Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 22. maí 2019.
Mál nr. S-46/2019:
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum
(Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri)
gegn
Wesley Albert Clark
(Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Lykilorð
Ítrekun. Ökuréttarsvipting. Umferðarlagabrot. Umferðarlög.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Mál þetta, sem þingfest var þann 14. mars sl. og dómtekið fimmtudaginn 9. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þann 29. janúar sl., á hendur Wesley Albert Clark, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að morgni miðvikudagsins 1. ágúst 2018 ekið bifreiðinni […] suður Hlíðarveg og sem leið lá að Hólagötu 19 í Vestmannaeyjum án tilskilinna ökuréttinda og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (í þvagi mældist tetrahýdrókannabínólsýra). (Mál nr. 319-2018-3039) Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga.
Ákærði mætti við fyrirtöku málsins þann 9. maí sl. ásamt skipuðum verjanda sínum, Magnúsi Davíð Norðdahl lögmanni. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði tvisvar sinnum áður sætt refsingu. Þann 14. september 2011 var ákærða gerð sekt vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þann 28. janúar 2015 var ákærði fundinn sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án þess að hafa ökuskírteini meðferðis. Var ákærði einnig sviptur ökurétti í tvö ár. Er brot ákærða nú ítrekað öðru sinni.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 95.172 kr. auk þóknunar skipaðs verjanda síns sem er hæfilega ákveðin 84.320 kr. að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærða ökurétti ævilangt, frá birtingu dóms þessa að telja.
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Wesley Albert Clark, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði greiði sakarkostnað samtals, 179.492 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda, Magnúsar Davíðs Norðdahl hdl., 84.320 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Sigurður G. Gíslason.