi verjandi Cláudiu hefði ekki komist en verjandinn og Cláudia hefði verið samþykk því að farið væri í vettvangsferðina við þessar aðstæður og að hún gæti hringt í verjanda óskaði hún þess. Í vettvangsferðinni hafi verið töluð íslenska og enska og Cláudia hafi verið vel mælandi á bæði tungumálin.

    Vitnið CC, dreifingarsérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, lýsti og skýrði vinnu sína við rannsóknina en vitnið vann með farsímaupplýsingar og fleira. Vitnið rannsakaði alla notkun á farsímanúmerum ákærðu en gögnin um þetta liggja frammi.

    Vitnið DD, sérfræðingur hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, skýrði og staðfesti rannsóknargögn sem hann vann. Hann skýrði gögn sem send voru til rannsóknar í Danmörku. Hann kvað byssuna hafa verið rannsakaða þar og greindi hann frá niðurstöðum þeirrar rannsóknar. Hann skýrði DNA rannsóknir sem fram fóru og vísaði til danskrar rannsóknarstofu til að skýra einstakar niðurstöður. Hann skýrði og staðfesti rannsókn á fatnaði A. Hann merkti 11 göt á peysu, sjö á framhlið og fjögur á bakhlið. Við nánari skoðun taldi hann eitt gat á framhlið vera skurð er kom er peysan var klippt og skýrði hann það álit sitt. Hann skýrði álit sitt um göt sem talin eru ummerki eftir byssukúlu. Hann skýrði göt sem hann telur innskotsskot. Gat á stroffi á hægri ermi taldi hann líklegast vera útskotsgat þótt hann gæti ekki fullyrt um það. Ekki hafi verið hægt að segja til um önnur göt hvort þau hafi verið innskotsgöt eða útskotsgöt og skýrði hann hvers vegna þetta var ekki unnt. Hann kvað innskotsgat á miðju baki benda til að kúlan hafi komið frá hlið og skýrði hann þetta. Skot á miðju baki taldi hann eftir kúlu sem komið hefði beint á efnið en ekki frá hlið. Hann kvað þetta benda til þess að maðurinn hefði verið skotinn í bakið.

    Meðal gagna málsins eru rannsóknargögn frá Danmörku. EE réttarerfðarfræðingur skýrði og staðfesti rannsókn sína og gögnin sem um mræðir. Hann skýrði niðurstöður DNA rannsóknar á sýnum og að fundist hefðu sýni frá fleiri en einum einstaklingi og skýrði hann þetta og hvernig unnið væri úr slíkum tilvikum. Hann útskýrði einstök sýni sem rannsökuð voru og fyrir liggja ítarleg gögn um þetta.

    Lögreglumaður nr. FF lýsti gerð samantektarskýrslu sem liggur frammi í málinu og kvað lögfræðinga ákærusviðs hafa lesið skýrsluna yfir. Hann kunni ekki skýringar á því hvers vegna tiltekin gögn, sem verjandi ákærða Angjelins spurði um, væru ekki í málinu, hann þyrfti að athuga þetta nánar til þess að geta svarað þessu. Í samantektarskýrslunni er þess ekki getiðað Cláudia og Angjelin segja bæði í sínum lokaskýrslum að Angjelin hefði gefið Cláudiu tiltekin fyrirmæli um að senda skilaboð. Spurður hvers vegna þessa væri ekki getið í samantektarskýrslunni kvaðst vitnið ekki geta skýrt það.

    Lögreglumaður nr. GG lýsti rannsókninni í upphafi og gangi hennar. Vitnið lýsti skýrslu sem hún ritaði vegna rannsóknarinnar og ber heitið: „Samantekt rannsóknardeildar um rannsókn málsins.“ Hún lýsti því að fljótlega hefðu komið fram upplýsingar um að ákærði Angjelin tengdist málinu og upplýsingar hefðu komið frá I strax á vettvangi og frá HH við skýrslutöku á sunnudeginum. Hún lýsti því að Angjelin hefði játað morðið við skýrslutöku er fundur vopnsins var borinn undir hann og greint frá því að morðvopnið væri fundið. Vitnið lýsti ritun skýrslunnar sem að ofan greinir. Hún var spurð hvort venja væri að rita skýrslu sem þessa og kvað hún um að ræða greinargerð sem fylgir málsgögnum til ákærusviðs.

    Fyrir liggur að Cláudia leiðrétti, hinn 23. mars sl., framburð sinn hjá lögreglu og sagði Angjelin hafa gefið sér fyrirmæli um að senda skilaboð í síma Sphetim. Vitnið var spurt hvort hún hefði vitað af framburði Cláudiu en ákveðið við ritun skýrslunnar að taka ekki mark á honum. Kvaðst vitnið ekki hafa svar við því.

    Fyrir liggur að hinn 20. mars sl. gaf Angjelin samhljóða skýrslu og Cláudia um þetta og kvaðst sjálfur hafa beðið Cláudiu um að senda umrædd skilaboð í síma Sphetim. Vitnið var spurt hvort hún vissi af þessum framburði og þá hvort til greina hefði komið að taka mið af honum við skýrslugerðina. Vitnið svaraði spurningunni ekki.

    Fyrir liggur að Cláudia og Angjelin báru hvort í sínu lagi um það í gæsluvarðhaldi á þann hátt sem rakið var en þessa er einskis látið getið í niðurstöðukafla greinargerðarinnar. Vitnið var spurt hvers vegna það var ekki gert og kvaðst vitnið ekki hafa svör við því.

    Vitnið S, íbúi í Rauðagerði […], kvað þá R hafa komið að A í götunni við húsið eftir að hafa heyrt hljóð eins og hurðarskell að utan og þá fóru þeir R út og komu að A liggjandi á bakinu í götunni við bílskúrsdyrnar. Hann lýsti tilraunum til að gera skyndihjálp uns sjúkrabíll kom á vettvang.

    Vitnið R var íbúi í Rauðagerði […] á þessum tíma. Hann lýsti því er þeir S heyrðu smáhvell eins og hurðarskell að utan og hann hafi þá farið strax og kíkti út og séð þá A liggjandi á bakinu í götunni fyrir utan bílskúrsdyr mjög nærri húsinu. Hann lýsti ráðstöfunum sem gerðar voru og að hringt hefði verið á sjúkrabíl. Hann taldi að þeir S hefðu heyrt hefði rifrildi átt sér stað fyrir utan húsið.

    Vitnið P vann við að taka saman myndefni fyrir lögregluna sem liggur frammi meðal gagna málsins. Hann skýrði vinnu sína og staðfesti gögnin fyrir dóminum. Hann kvaðst hafa fengið frumgögn úr myndavélakerfum sem lögreglan safnaði og fékk vitnið tímalínu og tók fram að lögreglan hefði skoðað myndefnið áður en vitnið fékk það í hendur. Hann skýrði hvernig hann vann málið m.a. út frá staðsetningu farsíma. Skoðað var í réttarhaldinu myndefni frá laugardagskvöldinu 13. febrúar og skýrði vitnið myndbandið og hvernig tímasetningar voru fundnar og fleira. Fram kom hjá vitninu að Angjelin og Sphetim hefðu verið að nálgast Rauðagerði áður en Cláudia sendi skilaboðin og skýrði hann þetta nánar út frá tímasetningu myndavéla sem væru með vissu réttar. Vitnið skýrði hvernig sjá megi er A kom heim til sín um kvöldið og skýrði hann jafnframt vinnslu myndefnis við Rauðagerði sem hefði verið unnið út frá speglun frá gluggum húss við götuna. Hann kvað ljós kvikna og slokkna við bílskúr við Rauðagerði […] út frá hreyfiskynjara í bílskúrnum hjá A og það sýni að hreyfing hefur átt sér stað fyrir utan bílskúrinn. Frá því hreyfiskynjarinn kveikir ljósið og þar til bíl ákærðu er ekið til baka út götuna er talinn vera sá tími sem atburðurinn átti sér stað.

    Lögreglumaður nr. II lýsti vinnu sinni við rannsókn málsins. Hann skýrði athuganir lögreglu undir rannsókninni sem ekki leiddu í ljós að aðilar sem voru til skoðunar tengdust málinu. Hann skýrði vinnu við mat á upplýsingum frá aðilum sem ekki vildu láta nafns síns getið.

    Vitnið K kvaðst hafa kynnst Cláudiu fyrir um tveimur árum er þær unnu saman og Angjelin um svipað leyti. Hún hefði ekki vitað af neinum vandamálum milli ákærða Angjelin og A. Hún kvað Angjelin hafa sagt sér frá hótunum einstaklinga einstaka sinnum en hann hefði ekki greint henni frá neinu slíku um þetta leyti, eftir því sem ráða mátti af vitnisburðinum. Angjelin hefði ekki sagt hver hótaði honum og hún mundi ekki um hvað hótanirnar snerust en kvaðst þó muna að þær vörðuðu eitthvað son hans. Hún kvaðst hafa hitt Angjelin á þriðjudeginum eftir vinnu. Vitnið kvað Angjelin hafa verið áhyggjufullan er hann fór norður í land en hún vissi ekki hvers vegna það var, og er hún spurði Angjelin kvað hann það vera vegna einhvers er varðaði son hans. Hún kvaðst hafa talað við Cláudiu á laugardeginum en hafa svo sent henni skilaboð og þá komið fram að Cláudia væri veik. Hún kvað Cláudiu hafa ekið sér heim eftir vinnu föstudaginn 12. febrúar sl. er þær luku vinnu á sama tíma þann dag. Hún kvað þær Cláudiu hafa ætlað að skemmta sér um kvöldið. Hún lýsti ferð heim til móður Cláudiu og þaðan fóru þær heim til Angjelins sem hefði ætlað að lána þeim íbúð sína, sem ekki varð vegna þess að hann hafi lánað hana öðrum. Hún kvað Cláudiu hafa farið í Borgarnes og kvaðst hún hafa reiðst vegna þessa. Hún kvað Cláudiu hafa komið aftur um kvöldið og fóru þær eftir það heim til vitnisins.

    Vitnið J kvaðst hafa búið við hlið ákærða Angjelin í […] á þeim tíma sem um ræðir í ákærunni og lýsti kynnum sínum af honum. Hann kvaðst ekki hafa vitað um ágreining milli Angjelins og annarra og hann ekki þekkt A. Hann kvaðst hafa mætt Angjelin á stigaganginum laugardagskvöldið 13. febrúar en vitnið hafði ekki reiknað með því að ákærði Angjelin væri heima hjá sér þá. Angjelin hefði virst hræddur og fannst vitninu eins og hann væri undir áhrifum fíkniefna og merkti hann þetta á fasi hans. Angjelin hefði spurt vitnið hvort hann hefði séð lögreglu fyrir utan húsið en vitnið sagt að enginn væri þar. Hann kvaðst ekki hafa séð Angjelin vopnaðan þetta kvöld en hefði áður séð byssu í fórum hans. Angjelin hefði verið með tösku en hann kvaðst vita til þess að Angjelin hefði áður geymt byssu í töskunni Angjelin hafi nefnt að einhver væri að fylgjast með honum en vitnið kvaðst ekki hafa tekið mark á því og talið Angjelin undir áhrifum fíkniefna. J lýsti því er Cláudia hringdi í vitnið og bað hann um að fara með bíl til þeirra Angjelins er þau voru stödd úti á landi og í ljós kom að þau voru í meira en 300 km fjarlægð og var hann beðinn um að koma með föt til þeirra. Hann hefði gert þetta og hitt strák sem hann vissi ekki deili á, sem afhenti peninga fyrir bensíni og bíllykla en bíllinn hefði verið í Brautarholti. Hann kvaðst hafa átt að fá greiðslu fyrir þetta og tók hann með töskur sem í voru föt. Hann kvað JJ, konu sína, hafa farið með sér í ferðina og er hann hitti Angjelin og Cláudiu. Cláudia hafi komið á þriðjudeginum og sótt bíllyklana að bifreið sem vitnið ók á til baka í ferðalaginu norður. Hann kvað þau Angjelin og Cláudiu hafa verið stressuð en þau hafi verið að horfa á sjónvarpið þar sem fjallað var um morð, en hann hefði ekki skilið samræður þeirra.

    Vitnið JJ kvað þau J hafa verið heima hjá sér í […], laugardaginn 13. febrúar, en hún hefði ekki hitt Angjelin þá en maður hennar hefði gert það. Hún lýsti ferð þeirra J norður í land sunnudaginn 14. febrúar með bíl og föt, en kona hefði hringt í J og beðið hann um þetta.

    Vitnið M kvaðst hafa búið með Sphetim á þeim tíma sem um ræðir. Hann kvað Murat og Angjelin hafa komið til Sphetim um kvöldmatarleytið 13. febrúar. Murat hefði komið seinna en Angjelin og lýsti vitnið því er Murat og Sphetim ræddu byggingaverkefni og að Murat hefði viljað aðstoð frá Sphetim vegna umfangs verksins. Angjelin hefði farið fyrstur en þeir Murat og Sphetim hefðu farið saman til að skoða byggingaverkefnið sem rætt var. Angjelin hefði ekki nefnt neinar hótanir og hann hafi verið venjulegur í fasi. Hann kvað Angjelin og Cláudiu hafa komið á heimili þeirra Sphetim í kvöldmat mánudaginn 15. febrúar. Þar hafi verið rætt um morðið og Angjelin hefði sagt að lögreglan gæti talið hann hafa framið morðið og í framhaldinu hefði Sphetim spurt hvers vegna hann hefði komið heim til hans og vísað Angjelin á dyr.

    Vitnið N kvaðst hafa kynnst A fyrir fimm árum við komu sína til landsins og þeir hafi verið nánir vinir og fjölskylduvinir. Hann kvaðst þekkja Angjelin og hafa unnið fyrir hann. Hann kvaðst ekki þekkja Sphetim mikið og ekki vera náinn honum. Hann kvað Murat náinn vin sinn líkt og A hefði verið. Hann kvaðst ekkert þekkja Cláudiu. Hann kvaðst ekki hafa vitað um rifrildi milli Angjelins og A og ekki talið það alvarlegt eða að það gæti endað svona, eins og vitnið bar. Hann kvað F, vin Angjelins, einnig hafa átt hlut að máli vegna ósættisins en vitnið kvað rifrildi hafa verið vegna þess að Angjelin hefði notað nafn A og talað illa um hann. Ítrekað spurður kvað hann A ekki hafa átt í neinum vandamálum gagnvart F en Angjelin hafi hins vegar sagt A að hann ætlaði að ganga í skrokk á honum. Hann lýsti því að Murat hefði sagt nokkrum dögum fyrir morðið að eitthvað stórt væri að fara að gerast en þetta hefði Murat sagt O, sameiginlegum vini þeirra. Spurður um það hvers vegna hann nefndi þetta ekki við skýrslutöku hjá lögreglu kvað hann skýringuna þá að hann hefði frétt þetta síðar og hann hefði þetta ekki eftir Murat. Hann kvað A hafa komið heim til vitnisins fyrir vinnu laugardagskvöldið 13. febrúar og allt virst í lagi. Næst hefði hann heyrt af málinu er B, kona A, hringdi og sagði honum frá atburðinum. Vitnið mundi eftir skjáskoti sem A sýndi honum vegna samskipta hans við Angjelin. Hann kvaðst hafa fengið skilaboðin 9. janúar en samskiptin milli Angjelins og A hefðu verið sama dag. Spurður um það hvort A hefði skýrt hvað væri í gangi hefði A sagt að hann ætlaði ekki að hafa frekari samskipti við Angjelin eftir þetta. Í skilaboðunum hafi A hótað að rústa F en tilefnið hefði verið skilaboð frá Angjelin áður.Vitnið var spurt hvort það vissi til þess að A, G, I og HH hefðu reynt að kúga fé út úr F. Kvaðst hann ekki vita það en kvað A aldrei myndu hafa gert það.

    Vitnið G kvað A hafa verið besta vin sinn og þeir átt saman fyrirtæki. Hann kvaðst þekkja Angjelin í gegnum A. Spurður um deilur milli A og Angjelins kvað hann orðfæri Albana í samskiptum, sem hann var spurður um, hafa verið venjulegt. Samskiptin virki eins og hótanir en ekki liggi raunverulegar hótanir að baki. Spurður um deilur milli A og Angjelins kvað hann þær ekki hafa átt sér stað og aldrei verið til staðar. Vitnið lýsti kynnum af F, en hann komi iðulega sem gestur á staðina þar sem vitnið starfar. Spurður hvort hann vissi um það hvort reynt hefði verið að kúga fé af F vegna orðróms um að hann væri upplýsingagjafi lögreglu, kvað vitnið það ekki rétt. Hann var spurður hvort hann vissi af símtali milli A og Angjelins á fimmtudagskvöldinu. Lýsti hann þá símtali H og A á þessum tíma, en A hefði ekki viljað tala við Angjelin. Símtalið hefði átt sér stað er vitnið var akandi og A sat við hlið hans og I, H og HH hafi verið aftur í bílnum. H hefði hringt í Angjelin en tilefnið hefði verið að reyna að komast að því hvers vegna verið væri að hóta F. Tilefnið var orðrómum um að F og einhverjir ætluðu að ráðast á A og Angjelin hefði átt þátt í því. Þeir hefðu talað saman á albönsku svo þeir I hefðu ekki skilið það sem fram fór. Að því kom að H ætlaði að rétta A símann til að tala við Angjelin en A hefði sagt að hann vildi ekki tala við hann og lauk símtalinu þar með. Tveimur eða þremur dögum síðar hefði hann komist að innihaldi símtalsins en þar hefði Angjelin sagt að hann ætlaði að drepa A og setja margar kúlur í hann. Vitnið kvaðst hafa hringt í F eftir símtalið sem lýst var, þar sem vitnið kvaðst hafa áttað sig á því að eitthvað væri ekki í lagi þar sem A vildi ekki tala við Angjelin og hann því hringt í F til að heyra hans hlið og spurt hvers vegna hann og hans menn væru að reyna að ráðast á A. F hefði sagt að hann vildi engin vandræði en „hans menn væru ekki að ráðast á A“ en hann vissi hverjir þeir væru. Hann hefði lagt til að hittast og leysa málið og þá ákveðið að hittast á mánudeginum í því skyni að leysa málið, en þeir sem ætluðu að hittast, auk þeirra F, voru A, I, en örugglega ekki Angjelin. Vitnið kvaðst hafa verið staddur á bílasölu föstudaginn 12. febrúar, þar sem HH sagðist hafa mikilvægar upplýsingar. Fram komu upplýsingar um að menn ætluðu að ganga í skrokk á A. Hann hefði þá hringt í A sem kom á bílasöluna ásamt N og greindi hann þá A frá því sem hann vissi um þetta, en A hefði ekki tekið þetta alvarlega og sagt að hann ætti ekki í deilum við þá aðila sem um ræddi. Vitnið kvaðst hafa hitt A nokkrum sinnum laugardaginn 13. febrúar er hann var við störf á skemmtistaðnum […], síðast um tíuleytið þetta kvöld er vitnið fór heim til sín. Farið var yfir messenger samskipti vitnisins, A, I og HH, þar sem rætt var ferðalag F norður í land og fleira. Skýrði vitnið sum samskiptin eftir því sem hann mundi. Samskiptin liggja fyrir meðal gagna málsins.

    Vitnið HH lýsti kynnum sínum af A en þeir hefðu unnið saman og umgengist mikið. Hann kvaðst kannast við Angjelin. Hann kvað Murat náinn vin sinn. Spurður um deilur milli A og Angjelins kvaðst vitnið vita það eitt að Angjelin hefði sagt eitthvað um A en hann kvaðst ekki geta lýst þessu frekar. Vitnið lýsti símtali þar sem H hringdi í Angjelin en þá hefðu þeir H, A, I og G verið saman á ferð í bíl. H hefði hringt í því skyni að reyna að ná fram sáttum og hafi Angjelin viljað tala við A sem vildi ekki tala „við þennan hálfvita“ eins og vitnið bar. Angjelin hefði reiðst og sagst ætla að fylla maga A af byssukúlum. H sagði A ekki frá þessu vegna þess að hann vildi ekki að A reiddist en hann hefði frétt af ummælunum eftir morðið. Hann lýsti því er ákveðið var að A og Angjelin myndu hittast á mánudeginum til að sættast. Hann kvað I hafa hringt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags og sagt frá því að einhver hefði ráðist á A. Hann kvað A aldrei hafa sagst ætla að drepa Angjelin þótt hann hefði sagt að hann gæti lamið hann. Þá hafi A sagt að hann vildi engin vandamál, hann hefði keypt hús og þau hjón ættu von á öðru barni. HH var spurður hvort hann og vinahópur hans, og voru þá nefndir auk vitnisins þeir A, G og I, hefðu reynt að kúga fé út úr F og neitaði vitnið því.

    Vitnið H kvað A hafa verið mjög góðan vin sinn og þeir umgengist mikið. Hann kvaðst þekkja Angjelin sem væri kunningi hans. Hann vissi um deilur milli A og Angjelins en hann vissi ekki ástæðuna. A hefði sagt vitninu að F hefði flutt til landsins fólk í því skyni að ráðast á sig. Hann hefði spurt A hvers vegna hann gerði það og hefði A þá sagt að Angjelin hefði beðið um þetta. Þá lýsti hann símtali við Angjelin er þeir voru staddir í bíl þar sem hann spurði um ósættið og hvort menn hefðu verið fluttir til landsins í því skyni að ráðast á A. Angjelin hefði neitað þessu og beðið um að fá að tala við A, sem vildi ekki tala við hann og sagt að hann vildi ekki tala við „þennan þroskahefta hálfvita“. Angjelin hefði þá svarað að hann myndi fylla maga þeirra sem ætluðu að gera honum eitthvað með byssukúlum. Hann kvað Angjelin hafa hringt í vitnið eftir þetta og sagt að það væri ekki rétt sem þeir hefðu heyrt og ákveðið að þeir myndu hittast á mánudeginum og sættast. Hann hefði hringt í A og sagt að til stæði að þeir Angjelin hittust á mánudeginum til að sættast. Hann kvað Murat hafa hringt síðar og spurt sig um hvað málið snerist og lagt til að menn sættust. Hann kvað Murat einnig vin þeirra A og Angjelins. Hann kvaðst hafa hringt í Murat eftir árásina og fannst honum Murat í sjokki við fréttirnar af A, en þeir Murat hefðu farið á sjúkrahúsið eftir þetta.

    Vitnið I kvað A hafa sagt sér á fimmtudeginum 11. september að F væri kominn með lið á sig eða á okkur, eins og vitnið bar. Hann var spurði hvers vegna A hefði sagt að Angjelin hefði logið upp á A og búið til sögu við F um að A og félagar hans, þ. á m. vitnið, væru að gera honum eitthvað og að A væri reiður F vegna einhvers. Hann hafi sagt A að hann myndi ræða við F og ljúka málinu og að þetta væri ekkert. Hann hefði hringt í F á föstudeginum 12. febrúar og sagt að það sem hann hefði heyrt um að einhver væri á móti honum væri ekki rétt. F hafði sagst skilja þetta og þakkað honum fyrir að tala við sig. F hefði sagt að hann kæmi til Reykjavíkur á mánudeginum og lagt til að allir hittust í kaffi til að klára þetta, eins og vitnið bar, en Angjelin hefði ekki verið með í þessu. Ekkert var rætt hverjir kæmu á fundinn en F hefði ætlað að hringja í vitnið er hann kæmi til Reykjavíkur. Er vitnið nefnir „þá“ kom fram að hann ætti við auk sín þá G, A og HH. Spurður hvort A eða einhver í þeirra hópi hefði sett sekt á F kvað vitnið svo ekki vera og nefndi að hann hefði hringt í F og komið á fundi á mánudeginum, eins og rakið var. Vitnið vissi um símtal H og Angjelins á fimmtudagskvöldinu en þeir hefðu talað saman á albönsku og vitnið ekkert skilið af því sem fram fór. Hann kvaðst ekki vita hvort A eða Angjelin hótuðu hvor öðrum í símtalinu. Vitnið kvað þá A hafa unnið saman á laugardagskvöldinu 13. febrúar, frá klukkan 19-23. Hann hefði skutlað A eftir það til að sækja bíl sinn en svo ekki séð hann eftir það. Borið var undir vitnið messenger samtal hans, HH, A og G og mundi hann þetta illa en kvað allskyns grín hafa átt sér stað og engin alvara hafi verið í þessu spjalli þeirra sem farið var yfir og vitnið lýsti frekar. Samskiptin liggja frammi. Vitnið kvaðst ekki vita hvar Angjelin bjó og hann hefði ekki farið að heimili hans í Brautarholti á laugardagskvöldinu og kvaðst vitnið hægt að staðfesta það á upptökum eftirlitsmyndavéla frá vinnustað hans. Hann kvað B, konu A, hafa hringt laust eftir miðnætti og sagt að A hefði verið stunginn fyrir utan heimili sitt og beðið vitnið um að koma og hann sagst koma strax. Er hann kom á staðinn hafi lögreglan verið komin og búið að girða vettvanginn af. Hann kvaðst aldrei hafa séð byssu í fórum A. Hann lýsti ferð sinni og fleiri á spítalann þar sem A var. Hann kvaðst þekkja Murat sem hefði unnið fyrir A. Spurður hvort einhver leiðindi hefðu verið á milli Murats og A kvað vitnið A hafa verið þreyttan á Murat á tímabili en það svo lagast á víxl. Vitnið KK kvaðst lítið hafa heyrt af ágreiningi milli A, […], og Angjelins fyrir morðið. Spurður hvernig A var í fasi daginn fyrir andlátið kvað hann A hafa verið ánægðan og verið að vinna í húsinu. Hann hitti A ekki á laugardeginum og hann viti ekki meira um málið.

    Vitnið F kvað Angjelin náinn vin sinn og hann hefði þekkt A lítillega og engar deilur hefðu verið á milli þeirra A. Spurður um deilur milli annarra hópa en A kvaðst vitnið ekki vita annað en að eftir símtal sem hann fékk frá G þar sem vitnið kvaðst hafa lagt til að þeir hittust á mánudeginum og töluðu saman, hafi verið ákveðið að gera það. G hefði viljað að vitnið myndi „henda Angjelin í burtu“ og losa sig við hann. Hann vissi ekki ástæðuna en nefndi að komið hefði upp ágreiningur milli G og vina hans sem voru t.d. A og I. Hann kvaðst hafa hringt í I á föstudeginum og „það var allt í góðu“. Hann kvaðst hafa verið í vélsleðaferð norður í landi ásamt konu og börnum og fleirum. Hann lýsti dvöl þeirra þar og fleiru. Hann kvað samferðamenn sína hafa farið heim á laugardeginum ásamt Angjelin og hann viti ekki hvort hann hefði gert ráðstafanir um áframhaldandi gistingu fyrir norðan. Angjelin og Cláudia hefðu komið í kaffi hjá LL, þar sem hann gisti ásamt fjölskyldu sinni, á sunnudeginum. Vitnið kvaðst hafa heyrt, en ekki muna hjá hverjum, að Angjelin hefði sagst hafa fengið hótanir frá A og hann teldi að þær hefðu beinst að barni hans. Hann kvað G hafa hringt um nóttina og sagt frá árásinni á A, sem hefði verið stunginn. Hann kvað hringingarnar og það sem rætt var hér að framan ekki hafa tengst því er upplýsingar birtust í fjölmiðlum um að vitnið væri upplýsingagjafi lögreglu. Spurður um það hvort hann hefði heyrt sögusagnir um að I, G og A væru að setja sekt á vitnið vegna […] svokallaða, kvaðst hann hafa heyrt af því og látið athuga það og það hefði ekki átt við rök að styðjast.

    Vitnið MM kvaðst hafa verið ásamt manni sínum F og fleirum í snjósleðaferð í febrúar sl. Angjelin var þar einnig og staðfesti hún að hann hefði farið í bæinn á laugardeginum og komið til baka norður á sunnudagsmorgni, ásamt Cláudiu, en hún tók fram að þetta væri óljóst í minni sínu.

    Vitnið NN kvað þá F vini og lýsti komu manna frá Spáni til að vinna hér á landi. Hann kvaðst hafa frétt af morðinu í fjölmiðlum á sunnudeginum og lýsti hann samskipum sínum við menn sem komu með Angjelin á bíl að norðan skömmu áður. Hann lýsti því er hann sótti F og fjölskyldu er þau komu að norðan, en hann kvaðst ekki hafa heyrt um neinn ágreining milli Angjelins og A.

    Vitnið LL kvað F hafa komið í vélsleðaferð til sín síðastliðin tvö ár, en vitnið rekur slíka þjónustu. Þetta hefði verið hefðbundin ferð, löngu ákveðin og skipulögð. Þegar kom góð veðurspá og snjókoma hefði verið ákveðið að F og fjölskylda kæmu auk þriggja útlendinga, þeirra OO, PP og RR, og Angjelin hefði einnig komið. Hann lýsti sleðaferðinni en útlendingarnir hefðu gist í sumarhúsbústað í Varmahlíð. Á laugardeginum hefðu þeir F verið á sleða en honum skildist að útlendingarnir fjórir væru þá að fara til Reykjavíkur eftir hádegi. Hann kvað F hafa vakið sig aðfaranótt sunnudags og sagt að einhver hefði verið stunginn.

    Vitnið SS kvaðst hafa þekkt A í gegnum sameiginlega vini og þeir hefðu umgengist nokkuð og þekkst ágætlega. Hann kvað lítil tengsl við Angjelin en kannist lítillega við hann og lýsti hann því. Spurður um vitneskju um deilu milli A og Angjelins og/eða F, lýsti hann því, ef deilu skyldi kalla, og kvað það sem um ræðir byggt á bulli sem Angjelin hefði búið til upp á eigin spýtur og því hafi í raun ekki verið hægt að kalla þetta deilur. Spurður hvort A hefði tekið þessu alvarlega kvaðst hann halda að A hefði aldrei tekið Angjelin alvarlega en hann hafi hins vegar tekið því alvarlega að fá stöðugt lygasögur um sig. Hann kvaðst hafa hitt F, að hans beiðni, á fundi í Garðabæ nokkrum dögum fyrir morðið og þar hafi verið auk þeirra F þrír menn sem vitnið vissi ekki deili á. Tilefni fundarins hafi verið tilbúningur frá Angjelin og engin vandamál væru á milli hans og A heldur mætti rekja þær sögur til lygasjúks vinar hans. Farið var yfir ákveðin skilaboð frá 10. febrúar og kvað hann skilaboðin hafa sýnt að greinilega hafi allt verið vitlaust í bænum vegna sögu sem kom frá Angjelin. Hann hefði reynt að róa A en hann hefði verið þannig gerður að vera fljótur upp en jafnframt fljótur að jafna sig og skýrði vitnið þetta. Hann hefði verið búinn að jafna sig á laugardeginum er hann ræddi við A, að hann minnti. Til hafi staðið að hittast á mánudeginum. Spurður um það hvort hann kannaðist við að hafa, ásamt A og fleirum, sett skuld á F út af „[…]“ kvað hann svo ekki vera og þetta væri algjör þvæla sem enginn kannist við.

    Vitnið L kvað þá A hafa verið vini og hann kvaðst þekkja Angjelin. Hann kvaðst vita hver Murat væri. Spurður um það hvort hann vissi um ágreining milli aðila áður en morðið átti sér stað kvaðst hann ekki hafa vitað af neinu slíku. Hann kvað A hafa komið heim til vitnisins að […], kl. 22:30 á laugardagskvöldinu 13. febrúar og dvalið þar í um 30-40 mínútur og þeir spjallað saman og A hefði farið heim eftir það en hann hefði ekki merkt neitt óvenjulegt í fari hans. Hann kvað A hafa komið heim til sín mjög oft, nánast á hverju kvöldi. Spurður um hvítan vinnubíl sem A átti kvað hann A eiganda bílsins en vitnið kvaðst hafa haft hann til umráða á þessum tíma. Hann kvaðst hafa hitt Murat tvisvar sinnum þetta laugardagskvöld, að hann taldi, en tilefnið hafi verið að afhenda Murat fíkniefni.

    Vitnið PP kvað Angjelin kunningja sinn en hann hefði ekki þekkt A. Hann kvaðst hafa farið norður í land með F í snjósleðaferð og lýsti hann því. Hann vissi ekki hvort lengd ferðarinnar hafi verið ákveðin fyrir fram. Spurður um deilur milli Angjelins og A eða einhverra annarra, er hann var í ferðinni, kvaðst hann ekkert hafa heyrt af því og vissi ekki um neinar hótanir. Hann kvaðst hafa farið heim á laugardeginum eða sunnudeginum en hann kvað fjóra hafa verið samferða og auk vitnisins hafi þeir OO, RR og Angjelin verið samferða. Hann mundi ekki hvort rætt var að Angjelin ætlaði aftur norður. Eftir komu í bæinn hefðu þeir RR farið á bar í Garðabæ og eftir það farið austur í Grímsnes og hann frétt af morðinu daginn eftir.

    Vitnið RR kvaðst sjaldan hafa hitt Angjelin en hann hefði verið í vélsleðaferð norður í landi í febrúar sl., með F og fleirum. Hann kvað Angjelin hafa hagað sér einkennilega í ferðinni og farið aftur suður um kvöldið en komið svo aftur norður og vitnið hefði farið með honum í bæinn. Aðspurður hvort hann vissi af einhverju máli í gangi eða ágreiningi á þessum tíma kvaðst hann ekkert vita um slíkt. Hann kvaðst hafa frétt af árásinni er hann var staddur á heimili NN en þangað hefði Angjelin komið, en vitnið kvaðst hafa falið sig til að forðast að hitta Angjelin þar sem hann hefði haft það á tilfinningunni að Angjelin hefði haft með málið að gera.

    Vitnið OO kom hingað til lands í ársbyrjun til að vinna. Hann kvaðst hafa farið í snjósleðaferð norður í land með F og fleirum. Hann hefði farið til baka á laugardegi, þótt hann myndi það ekki fyrir víst, en auk sín hefðu PP, RR og Angjelin farið saman til baka úr ferðinni en vitnið var ökumaður. Hann mundi ekki hvort komið hefði fram hjá Angjelin að hann ætlaði aftur norður í land. Spurður um það hvort hann hefði vitað af ósætti milli Angjelins og F og A kvaðst vitnið ekki vitað það.

    Vitnið O kvaðst hafa þekkt A og þekkja ákærðu, utan ákærðu Cláudiu og lýsti hann því. Hann kvaðst ekki hafa heyrt af ágreiningi eða átökum í gangi milli aðila eða hópa og enginn hefði sagt sér af slíku. Hann kvað Sphetim hafa hringt í sig á sunnudegi og spurt hvort hann mætti koma með dóttur sína til að skoða kanínur. Hann kvaðst hafa sagt Sphetim frá morðinu á A en Sphetim hefði verið hissa.

    Vitnið TT kvaðst hafa kannast vel við A en ekki þekkja ákærðu. Hann kvaðst þekkja F. Spurður um það hvort hann vissi um deilur milli F og A kvað vitnið HH, starfsmann sinn, hafa heyrt talað um að mögulega væru einhverjar deilur en afskaplega lítið og hann hafi ekki skilið um hvað málið snerist. Hann kvaðst ekki hafa heyrt sögusagnir um að A eða menn í kringum hann ætluðu sér að gera F eða fjölskyldu hans mein.

    Vitnið UU var samstarfsmaður Cláudiu og lýsti hún breytingum í fari ákærðu eftir að mál þetta kom upp.

    Meðal gagna málsins er réttarmeinafræðileg rannsókn. VV réttarlæknir vann rannsóknina sem hann hann skýrði og staðfesti fyrir dómi. Hann lýsti staðsetningu skotsára, stefnu þeirra og fleiru út frá skjali sem sýnir skotáverkana. Spurður um tímaröð skotanna kvað hann skot merkt A og B, sem bæði lentu á höfðinu, líklega hafa átt sér stað eftir að A hafði misst allt líf og skýrði VV þetta álit sitt. Hann taldi áverka I, C og E hafa komið á undan áverkum á höfuðið og hann skýrði ástæður þessa. Spurður um banvæn skotsár kvað hann ljóst út frá tímaröðinni að skotsár C og I væru hvort um sig banvæn. Þá kvað hann skotsár A og B einnig banvæn og hafa jafn banvænt eðli og skotsár C og I. Hann skýrði hvernig hreyfingar A kunni að hafa ráðið því hvar skotin lentu í honum. Að þessu athuguðu og sem svar við spurningunni um innbyrðis afstöðu mannanna lýsti VV því að mörg eða flest skotanna komi í líkama A frá vinstri hlið. VV kvað skotsár H með inngangsstað í bakinu og skotsár merkt I komi utarlega á baki, nálægt síðunni. Spurður um það hvort hægt sé að ráða af skotsárum hvert skotfærið var kvað hann ljóst að ekki væri um að ræða svokölluð nærskot sem þýði að skotfærið hafi verið meira en metri.

Niðurstaða

Ákærðu er gefið að sök að hafa í félagi staðið saman að því að svipta A lífi eins og lýst er í ákæru. Ákærðu Cláudia, Murat og Sphetim hafa öll neitað sök frá upphafi. Ákærði Angjelin játar sök en kvaðst hafa verið einn að verki og meðákærðu hefðu ekki átt hlut að máli.

Ekkert ákærðu hefur borið um að þau hafi rætt saman um manndrápið fyrir fram og þau hafi þannig öll, eða hvert og eitt þeirra, vitað eða mátt vita að ákærði Angjelin myndi svipta A lífi er hann fór til fundar við hann nærri miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar sl., að Rauðagerði[…] í Reykjavík.

Enginn vitnisburður er um að þau þrjú ákærðu sem neita sök hafi vitað eða mátt vita að ákærði Angjelin myndi svipta A líf er hann fór til fundar við hann.

Nú verður vikið að ætluðum þætti hvers og eins hinna ákærðu samkvæmt einstökum töluliðum ákæru.

Ákærði Murat Selivrada Í 1. tölulið ákærunnar er ákærða Murat gefinn að sök samverknaður með því að sýna meðákærðu Cláudiu Sofiu tvær bifreiðar sem tilheyrðu A og lagt var í porti við […] í Reykjavík og að hafa gefið henni fyrirmæli um að fylgjast með þeim, jafnframt að senda nánar tiltekin skilaboð í gegnum samskiptaforritið Messenger til meðákærða Sphetims þegar hreyfing yrði á annarri hvorri bifreiðinni.

Ákærði Murat hefur neitað þessu. Þótt þess sé ekki getið í ákærunni hvaða bifreiðar er um að ræða má ráða af gögnum málsins og framburði ákærðu að bifreiðarnar sem um ræðir eru hvít Ford sendibifreið með númerinu […] og Volvo fólksbifreið með númerinu […]. Þessi annmarki á ákæru kemur ekki að sök eins og á stendur og vörn ákærða Murats er ekki áfátt af þessum sökum.

Meðákærðu Angjelin og Cláudia báru um það í lokaskýrslu sinni hjá lögreglu, er þau sættu gæsluvarðhaldi, að ákærði Murat hefði ekki gefið fyrirmælin um að fylgjast með bifreiðunum heldur hafi meðákærði Angjelin gert það og að hann hafi einnig gefið meðákærðu Cláudiu fyrirmæli um að senda nánar tiltekin skilaboð. Ráða má af myndbandsupptökum og framburðum ákærðu að Volvo bifreiðin var ekki í portinu við Rauðarárstíg […] á sama tíma og ákærðu Murat og Cláudia voru þar og því útilokað að ákærði Murat hafi sýnt meðákærðu Cláudiu þá bifreið í portinu við Rauðarárstíg […] og er ákærði Murat sýknaður af þeim hluta þessa ákæruliðar.

Hvað hvíta Ford sendibifreið varðar liggur fyrir að hún stóð óhreyfð í portinu fyrir utan Rauðarárstíg […] allt laugardagskvöldið 13. febrúar sl. og var því óviðkomandi atburðarásinni sem leiddi til þess að meðákærði Angjelin svipti A lífi, svo sem hann hefur játað að hafa gert.

Meðákærðu Angjelin og Cláudia báru bæði í lokaskýrslum sínum hjá lögreglu, er bæði sættu gæsluvarðhaldi, að meðákærði Angjelin hefði gefið fyrirmælin um að fylgjast með bifreiðunum og að senda nánar tiltekin skilaboð, eins og lýst er í þessum ákærulið. Þau báru bæði efnislega á sama veg fyrir dómi um þetta og er framburður þeirra beggja fyrir dómi trúverðugur og fær stoð í texta skilaboðanna sem er eins eða líkur texta sem þau sendu iðulega sín á milli er þau höfðu samskipti á þennan hátt. Samkvæmt þessu og gegn neitun ákærða Murats er ósannað að hann hafi gefið meðákærðu Cláudiu fyrirmælin sem lýst er í ákærunni og er hann sýknaður af þeirri háttsemi.

Enginn vitnisburður liggur fyrir um að ákærði Murat hafi staðið að því í félagi við meðákærðu að svipta A lífi eins og ákært er fyrir. Það er mat dómsins að virtum öllum gögnum málsins að þau séu ekki til þess fallin að af þeim sé fært, gegn neitun ákærða Murats og öðru því sem rakið hefur verið, að draga þá ályktun að ákærði Murat hafi vitað eða mátt vita af fyrirhugaðri ferð meðákærða Angjelin í Rauðagerði þetta kvöld og að meðákærði Angjelin myndi þá svipta A lífi.

Samkvæmt því sem rakið hefur verið er ákærði Murat sýknaður af því að hafa viðhaft þá háttsemi sem í 1. lið ákæru greinir og er í ákæru talinn hans þáttur í samverknaðinum sem þar er talinn hafa leitt til þess að A var sviptur lífi. Samkvæmt þessu ber að sýkna ákærða Murat.

Ákærða Cláudia Sofia Coelho Carvalho Samkvæmt 2. tölulið ákæru er ákærðu Cláudiu gefið að sök að hafa, að beiðni meðákærða Murats, fylgst með tveimur bifreiðum sem tilheyrðu A og lagt var í portinu við Rauðarárstíg[…] og að hafa sent fyrir fram ákveðin skilaboð til meðákærða Sphetims þegar A ók frá Rauðarárstíg á annarri bifreiðinni.

Því var lýst í niðurstöðu 1. töluliðar ákæru að ósannað væri að meðákærði Murat hefði beðið ákærðu Cláudiu um að fylgjast með tveimur bifreiðum sem tilheyrðu A og lagt var í portinu sem um ræðir í ákæru. Vísað er til þess sem áður var rakið um þetta. Ákærða Cláudia bar fyrir dómi að meðákærði Angjelin hefði beðið hana um að fylgjast með bílunum, en ekki meðákærði Murat. Hún bar á sama veg um þetta í lokaskýrslu sinni hjá lögreglu. Meðákærði Angjelin bar efnislega á sama veg um þetta fyrir dómi og áður hjá lögreglu, eins og rakið var. Þá er vísað til þess sem rakið var um neitun meðákærða Murats þess efnis að hann hefði hvorki sýnt ákærðu Cláudiu bifreiðarnar né gefið henni fyrirmæli eins og lýst er í ákærunni. Af þessu og öðrum gögnum málsins virtum og gegn neitun ákærðu Cláudiu er ósannað að hún hafi fylgst, að beiðni meðákærða Murats, með tveimur bifreiðum sem tilheyrðu A og lagt var í porti við Rauðarárstíg […] og er hún sýknuð af þeim hluta þessa ákæruliðar.

Þá er ákærðu Cláudiu gefið að sök að hafa sent fyrir fram ákveðin skilaboð gegnum samskiptaforritið Messenger til meðákærða Sphetims þegar A ók frá Rauðarárstíg á annarri bifreiðinni. Samkvæmt orðanna hljóðan verður þessi ákærulýsing ekki skilin svo að ákærðu Cláudiu sé gefið að sök að hafa sent skilaboðin að fyrirmælum meðákærða Murats eða annarra. Engu breytir þótt meðákærða Murat sé gefið að sök í fyrsta tölulið ákærunnar að hafa gefið ákærðu Cláudiu fyrirmæli um að senda nánar tiltekin skilaboð eins og lýst er. Ákærðu er í þessum ákærulið gefið að sök að hafa sent fyrir fram ákveðin skilaboð eins og lýst er í ákærunni en þar er því ekki lýst hvort hún tók við fyrirmælum frá einhverjum og þá hverjum um þetta. Ákærða Cláudia hefur borið fyrir dómi að hafa sent meðákærða Angjelin þessi skilaboð í síma meðákærða Sphetims, sem meðákærði Angjelin hafði til umráða, og hún hafi því ekki sent meðákærða Sphetim skilaboðin eins og lýst er í ákærunni. Framburður ákærðu um þetta fær stoð í framburði meðákærðu Angjelins og Sphetims fyrir dómi eins og rakið var að framan. Ákærða verður ekki dæmd fyrir aðra háttsemi en þá sem í ákæru greinir, sbr. 1. mgr. 180. gr. sakamálalaga og verður því ekki tekin afstaða til þess hvort aðrir fengu skilaboðin frá ákærðu Cláudiu en meðákærði Sphetim. Að þessu virtu og gegn neitun ákærðu er ósannað að hún hafi framið háttsemina sem í þessum málslið þessa ákæruliðar greinir og ber að sýkna hana af þeim hluta ákæruliðarins.

Engin vitni hafa borið um að ákærða Cláudia hafi framið þá háttsemi sem henni er gefin að sök. Það er mat dómsins að gögn málsins verði ekki virt þannig að hafna beri trúverðugum framburði ákærðu Cláudiu, og fær það stoð í framburði meðákærðu eins og rakið var, auk þess sem hluti annarra gagna málsins og upptökur úr eftirlitsmyndavélum styðja niðurstöðuna í þessum ákærulið á líkan hátt og í 1. tölulið ákærunnar sem lýst var að framan. Ekkert bendir til þess, gegn neitun ákærðu Cláudiu, að hún hafi vitað eða mátt vita að meðákærði Angjelin myndi svipta A lífi er hann fór til fundar við hann.

Ákærðu Cláudiu er gefið að sök að hafa staðið að manndrápinu í félagi við meðákærðu en í engu er lýst í ákærunni hvernig ætluð háttsemi hennar tengist því að A var sviptur lífi. Eins og á stendur er ekki þörf á frekari reifun um þetta þar sem ákærða Cláudia er sýknuð af háttseminni samkvæmt þessum ákærulið.

Ákærði Sphetim Qerimi Ákærða Sphetim er í 3. tölulið ákærunnar gefið að sök að hafa ekið ásamt meðákærða Angjelin að Rauðagerði í Reykjavík rétt fyrir miðnætti og segir í ákærunni að þeir hafi stöðvað bifreiðina nálægt horni Rauðagerðis og Borgargerðis.

Sannað er með framburði ákærða Sphetims, sem fær stoð í framburði meðákærða Angjelins og að hluta með stoð í öðrum gögnum málsins, að meðákærði Angjelin ók bifreiðinni í Rauðagerði þar sem hann stöðvaði bifreiðina og fór út og tók ákærði Sphetim þá við stjórn bifreiðarinnar og ók henni áfram nokkrar húsalengdir þar sem hann sneri bifreiðinni við og beið þar til meðákærði Angjelin gaf honum merki um að sækja sig. Ósannað er að ákærði Sphetim hafi ekið bifreiðinni í humátt á eftir bifreið A er hann kom á bifreið sinni í Rauðagerði og ók að heimili sínu. Er ákærði sýknaður af þessum hluta ákærunnar.

Eftir að hafa tekið meðákærða Angjelin upp í bifreiðina ók ákærði Sphetim austur Rauðagerði og út úr bænum uns hann stöðvaði í Kollafirði þar sem meðákærði Angjelin losaði sig við skammbyssu með því að henda henni í sjóinn og tók Angjelin síðan við stjórn bifreiðarinnar og ók í Varmahlíð í Skagafirði. Þessi niðurstaða byggist á framburði þessara tveggja ákærðu. Ákærði Sphetim bar að hann hefði talið ferð meðákærða Angjelins í Rauðagerði tengjast afhendingu fíkniefna og hann hefði ekki vitað að meðákærði Angjelin fór til fundar við A. Meðákærði Angjelin bar að hann hefði viljað hitta A einn og ekki viljað neinn með sér. Enginn vitnisburður liggur fyrir um að ákærði Sphetim hafi vitað fyrir fram hvert erindi meðákærða Angjelins var í Rauðagerði en meðákærði Angjelin kvaðst hafa sagt ákærða Sphetim að hann væri að fara til fundar við Angjelin er hann yfirgaf bifreiðina í Rauðagerði. Ákærði Sphetim og meðákærði Angjelin eru tveir til frásagnar um þetta og er því ósannað, gegn neitun ákærða Sphetims, að hann hafi vitað erindi meðákærða Angjelins er hann fór út úr bílnum í Rauðagerði. Enginn vitnisburður eða önnur gögn liggja fyrir um það að ákærði Sphetim hafi vitað eða mátt vita hvert erindi meðákærða Angjelins var í Rauðagerði, auk þess sem engin gögn eða vitnisburður liggur fyrir um það að ákærði Sphetim hafi vitað eða mátt vita er meðákærði Angjelin kom í bílinn og ekið var út úr bænum, að hann hefði svipt A lífi með því að skjóta hann en ákærði Sphetim kvaðst ekki hafa séð byssu í fórum meðákærða Angjelins þetta kvöld og hann hefði ekki séð er hann losaði sig við byssuna í Kollafirði með því að kasta henni í sjóinn, eins og lýst er í ákærunni og meðákærði hefur borið um. Viðbrögð ákærða Sphetims við því er meðákærði Angjelin greindi honum frá því að grunur hefði fallið á hann varðandi morðið og er ákærði Sphetim vísaði honum út af heimili sínu, styrkja framburð ákærða Sphetims um að hann hafi ekki vitað af manndrápinu fyrr en síðar. Þetta ásamt fleiru styður framburð ákærða Sphetims um grandaleysi hans um tilgang ferðar meðákærða Angjelins í Rauðagerði og manndrápið.

Að mati dómsins er framburður ákærði Sphetims trúverðugur og verður hann lagður til grundvallar niðurstöðunni, enda fær hann stoð í framburði meðákærða Angjelins um flest og enginn vitnisburður liggur fyrir sem bendir til þess að framburður ákærða Sphetims sé ekki réttur. Þá verða að mati dómsins ekki dregnar neinar ályktanir af öðrum gögnum málsins sem væru til þess fallin að hafna framburði ákærða Sphetims og telja hann sekan um manndráp í félagi við meðákærðu.

Sannað er með játningu ákærða Sphetims, sem studd er öðrum gögnum málsins, að hann fór með meðákærða Angjelin í Rauðagerði þetta kvöld en meðákærði Angjelin ók bifreiðinni eins og rakið var. Ákærði tók við akstri bifreiðarinnar er meðákærði Angjelin fór þar út og tók meðákærða síðan upp í bílinn og ók út úr bænum uns hann stöðvaði í Kollafirði, eins og rakið var að framan. Þetta er sannað með framburði ákærða Sphetims og meðákærða Angjelins. Hins vegar, og með vísan til ofanritaðs og annarra gagna málsins, er ósannað, gegn neitun ákærða Sphetims, að hann hafi vitað fyrir fram af því hvert erindi meðákærða Angjelins væri í Rauðagerði og ósannað er, gegn neitun ákærða Sphetims, að hann hafi vitað eða mátt vita að meðákærði Angjelin myndi svipta A lífi er hann fór til fundar við hann.

Að öllu ofanrituðu virtu hefur ekki verið sýnt fram á það af hálfu ákæruvaldsins hvernig sá hluti háttsemi ákærða Sphetims samkvæmt þessum ákærulið, og sem hann hefur viðurkennt, tengist manndrápinu þannig að unnt sé að sakfella ákærða Sphetim fyrir manndráp eins og ákært er fyrir. Ber samkvæmt öllu ofanrituðu að sýkna ákærða Sphetim.

Ákærði Angjelin Sterkaj Sannað er með skýlausri játningu ákærða Angjelins og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemina sem í 4. tölulið ákæru greinir.

Sannað er með réttarlæknisfræðilegum gögnum að A lést af skotáverkum sem hann hlaut á heila og brjósti.

Eftir manndrápið fór ákærði upp í bifreiðina hjá meðákærða Sphetim sem ók bifreiðinni út úr bænum uns hann stöðvaði í Kollafirði þar sem ákærði losaði sig við byssuna með því að henda henni í sjóinn. Ákærði tók síðan við akstrinum og ók í Varmahlíð í Skagafirði.

Brot ákærða Angjelin varðar við 211. gr. almennra hegningarlaga eins og í ákæru greinir. Ákærði Angjelin ber fyrir sig neyðarvörn og að hann og sonur hans hefðu orðið fyrir alvarlegum hótunum af hálfu A sem leiða ætti til refsilækkunar eða refsibrottfalls.

Litlar upplýsingar eru um deilur milli ákærða Angjelins og A þótt gögn beri með sér að eitthvert ósætti kunni að hafa verið á milli þeirra. Framburður ákærða Angjelins um miklar deilur og hótanir í sinn garð og að sekt hafi verið lögð á F, eins og rakið var, og ákærði hafi blandast inn í það, er að mati dómsins ótrúverðugur og ekki á rökum reistur.

Ákærði fór til fundar við A vopnaður skammbyssu. Hann kvaðst hafa tekið byssuna upp og skrúfað hljóðdeyfi á hana er hann sá A koma fyrir haglabyssu í bílskúrnum, eins og rakið var. Engin gögn eru um þetta og enginn vitnisburður um að A hafi átt eða haft til umráða eða í geymslu haglabyssu á heimili sínu á þessum tíma. Að mati dómsins vaknaði ásetningur ákærða til að svipta A lífi í síðasta lagi er hann hóf að skjóta á hann, en ákærði skaut A níu sinnum í líkama og höfuð svo A lést af skotsárunum, eins og rakið hefur verið. Þótt lagður yrði til grundvallar framburður ákærða um að A hefði gert sig líklegan til að ráðast á ákærða er að mati dómsins langur vegur frá því að unnt sér að virða þá háttsemi ákærði að skjóta A þannig að um neyðarvörn hafi verið að ræða, sbr. 12. gr. almennra hegningarlaga, eins og ákærði hefur borið. Það er mat dómsins að ekkert sé fram komið í málinu sem leiði til annarrar niðurstöðu en að virða háttsemi ákærða Angjelins sem beinan ásetning um að svipta A lífi. Ákærði á sér engar málsbætur. Ákærði gekkst undir lögreglustjórasátt á árinu 2019 fyrir umferðarlagabrot. Hinn 17. febrúar 2021 hlaut ákærði sektardóm fyrir umferðarlaga-, vopnalaga- og fíkniefnalagabrot og ber nú að dæma hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða Angjelins er ákveðin fangelsi í 16 ár.

Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga skal draga frá refsivistinni gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt óslitið frá 17. febrúar 2021 til dagsins í dag að telja, með fullri dagatölu.

Með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga er dæmd upptæk skammbyssa af gerðinni Sig Sauer 1911-22.

Það leiðir af sýknu ákærðu Cláudiu Sofiu Coelho Carvalho, Murats Selivradi og Sphetims Qerimi að vísa ber einkaréttarkröfum á hendur þeim frá dómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. sakamálalaga.

Ákærði Angjelin er bótaskyldur gagnvart öllum sem hafa uppi miskabótakröfur og aðrar fjárkröfur á hendur honum.

Verður nú vikið að einstökum bótakröfum og afstöðu ákærða Angjelins til þeirra. Einkaréttarkrafa B.

Ákærði mótmælir ekki kröfu um greiðslu útfararkostnaðar. Hann viðurkennir bótaskyldu vegna miskabótakröfu en krefst lækkunar kröfunnar og þá krefst hann sýknu af kröfunni um bætur fyrir missi framfæranda en til vara lækkunar á þeirri kröfu.

Ákærði Angjelin er bótaskyldur gagnvart B, ekkju A. Hún á rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. B kom að eiginmanni sínum liggjandi í götunni við heimili þeirra eftir skotárásina. Að því virtu og öðru sem rakið hefur verið þykja miskabætur hennar hæfilega ákvarðaðar 4.000.000 króna auk vaxta sem í dómsorði greinir.

Ákærði er dæmdur til að greiða B 568.523 krónur vegna útfararkostnaðar.

Krafa um bætur fyrir missi framfæranda er byggð á 1. mgr. 12. gr., sbr.13. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, en B var eiginkona A. Fallist er á útreikning bótanna eins og hann er í kröfugerð sem tekin er upp í ákæruna og er ákærði dæmdur til að greiða B 27.619.336 krónur.

Samkvæmt þessu er ákærði dæmdur til að greiða B samtals 32.187.859 krónur auk vaxta sem í dómsorði greinir.

Í öllum tilvikum bótakrafna þegar dæmdir eru dráttarvextir reiknast þeir í öllum tilvikum frá 25. júní 2021 er mánuður var liðinn frá því kröfurnar voru birtar ákærða en vaxtakröfum hefur ekki verið andmælt.

Krafa B fyrir hönd ólögráða drengsins C.

Ákærði viðurkennir bótaskyldu en krefst lækkunar kröfunnar. Drengurinn C á rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þykja miskabæturnar hæfilega ákvarðaðar 3.000.000 króna.

Þá á drengurinn rétt á bótum fyrir missi framfæranda til 18 ára aldurs. Bótaskyldan er viðurkennd en fallist er á grundvöll útreiknings bótanna eins og lýst er í gögnum málsins og eins og krafan er tekin upp í ákæruna. Ákærði er samkvæmt þessu dæmdur til að greiða barninu 7.376.266 krónur.

Samkvæmt þessu er ákærða gert að greiða B, fyrir hönd C, 10.376.266 krónur auk vaxta eins og greinir í dómsorði.

Krafa B, sem í ákæru segir að sé fyrir hönd ófædds, ólögráða barns síns, sem fæddist […]og ber nafnið AAA.

Ákærði krefst frávísunar þessarar kröfu en til vara lækkunar. Stúlkan AAA er dóttir þeirra A og B og á rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þykja miskabæturnar hæfilega ákvarðaðar 3.000.000 króna.

Þá á stúlkan rétt á bótum fyrir missi framfæranda til 18 ára aldurs. Fallist er á grundvöll útreiknings bótanna eins og lýst er í gögnum málsins og eins og krafan er tekin upp í ákæruna. Ákærði er samkvæmt þessu dæmdur til að greiða barninu 7.958.520 krónur.

Samkvæmt þessu er ákærða gert að greiða B, fyrir hönd AAA, 10.958.520 krónur auk vaxta eins og í dómsorði greinir.

Kröfur D og E.

Ákærði viðurkennir bótaskyldu en krefst lækkunar bótakrafna.

D og E, foreldrar A, eiga hvort um sig rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þykja miskabætur hvors um sig hæfilega ákvarðaðar 3.000.000 króna auk vaxta svo sem greinir í dómsorði.

Ákærði Angjelin greiði 4.164.230 króna réttargæsluþóknun Ólafs V. Thordersen lögmanns, skipaðs réttargæslumanns allra einkaréttarkröfuhafa. Þóknunin er dæmd í einu lagi þar sem vinna lögmannsins er að langmestu leyti sameiginleg vegna allra kröfuhafanna.

Meðal gagna málsins er skjal sem ber heitið samantekt rannsóknardeildar um rannsókn málsins. Í samantektinni er þess ekki getið á hvaða forsendum skjalið er ritað en undir aðalmeðferðinni lýsti ákæruvaldið því yfir að skjalið væri ritað á grundvelli 1. mgr. 56. gr. laga nr. 88/2008.

Í 1. mgr. 56. gr. sml. segir að lögregla taki saman skýrslu um rannsókn sína í hverju máli um sig þar sem getið skal einstakra rannsóknaraðgerða og niðurstöðu þeirra. Eftir því sem við á skal þar meðal annars koma fram það sem sakborningur og vitni bera við skýrslutöku, sbr. 64. og 65. gr., athugun lögreglu sjálfrar og niðurstaða skoðunar og rannsóknar sérfróðra manna.

Það er meginregla sakamálalaga að rannsakendum og ákærendum sé skylt að gæta hlutlægni og að vinna að því að hið sanna komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar, sbr. 3. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 53. gr. laganna. Taka ber mið af þessari grundvallarreglu við gerð skýrslu samkvæmt 1. mgr. 56. gr. laganna.

Undir almeðferð málsins fengust hvorki svör né skýringar á vinnu við gerð skýrslunnar. Að mati dómsins er skýrsla þessi ekki í samræmi við ákvæði 1. mgr. 56. gr. sml. Í skýrslunni er m.a. að finna kafla sem ber heitið kenningar lögreglu og niðurlag. Þar er sett fram kenning, óháð framburði sakborninga, eins og segir. Þá er í niðurlaginu umfjöllun um skilyrði samverknaðar. Að mati dómsins hefur lögreglan við gerð skýrslunnar ekki gætt meginreglunnar um hlutlægnisskyldu lögreglunnar svo sem henni bar að gera og er það ámælisvert.

Ákærði Angjelin greiði 4.794.989 krónur vegna útlagðs sakarkostnaður ákæruvaldsins.

Ríkissjóður greiði 17.558.090 króna málsvarnarlaun Sverris Halldórssonar lögmanns, verjanda ákærðu Cláudiu, 14.436.390 króna málsvarnarlaun Geirs Gestssonar lögmanns, verjanda ákærða Murats, og 1.678.650 króna málvarnarlaun Ólafs Páls Vignissonar lögmanns vegna vinnu undir rannsókn málsins og 18.435.700 króna málsvarnarlaun Leós Daðasonar lögmanns, verjanda ákærða Sphetim.

Ákærði Angjelin greiði 18.630.070 króna málsvarnarlaun Oddgeirs Einarssonar lögmanns. Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknana lögmanna. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið.

Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð

Ákærðu, Cláudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada, og Sphetim Qerimi, eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.

Ákærði, Angjelin Sterkaj, sæti fangelsi í 16 ár. Til frádráttar refsivistinni skal draga óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 17. febrúar 2021 til dagsins í dag að telja, með fullri dagatölu.

Upptæk er dæmd skammbyssa af gerðinni Sig Sauer 1911-22. Bótakröfum að því er varðar ákærðu Cláudiu Sofiu Coelho Carvalho, Murat Selivradi og Sphetim Qerimi er vísað frá dómi.

Ákærði Angjelin greiði B, kt. […] 4.000.000 króna ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, 568.523 krónur og 27.619.336 krónur auk 4,5% vaxta samkvæmt 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021. Ákærði greiði B alls 32.187.859 krónur með vöxtum eins og rakið var en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 25. júní 2021 til greiðsludags.

Ákærði Angjelin greiði B, fyrir hönd ólögráða drengsins C, 3.000.000 króna ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021, 7.376.266 krónur auk 4,5% vaxta samkvæmt 16. gr. l. nr. 50/1993 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021 eða alls 10.376.266 krónur með vöxtum eins og rakið var en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 25. júní 2021 til greiðsludags.

Ákærði Angjelin greiði B, fyrir hönd AAA, 3.000.000 króna ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 7.958.520 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá dómsuppsögu til greiðsludags.

Ákærði Angjelin greiði D og E hvoru um sig 3.000.000 króna ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 14. febrúar 2021 til 25. júní 2021 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði Angjelin greiði 4.164.230 króna réttargæsluþóknun Ólafs V. Thordersen lögmanns, skipaðs réttargæslumanns allra einkaréttarkröfuhafa.

Ákærði Angjelin greiði 4.794.989 krónur vegna útlagðs sakarkostnaður ákæruvaldsins.

Ríkissjóður greiði 17.558.090 króna málsvarnarlaun Sverris Halldórssonar lögmanns, verjanda ákærðu Cláudiu, 14.436.390 króna málsvarnarlaun Geirs Gestssonar lögmanns, verjanda ákærða Murats, og 1.678.650 króna málvarnarlaun Ólafs Páls Vignissonar lögmanns vegna vinnu undir rannsókn málsins og 18.435.700 króna málsvarnarlaun Leós Daðasonar lögmanns, verjanda ákærða Sphetims.

Ákærði Angjelin greiði 18.630.070 króna málsvarnarlaun Oddgeirs Einarssonar lögmanns. Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknana lögmanna.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 12. gr.1. mgr. 69. gr.1. mgr. 69. gr. a70. gr.2. mgr. 70. gr.76. gr.78. gr.79. gr.211. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 1. mgr. 12. gr.13. gr.16. gr.1. mgr. 16. gr.26. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 3. mgr. 18. gr.2. mgr. 53. gr.1. mgr. 56. gr.64. gr.65. gr.2. mgr. 176. gr.1. mgr. 180. gr.

Dómaskrá