Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. E-37/2016:

Samtök sparifjáreigenda

(Hróbjartur Jónatansson hrl)

gegn

Hreiðari Má Sigurðssyni,

(Hörður Felix Harðarson hrl)

Ingólfi Helgasyni,

(Enginn)

Magnúsi Guðmundssyni, Ólafi Ólafssyni og

(Þórólfur Jónsson hrl)

Sigurði Einarssyni

(Gestur Jónsson hrl)

Frávísun frá héraðsdómi. Skuldamál. Varnarþing.

Máli vísað frá dómi vegna rangs varnarþings.

I.

Mál þetta er höfðað af Samtökum sparifjáreigenda, Borgartúni 23, Reykjavík, með stefnu birtri 10. og 19. febrúar 2016. Stefndu eru Hreiðar Már Sigurðsson, með lögheimili   í   Lúxemborg,   en   sagður   í   stefnu   vera   með   fastan   dvalarstað   að Kvíabryggju,   Grundarfirði,   Ingólfur   Helgason,   með   lögheimili   í   Lúxemborg, Magnús Guðmundsson, með lögheimili í Lúxemborg, en sagður í stefnu vera með fastan dvalarstað að Kvíabryggju, Ólafur Ólafsson, með lögheimili í Sviss, en sagður í stefnu vera með fastan dvalarstað að Kvíabryggju, og Sigurður Einarsson, með lögheimili að Þorragötu 7, Reykjavík, en sagður í stefnu vera með fastan dvalarstað   að   Kvíabryggju.   Málið   var   tekið   til   úrskurðar   um   frávísunarkröfu stefndu Hreiðars Más, Magnúsar, Guðmundar og Sigurðar hinn 10. júní sl. Stefnandi krefst þess aðallega að stefndu verði dæmdir in solidum til að greiða stefnanda 902.493.733 krónur, ásamt vöxtum skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 9. október 2008 til þingfestingardags, en með dráttarvöxtum skv. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Til vara krefst stefnandi þess að stefndu verði dæmdir in solidum til að greiða stefnanda skaðabætur að álitum, ásamt vöxtum skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 9. október 2008 til þingfestingardags, en með dráttarvöxtum skv. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Til þrautavara krefst stefnandi þess að viðurkennd verði skaðabótaskylda stefndu in solidum   gagnvart   stefnanda   vegna   fjártjóns   stefnanda   sem   hlotist   hafi   af markaðsmisnotkun stefndu með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. á tímabilinu 1. nóvember 2007 til 9. október 2008.

Í   öllum   tilvikum   er   krafist   málskostnaðar   að   skaðlausu   samkvæmt   síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati dómsins.

Af hálfu stefndu Hreiðars Más, Magnúsar, Guðmundar og Sigurðar var mætt við þingfestingu málsins og þess krafist með framlagðri bókun að málinu yrði vísað frá dómi. Í kjölfarið neyttu sömu stefndu heimildar í 2. mgr. 99. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til að leggja einungis fram greinargerð um frávísunarkröfuna. Í greinargerðum þessara stefndu er ítrekuð krafa þeirra um að málinu verði vísað frá dómi. Jafnframt krefjast þeir málskostnaðar að mati dómsins.

Stefnandi krefst þess að frávísunarkröfu stefndu verði hafnað.

II.

Stefndu Hreiðar Már, Magnús, Guðmundur og Sigurður byggja frávísunarkröfu sína í fyrsta lagi á því að málið sé höfðað á röngu varnarþingi. Enginn hinna stefndu   eigi   lögheimili   í   þinghá   Héraðsdóms   Vesturlands,   sbr.   2.   tl.   2.   gr. dómstólalaga nr. 15/1998.  Benda þeir á að varðandi val varnarþings gagnvart þeim sé í stefnu vísað til síðari málsliðar 1. mgr. 32. gr. laga nr. 91/1991, en gagnvart stefnda Ingólfi sé vísað til 1. mgr. 42. gr. sömu laga. Fram komi í síðari málslið 1. mgr. 32. gr. að eigi maður fasta búsetu í annarri þinghá en þar sem lögheimili hans sé skráð megi einnig sækja hann í þeirri þinghá. Í athugasemdum við framangreint ákvæði í frumvarpi því er orðið hafi að lögum nr. 91/1991 komi fram að orðin föst búseta í ákvæðinu séu notuð með hliðsjón af ákv. 2. mgr. 1. gr. laga um lögheimili nr. 21/1990 og sé ætlast til þess að þau verði skýrð í samræmi við það. Í því ákvæði komi fram að maður teljist hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hafi bækistöð sína, dveljist að jafnaði í tómstundum sínum, hafi heimilismuni sína og svefnstaður hans sé þegar hann sé ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða,   veikinda   eða   annarra   hliðstæðra   atvika.   Þá   segi   í   3.   mgr.   sömu lagagreinar að dvöl í gistihúsi, fangelsi, vinnuhæli, sjúkrahúsi, athvarfi, heimavistarskóla, verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði, sem jafna megi til þessa, sé ekki ígildi fastrar búsetu. Í stefnu sé sagt að stefndu hafi dvalarstað í fangelsinu á Kvíabryggju, sem sé í Eyrarsveit og í umdæmi Héraðsdóms Vesturlands. Slík dvöl teljist ekki „föst búseta“, eins og skýrt verði ráðið af framangreindum tilvitnum, en það sé ófrávíkjanlegt skilyrði þess að ákvæðinu verði beitt. Að lögum sé því engin heimild til að reka mál þetta fyrir Héraðsdómi Vesturlands, án sérstaks samþykkis stefndu, en slíkt samþykki sé ekki til staðar.

Stefndu byggja í öðru lagi á því að stefna hafi ekki verið birt þeim með lögmætum hætti, en hún hafi verið birt fyrir fangaverði í fangelsinu að Kvíabryggju. Ljóst sé af framangreindri umfjöllun að stefndu eigi ekki „fasta búsetu“ í fangelsinu. Þá liggi fyrir að þeir eigi þar ekki lögheimili. Þegar birta eigi stefnu á stað þar sem stefndi dveljist, fyrir öðrum en honum sjálfum, gildi sú regla skv. 3. mgr. 85. gr. laga   nr.   91/1991   að   birta   verði   stefnu   fyrir   heimilismanni   stefnda.   Hugtakið heimilismaður hafi verið túlkað með þeim hætti að þar sé átt við þá sem haldi heimili með stefnda. Fangavörður á Kvíabryggju verði augljóslega ekki talinn halda heimili með stefndu. Því sé ljós að stefna í máli þessu hafi ekki verið birt með lögmætum hætti.

III.

Til stuðnings því að frávísunarkröfu stefndu verði hafnað vísar stefnandi til þess að í 1. mgr. 32. gr. laga nr. 91/1991 sé kveðið á um að eigi maður fasta búsetu á öðrum stað en hann eigi lögheimili sé heimilt að sækja hann í þeirri þinghá. Stefndu, aðrir en stefndi Ingólfur, hafi verið í afplánun á Kvíabryggju þegar stefnan var birt. Þeir hafi því verið þar með fasta búsetu í skilningi framangreinds ákvæðis. Að því er varði stefnda Ingólf sé um varnarþing vísað til 1. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991.

Fyrir liggi að mætt hafi verið fyrir alla stefndu nema stefnda Ingólf við þingfestingu málsins. Fram komi í 4. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991 að sæki stefndi þing við þingfestingu máls breyti engu þótt stefna hafi ekki verið birt eða komið á framfæri við hann, galli hafi verið á birtingu eða birt hafi verið með of skömmu fyrirvara.

Þá vísar stefnandi til þess að skv. 2. málslið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 91/1991 megi sækja mann sem sé búsettur erlendis í þeirri þinghá þar sem hann sé staddur við birtingu stefnu ef mál varði fjárskyldu hans við mann sem búsettur sé hér á landi eða félag, stofnun eða samtök sem eigi varnarþing hér. Óumdeilt sé að krafa stefnanda á hendur stefndu sé fjárkrafa íslensks aðila og að stefndu, aðrir en Ingólfur, hafi allir verið búsettir erlendis þegar stefnan var birt.

IV.

Fram kemur í stefnu, og sýnist óumdeilt, að allir stefndu eiga lögheimili utan umdæmis Héraðsdóms Vesturlands. Stefndu Hreiðar Már, Ingólfur og Magnús eiga lögheimili í Lúxemborg, stefndi Ólafur á lögheimili í Sviss og stefndi Sigurður á lögheimili í Reykjavík.

Til stuðnings því að sækja málið hér fyrir dómi vísar stefnandi í stefnu til síðari málsliðar 1. mgr. 32. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, en þar kemur fram að eigi maður fasta búsetu í annarri þinghá en þar sem lögheimili hans er skráð megi sækja hann í þeirri þinghá. Tiltekur stefnandi að stefndu Hreiðar Már, Magnús, Ólafur og Sigurður afpláni allir refsidóma í fangelsinu á Kvíabryggju á Snæfellsnesi og teljist þeir því eiga þar fasta búsetu í skilningi ákvæðisins. Þá sé vísað til 1. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991 varðandi heimildina til að höfða málið á hendur   stefnda   Ingólfi   hér   fyrir   dómi.   Í   athugasemdum   í   frumvarpinu   við framangreint lagaákvæði segir meðal annars svo: „Orðin föst búseta eru notuð hér með hliðsjón af ákvæðum 2. mgr. 1. gr. laga um lögheimili nr. 21/1990, og er ætlast til þess að þau verði skýrð í samræmi við það.“ Í tilvitnaðri 2. mgr. 1. gr. laga nr. 21/1990 kemur fram að maður teljist hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðsæðra atvika. Þá er tiltekið í 3. mgr. sömu lagagreinar að meðal annars dvöl í fangelsi sé ekki ígildi fastrar búsetu. Með hliðsjón af þessu verður ekki talið að stefnanda hafi verið heimilt að höfða mál þetta hér fyrir dómi á hendur stefndu Hreiðari Má, Magnúsi, Ólafi og Sigurði á grundvelli framangreindrar heimilisvarnarþingsreglu.

Við munnlegan málflutning um frávísunarkröfu stefndu kom fram hjá stefnanda að hann byggði heimild sína til að sækja málið á hendur stefndu Hreiðari Má, Magnúsi og Ólafi hér fyrir dómi einnig á varnarþingsreglu 4. mgr. 32. gr. laga nr. 91/1991, þar sem fram kemur að sækja megi mann sem búsettur er erlendis í þeirri þinghá þar sem hann er staddur við birtingu stefnu ef mál varðar fjárskyldu hans við mann sem er búsettur hér á landi eða félag, stofnun eða samtök sem eiga varnarþing hér. Stefndu mótmæltu því að stefnandi gæti byggt á þessari varnarþingsreglu þar sem ekki hefði verið vísað til hennar í stefnu. Þar sem ekki er um að ræða nýja málsástæðu, eins og stefndi heldur fram, heldur tilvísun til lagareglu verður ekki á þessi mótmæli fallist. Fram kemur í fyrirliggjandi stefnubirtingarvottorðum að stefna máls þessa var birt fyrir fangavörðum á Kvíabryggju vegna stefndu Hreiðars Más, Magnúsar og Ólafs. Ekki verður af vottorðunum ráðið hvers vegna stefnan var ekki birt fyrir þeim sjálfum, en fyrir liggur hins vegar að stefnan var birt fyrir stefnda Sigurði þar sem hann var staddur á Kvíabryggju. Þá verður heldur ekkert af vottorðunum ráðið hvort þeir Hreiðar Már, Magnús og Ólafur hafi verið staddir á Kvíabryggju þegar stefnubirtingin fór fram eða annars staðar í þinghá dómstólsins. Þar sem stefnandi hefur heldur ekki sýnt fram að það á annan hátt að sú hafi verið raunin verður ekki talið að stefnanda hafi verið heimilt að sækja mál þetta á hendur framangreindum stefndu hér fyrir dómi.

Með hliðsjón af framangreindu, og þar sem stefnandi kveður málssóknina á hendur stefnda   Ingólfi   hér   fyrir   dómi,   og   eftir   atvikum   stefnda   Sigurði,   styðjast   við heimildina í 1. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991, til að sækja málið á varnarþingi annarra   stefndu   í   málinu,   verður   að   telja   að   mál   þetta   sé   höfðað   á   röngu varnarþingi. Verður málinu því vísað frá dómi.

Stefnandi greiði stefndu, Hreiðari Má, Magnúsi, Ólafi og Sigurði, hverjum fyrir sig 300.000 krónur í málskostnað.

Ásgeir Magnússon dómstjóri kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Stefnandi greiði stefndu, Hreiðari Má Sigurðssyni, Magnúsi Guðmundssyni, Ólafi Ólafssyni og Sigurði Einarssyni, hverjum fyrir sig 300.000 krónur í málskostnað.

Ásgeir Magnússon