Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-807/2014:

Sýkna. Umboðssvik.

Umboðssvik. Sýkna.

I

Upphaf máls þessa er kæra fjármálaeftirlitsins, dagsett 23. október 2012, til embættis sérstaks saksóknara á hendur öllum ákærðu og þremur öðrum mönnum vegna gruns um brot gegn þágildandi 1. og 3. mgr. 30. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161, 2002 varðandi takmarkanir á stórum áhættuskuldbindingum fjármálastofnana. Segir í kærunni að fjármálaeftirlitið telji „að grunur leiki á að forstjóri og stjórnarmenn SPRON og eftir atvikum aðrir aðilar sem kunna að eiga hlut að máli, hafi stofnað fé sparisjóðsins í hættu og stuðlað að falli hans, með því að láta sparisjóðinn taka á sig áhættuskuldbindingar vegna Exista hf. og fjárhagslega tengdra aðila umfram þau 25% mörk af eiginfjárgrunni sparisjóðsins sem kveðið er um í 1. mgr. 30. gr. [laga um fjármálafyrirtæki], á tímabilinu frá 30. desember 2007 og fram til 30. mars 2008 og frá 30. september 2008 og fram til ársloka 2008. Umrædd meint brot fólust í því að SPRON skilgreindi ekki réttilega Exista hf. (hér eftir Exista) og Kistu - fjárfestingarfélag ehf. (hér eftir Kista) sem fjárhagslega tengda aðila í skilningi 2. mgr. 30. gr. [laga um fjármálafyrirtæki], þegar sparisjóðurinn gekkst í sjálfsskuldarábyrgðir fyrir Kistu og veitti Exista lán, en áhættuskuldbindingar þessar voru að samanlagðri fjárhæð umfram 25% af eiginfjárgrunni. Ákvarðanir um lán og veittar ábyrgðir voru teknar af forstjóra og stjórnarmönnum SPRON á hverjum tíma. [/] Einnig telur Fjármálaeftirlitið að forstjóri og stjórnarmenn SPRON og eftir atvikum aðrir aðilar sem kunna að eiga hlut að máli, hafi látið hjá líða á árinu 2008 að tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. þágildandi [laga um fjármálafyrirtæki], sbr. 4 mgr. 30 gr. núgildandi [laga um fjármálafyrirtæki], að áhættuskuldbindingar bankans hafi farið yfir þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 30. gr. [laganna]. Jafnframt bar forstjóri SPRON og eftir atvikum aðrir aðilar sem kunna að eiga hlut að máli, ábyrgð á að Fjármálaeftirlitinu voru sendar rangar og villandi skýrslur um stórar áhættuskuldbindingar miðað við 31. desember 2007 og 31. október 2008 og þannig gerst brotlegir við 2. mgr. 112. gr. b. [laga um fjármálafyrirtæki].“

Fjármálaeftirlitið vísaði svo með bréfi til embættis sérstaks saksóknara, dagsettu 19. febrúar 2013, til framhaldsrannsóknar máli varðandi „áhættuskuldbindingar“ sem Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf. tók á sig á árunum 2007 og 2008 vegna hlutafélagsins Existu hf. og „fjárhagslega tengdra aðila“ vegna gruns um að forstjóri sparisjóðsins og stjórnarmenn (ákærðu og þrír aðrir) kynnu að hafa gerst sekir um umboðssvik og brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga með því að veita sjálfsskuldarábyrgðir og lán umfram það sem heimilt væri í reglum sjóðsins um lán og ábyrgðir.

Um það sakarefni, sem hér er til meðferðar, segir sérstaklega í kærunni, að slepptum neðanmálsgreinum: „Eins og að framan hefur verið lýst voru aðstæður á fjármálamörkuðum viðsjárverðar og rekstur SPRON erfiður, m.a. vegna lausafjárskorts, þegar á stjórnarfundi þann 30. september 2008 er lögð fram tillaga um að veita Exista 2 milljarða kr. lán til viðbótar við aðrar áhættuskuldbindingar sparisjóðsins vegna þess félags á þeim tíma. [/] Lánsbeiðnin sem lögð var fyrir stjórnarfund SPRON 30. september 2008 hljóðar þannig: „Exista óskar eftir skammtíma láni án sérstakra trygginga (money market) í formi 30 daga víxils. Slík lán hafa áður verið veitt en fjárhæðin nú fer umfram heimildir forstjóra og því þarf samþykki stjórnar fyrir slíku láni. Um er að ræða 2 milljarða í 30 daga en við það hækkar áhætta af viðskiptum við Exista úr 0,5 ma. ISK í 2,5 ma. ISK sem er 20% af CAD hlutfalli SPRON. [/] Eigið fé Exista pr. 30.6.2008 nam 2.284 millj. evra en tap af rekstri á fyrri hluta ársins nam 82 millj. evra. Þótt frekara tap hafi orðið á rekstri síðan er staða fyrirtækisins sögð traust og aðgangur að lausu fé standi fyllilega undir þörfum til afborgana af lánum félagsins allt þetta ár og fram á næsta ár.“ [/] Fjármálaeftirlitið telur verulega annmarka á því hvernig lánsbeiðni þessi hefur verið úr garði gerð og þær forsendur sem lagðar eru henni til grundvallar. [/] Í fyrsta lagi vekur Fjármálaeftirlitið athygli á að óskað er eftir „láni án sérstakra trygginga“ sem verður að teljast vítavert með tilliti til aðstæðna. [/] Í öðru lagi segir að við lánveitinguna „hækkar áhætta af viðskiptum við Exista úr 0,5 ma. ISK í 2,5 ma. ISK“. Ákvörðunin ber því með sér að hafa byggt á þeirri forsendu að áhættuskuldbindingarnar fælust einungis í umræddu láni og eign sparisjóðsins í skuldabréfum Exista, „Exista 07 2“, en ekki hafi verið gert ráð fyrir ábyrgðum sparisjóðsins vegna lána Kistu, sem sömu stjórnarmenn höfðu undirritað þremur mánuðum áður, á stjórnarfundi þann 25. júní. Stjórnarmönnum SPRON hlaut því að vera ljóst að þessi forsenda var röng. [/] Í þriðja lagi segir að „Eigið fé Exista pr. 30.6.2008 nam 2.284 millj. evra...“, sem væntanlega hefur átt að sýna hversu traust staða fyrirtækisins var sem lántakanda. Ef stjórnarmenn hefðu kynnt sér forsendur þessa mats á eigin fé og haft til hliðsjónar verðþróun á Kaupþingi og Sampo Group, sem voru stærstu eignir Exista, hefði blasað við nokkuð önnur mynd. Í árshlutaskýrslu Exista fyrir janúar til júní 2008, sem framangreind tala um eigið fé virðist byggja á, má lesa eftirfarandi: „Frá 1. janúar 2007 hafa Sampo Group og Kaupþing banki verið hlutdeildarfélög Exista. Exista er stærsti hluthafinn í báðum þessum félögum en eignarhluturinn í Kaupþingi er 24,75% og í Sampo 19,98%. Hlutdeildarfélögin eru kjölfestueignir til langs tíma í kjarnastarfsemi Exista, sem er fjármálaþjónusta. [/] Hlutdeildarfélög í fjármálaþjónustu eru færð með hlutdeildaraðferð í reikningum félagsins og hafa skammtímasveiflur í verði hlutabréfa þeirra ekki áhrif á bókfært virði þeirra. Í sveiflum á markaði getur því markaðsvirði hlutdeildarfélaga orðið umtalsvert meira eða minna en bókfært virði. Við lok annars ársfjórðungs 2008 var markaðsvirði hlutdeildarfélaga 1.347 milljónum evra lægra en bókfært virði þeirra.“ [/] Með því að nota svonefnda hlutdeildaraðferð við uppgjör efnahagsreiknings Exista í stað gangvirðisaðferðar, þar sem eignir eru metnar á markaðsvirði á hverjum tíma, var því í raun verið að meta eignir félagsins um 1.347 milljónum evra hærra eða sem svarar til 167 milljarða kr. á þeim tíma. Ef stærstu eignir Exista, þ.e. Kaupþing og Sampo, hefðu verið metnar á markaðsvirði, hefði eigið fé Exista verið 937 milljónir evra eða aðeins 41% af því sem miðað var við í lánsbeiðninni til SPRON þann 30. september 2008. Þar að auki hefðu stjórnarmenn SPRON átt að horfa til þess að verðmæti þessara eigna Exista hafði farið lækkandi frá miðju ári, hlutabréf Kaupþings höfðu til dæmis lækkað um 10% og hlutabréf Sampo höfðu fallið hratt síðustu daga, eftir að verðinu hafði verið haldið uppi um skeið með kaupum Sampo á eigin bréfum. SPRON verðbréf beittu samskonar aðferðafræði við útreikning á „raunverulegu“ eigin fé Exista í minnisblaði sem lagt var stjórn Kistu, þar sem Guðmundur Hauksson var stjórnarformaður, í byrjun árs 2008. Þar kom fram að miðað við markaðsgengi Kaupþings og SPRON á þeim tíma, var eigið fé Exista 1.351 milljón evra. Uppfærsla á þessu verðmati miðað við markaðsvirði þessara félaga í lok september 2008 hefði gefið þá niðurstöðu að „raunverulegt“ eigið fé Exista hefði lækkað um 500 milljónir evra frá upphafi árs, og næmi um 854 milljónum evra. [/] Ennfremur hefðu stjórnarmenn SPRON við mat sitt á fjárhagslegri stöðu Exista getað horft til þess að inni í eiginfjárútreikningum Exista á miðju ári 2008 var viðskiptavild að verðmæti 341 milljónir evra, en miðað við þær rekstrarhorfur og efnahagsaðstæður sem voru í lok septembermánaðar 2008 hefði mátt gera ráð fyrir rýrnun á virði hennar.  „Raunverulegt“ eigið fé Exista þann 30. september hefur því varla verið nema þriðjungur þess sem stjórnarmenn SPRON byggðu ákvörðun sína á.“

Með bréfi fjármálaeftirlitsins fylgdu fjölmörg gögn sem orðið hafa hluti af rannsókn málsins, fundargerðir, ársreikningar, margvíslegar skýrslur, bréf, tölvuskeyti, lánasamningar og fleira. Þá var í rannsókn málsins hjá embætti sérstaks saksóknara aflað margvíslegra viðbótargagna, svo sem tölvuskeyta, reikningsyfirlita, fundargerða stjórnar sparisjóðsins ásamt framlögðum fylgiskjölum, fundargerða lánanefndar sjóðsins, fundargerða endurskoðunarnefndar sjóðsins og upplýsinga um lánasamninga, hljóðritaðra símtala o. fl. Loks voru teknar skýrslur af ákærðu og vitnum og hófust þær yfirheyrslur í júlí 2013.

II

Meðal þeirra gagna sem ákæruvaldið hefur lagt fram eru útlánareglur SPRON. Útlánareglur sparisjóðsins eru hluti af „Lánahandbók SPRON sparisjóðs“ sem er meðal gagna málsins. Í handbókinni er að finna safn af reglum um útlán úr sparisjóðnum, sem í gildi voru á þeim tíma sem málið varðar og stjórn sparisjóðsins hafði sett um lánveitingar og ábyrgðir, um ákvörðun um lán, um lán í íslenskri mynt, um myntlán, um útlánaheimildir, um útlánaferil, skipulag og verkaskiptingu um skjalafrágang og sitthvað fleira. Skulu hér tilfærð þau ákvæði í reglunum sem þýðingu hafa fyrir málið:

1.2. Markmið lánveitinga, lánastefna

Lánveitingar og veittar ábyrgðir skulu ávallt vera í samræmi við þá megin stefnu SPRON að vera traust, faglegt og framsækið fjármálafyrirtæki, sem veiti viðskiptavinum sínum víðtæka, lipra og umfram allt, trausta þjónustu á sviði bankastarfsemi og tengdrar fjármálastarfsemi. Lánveitingar skulu á hverjum tíma miða að því að markmiðum SPRON um arðsaman rekstur, sterka eiginfjárstöðu og góða lausafjárstöðu sé náð. Þess skal ávallt gætt að ákvarðanir um lánveitingar og ábyrgðir brjóti ekki í bága við lög og reglur sem SPRON ber að starfa eftir.

Í samskiptum við viðskiptavini er lögð áhersla á að starfsmenn SPRON hafi sjálfstæði til ákvarðanatöku sem miðar að því að þjónusta viðskiptavini fljótt og vel, án þess að vísa þurfi þeim frá einum aðila til annars. Skipulag lánamála skal því miða að því að gera þetta mögulegt.

Útlánaákvarðanir skal byggja á faglegum viðskiptalegum forsendum.

Lánveitingar og önnur fyrirgreiðsla til viðskiptavina skal taka mið af fjárhagsstöðu, greiðslugetu og viðskiptasögu viðkomandi. Að jafnaði skal afla skattframtala, ársreikninga, greiðslumata, rekstrar- og greiðsluáætlana og/eða annarra fjárhagslegra upplýsinga frá viðskiptavinum, og úr þeim skal unnið á skipulegan hátt og þær upplýsingar geymdar á aðgengilegu formi.

....

1.4. Fjárhagslegar upplýsingar

Áður en lánveiting er ákveðin, skal afla nauðsynlegra upplýsinga um fjárhag viðskiptavinar og meta greiðslugetu hans. Hjá lögaðila skal að jafnaði afla ársreikninga, árshlutauppgjöra, rekstrar- og greiðsluáætlana, skattframtala og annarra upplýsinga í samræmi við eðli viðskipta. Þess skal gætt að eiginfjárstaða viðskiptavinar sé viðunandi og að stjórn og framtíðarhorfur teljist góðar.

1.5. Tryggingar

Kröfur SPRON til trygginga eiga að taka mið af fjárhagslegum styrk viðskiptavinar og tímalengd lánveitingar. Að jafnaði skulu teknar tryggingar fyrir lánveitingum í auðseljanlegum eignum. Veð skuli þegar það á við, ná til rekstrareininga í heild sinni.

Lán sem ekki eru veitt með aðstoð lánsmatskerfis, skulu veitt með ásættanlegum tryggingum. Lánveitingar sem ekki eru tryggðar með veði, skulu almennt ekki vera til lengri tíma en fimm ára. Veðsettar eignir á að meta sem næst markaðsvirði og reikna upp áhvílandi skuldir. Gæta ber fyllstu varúðar varðandi veðhlutfall og miða við aðstæður í hverju tilviki.

Sérstaklega skal gæta að tryggingum þegar um er að ræða stöðutöku, t.d. í hlutabréfum og afleiðum, nema í hlut eigi fjárhagslega mjög sterk fyrirtæki.

....

1.7. Skipulag lánastarfseminnar

Sparisjóðsstjórn hefur eftirlit með lánamálum SPRON og ber ábyrgð á þeim....

....

1.8. Lánaheimildir

....

Þó má heildarskuldbinding eins aðila eða fjárhagslegra tengdra aðila ekki fara yfir 25% [af CAD], sbr. reglur fjármálaeftirlitsins nr. 531, 2003, um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum.

....

2.5. Lánveitingar til fyrirtækja

Við hverja lánveitingu skal mat lagt á rekstur, efnahag og greiðslugetu rekstraraðila, svo og tryggingastöðu. Stöðva skal allar lánveitingar til viðskiptavinar eftir að vanskil hans hafa verið send til lögfræðiinnheimtu. Undantekningu má gera ef ný lánveiting rennur til úrlausnar vanskila eða vantryggðra lána. Lögaðilar, sem eru undir stjórn eða í eigu einstaklinga, sem skráðir eru með skiptalok, gjaldþrotameðferð, árangurslaust fjárnám í vanskilaskrá, eða eru með afskrift og/eða mál í lögfræðiinnheimtu, eru hvorki lánshæfir né gildir sem ábyrgðarmenn. Þetta gildir þó ekki ef gjaldþrotameðferð hefur verið dregin til baka. Lánanefnd SPRON sparisjóðs getur vikið frá þessari reglu, enda liggi fyrir rökstuðningur fyrir slíkri ákvörðun og tryggingar vegna lánafyrirgreiðslunnar séu mjög traustar.

....

3.1. Almennt

Taka skal saman yfirlit um tryggingastöðu við SPRON við hverja lánveitingu og athuga hvort þörf er á að bæta tryggingar vegna veittra lána og ábyrgða.

....

3.3. Lán án sérstakra trygginga til fyrirtækja

Skilyrði fyrir lánum án trygginga til fyrirtækja er að útibú kanni til hlítar að rekstur fyrirtækis sé í góðu lagi og nær það einnig til stjórnenda fyrirtækisins. Miðað skal við að fyrirtæki sem eru með lánveitingar án trygginga sendi reglulega inn upplýsingar um rekstur félagsins, þar af þarf endurskoðað ársuppgjör félagsins að vera undirritað af löggiltum endurskoðanda hjá þeim fyrirtækjum sem eru með heildarfyrirgreiðslu umfram 1% af CAD eigin fé SPRON heildarinnar.

Ef heildarskuldbinding ótryggðra lána fer umfram 10 milljónir kr., skal Lánanefnd SPRON sparisjóðs fjalla um mál. Til að tryggja sem besta þjónustu við fyrirtæki, skulu traust fyrirtæki hafa lánamörk skv. tillögu útibússtjóra eða þjónustustjóra. Þessi lánamörk skulu endurskoðast árlega þegar SPRON hefur fengið endurskoðaðan ársreikning fyrirtækisins. Ef ársreikningur fyrirtækis berst ekki innan tilsetts tíma, getur Lánanefndin farið fram á að útlánaviðskipti fyrirtækisins verði endurmetin m.t.t. lánafyrirgreiðslu og trygginga.

Fyrirtæki sem eru í hótel- og veitingarekstri, fiskeldi, kvikmynda- og ljósvakastarfsemi, snyrtistofur, þvottahús, heilsuræktir, sólbaðsstofur, sportvöruverslanir og sprotafyrirtæki á hugbúnaðarsviði skulu ekki fá fyrirgreiðslu án trygginga, nema með sérstöku samþykki Lánanefndar.

Nota skal eftir því sem við á og um er samið, ýmis ákvæði í skuldaskjölum sem varða gjaldfellingarheimildir til SPRON, t.d. ákvæði um eigið fé, eiginfjárhlutfall, hagnað, rýrnun trygginga, eigendaskipti að fyrirtæki eða tryggingaandlagi, o.fl. Þegar við á skal setja í skuldaskjöl ákvæði um að fyrirtæki megi ekki taka ákvarðanir um verulegar breytingar á rekstrarforsendum er varða nýjar fjárfestingar og lántökur án samþykkis SPRON eða ákvæði um að breytingar á eignarhaldi eða aðrar sambærilegar aðgerðir sem takmarka getu fyrirtækisins til að efna skuldbindingar gagnvart SPRON.

Allar undanþágur frá þessari reglu skal leggja fyrir Lánanefnd SPRON sparisjóðs.

....

5.8. Stjórn SPRON

Sparisjóðsstjórn hefur eftirlit með lánamálum SPRON og ber ábyrgð á þeim.

Stjórnin tekur ákvarðanir um lán ef heildarskuldbinding látakanda er umfram 10% af CAD eigin fé SPRON. Heildarskuldbinding viðskiptavinar má þó aldrei fara yfir 25% af eigin fé SPRON, skv. reglum Fjármálaeftirlitsins nr. 531/2003 um stórar áhættuskuldbindingar.

Lánveitinguna ber að færa í gerðarbók stjórnar.“

III

Fundargerð stjórnar sparisjóðsins sem vitnað er til í kærubréfi Fjármálaeftirlitsins er svohljóðandi: „Ár 2008, þriðjudagurinn 30. september, kl. 9:30, var haldinn stjórnarfundur í SPRON hf. [/] Á fundinum voru mættir stjórnarmennirnir Erlendur Hjaltason, Ásgeir Baldurs, Ari Bergmann Einarsson, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist. Að auki sátu fundinn Guðmundur Hauksson, forstjóri, framkvæmdastjórarnir Ólafur Haraldsson og Valgeir M. Baldursson og Inga E.

Káradóttir, fundarritari. [/] Þetta gerðist: Nokkrar umræður voru um efnahagsmálin og atburði síðustu daga. Ljóst er að ástandið á fjármálamarkaði er mjög alvarlegt og staðan sú erfiðasta sem uppi hefur verið um áratugi. [/] 1. Fundagerðir tveggja síðustu funda: Fundargerðir 30. og 31. fundar voru samþykktar og undirritaðar. [/] 2. Mánaðarskýrsla: Forstjóri lagði fram mánaðarskýrslu septembermánaðar. Fram kom að lausafjárskortur undanfarinna vikna væri orðinn fyrirtækinu dýr, en uppstaða fjármögnunar undanfarið hefur verið lán hjá Kaupþingi, þar sem aðrar leiðir hafa ekki reynst færar. [/] Tap varð af rekstri samstæðunnar frá 1. júlí til 31. ágúst 2008, sem nemur 1,8 ma kr., en hreinar vaxtatekjur líða fyrir mjög óhagstæða fjármögnun. Rekstrarkostnaður er á áætlun. Kostnaðarlækkun vegna fækkunar starfsmanna skilar sér ekki inn í uppgjörið nú, en kemur inn í uppgjörið á síðasta ársfjórðungi. [/] Heildarvanskil hækkuðu um 3,4% milli mánaða og hafa vanskil hækkað um 23,6% á 12 mánaða tímabili. [/] 3. Útlánaskýrsla: Forstjóri fór yfir útlánaskýrslu til stjórnar. Í henni voru lögð fram yfirlit yfir stærstu lánþega SPRON og stærstu vanskilaaðila. Ekki er útlit fyrir að neinum stórum áföllum vegna útlána. [/] 4. Skýrsla innri endurskoðunar: Þórir Haraldsson, innri endurskoðandi SPRON, kom inn á fundinn til að greina frá þeim athugunum og úttektum sem hann hefur gert fyrri hluta ársins 2008. Fram kom hjá að hann hafi ekki gert neinar stórvægilegar athugasemdir í kjölfar þessara athugana. [/]  5. Lánamál. SPRON Factoring: Stjórnin staðfesti tillögu lánanefndar um hækkun lánamarka SPRON Factoring úr 2,0 ma kr í 2,4 ma kr. [/] Exista: Áður en þessi liður var tekinn til umfjöllunar vék Erlendur Hjaltason af fundi. Óskað var eftir heimild stjórnar til lánveitingar til Exista að upphæð 2 ma kr í 30 daga. Áhætta vegna Exista er þá tæplega 2,5 ma.kr, sem er 20% af CAD hlutfalli. Þetta var samþykkt. [/] Nauðasamningar:  Lögð var fyrir stjórn tillaga að nauðasamningum vegna þriggja aðila sem allir eru starfsmenn samstæðunnar. Tillagan er um heildarniðurfærslu uppá 150 millj kr. Þetta var samþykkt. [/] 6. Sameiningarmál: samþykki Samkeppniseftirlitsins; Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt sameiningu SPRON og Kaupþings. Í álitsgerð eftirlitsins um sameininguna kemur fram að samruninn sé samþykktur á grundvelli þess að sýnt sé að SPRON myndi að öðrum kosti hverfa af markaðnum sem sjálfstæður keppinautur og að engin önnur ráð séu því tiltæk en að samþykkja samrunann. [/] Fjármálaeftirlitið hefur enn ekki skilað niðurstöðu sinni um málið. Boðað verður til stjórnarfundar strax í kjölfar niðurstöðu eftirlitsins. [/] Forstjóri lýsti sig ósáttan við þann þátt álitsgerðar Samkeppniseftirlitsins sem snýr að fjárhagslegri stöðu SPRON. Ljóst er að Samkeppniseftirlitið styðst ekki við gögn frá SPRON þegar þessi afstaða er mótuð og áskildi hann sér rétt til að skila greinargerð um málið. [/] aðgerðaráætlun: Lögð voru fram drög að aðgerðaráætlun sem færi í gang strax í kjölfar þess ef Fjármálaeftirlitið gefur samþykki sitt á samrunanum. [/] 7. Önnur mál [/] Engin önnur mál voru tekin fyrir undir þessum lið.“

Fram er komið að stjórnarmönnum hafi ekki verið kunnugt um lánsumsókn Existu hf. fyrir fundinn.

Í málinu hafa verið lagðar fram tvær árshlutaskýrslur Existu hf. fyrir 1. janúar til 30. júní 2008 og 1. janúar til 30. september 2008. Verður vikið að efni þessara gagna og aðkomu stjórnarinnar að þeim síðar.

IV

Í málinu liggja fyrir reglur SPRON frá 31. ágúst 2007 „um framkvæmd starfa stjórnar og forstjóra“ sem settar voru á grundvelli 54. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161, 2002, samþykkta SPRON og leiðbeinandi tilmæla fjármálaeftirlitsins. Í 10. gr. reglnanna segir að halda skuli fundargerðir um alla stjórnarfundi þar sem fram komi „nöfn viðstaddra stjórnarmanna, dagskrá og þær ákvarðanir sem teknar eru á fundi stjórnar“. Í 14. gr. reglnanna segir að félagsstjórn skuli hafa aðgang að öllum gögnum sem félagið varða og nauðsynleg eru vegna stjórnar- og eftirlitsskyldu sinnar. Þá segir að óheimilt sé að fara með slík gögn eða afrit þeirra út af starfstöð félagsins. Ennfremur segir í 23. gr. reglnanna að upplýsingar skuli aðeins gefnar stjórnarmönnum á stjórnarfundum. Skuli fyrirspurnir stjórnarmanna bornar upp á fundunum, kynntar öllum stjórnarmönnum og um þær bókað í fundargerð ásamt svörum við þeim. Loks segir í greininni að stjórnarmönnum sé óheimilt að hafa samband við starfsmenn félagsins til þess að afla upplýsinga.

V

Óumdeilt er að á fyrrgreindum stjórnarfundi sparisjóðsins 30. september 2008 var samþykkt að veita Existu hf. skammtímalán í formi peningamarkaðsláns að fjárhæð 2 milljarðar króna, með gjalddaga 31. október sama ár. Þá liggur fyrir í málinu að ákærði Guðmundur Örn átti hlut í Existu hf. og sat í stjórn þess félags og að Erlendur Hjaltason, stjórnarformaður SPRON, var forstjóri félagsins. Þá liggur fyrir að jafnhliða greiðslu lánsins til Existu hf. voru lagðir inn í sparisjóðinn tveir milljarðar króna í formi peningamarkaðsláns frá VÍS, sem var að öllu leyti í eigu Existu hf. Ákærðu segjast hvorki hafa vitað um þessa greiðslu né að hún tengdist láni sparisjóðsins til Existu hf. Valgeir Matthías Baldursson hefur hins vegar sagt að ákærða Guðmundi Erni hafi verið kunnugt um hana og að samband væri á milli þessarar greiðslu og lánsins til Existu hf. Símtöl sem lögð hafa verið fram í málinu og vitnisburðir benda sterklega til þess að tengsl hafi verið milli greiðslunnar frá VÍS og þessa láns. Hefur komið fram hjá einu vitninu að ástæðan fyrir þessum tengslum hafi verið sú að Existu hf. hafi,vegna 104. gr. laga um hlutafélög nr. 2, 1995 verið óheimilt að taka milliliðalaust lán hjá dótturfélagi.

Í fyrrgreindum lánareglum er ekki að finna sérstök ákvæði um svo nefnd peningamarkaðslán en ráða má af framburðum ákærðu og vitna að tíðkanlegt var að SPRON tæki þátt í viðskiptum með slík lán, bæði sem lántaki og lánveitandi. Auk þess að vera þátttakandi í viðskiptum með peningamarkaðslán í íslenskum krónum á millibankamarkaði, liggur fyrir að SPRON veitti slík lán til stærri fyrirtækja og stofnana sem talin voru sérstaklega traust. Er upplýst að meðal aðila sem nutu þessara kjara voru skráð fyrirtæki eins og Exista hf. og Icelandair, einnig lífeyrissjóðir, Íbúðalánasjóður og fleiri stofnanir. Lán þessi voru veitt til skamms tíma, yfir nótt eða til fáeinna daga, en í sumum tilvikum til lengri tíma, svo sem 15 eða 30 daga. Var afgreiðsla slíkra lána hjá lausafjárstýringu SPRON.  Þá er komið fram að ekki hafi tíðkast að veita slík lán gegn sérstakri tryggingu enda hafi fremur verið litið á veitingu peningamarkaðsláns sem tímabundna ráðstöfun lausafjár bankans en eiginlega lánveitingu sem ekki var á verksviði lausafjárstýringar. Liggur þannig fyrir að veiting peningamarkaðslána kom ekki til kasta lánanefndar SPRON.

Samkvæmt framburði vitna fyrir dómi voru peningamarkaðslán almennt ekki hærri en svo að einstakir starfsmenn gátu samþykkt þau eða þá að slík samþykkt var á valdi forstjóra og framkvæmdastjóra samkvæmt grein 5.10 í lánareglum sparisjóðsins. Í því tilviki sem hér um ræðir var lánsfjárhæðin yfir þeim mörkum sem sett eru með ákvæðinu, þ.e. hámarkshlutfallinu 10 % af CAD eigin fé sparisjóðsins. Liggur fyrir að þetta var ástæðan fyrir því að lánsumsókninni var vísað til sjóðsstjórnarinnar.

VI

Meðal gagna málsins er svofelld fréttatilkynning forsætisráðuneytisins, 29. september 2008, um samkomulag um að ríkissjóður leggi Glitni til nýtt hlutafé: „Gert hefur verið samkomulag milli ríkisstjórnar Íslands og helstu eigenda Glitnis banka hf. að höfðu samráði við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið um að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé. Þetta er gert með hliðsjón af þröngri lausafjárstöðu Glitnis og einstaklega erfiðum aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum um þessar mundir. Ríkissjóður mun með milligöngu Seðlabanka Íslands leggja Glitni til hlutafjárframlag að jafnvirði 600 milljóna evra (eða um 84 ma.kr.) og með því verða eigandi að 75% hlut í Glitni. Boðað verður til hluthafafundar í Glitni svo fljótt sem samþykktir leyfa þar sem tillaga þar að lútandi verður lögð fram til samþykktar. Fjármálaeftirlitið metur eiginfjárstöðu og eignasafn Glitnis traust. Eiginfjárhlutfall Glitnis verður 14,5% eftir þessa aðgerð. Rekstur bankans verður með eðlilegum hætti. Ríkissjóður stefnir ekki að því að eiga eignarhlutinn í bankanum til langframa. Tilgangurinn með þessari aðgerð er að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu.“

Þá er einnig komið fram í málinu að formaður stjórnar Seðlabanka Íslands sagði af þessu tilefni sama dag að þegar „þessum ólgusjó“ linnti myndi bankinn standa sig vel og þá væri gert ráð fyrir því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn og að hagnaður yrði „af öllu saman“ fyrir ríkið og þar með skattborgarana.

VII

Niðurstaða dómsins

Í málinu liggur fyrir að samhliða því sem Exista hf. óskaði eftir peningamarkaðsláni hjá SPRON bauð VÍS hf., dótturfélag Exista hf., sparisjóðnum að láni sömu fjárhæð til sama tíma. Telur dómurinn fram komið að umrædd lán voru tengd saman með þeim hætti að téð fjármagn var í reynd flutt frá VÍS hf. til móðurfélagsins, Existu hf., fyrir milligöngu SPRON. Þótt lausafjárstaða SPRON héldist óbreytt með þessum hætti er engu að síður ljóst að áhætta SPRON gagnvart Existu hf. jókst. Sökum tengslanna milli lánanna tveggja er ljóst að í láni SPRON til Exista hf. fólst ekki venjuleg skammtímaráðstöfun fjárstýringar SPRON á umframfé sjóðsins til aðila á millibankamarkaði eða fyrirtækis í sambærilegri stöðu heldur varð henni öllu fremur lýst sem þætti í „lúppu“ eða „snúningi“, svo vísað sé til orðalags í samskiptum þeirra starfsmanna sem komu að málinu.

Þótt vikið sé að tengslum lánanna tveggja í röksemdum með ákærunni, sbr. d-lið 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008, er engu að síður ljóst að ekki er um að ræða sjálfstætt sakaratriði í ákæru. Að því marki sem sannað telst að ákærðu hafi verið kunnugt um tengsl lánanna getur þessi þáttur málsins því einungis haft þýðingu við nánara mat á þeirri háttsemi sem þeim er gefin að sök. Í því samhengi skortir hins vegar verulega á að ákæruvaldið hafi rökstutt hvaða nánari þýðingu hugsanleg vitneskja ákærðu um tengsl lánanna eigi að hafa fyrir ákæruefnið.

Við munnlegan flutning málsins kom fram af hálfu ákæruvaldsins að haustið 2008 hafi SPRON átt í alvarlegum vandræðum með lausafé og ákærðu verið þetta vel ljóst. Hefur í þessu sambandi verið vísað til fyrrgreindrar bókunar frá stjórnarfundinum 30. september 2008 en einnig annarra gagna um takmarkaðan aðgang sparisjóðsins að lausafé, meðal annars vegna afstöðu Seðlabanka Íslands. Í málinu liggur ekki fyrir hvernig inn- og útstreymi fjár úr lausafjárstýringu SPRON var háttað á umræddum tíma og verður því ekkert fullyrt um það að hve miklu leyti fjárstýringin veitti skammtímalán til annarra fyrirtækja, innan og utan millibankamarkaðar, eða til hvaða tíma slík lán voru veitt. Þá liggur ekkert fyrir um lausafjárstöðu sparisjóðsins 30. september 2008 að öðru leyti en því að fyrir liggur að nægt lausafé var til þeirrar lánveitingar til Existu hf. sem lýst er í ákæru.

Þótt á það verði fallist að ákærðu hafi, sem stjórnarmönnum og forstjóra, borið að hafa yfirsýn yfir þann lausafjárvanda sem sparisjóðurinn glímdi við haustið 2008 verður ákæran ekki skilin á þá leið að ákærðu sé gefið að sök að hafa rýrt lausafjárstöðu sparisjóðsins óhóflega þegar þau samþykktu téða lánveitingu. Getur þetta atriði því einungis komið til skoðunar að því marki sem það hefur þýðingu við mat á þeirri háttsemi sem ákærðu er gefin að sök í ákæru, svo sem hvort umrædd staða sparisjóðsins gaf tilefni til þess að óska eftir sérstakri tryggingu fyrir endurgreiðslu lánsins.

Samkvæmt framangreindu verður að skilja ákæru málsins svo að hún takmarkist við það að ákærðu sé gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína sem stjórnarmenn og forstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga með því, annars vegar, að meta ekki greiðslugetu og eignastöðu Existu hf. í samræmi við útlánareglur sparisjóðsins og, hins vegar, með því að veita félaginu umrætt lán án trygginga. Með þessu hafi fé sparisjóðsins verið stefnt í verulega hættu og hafi ákærðu mátt þetta vera ljóst þannig að jafnað verði til ásetnings til umboðssvika samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaga. Þótt framangreind tvö efnisatriði ákærunnar tengist þykir engu að síður rétt að fjalla um hvort þeirra með sjálfstæðum hætti og reifa framburði ákærðu og vitna þar að lútandi.

A Um það sakaratriði að ákærðu hafi ekki lagt mat á greiðslugetu og eignastöðu Existu hf. er í röksemdum ákæruvaldsins vitnað til reglna sparisjóðsins um lánveitingar og ábyrgðir með svofelldum hætti: „Í grein 1.4 segir að áður en lánveiting sé ákveðin skuli afla nauðsynlegra upplýsinga um fjárhag viðskiptavinarins og meta greiðslugetu hans. Hjá lögaðila skuli að jafnaði afla ársreikninga, árshlutareikninga, rekstrar- og greiðsluáætlana, skattframtala og annarra upplýsinga í samræmi við eðli viðskipta.“.... „Í grein 2.5 kemur svo fram að við lánveitingar til fyrirtækja skuli leggja mat á rekstur, efnahag og greiðslugetu rekstraraðila svo og tryggingastöðu.“

Ákærði Guðmundur Örn hefur borið fyrir dómi að fram hafi komið á stjórnarfundinum 30. september að eigið fé Existu hf. væri 300 milljarðar og lausafjárstaða þess væri sterk. Hafi og allar upplýsingar um félagið legið frammi vegna skráningar þess í kauphöllinni. Nefnir hann í því samhengi 6 mánaða uppgjör þess sem birst hafi 31. júlí 2008 hjá Kauphöllinni og í fjölmiðlum. Þá tekur hann fram að stjórnendunum SPRON hafi jafnframt verið kunnugt um þróun félagsins frá þeim tíma. Hafi verið farið eins vandlega yfir málið og hægt var að gera og stjórnarmenn margs spurt í því efni. Um grein 1.4. í lánareglunum tekur ákærði fram að hún sé hugsuð vegna lána í útibúakerfinu til fyrirtækja sem ekki séu skráð í kauphöll og í þeim tilvikum sé nauðsynlegt að afla þar greindra upplýsinga. Þessar upplýsingar hafi allar legið fyrir vegna skráningar Existu hf. í kauphöll. Segir hann að í sparisjóðnum hafi náið og skipulega verið fylgst með greiðslugetu og stöðu félagsins og menn þekkt þessi atriði vel. Ákærði Ari Bergmann hefur borið að fyrir fundinum hafi legið árshlutauppgjör Existu hf., annað hvort í pappírsformi eða því hafi verið varpað á skjá. Muni hann að uppgjörið hafi verið rætt á fundinum. Þá hafi stjórnarmenn spurt hvort peningar væru til fyrir láninu og þeim verið tjáð að svo væri. Þá hafi verið spurt hvort lánið væri innan CAD-hlutfalls. Þá hafi verið rætt um greiðslustöðu og lausafjárstöðu Existu hf. og fram hafi komið að mjög vel horfði í þeim efnum næstu níu mánuði. Hafi þannig allt verið rætt sem máli skipti. Ekkert hafi verið rætt um hvaðan peningar fyrir láninu hefðu komið og kveðst hann ekki hafa vitað að Vís hefði lagt inn fyrir því. Áhersla hafi verið lögð á það af hálfu fjárstýringar SPRON að um skammtímalán væri að ræða sem hentaði fjárstýringu sjóðsins afar vel, enda hafi fjárstýringin legið með fé sem þurft hafi „að láta vinna“. Upplýsingaflæði til stjórnar SPRON hafi almennt verið mjög gott og sama megi segja um alla skjalavörslu í því sambandi. Sjálfur hafi hann frétt af lánsumsókninni rétt fyrir fundinn. Hann kveður Erlend Hjaltason hafa setið fundinn framan af og veitt upplýsingar viðvíkjandi láninu, áður en hann dró sig í hlé.

Ákærði Jóhann Ásgeir hefur skýrt frá því að stjórnarmenn hafi þekkt mjög vel til Existu hf. enda hafi það félag sífellt verið til umfjöllunar á stjórnarfundum SPRON og verið stór hluti af eignasafni félagsins. Kveðst hann hafa vitað hvernig lánasamningar Existu hf. voru upp byggðir og hafa þekkt eignir þess. Hafi komið fram í samtölum við stjórnarmenn í Existu hf. að félagið stæði mjög vel. Minni hann að ákærði Guðmundur Örn og Valgeir Matthías hafi sameiginlega talað fyrir láninu og stjórnarmenn hafi einnig spurt út í þetta mál. Hafi stjórnin gaumgæft þessa lánveitingu mjög og farið vel yfir greiðslugetu og eignastöðu Existu hf. Hann kveðst ekki hafa vitað hvers vegna Exista hf. þurfti þetta lán en menn hafi álitið það vera hluta af daglegri fjárstýringu félagsins. Hann kveðst ekki áður hafa fengið lán af þessu tagi til meðferðar í stjórn, enda hafi það verið að nokkru leyti óvenjulegt. Hann segir að þær upplýsingar sem stjórninni voru veittar um hag Existu hf., árshlutauppgjörið, hafi verið betri en þær sem fengist hefðu úr skattframtali eða ársreikningi sem hefðu sýnt stöðu félagsins í árslok 2007. Fyrir utan að það hafi verið kynnt á fundinum segir hann að það hafi verið kynnt fyrir stjórninni áður, þ.e. þegar það kom fram.

Ákærða Margrét kveðst muna mjög vel eftir stjórnarfundinum sem um ræðir í málinu. Kveðst hún hafa spurt út í málið, þar á meðal tryggingu fyrir láninu og það hafi aðrir stjórnarmenn einnig gert. Hafi komið fram að efnahagsreikningur Existu hf. væri nægileg trygging fyrir láninu. Hafi einnig verið skýrt fyrir fundarmönnum hvernig peningamarkaðslán virkuðu. Hafi verið upplýst að CAD-hlutfallið væri í lagi og sagt að stjórnin hefði heimild til þess að veita þetta lán án sérstakrar tryggingar. Þá hafi sex mánaða uppgjöri Existu hf. verið varpað upp á skjá og farið yfir þær tölur, sem hana minni að hún hafi áður verið búin að kynna sér. Hún kveðst þó ekki hafa sett sig inn í reikningsskilaaðferðir. Hún segir Valgeir Matthías aðallega hafa gert stjórninni grein fyrir málinu en ákærði Guðmundur Örn svarað spurningum að lokinni greinargerð Valgeirs Matthíasar, enda hafi ákærði þekkt Existu hf. vel. Kveðst hún jafnframt álíta að stjórnin hafi haft betri upplýsingar um Existu hf. en búast hefði mátt við um óskráð fyrirtæki. Hún segir að tap hafi verið á rekstri félagsins síðustu mánuðina fyrir fundinn. Að því er varðar greiðslumat á Existu hf. segir hún sparisjóðinn hafa fylgst reglulega með afkomu félagsins þannig að byggt hafi verið á traustum upplýsingum um það þegar ákveðið var að lána félaginu. Um hafi verið að ræða stórt lán en það hafi þó verið til skamms tíma. Hún segir hafa komið fram á fundinum að fjárstýring sparisjóðsins hafi haft handbært fé til þess að lána Existu hf. Ákærða segir stjórnina hafa verið upplýsta á þessum fundi um allar þær fjárhagsstærðir sem nauðsynlegt var að vita um áður en ákvörðun um lánið var tekin.

Ákærða Rannveig hefur skýrt frá því að stjórnendur sparisjóðsins hafi tekið til máls á fundinum og svarað því sem til þeirra var beint. Hún kveðst ekki muna vel eftir einstökum atriðum, enda sé langt um liðið frá fundinum. Hún kveðst hafa þekkt lítillega til Existu hf. áður en hún tók sæti í stjórn sparisjóðsins hálfu ári fyrir þennan fund en í stjórninni hafi jafnframt verið þekking á félaginu fyrir þennan fund og hálfs árs uppgjör Existu hf. hafi legið fyrir á fundinum. Hafi stjórnin haft greinargóðar og nákvæmar upplýsingar um hag félagsins og betri en almennt lágu fyrir um félög sem fengu lán hjá sparisjóðnum.

Valgeir Matthías Baldursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs SPRON á þeim tíma sem hér skiptir máli, hefur greint frá því að hann hafi vegna þess starfa síns setið flesta stjórnarfundi. Hann kveðst ekki muna eftir þeim umræðum sem urðu á fundinum en kveðst álíta að hann hafi ekki komið á fundinn til þess að kynna lánveitinguna. Þá kveðst hann ekki muna hvort innlán VÍS hafi komið þar til tals. Hann segir stjórnendur sparisjóðsins hafa þekkt mjög vel til stöðu Existu hf. á þessum tíma, bæði af þeim uppgjörum sem félagið sendi frá sér og einnig hafi þeir reglulega framkvæmt eigin útreikninga á félaginu og virði eigna þess, enda hafi flest þau félög, sem Exista hf. átti í, verið skráð í Kauphöllinni.

Erlendur Hjaltason var formaður stjórnar SPRON og jafnframt forstjóri Existu á þeim tíma sem um ræðir og kveðst hafa átt hlut í báðum fyrirtækjunum. Hann hefur greint frá því að flæði upplýsinga til stjórnarinnar hafi verið mjög gott á þeim tíma sem hér skiptir máli. Hann segir lánveitinguna til Existu hafa verið rædda á fundinum en hann vikið frá þegar kom að ákvörðun um hana. Hann telur ekki ólíklegt að hann hafi svarað einhverjum spurningum manna um lánsbeiðnina en kveðst ekki hafa kynnt hana fyrir stjórninni. Þá muni hann ekki eftir umræðum í einstökum atriðum.

Ólafur Haraldsson, þáverandi framkvæmdastjóri sparisjóðasviðs SPRON, segir lánsbeiðnina hafa verið kynnta á fundinum en hann muni ekki eftir einstökum atriðum í þeirri kynningu. Minni hann að Valgeir Matthías og Guðmundur Örn hafi staðið fyrir henni og einhverjar spurningar hafi verið bornar fram. Þá hafi verið skjalleg gögn um beiðnina á fundinum og einnig hafi verið miðlað upplýsingum með myndvarpa, líklega rekstrarupplýsingum og uppgjöri.

Páll Árnason, áður framkvæmdastjóri áhættustýringar SPRON og regluvörður þar, segir starfsmenn sparisjóðsins hafa fylgst vel með Existu hf. á þeim tíma sem hér skiptir máli og tvímælalaust betur en öðrum fyrirtækjum sem voru í viðskiptum við sparisjóðinn. Hafi þannig ekki einasta verið fylgst með markaðsvirði eignasafns félagsins heldur hafi fyrirtækið sjálft verið rannsakað þar sem markaðurinn endurspegli ekki alltaf eignina í fyrirtækinu. Kveðst hann hafa tekið reglulega saman skýrslur um það hvort sparisjóðurinn væri innan þeirra marka sem sett höfðu verið um fjárfestingar.

Eins og fram er komið var Exista hf. skráð hjá Kauphöll Íslands. Samkvæmt 57. og 58. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108, 2007 ber útgefendum verðbréfa að birta opinberlega ársreikninga sína og árshlutareikninga. Þá segir í 1. mgr. 122. gr. laganna, sem í gildi var á þeim tíma sem hér um ræðir, að útgefanda fjármálagerninga, sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði eða verslað er með á markaðstorgi fjármálagerninga (MTF), beri að tilkynna þegar í stað allar þær innherjaupplýsingar sem varða hann til viðkomandi skipulegs verðbréfamarkaðar eða markaðstorgs fjármálagerninga (MTF) þar sem fjármálagerningar hans hafa verið teknir til viðskipta. Skipulegur verðbréfamarkaður eða markaðstorg fjármálagerninga (MTF) skuli miðla innherjaupplýsingum í upplýsingakerfi sínu og teljist upplýsingarnar opinberar þegar þeim hefur verið miðlað þaðan. Samkvæmt 120. gr. laganna er hér átt við upplýsingar sem varða beint eða óbeint útgefendur fjármálagerninga, fjármálagerningana sjálfa eða önnur atriði sem eru líkleg til þess að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninganna.

B Um það sakaratriði að téð lán hafi verið veitt án tryggingar er í röksemdum ákæruvaldsins vísað til reglna sparisjóðsins um lánveitingar og ábyrgðir með svofelldum hætti: „Grein 1.5 fjallar um tryggingar. Kemur þar fram að lán sem ekki séu veitt með aðstoð lánsmatskerfis skuli veitt gegn ásættanlegum tryggingum“... „Í þriðja kafla lánahandbókarinnar er fjallað sérstaklega um lán í íslenskri mynt. Segir þar í grein 3.1 að taka skuli saman tryggingastöðu við SPRON við hverja lánveitingu og athuga hvort þörf er á að bæta tryggingar vegna veittra lána og ábyrgða.“

Í málinu liggur árshlutaskýrsla Existu hf. fyrir tímabilið frá 1. janúar til 30. júní 2008 sem var staðfest af stjórn félagsins 31. júlí 2008 og birt í kauphöll sama dag. Árshlutauppgjörið var áritað af endurskoðanda félagsins, Deloitte hf., með svokallaðri könnunaráritun. Þar kom fram að tap var af rekstri félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 að fjárhæð 82.200.000 evrur. Heildareignir félagsins 30. júní 2008 voru 6.924.700.000 evrur og eigið fé félagsins var á sama tíma 2.284.200.000 evrur. Þá var handbært fé félagsins 30. júní 2008 var 303.400.000 evrur. Samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu sem birt var í kauphöll var eiginfjárhlutfall félagsins að teknu tilliti til víkjandi skuldabréfs 37%. Í fréttatilkynningunni kom auk þess fram að félagið ætti tryggt lausafé til að mæta endurfjármögnun fram til desember 2009. Félagið færði eignarhluti sína í Kaupþingi banka hf. og Sampo Oyj samkvæmt svokallaðri hlutdeildaraðferð sem gerði það að verkum að eignarhlutur Existu hf. í fyrrgreindum félögum var 30. júní 2008 metinn 1.347.200.000 evrum meiri í árshlutauppgjöri félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins en markaðsverð eignanna samkvæmt skráðu gengi í kauphöll sagði til um.

Þá er í málinu árshlutaskýrsla Existu hf. fyrir tímabilið frá 1. janúar til 30. september 2008 sem var staðfest af stjórn 27. nóvember 2008 og birt í kauphöll sama dag. Árshlutauppgjörið var áritað af endurskoðanda félagsins, Deloitte hf., með svokallaðri könnunaráritun. Endurskoðandi félagsins gerir fyrirvara í áritun sinni vegna atburða sem áttu sér stað eftir lokadag reikningsskilanna. Tap var af rekstri félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2008 nam 170.000.000 evrum. Heildareignir félagsins 30. september 2008 voru 6.275.900.000 evrur og eigið fé félagsins var á sama tíma 1.987.300.000 evrur. Loks var handbært fé 30. september 2008 287.600.000 evrur. Samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu sem birt var í kauphöll var eiginfjárhlutfall félagsins að teknu tilliti til víkjandi skuldabréfs 36%. Eins og áður þá færði félagið eignarhluti sína í Kaupþing banka hf. og Sampo Oyj samkvæmt svokallaðri hlutdeildaraðferð sem gerði það að verkum að eignarhlutur Exista hf. í fyrrgreindum félögum var 30. september 2008 metinn 1.245.900.000 evrum meiri í árshlutauppgjöri félagsins fyrir fyrstu níu mánuði ársins en markaðsverð eignanna samkvæmt skráðu gengi í kauphöll sagði til um.

Ákærði Guðmundur Örn hefur borið fyrir dómi að hefur skýrt frá því fyrir dómi að fjárstýringardeild fyrirtækja, eins og sparisjóðurinn, haldi utan um fjármögnun fyrirtækisins. Oft sé til fé umfram daglegar þarfir en einnig skorti fé tímabundið. Sé þá leitað á millibankamarkað eða markað með laust fé, enda sá markaður ekki bundinn við banka eina. Þeir sem þátt tóku í þessum markaði hafi verið sveitarfélög, ríkisstofnanir, Landsvirkjun, Íbúðalánasjóður og stór fyrirtæki eins og Icelandair og Exista hf. Hafi SPRON tekið ríkan þátt í þessum markaði í mörg ár. Menn hafi þar skipst á tölvuskeytum og leitað að eða boðið fram peninga til skamms tíma. Hafi hlutirnir gerst hratt á þessum markaði, enda menn þekkt vel til hver hjá öðrum. Hafi lánsumsókn Existu hf. borið að með þessum hætti, en félagið hafi verið aðili að þessum markaði og fengið áður slík lán hjá sparisjóðnum, 500 milljónir og 1½ milljarð, án sérstakra trygginga. Hafi þau lán greiðst með skilum. Lánið 30. september 2008 hafi verið hefðbundið peningamarkaðslán að öðru leyti en því sem tók til fjárhæðarinnar.   Hann segir peningamarkaðslán hafa verið til skamms tíma og ekki verið teknar tryggingar og í þessu tilfelli hafi ekki verið tekin trygging vegna þess hve fjárhagsstaða Existu hf. var sterk, með eigið fé um 300 milljarða króna og lausafjárstaða þess hafi verið svo sterk að dygði félaginu í nærri heilt ár. Hafi félagið verið eitt öflugasta fyrirtæki landsins á þessum tíma. Um peningamarkaðslán hafi gilt sömu sjónarmið, venjur og siðir og um venjuleg útlán, enda að því miðað að lánin greiddust. Hafi öll sjónarmið um varúð verið þau sömu um þessi lán og venjuleg útlán og einnig áttu þessi lán að skila hagnaði fyrir lánveitandann. Ákærði segir Valgeir Matthías Baldursson, yfirmaður fjármálasviðs SPRON, hafa sent lánsbeiðnina til ritara ákærða fyrir fundinn.

Ákærði segir að á þessum tíma hafi ýmislegt gerst á fjármálamörkuðum bæði erlendis og hér sem ekki voru fordæmi fyrir. Þannig hafi ríkissjóður og seðlabankinn verið búnir að yfirtaka Glitni banka og áður haft afskipti af Landsbankanum og þessir atburðir haft áhrif á alla fjármálastarfsemi hér og erlendis. Ákærði segir að heimilt hafi verið að lána án sérstakra trygginga og vísar til dæmis í grein 3.3. í útlánareglunum um það. Hann segir að í sparisjóðnum hafi skipulega verið tekið saman yfirlit um tryggingastöðu sparisjóðsins varðandi öll lán úr sjóðnum í samræmi við grein 3.1 í lánareglunum og yfirliti um það komið til stjórnarinnar. Um árshlutaskýrslu Existu hf. janúar – júní 2008, sem lá fyrir stjórninni, segir ákærði að þar komi fram þau aðalatriði sem horft sé til þegar staða lántaka er metin: eigið fé, rekstrarafkoma og greiðslugeta. Um hlutdeildaraðferð í reikningum Existu hf. segir ákærði aðspurður að sú uppgjörsaðferð hafi ekki haft áhrif á mat manna á félaginu. Reikningshald félagsins hafi verið í föstum skorðum og sætt ytri og innri endurskoðun óskyldra aðila. Sé þessi uppgjörsaðferð í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Hafi þeim í sparisjóðnum verið kunnugt um að þarna hefði orðið breyting á miðað við fyrri tvo ársfjórðunga. Hafi þessi munur skýrst af lækkandi hlutabréfaverði og Exista hf. hafi ekki dregið dul á hann heldur þvert á móti vakið athygli á honum í skýrslunni. Markaðsvirði fyrirtækisins hafi einnig tekið mið af þessu og það lækkað meira í verði en undirliggjandi eignir gáfu tilefni til. Hann segist hafa fylgst með rekstrinum eftir 30. júní og hafi orðið framhald á taprekstri félagsins. Aftur á móti hafi fjöldi fyrirtækja gengið vel, þar með talin fyrirtæki í eigu Existu hf., þótt hlutabréf hafi farið lækkandi. Ákærði segist aðspurður almennt ekki hafa fylgst með einstökum peningamarkaðslánum og þá enn síður stjórn sparisjóðsins, enda rík hefð fyrir því að stjórnir útlánastofnana hafi almennt ekki haft aðgang að upplýsingum um einstaka viðskiptamenn. Hafi Valgeir Matthías Baldursson, yfirmaður fjármálasviðs SPRON, sent lánsbeiðnina til ritara ákærða. Spurður um hlutabréfeign sína í SPRON og Existu hf. kveðst ákærði hafa átt tífalt meira í sparisjóðnum en hann átti í Existu hf. Ákærði Ari Bergmann, sem auk þess að sitja í stjórn sparisjóðsins, stýrði einu af útibúunum, kveður heimilt hafa verið að veita peningamarkaðslán án trygginga eins og sérstaklega sé fjallað um í grein 3.3 í lánareglunum. Þetta tiltekna lán hafi verið hentugt skammtímalán og greiðslu- og lausafjárstaða Existu hf. hafi verið mjög jákvæð næstu níu mánuðina. Hafi eigið fé félagsins verið 37%, sem þyki gott, jafnvel í góðæri. Ákærði bendir á það að erlendar eignir Existu hf. hafi hækkað í verði vegna gengislækkunar krónunnar. Þá hafi menn rætt efnahagsmál og nokkurrar bjartsýni hafi gætt vegna orða forsætisráðherra sem skilin hafi verið svo að staða bankanna hefði verið styrkt og efnahagslífið þar með. Þá hafi verið stefnt að sameiningu við Kaupþing sem hafi lofað mjög góðu og loks hafi fréttir af því að al-Thani hefði fjárfest í Kaupþingi verið taldar lofa góðu um efnahagslífið í heild. Hafi menn litið svo á að botninum væri náð í efnahagslægðinni, að nú sæi til lands og horfur fremur bjartar. Ákærði segir rekstur sparisjóðsins hafa verið þröngan um þetta leyti vegna skorts á lausafé og aðhalds. Þannig hafi lánið til Existu hf. komið sér vel á þessum tíma enda brýnt að koma fé í ávöxtun og gott að geta lánað það út í einn mánuð. Hefðu peningarnir legið inni í sparisjóðnum í stað þess að lána þá út hefði SPRON eðlilega orðið fyrir tapi. Hann segist aðspurður ekki hafa séð fyrir sér þennan dag hrun á fjármálamörkuðum sem reið yfir skömmu síðar og allt hafi bent til þess að Exista hf. yrði gjaldfær á gjalddaga lánsins. Hafi hann fyrst og fremst verið að gæta hagsmuna SPRON þegar lánið var veitt. Hafi hann ekki átt hlut í Existu hf. og enga persónulegra hagsmuni undir láninu. Aftur á móti hafi hann átt hlut í sparisjóðnum.

Ákærði Jóhann Ásgeir kveður Existu hf. hafa fjármagnað sig að miklu leyti á peningamarkaði, eins og mörg önnur fyrirtæki geri. Engar sérstakar tryggingar hafi verið settar fyrir þessu láni enda hafi það verið í samræmi við öll önnur peningamarkaðslán hérlendis og í samræmi við það sem tíðkaðist á alþjóðlegum peningamarkaði. Hann segir eigið fé félagsins hafa verið 300 milljarðar en þennan tiltekna dag hafi eigið fé verið metið 93 milljarðar á markaði, sem þeir í sparisjóðnum álitu vera of lágt mat.  Miðað við hlutdeildaraðferðina megi segja að lánið hafi þennan dag numið um 3% af eigin fé Existu hf. Þá hafi þetta lán verið með gjalddaga langt á undan mörgum öðrum lánum úr sjóðnum. Staða Existu hf. hafi oft verið til umræðu í sparisjóðnum, enda stór hluti af eignum sparisjóðsins. Þá kvaðst hann hafa verið í sambandi á þessum tíma við ráðamenn í félaginu sem hafi fullyrt að staða félagsins og fjármögnun væri einstaklega góð. Sjálfur hafi hann einnig þekkt til eigna þess og haft mikið álit á félaginu.

Ýmsar blikur hafi verið á lofti í fjármálum frá því árslok 2007 en menn hafi talið að yfirvöld væru að bæta stöðuna og almennt hafi menn álitið að Existu hf. hefði tekist mjög vel að undirbúa sig fyrir erfiðleikana. Glitnir hafði þá átt í vandræðum en þau vandræði hefðu verið leyst og ríkið gert ráðstafanir til þess að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu og fjármögnun bankanna í framtíðinni. Hafi það verið sérstaklega rætt í stjórninni hvort skynsamlegt væri að veita lánið með hliðsjón af öllu þessu. Hefðu starfsmenn bankans fullyrt að svo væri, þeir Valgeir Matthías og Guðmundur Örn. Hann segir að meðbyr hafi verið í innlánum til sjóðsins vegna almenns trausts sem hann naut, andstætt því sem komið hafði á daginn með Glitni. Hafi þeim verið sagt, stjórnarmönnunum, að lánið til Existu hf. , sem hafi verið stórt, væri góð leið til þess að ávaxta fé sparisjóðsins. Hafi upplýsingarnar sem voru veittar á fundinum bent til þess að staða Existu hf. væri mjög sterk samkvæmt sex mánaða uppgjörinu og nýjustu upplýsingum. Þá væri félagið án alls vafa fjármagnað til langs tíma, 76 vikna, eftir því sem kom fram í kauphöllinni. Upplýsingar af þessu tagi séu mjög verðmyndandi og ekkert hefði komið fram fyrir fundinn sem breytti því. Hefði Exista hf. verið einn besti lánveitandi sem völ var á á þessum tíma. Síðan hafi orðið ótrúlegar hamfarir, hrun Kaupþings, setning neyðarlaganna, sem hann kveðst ekki hafa séð fyrir, og hafi þær sópað öllu á brott. Að því er varðar sérstakar tryggingar við slíkar aðstæður, efnahagshrun, verði að hafa í huga að oft séu þær til einskis. Litið hafi verið svo á að markaðshæfar eignir Existu hf. sem hafi verið eigið fé í alþjóðlegum, skráðum fyrirtækjum gerði sérstakar tryggingar óþarfar. Hann segir að þegar stjórnin tók ákvörðun um lánið hafi verið höfð hliðsjón af því sem vitað var um ástand á fjármálamörkuðum, sem fundargerðin vitnar til. Þá segir hann aðspurður að stjórnin hafi ekki verið í aðstöðu til þess að kanna hvort þær upplýsingar sem hún fékk frá stjórnendum sparisjóðsins væru réttar. Reyndar sé engin ástæða til þess að ætla annað en að þeir hafi einnig álitið þær réttar.

Ákærði segir að rekstur sparisjóðsins á þessum tíma hafi ekki verið arðbær og lánið hafi verið kynnt þannig að það myndi skapa arð, að sparisjóðurinn væri með nægilega sterka eiginfjárstöðu og að lausafjárstaðan leyfði lánveitinguna. Þá hafi menn haft í huga að lánveitingin var til skamms tíma og á góðum vöxtum en erfitt hafi verið á þessum tíma að ávaxta fé á viðunandi kjörum, „að ná sér í vaxtamun“.

Ákærða Margrét hefur sagt að á fundinum, sem hafi verið daginn eftir fall Glitnis, hafi komið fram sú skoðun að með þessu áfalli væri botninum náð. Hún tekur fram að viðskiptalífið sveiflist ævinlega og engin vegur sé til þess að meta það á hverjum tíma hversu mikið. Erfiðleikar í efnahagslífinu hafi verið ræddir á fundinum en nýlegar fréttir um kaup al-Thanis á Kaupþingi hafi aukið mönnum traust á fjármálakerfinu. Hafi hún sannfærst um að Kaupþing væri sterkasti banki landsins og þar með stæði Exista hf. sterkt að vígi enda átti félagið stóran hlut í bankanum. Hafi Exista hf. jafnframt verið talið eitt af traustustu fyrirtækjum landsins. Kveðst hún hafa spurt út í málið, þar með sérstaka tryggingu fyrir láninu en því verið svarað að nægileg trygging lægi í efnahagsreikningi Exista hf. og það hafi verið skýrt á greinargóðan hátt. Kveðst hún hafa verið sömu skoðunar út frá reynslu sinni í viðskiptum. Þá hefði Erlendur Hjaltason upplýst að lausafjárstaða félagsins væri góð í næstu níu mánuði. Engin afkomuviðvörun hafði borist um Existu hf., sem hefði verið skráð félag í Kauphöll Íslands, frá því að uppgjörið hafði verið birt og fram að stjórnarfundinum. Ennfremur hafi verið upplýst að CAD-hlutfallið væri „í lagi“. Kveðst hún hafa litið á þessa lánsumsókn sem tekjumöguleika sem óverjandi hefði verið að nýta ekki. Hún kveðst ekki hafa vitað hvaðan féð var komið sem lánað var út til Existu hf. en eins og málið hafi horft við stjórninni hafi verið um það að ræða að skylt var að koma fjármagni í ávöxtun, heiðarlega og reglum samkvæmt. Hún segir sparisjóðinn hafa verið rekinn með tapi á þessum tíma og lánveitingin hafi verið til þess að afla tekna og í samræmi við þau markmið sem sparisjóðurinn hafði sett sér. Þá hefði legið fyrir að sams konar lán hefðu verið veitt Exista hf. fyrr á árinu og greiðst með skilum. Spyrja megi í hvaða stöðu sparisjóðurinn verið ef ekki hefði verið reynt að afla sér tekna á þessum tíma. Enginn hefði hins vegar getað séð fyrir þá atburði sem urðu skömmu seinna.

Ákærða Rannveig segir Existu hf. hafa verið stórt og öflugt félag með dreifða áhættu og mjög fjölbreytta starfsemi. Þá hafi og lánið verið með eðlilegum vaxtakjörum. Viðskipti Kaupþings við al-Thani hefðu verið kynnt viku áður en þessi fundur var og það aukið mönnum mjög trú á bankanum. Þá hafi stjórnvöld komið Glitni til bjargar. Seðlabankinn lánað Kaupþingi marga milljarða viku eftir lán SPRON til Existu hf. þannig að almennt hafi menn haft trú á styrk bankans og að hann gæti staðist áföllin. Töldu menn að botninum væri náð. Stjórnin hafi ekki séð fyrir fall fjármálakerfisins, né heldur fall Kaupþings. Það sem fellt hafi Kaupþing hafi verið bresku hryðjuverkalögin, sem engin leið hafi verið að sjá fyrir. Ákærða kveðst hafa litið svo á að heimilt væri að lána svo mikið fé sem hér um ræðir án sérstakra trygginga og það þótt til lengri tíma væri. Ákærða vekur athygli á uppgjöri Existu 30. september 2008, sama dag og fundurinn var haldinn, unnið í nóvember 2008 og yfirfarið af endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte sem ekki hafi gert athugasemdir við stöðuna 30. september. Þar komi fram að eigið fé Existu hf. hafi 30. júní verið 286 milljarðar hafði hækkað í 290 milljarða 30. september, en eiginfjárhlutfall hefði lækkað úr 37% í 36%. Engar efaraddir hafi komið fram á fundinum um stöðu Existu hf., en það hafi þá verið eitt stærsta félag landsins, öflugt og með dreifða starfsemi. Félagið hafi verið skráð í Kauphöllinni og þaðan hafi engar vísbendingar borist um að neitt væri athugavert við hag þess. Hafi öll gögn sem kynnt voru á fundinum um Existu hf. borið með sér að félagið væri sterkt. Þá hafi komið fram eftir á að hluthafar Existu hf. hafi metið verðmæti hlutabréfa í félagsins daginn fyrir fundinn í stjórn sparisjóðsins vera 93 milljarða. Hefði þannig mikið þurft að ganga á til þess að þessir 2 milljarðar fengjust ekki greiddir á gjalddaga 30 dögum síðar. Aðspurð segir ákærða ekki hafa vitað hvaðan féð kom sem Exista hf. fékk að láni. Hún segir útlánareglurnar sem settar voru af stjórn sjóðsins ekki hafa tekið til peningamarkaðslána. Stjórnin sé æðsta vald í málefnum sparisjóðsins á milli hluthafafunda og geti vikið frá lánareglum sjóðsins.

Valgeir Matthías Baldursson hefur borið að á stjórnarfundinum hafi hafi það legið fyrir að staða félagsins hafi þá verið metin mjög sterk vegna stöðu eignanna og árshlutareikningsins þar sem fram hafi komið að félagið ætti gríðarmikið eigið fé og jafnframt laust fé til þess að mæta skuldbindingum sínum fram til ársloka 2009. Hafi félagið verið með traustustu lántökum á þessum tíma. Hann kvað bréf Existu hf. hafa lækkað í verði fram að fundinum en tekur fram að þá hafi engin leið verið til þess að gera ráð fyrir kreppunni sem reið yfir skömmu síðar og leiddi til falls félagsins. Hann segir að það hafi ekki verið talið heppilegt að liggja inni með peninga í sparisjóðnum heldur hafi verið lagt kapp á það að lána þá út til þess að þeir bæru vexti.

Páll Árnason, áður starfsmaður áhættustýringar SPRON, segist hafa álitið Existu hf. vera gott fyrirtæki og mönnum hafi fundist áhættulaust að lána því fé. Lánið sem veitt var 30. september hafi þannig aðeins numið 0,7% af eigin fé Existu hf. Fjármálahrunið hafi hins vegar breytt öllu.

Erlendur Hjaltason, stjórnarformaður SPRON á þeim tíma sem um ræðir og jafnframt forstjóri Existu hf., segir að fjárhagur Existu hf. hafi staðið traustum fótum á þessum tíma. Hafi bókfært eigið fé félagsins verið 2 til 2,3 milljarðar evra en tap hafi verið mánuðina á undan. Þrátt fyrir það hafi hann metið stöðu félagsins mjög trausta.  Þá segir Samkvæmt níu mánaða uppgjöri félagsins síðar þennan umrædda dag hafði eigið fé lækkað um 300 milljónir evra, þannig að eigið fé Existu hf. hafi verið um 2 milljarðar evra. Aðspurður um þrönga lausafjárstöðu sparisjóðsins á þessum tíma svarar hann því að menn hafi reynt að bæta hana en það þýði ekki að útlánum yrði hætt enda hafi inn- og útlán verið grunnrekstur sparisjóðsins.

C Að virtu því sem nú hefur verið rakið telur dómurinn sannað að fyrir stjórnarfundinum 30. september 2008 hafi legið síðasta árshlutauppgjör Existu hf. og hafi á fundinum verið farið yfir helstu tölur úr uppgjörinu sem skiptu máli um lánshæfi fyrirtækisins. Fyrir liggur að Exista hf. var fyrirtæki sem skráð var á markað og bar upplýsingaskyldu sem slíkt. Þá liggur einnig fyrir að Exista hf. hafði fyrr á sama ári fengið peningamarkaðslán hjá SPRON og þannig verið metið hæft til að eiga í slíkum viðskiptum við sparisjóðinn. Að síðustu lá fyrir að innan sparisjóðsins var fyrir hendi veruleg þekking á málefnum fyrirtækisins og þróun þess. Höfðu hinir ákærðu stjórnarmenn því réttmæta ástæðu til að ætla að þær upplýsingar sem starfsmenn sparisjóðsins veittu þeim væru fullnægjandi og traustar.

Samkvæmt framangreindu er ekkert komið fram í málinu sem styður það ákæruatriði að hinir ákærðu stjórnarmenn hafi látið hjá líða að afla upplýsinga um greiðslugetu og eignastöðu Existu hf. eða kynna sér slíkar upplýsingar. Þvert á móti bendir það sem rakið hefur verið til hins gagnstæða og þá þess að stjórnin hafi byggt ákvörðun sína á nýjustu upplýsingum um félagið sem tiltækar voru. Þótt fyrir liggi að markaðsvirði Existu hf. hafði lækkað umtalsvert mánuðina á undan er það einnig álit dómsins að stjórnin hafi engu að síður mátt ætla að fyrirliggjandi upplýsingar væru í meginatriðum áreiðanlegar.

D Í ákæru kemur ekki fram hvers vegna ákærðu hafi verið óheimilt að lána Existu hf. án trygginga og mætti jafnvel skilja ákæruna svo að útlánareglur SPRON hafi fortakslaust bannað slík lán. Með hliðsjón af því að svo er ekki hefði með réttu átt að víkja að þessu atriði í ákærunni sjálfri eða a.m.k. í röksemdum með ákærunni.

Að virtum málatilbúnaði ákæruvaldsins verður ákæran engu að síður skilin á þá leið að við þær aðstæður sem verið hafi uppi 30. september 2008, þ.á m. að virtum fyrirliggjandi upplýsingum um Existu hf. og stöðu sparisjóðsins, hafi ákærðu borið, samkvæmt útlánareglum sparisjóðsins, að hlutast til um að veittar væru tryggingar vegna lánveitingarinnar. Með hliðsjón af því að ekki verður talið að vörnum ákærðu hafi verið áfátt vegna óskýrleika í ákærunni um þetta atriði verður þessi skilningur á ákærunni lagður til grundvallar úrlausn málsins að þessu leyti.

Af hálfu ákærðu hefur verið dregið í efa að útlánareglur SPRON hafi yfirhöfuð gilt um ákvarðanir stjórnar um útlán. Framburður þeirra sem komu fyrir dóm var nokkuð á reiki um hvort litið hafi verið svo á að útlánareglurnar giltu um peningamarkaðslán og þá hvort reglurnar hafi gilt fullum fetum um slík lán. Samkvæmt grein 1.1. í útlánareglum taka reglurnar til lána, ábyrgða og hvers kyns samninga sem hafa útlánagildi. Í málinu liggur fyrir að talið var nauðsynlegt að fá samþykki stjórnar fyrir umræddu peningamarkaðsláni þar sem lánveitingin færi umfram heimildir forstjóra. Verður sú málsmeðferð innan sparisjóðsins ekki skilin á aðra leið en að grein 1.8. í útlánareglum um lánaheimildir hafi verið talin gilda um veitingu peningamarkaðslánsins. Bendir þetta eindregið til þess að lánareglurnar hafi gilt um peningamarkaðslán, a.m.k. þær meginreglur sem þar komu fram. Fær sú niðurstaða einnig stoð í framburði þeirra starfsmanna lausafjárstýringar SPRON sem komu fyrir dóminn. Samkvæmt þessu verður að hafna fullyrðingum um að lánareglur sparisjóðsins hafi alls ekki gilt um veitingu þess láns sem hér um ræðir. Á hinn bóginn er ljóst að reglurnar eru ekki sniðnar að þessari tegund útlána og gátu því einungis veitt takmarkaða leiðbeiningar um meðferð þeirra.

Lánareglur SPRON bera með sér að að þær voru fyrst og fremst ætlaðar stjórnendum og öðrum starfsmönnum sparisjóðsins til þess að fara eftir við lánveitingar til einstaklinga og fyrirtækja. Voru þær voru settar af stjórninni, sem fór með æðsta vald um lánveitingar og bar á þeim ábyrgð, sbr. meðal annars greinar 1.7 og 5.8. í útlánareglum. Er einnig af þessum sökum ljóst að útlánareglurnar gátu aðeins veitt stjórninni mjög almennar leiðbeiningar við ákvörðun hennar 30. september 2008. Hvað sem þessu líður telur dómurinn hafið yfir vafa að stjórn sparisjóðsins hafi verið skylt að gæta þeirra meginsjónarmiða sem fram komu í reglunum, þ.e. að lánið væri veitt á faglegum og viðskiptalegum forsendum að fengnum áreiðanlegum upplýsingum um fjárhagsstöðu, greiðslugetu og viðskiptasögu lántakans. Einnig leiddi af þessum reglum að stjórninni bar að gæta þess að áhætta af lánveitingunni væri ekki óhæfileg með hliðsjón af greiðslugetu og tryggingum sem settar væru.

Svo sem áður greinir segir í grein 1.5. í lánareglum sparisjóðsins að kröfur sparisjóðsins til trygginga fyrir láni skuli taka mið af fjárhagslegum styrk viðskiptavinar og tímalengd lánveitingar. Eins og fram kemur í greinum 1.7. og 5.8. hafði sparisjóðsstjórn eftirlit með lánamálum SPRON og bar á þeim ábyrgð. Í greinum 5.8. segir ennfremur stjórnin skuli ákveða hvort veita skuli lán um lán þegar svo stendur á að heildarskuldbinding lántakanda er umfram 10% af CAD- hlutfalli eigin fjár sjóðsins. Af þessum ákvæðum reglnanna er ljóst að stjórn sparisjóðsins hafði formlega heimild til að lána traustum fyrirtækjum fé án trygginga.

Með ákvörðun hinna ákærðu stjórnarmanna var Existu hf. veitt peningamarkaðslán í 30 daga. Þann tíma verður að telja langan þegar um er að ræða ráðstöfun af þessari tegund. Jafnframt lá fyrir að lánið nam svo verulegri fjárhæð að samþykki stjórnar var nauðsynlegt, en mjög sjaldgæft var að stjórn fjallaði um einstakar lánveitingar með þessum hætti. Þá hafði gerningurinn það í för með sér að áhætta SPRON gagnvart Existu hf. nam 20% af CAD-hlutfalli eigin fjár sparisjóðsins en þó innan við 25% af CAD-hlutfalli, sbr. grein 1.8. í lánareglum og 3. gr. þágildandi reglna fjármálaeftirlitsins nr. 216, 2007 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum. Þótt telja verði ósannað að hinum ákærðu stjórnarmönnum hafi verið kunnugt um tengsl lánveitingarinnar við peningamarkaðslán VÍS hf. til SPRON, var þannig augljóslega um að ræða ákvörðun sem var umfram venjulega ráðstöfun lausafjár sparisjóðsins. Þótt einnig sé ljóst að einstök peningamarkaðslán verða, út af fyrir sig, ekki veitt gegn tryggingum er þess einnig að gæta að tryggingar geta staðið að baki peningamarkaðslánaviðskiptum, t.d. tryggingarbréf sem ætlað er að tryggja hvers kyns skuldbindingar lánþega við lánveitandann. Veiting trygginga af hálfu Existu hf. vegna peningamarkaðsviðskipta við sparisjóðinn var því einn þeirra kosta sem stjórnin gat tekið afstöðu til í því skyni að minnka áhættu sparisjóðsins. Engu að síður lá fyrir að ekki var tíðkanlegt að krefjast trygginga vegna einstakra peningamarkaðslána og engar hugmyndir um tryggingar af hálfu Existu hf. munu hafa komið fram af hálfu starfsmanna sparisjóðsins á stjórnarfundinum 30. september 2008.

E Eins og áður hefur komið fram voru verulegir erfiðleikar og óvissa á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum á þeim tíma sem hér ræðir og var því ástæða til að gæta varkárni við ákvörðun um veitingu láns sem nam verulegri fjárhæð af eiginfjárgrunni sparisjóðsins. Á hitt er að líta að aðgerðir og yfirlýsingar yfirvalda 29. september 2008 gáfu nokkurt tilefni til þess að auka tiltrú á því að unnt yrði að ná stöðugleika á íslenskum fjármálamarkaði. Þrátt fyrir blikur á lofti verður þannig ekki talið að ákærðu hafi mátt sjá fyrir það hrun á fjármálamörkuðum sem varð stuttu síðar.

Ekki verður fram hjá því litið að öllum ákvörðunum um viðskipti fylgir, eðli málsins samkvæmt, nokkur áhætta, jafnvel peningamarkaðslánum sem veitt eru sterkum fyrirtækjum til stutts tíma. Svo sem áður greinir var stjórn SPRON við ákvörðun sína innan formlegra heimilda sinna samkvæmt útlánareglum og Exista hf. var meðal þeirra fyrirtækja sem almennt var metið hæft til að fá peningamarkaðslán hjá sparisjóðnum. Þá hafði fyrirtækið fyrr á árinu fengið slík lán svo að nam umtalsverðum fjárhæðum, líkt og áður greinir. Fyrirliggjandi upplýsingar úr uppgjörum Existu hf., sem áður hefur verið gerð grein fyrir, bentu til þess að félagið stæði styrkum fótum og greiðslugeta þess til skamms tíma væri hafin yfir vafa. Þannig var eigið fé félagsins samkvæmt 6 mánaða uppgjörinu 2.284.200.000 evrur og eiginfjárhlutfall að teknu tilliti til víkjandi fjármögnunar 37%. Einnig var handbært fé félagsins á sama tíma 303.400.000 evrur sem átti, samkvæmt tilkynningu frá félaginu, að tryggja endurfjármögnunarþörf þess fram í desember 2009 og gera því kleift að standa við skuldbindingar sínar, a.m.k. fram til þess tíma.

Að þessu öllu athuguðu telur dómurinn ekki unnt að líta svo á að aðstæður hafi verið þannig hinn 30. september 2008 að ákærðu Ara, Jóhanni Ásgeiri, Margréti og Rannveigu hafi bersýnilega borið að kalla eftir sérstökum tryggingum af hálfu Existu hf. þannig að þau teljist hafa farið út fyrir heimildir sínar og þar með misnotað aðstöðu sína með því að samþykkja umrætt lán með þeim hætti sem gert var. Áður hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að ekkert styðji það ákæruatriði að hinir ákærðu stjórnarmenn hafi látið hjá líða að afla upplýsinga um greiðslugetu og eignastöðu Existu hf. eða kynna sér slíkar upplýsingar. Verða þessi ákærðu því sýknuð af ákærunni.

F Ákærði Guðmundur Örn, sem ekki átti sæti í stjórn SPRON, sætir engu að síður ákæru fyrir að hafa tekið þátt í umræddri lánveitingu með sama hætti og hinir ákærðu stjórnarmenn. Í ákærunni er ákærði Guðmundur Örn þannig hvorki sakaður um að hafa vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart stjórn SPRON við undirbúning ákvörðunar hennar um veitingu lánsins né um að hafa með öðrum hætti misnotað sér aðstöðu sína sem forstjóri SPRON í þágu hagsmuna Exista hf. sem hann gengdi einnig trúnaðarstörfum fyrir. Hvað sem líður vitneskju þessa ákærða um tengsl umræddrar lánveitingarinnar við peningamarkaðslán VÍS hf. til SPRON verður ekki fram hjá því horft að ákærði Guðmundur Örn hvorki hafði heimild til þess að skuldbinda SPRON við þær aðstæður sem voru uppi, né tók hann formlega þátt í ákvörðun stjórnarinnar um lánveitinguna. Þegar af þessari ástæðu verður hann ekki sakfelldur fyrir þá ákvörðun stjórnar sem áður greinir. Verður af þessari ástæðu að sýkna ákærða Guðmund Örn.

G Með hliðsjón af framangreindum lyktum málsins ber, samkvæmt 2. mgr. 218. gr. laga um meðferð sakamála, að leggja allan sakarkostnað á ríkissjóð, þ.m.t. málsvarnarlaun og kostnað verjenda ákærðu, að meðtöldum virðisaukaskatti, Andra Árnasonar hrl., verjanda ákærða Guðmundar Arnar, 7.203.966 krónur, Daníels Ísebarn Ágústssonar hrl., verjanda ákærða Ara Bergmann, 6.132.885 krónur, Guðmundar Ágústssonar hrl., verjanda ákærða Jóhanns Ásgeirs, 4.092.000 krónur, Páls Rúnars M. Kristjánssonar hdl., verjanda ákærðu Margrétar, 9.176.310 krónur, og Óttars Pálssonar hrl., verjanda ákærðu Rannveigar, 6.060.797 krónur.

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari er sammála niðurstöðu dómsins um sýknu og ákvörðun sakarkostnaðar en er ósammála tilteknum ályktunum sem fram koma í forsendum hans, svo sem nánar er gerð grein fyrir í meðfylgjandi séráliti hans.

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan ásamt Skúla Magnússyni héraðsdómara og Arnari Má Jóhannessyni löggiltum endurskoðanda,

DÓMSORÐ:

Ákærðu, Guðmundur Örn Hauksson, Ari Bergmann Einarsson, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist, eru sýkn af ákæru í máli þessu.

Málsvarnarlaun og kostnaður verjenda ákærðu, Andra Árnasonar hrl., verjanda ákærða Guðmundar Arnar, 7.203.966 krónur, Daníels Ísebarn Ágústssonar hrl., verjanda ákærða Ara Bergmann, 6.132.885 krónur, Guðmundar Ágústssonar hrl., verjanda ákærða Jóhanns Ásgeirs, 4.092.000 krónur, Páls Rúnars M. Kristjánssonar hdl., verjanda ákærðu Margrétar, 9.176.310 krónur, og Óttars Pálssonar hrl., verjanda ákærðu Rannveigar, 6.060.797 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Pétur Guðgeirsson Skúli Magnússon Arnar Már Jóhannesson Sérálit Péturs Guðgeirssonar héraðsdómara.

Ég álít að stjórn sparisjóðsins geti, eðli málsins samkvæmt, ekki talist hafa verið formlega bundin af reglum sem hún setti starfsmönnum sjóðsins til þess að fara eftir við regluleg útlán, enda heyrðu mikils háttar ákvarðanir undir stjórnina þegar heimildum starfsmannanna sleppti.  Stjórnin hlaut þó að verða að gæta þeirra þeirra meginsjónarmiða sem reglurnar byggðu á, í þessu tilviki að lánið til Existu hf. væri veitt á faglegum og viðskiptalegum forsendum og að fengnum áreiðanlegum upplýsingum um fjárhagsstöðu, greiðslugetu og viðskiptasögu lántakans og loks þess að áhætta af lánveitingunni væri ekki óhæfileg.

Skilja verður ákæruna svo, að hún takmarkist við það að ákærðu hafi misnotað aðstöðu sína sem stjórnarmenn og forstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga í eftirgreindum tveimur atriðum: við það að meta ekki greiðslugetu og eignastöðu félagsins og við það að veita Existu hf. umrætt lán án trygginga, hvort tveggja í andstöðu við útlánareglur sparisjóðsins, og þannig stefnt fé sparisjóðsins í verulega hættu með lánveitingunni til Existu hf. Tengsl milli innláns frá VÍS og lánsins til Existu hf., sem vikið er að í röksemdum með ákærunni og talsvert hefur verið fjallað um í málsmeðferðinni, útheimta ekki sérstaka umfjöllun í dóminum og hafa ekki þýðingu fyrir niðurstöðuna, ekki frekar en það hvort ákærðu teljast vera ákærð fyrir brot í sambandi við lausafjárstöðu sparisjóðsins.

Loks álít ég að taka beri fram í dóminum að þar sem brot teljast hafa verið framin í hvorugu ofangreindra atriða komi ekki til álita hvort ákærði Guðmundur Örn gat stöðu sinnar vegna talist meðábyrgur stjórninni fyrir lánveitingunni.

Að öðru leyti er ég sammála meirihluta dómsins.

Pétur Guðgeirsson